Tíminn - 09.11.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 9. nóvember 1988
Nýtt rækjuskip keypt til Drangsness og Hólmavíkur:
Samsvarar alft að 40%
aukningu í vinnslu
Drangavík hf., nýstofnað hlutafélag á Drangsnesi og
Hólmavík hefur fest kaup á rækjuskipinu Akurnesingi AK
og verður skipið afhent nýjum eigendum á morgun. Næsta
víst má ætla að skipið komi til með að bera nafn hlutafélags-
ins, Drangavík. Fyrirhugað er að skipið verði gert út með
óbreyttum hætti, en kvóti skipsins er rúmar 600 lestir af rækju
og um 160 tonn af bolfiski.
Jón Alfreðsson kaupfélagsstjóri á
Hólmavík og stjórnarformaður hins
nýja hlutafélags sagði í samtali við
Tímann að stefnt væri að því að
heilfrysta stærstu rækjuna um borð
og pakka henni í umbúðir fyrir
Japansmarkað, en afgangurinn yrði
unninn og frystur á Drangsnesi og
Hólmavík. Við Norðurland er ekki
óalgengt að um 30% af rækjunni sé
nógu stór til að hægt sé að senda
hana á markað í Japan og því kemur
um 70% inn til vinnslu á Drangsnesi
og Hólmavík. Jón sagði að undan-
farið hefði verið samdráttur í rækju-
veiðunum og þá vantað hráefni,
þannig að þetta væri hugsað til þess
fyrst og fremst að afla húsunum
hráefnis, en ekki að gera út á
Japansrækjuna. Kvóti skipsins sam-
svarar um 20- 40% aukningu á
rækjuvinnslu fyrirtækjanna í Stein-
grímsfirði.
Stærstu hluthafar í Drangavík hf.
eru útgerðarfyrirtækið Hólmadrang-
ur, sem gerir út samnefndan frysti-
togara, KaupfélagSteingrímsfjarðar
Hólmavík og Hraðfrystihús
Drangsness. Jón sagði að til að byrja
með yrði meirihlutinn aðkomumenn
á skipinu, en með því skapast 14 ný
sjómannsstörf fyrir þessa staði, auk
þess sem þjónusta ýmis konar er
nauðsynleg við slík skip. Rækju-
vinnsla er stærsti liður í vinnslu
fyrirtækjanna á Hólmavík og
Drangsnesi, en við hana vinna á
milli 20 og 30 manns á Hólmavík, en
á Drangsnesi um 15 til 20 manns.
Drangavík er 293 brúttórúmlestir
að stærð, smíðuð í Noregi 1978.
- ABÓ
Rekstri veitinga-
staðarins Zeppelin hætt:
Allt of há
húsaleiga
Eins og áður hefur komið fram í
Tímanum var veitingastaðurinn
Zeppelin innsiglaður að beiðni yfir-
valda í síðustu viku. Nú hcfur eig-
andinn, Gunnar Árnason ákveðið
að hætta rekstri staðarins og verður
hann ekki opnaður í núverandi formi
á ný. Gunnar sagði að vegna of
hárrar húsaleigu væri ekki grund-
völlur fyrir að reka stað á borð við
Zeppelin. Sagðist Gunnar marg-
ítrekað hafa reynt að l'á leiguna
lækkaða en án árangurs.
Það sem vekur hinsvegar athygli
er það að enn sem komið er hefur
Gunnar ekki tilkynnt öllu starfsfólki
staðarins að það þurfi ekki að mæta
oftar í vinnuna og því síður hafa
laun fyrir október mánuð
verið greidd. - áma
Innbrot í
Sundlaug Húsavíkur:
25 þúsund
kr. stolið
Brotist var inn í Sundlaug Húsa-
víkur á laugardagsmorgun og stolið
þaðan um 25 þúsund krónum í
peningum, sem geyntdar voru í pen-
ingakassa, sem brotinn var upp. Það
mái upplýstist strax þá um morgun-
inn og höfðu nokkrir strákar verið
þar að verki. - ABÓ
Tveim bikurum
stolið frá KR
Tveim silfurbikurum var stolið úr
bifreið þjálfara kvennaliðs KR í
knattspyrnu, þar sem hún stóð fyrir
utan Grundarland 15 á tímabilinu 10
til 19 á laugardag.
Bikarana átti að afhenda komandi
laugardag, þeirri stúlku sem talin er
efnilegasti leikmaðurinn og til þeirr-
ar sem er talin besti leikmaðurinn í
2. flokki kvenna hjá KR.
Ólíklegt er að þessir bikarar komi
til með að gagnast einhverjum öðr-
um en stúlkunum sjálfum. RLR
vinnur að rannsókn málsins. -ABÓ
Eigendur Hugsjónar (t.h.) þau Guðmundur Kristjánsson og Sonja B. Jónsdóttir og kynlitstræðingamir Jona
Ingibjörg Jónsdóttir og Dr. Mark Schoen. Tímamynd:Pietur.
íslenskar fræðslu-
myndir um kynlíf
Eins og skýrt var frá í Tímanum fyrir skömmu hefur
Hugsjón, sem er nýtt fyrirtæki í kvikmyndagerð, ákveðið
að gera fimm fræðslumyndir um kynlíf. Fræðslumyndirnar
fjalla um Öruggara kynlíf, Unglinga og kynlíf, Fatlaða og
kynlíf, Aldraða og kynlíf og Að gera gott kynlíf betra.
