Tíminn - 09.11.1988, Page 2
2 Tíminn
Miðvikudagur 9. nóvember 1988
Munu íbúar þriðja heimsins labba upp bryggjurnar og taka að sér störfin í landi?
Beitum öllum ráðum til
að hindra að það gerist
„Við munum gera allt sem í okkar
valdi stendur til að tefja fyrir losun
og lestun á skipum Finnboga Kjeld,
komi þau til með að sigla undir
erlendum fána, með erlenda áhöfn
og vera í siglingum til og frá land-
inu“.
Þetta var svar Guðmundar Hall-
varðssonar formanns Sjómannafé-
lags Reykjavíkur þegar hann var
spurður um hugsanlegar aðgerðir
félagsins gegn Víkurskipum.
- En eru slíkar aðgerðir ekki ólög-
legar?
„Við skulum minnast þess að
þegar menn eru að kaupa eigur sínar
aftur og hafa til þess ákveðinn frest,
þá fá þeir um leið tækifæri til að
draga starfsfólk sitt, í þessu tilfelli
sjómenn, enn lengur á launagreiðsl-
um. Ég ætla bara að vona að þetta
mál verði ekki að svipuðu máli og
Hótel Örk, að því verði skotið fyrir
Hæstarétt til að tefja það“.
- En er félaginu stætt á þeim
aðgerðum að tefja löndun og lestun
þessara skipa fyrir það eitt að þau
sigli undir erlendum fána?
„Ja, hvað myndu blaðamenn á
Tímanum gera ef skyndilega flykkt-
ust inn á blaðið skáeygðir menn og
settust í stólana ykkar. Þetta er
nákvæmlega sama dæmið. Ef þeir
væru með atvinnuleyfi þá væri það
ekki löglegt af ykkur að reka þá úr
stólunum en þið mynduð eflaust
gera það samt. Einu myndi ég vilja
koma að, sem ég reyndar sagði í
viðtali við Sjónvarpið á mánudags-
kvöld en var einhverra hluta vegna
látið niður falla, og það er það að ég
tel að tími sé til kominn að íslensk
verkalýðshreyfing vakni af sofanda-
hætti varðandi erlent vinnuafl hér á
landi. Nú þegar er flutt inn erlent
vinnuafl í nokkrum mæli til dæmis í
veitingahúsarekstri, þar verður æ
algengara að útlendingar sjái um
þau störf er áður voru í höndum
íslendinga. Þetta er að gerast á
tímum samdráttar í íslensku at-
vinnulífi og í sama mund og við
horfum beint í andlit atvinnuleys-
isvofunnar.
Þetta hefur verið að gerast og nú
vilja menn að það sama gerist í
flotanum. Spurningin er bara hve-
nær fólk frá þriðja heiminum labbar
upp bryggjurnar og tekur að sér
störfin í landi! Þetta ætlum við ekki
að láta gerast, við ætlum að spoma
við þessari þróun með öllum tiltæk-
um ráðum ekki síst með tilliti til þess
að á undanförnum árum hefur kaup-
skipafloti landsmanna minnkað all
verulega. Farmönnum hefurreyndar
fækkað um 300 á síðustu 10 árum og
við ætlum svo sannarlega ekki að
láta það gerast að íslenski kaup-
skipaflotinn leggist af og hann verði
færður í hendur útlendinga".
Finnbogi Kjeld forstjóri Víkurskipa svarar
w Guömundi Hallvarössyni:
Eg er enginn
stríðsmaður!
Tíminn bar yfirlýsingar Guð-
mundar Hallvarðssonar, formanns
Sjómannafélags Reykjavíkur,
undir Finnboga Kjeld forstjóra
Víkurskipa og þá fyrst hver hans
viðbrögð yrðu ef hótanir Guð-
mundar varðandi löndun og lestun
skipa hans yrði að veruleika.
„Ég er náttúrlega enginn ógur-
legur stríðsmaður og hef ekki gam-
an af ófriði þannig að það verður
að skoðast þegar þar að kemur.
Hitt ber að benda á að á meðan við
höfum flutt inn salt með skipum
okkar og notað til þess innlent
vinnuafl, sigla erlend leiguskip fyr-
ir Eimskipafélag íslands með sömu
vöru til landsins. Þarna er um að
ræða erlend skip með erlendar
áhafnir. Eitt slíkt liggur nú í Hafn-
arfjarðarhöfn. Eimskipafélagið
hefur ekki flutt eitt einasta saltkorn
til landsins með innlendum
skipum. Þeir eru að nota þetta
ódýra vinnuafl og ég sé ekki hvern-
ig ég á að geta keppt við það. Hver
er tilbúinn til að borga þann mis-
mun á vöruverði sem af þessu
skapast? Á ég að koma til minna
viðskiptavina og segja þeim að því
miður verði þeir að borga 50%
hærra verð fyrir vöruna hjá mér
vegna þess að áhöfnin sé íslensk?
Svo er því fleygt fram að það eigi
að láta sjálfan hornstein lýðcæðis-
ins til hliðar. Það á að líta fram hjá
lögum og þess í stað á að ríkja
ofbeldi í landinu. Lög eiga ekki að
vera virt samkvæmt þessu. Ég veit
ekki betur en það sé kennt hverju
barni að því beri að virða lögin. í
tæp þúsund ár hefur máltækið
„Með lögum skal land byggja og
ólögum eyða“ verið í hávegum
haft. Ef það á að setja lögin til
hliðar á þá að ríkja skáltjiöld í
landinu?"
Það var borið undir Finnboga
hvort til greina kæmi af hans hálfu
að selja skip sín og leigja þess í stað
skip erlendis frá með erlendum
áhöfnum. Með öðrum orðum að
leika sama leikinn og Eimskipafé-
lagið virðist gera.
„Af hverju ekki, af hverju ætti
það ekki að geta komið til greina?
Það er alveg Ijóst að við erum ekki
samkeppnisfærir með íslenskt
vinnuafl, við getum ekki lagst á
ríkisjötuna og verðum því með
einhverjum öðrum hætti að leitast
við að vera samkeppnisfærir.
Annaðhvort verðum við að gera
eins og hinir eða að öðrum kosti að
leggja okkar starfsemi niður. Guð-
mundur Hallvarðsson veit það eins
vel og ég að sænski fiotinn er
horfinn undan sænska fánanum,
sömu sögu má segja um danska
flotann og reyndar um megnið af
flota Evrópuríkja. Ástæðan var
einfaldlega sú að þessir aðilar voru
ekki samkeppnisfærir og urðu því
að hrökkva eða stökkva. Það vill
enginn borga þann mismun sem af
mismunandi dýru vinnuafli hlýst.
Ef Guðmundur þekkir einhvern
sem vill borga þennan mismun
fyrir okkur þá stendur ekki á mér
að sigla undir íslenska fánanum,"
sagði Finnbogi Kjeld að lokum.
Hér sést hvernig vatnselgurinn hefur brotið upp malbikið.
Vigdís fer
til Genfar
Forseti íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, fer í dag áleiðis til
Genfar í Sviss. Þar verður forseti
formaður dómnefndar í sam-
keppni Evrópubandalags út-
varps- og sjónvarpsstöðva um
besta sjónvarpsleikritið í ár. Sam-
keppnin er milli 10 höfunda sem
í fyrra hlutu verðlaun fyrir bestu
hugmyndir að sjónvarpsleikriti.
Forseti mun afhenda verðlaun
keppninnar 14. þ.m.
Á meðan dvölinni í Genf
stendur mun forseti heimsækja
alþjóðanefnd Rauða krossins og
alþjóðasamtök Rauða kross fé-
laga.
Frá Genf fer forseti til London.
Þar mun forseti m.a. fara til
hádegisverðar í Buckingham-höll
í boði Bretadrottningar, sækja
aðalfund Viking Society, sem er
félag breskra sérfræðinga í nor-
rænum fræðum, og taka á móti
borgarstjóra Lundúna í íslenska
sendiherrabústaðnum.
í fylgd með forseta íslands
verður Kornelíus Sigmundsson,
forsetaritari.
Vatnsflaumur undir götum Hafnarfjaröar þegar leiðsla gaf sig:
Helmingur bæjarins
án kalda vatnsins
Rúmlega helmingur Hafnarfjarð-
arbæjar varð að vera án kalda vatns-
ins í allan gærdag og ekki var búist
við að viðgerðum lyki fyrr en í
morgun. Kalda vatnið fór af „vestan
lækjar“ eins og þeir sögðu hjá bæjar-
verkfræðingi. Það þýðir það að
vatnslaust varð í helstu iðnaðar-
hverfunum og kalt vatn var aðeins í
suðurbænum.
Hjá bæjarverkfræðingi fengust
einnig þær upplýsingar að sennilega
hefði gömul sprunga í aðalvatnsinn-
taki bæjarins brostið og eins og sést
á meðfylgjandi myndum var vatns-
flaumurinn mikill.
Meðal þeirra fjölmörgu iðnaðar-
fyrirtækja sem urðu að vera án kalda
vatnsins eru fiskverkunarstöðvarnar
Hvaleyri og Norðurstjarnan, einnig
sælgætisverksmiðjurnar Góa, Móna
og Drift. Hjá Hvaleyri fengust þær
upplýsingar að ekki hefði verið full
vinnsla í húsinu, en vatn var keyrt að
til að þrífa og setja á frystivélar svo
hægt yrði að bjarga fiski frá
skemmdum. Það var lán í óláni að
aldrei þessu vant var vinnsla ekki
hafin í Norðurstjörnunni og síld sem
var í móttökunni var talin þola það
að vera geymd til morguns. Hjá
þessum fyrirtækjum og mörgum
fleiri fór starfsemi gærdagsins að
mestu leyti úr skorðum. ssh
r ■ r a r
í bílslysi
Maðurinn, sem lést eftir bílveltu
skammt norðan við bæinn Lóma-
tjörn í Grýtubakkahreppi í Eyjafirði
á sunnudagsmorgun, hét Jón Karl
Baldursson til heimilis að Grýtu-
bakka 1 í Höfðahverfi.
Jón Karl var fæddur 7. september
árið 1963. Hann var ókvæntur og
barnlaus, en bjó með móður sinni að
Grýtubakka, þar sem hann sá um
búið. -ABÓ
Jón Karl Baldursson.
Ökumaður á jeppa lenti í þeirri óskemmtilegu reynslu
að malbikið gaf undan.
Bæjarstarfsmenn mættir á staðinn til að bjarga málun-
um.