Til aðstoðar við gerð myndanna
hefur Hugsjón fengið til liös við sig
helstu sérfræðinga á sviði kyn-
fræðslu hér á landi ásamt dr. Mark
Schoen, bandarískum kynfræðingi
sem hefur sérhæft sig í gerð
fræðslumynda um kynlíf. Dr.
Schoen starfaði við gerð kyn-
fræðslumyndbanda og kvikmynda
um fimmtán ára skeið en rekur nú
eigið fyrirtæki sem leigir og selur
kynfræðslumyndir til skóla, kyn-
lífsráðgjafa og annarra aðila sem
annast meðferð kynlífsvandamála.
í viðtali við dr. Schoen kom
fram að hlutverk hans varðandi
gerð þessara mynda væri fyrst og
fremst að miðla af reynslu sinni við
gerð fræðslumynda um kynlíf.
Einnig að hjálpa aðstandendum
myndarinnar að gera myndir sem
henta íslenskum raunveruleika og
íslenskum áhorfendum. „Myndir
sem gerðar eru fyrir Bandaríkja-
menn henta ekki endilega hér á
íslandi. Margt er mjög líkt, en svo
eru atriði þar sem munur er á og
menningaratriði sem taka verður
tillit til.“
Dr. Schoen leggur áherslu á að
mikilvægi þess að skapa rétt and-
rúmsloft eða viðhorf á heimilunum
þar sem umræða urn kynlíf og
kynferðisleg málefni verður börn-
unum eðlileg. Það sé mikilvægt að
vera ekki nteð boð, bönn og for-
dóma sem fyrirbyggja eðlilega um-
ræðu um það sem snertir þessa
þætti í mannlegu lífi. „Eðlilegast
er að foreldrarnir séu uppspretta
fróðleiks um það sem snertir kynlíf
og hlutvcrk skólanna er að aðstoða
við það, þeir ciga ekki að koma í
stað foreldranna hvað þetta
varðar. Ég held að allir foreldrar
óski þess að geta rætt eðlilega og
óhindrað um þessa hluti við börnin
sín.“
Dr. Schoen tók einnig fram að
gerð þessara fræðslumynda væri
mjög þarft frumkvæði hér á landi.
Meðal annars væri mikilvægt að
eyða fáfræði og leiðrétta misskiln-
ing varðandi kynlíf fatlaðra og
aldraðra. Til dæmis væri sú hug-
mynd algeng að fatlaðir og aldraðir
hefðu hvorki hvöt eða löngun til
kynlífs. „Við búum öll yfir þessum
tilfinningum, það skiptir engu
hvort við erum gömul eða fötluð.“
Að lokum sagði Dr. Schoen:
„Mér finnst það virkilega slæmt að
það þurfi hræðilegan sjúkdóm eins
og AIDS til að fólk sjái mikilvægi
þess að ræða kynlíf og kynferðis-
tengd málefni. Kynlíf er það mikil-
vægt atriði í lífi okkar að við ættum
að vera nógu skynsöm til að gera
okkur grein fyrir að þessi málefni
skipta miklu, og þar með ræða þau
án þess að neikvæðar ástæður þurfi
að koma til.“
Sem fyrr segir er það fyrirtækið
Hugsjón sem stendur að gerð þess-
ara fræðslumynda, en það er í eigu
Erlendar Garðarssonar, Guð-
mundar Kristjánssonar og Sonju
B. Jónsdóttur. Að sögn eigend-
anna er áætlað að gerð þessara
fræðslumynda komi til með að
kosta átta til níu milljónir króna og
er hún fjármögnuð alfarið af fyrir-
tækinu. Fyrsta myndin er væntan-
leg 1. mars og er ætlunin að hinar
myndirnar fjórar fylgi fast í kjölfar-
ið. Myndirnar eru bæði ætlaðar til
fræðslu í skólum og heilbrigðis-
stofnunum, en einnig til almennrar
fræðslu og verður hægt að kaupa
þær á VHS-spólum, en búist er við
að dreifing þeirra verði í gegnum
einhvern þeirra bókaklúbba sem
til eru. ssh
Unnur á þing
Jón Helgason fyrsti þingmaður
Framsóknarflokksins á Suðurlandi
situr um þessar mundir aðalfund
Sameinuðu þjóðanna í New York og
hefur þess vegna kallað inn vara-
rnann sinn Unni Stefánsdóttur til að
sinna þingstörfum í fjarveru sinni.
Unnur Stefánsdóttir er fóstra að
mennt og hefur verið áberandi í
starfi kvenna innan Framsóknar-
flokksins og má þar nefna að hún
hefur verið formaður Landssam-
bands framsóknarkvenna á undan-
förnum árum. Þá hefur hún einnig
tekið virkan þátt í starfi að íþrótta
og æskulýðsmálum. Unnur hefur
setið áður á þingi sem varamaður
Jóns Helgasonar. Tíminn býður
hana velkomna til starfa og óskar
henni góðs gengis í þingsölum næsta
hálfa mánuðinn. - áe
Vannfimm
milljónir í
lottó 5/38
Anna Jónsdóttir á Akranesi datt í
lukkupottinn á laugardaginn. Hún
var ein með fimm rétta í lottóinu og
fékk 5.094.750 krónur, en potturinn
var tvöfaldur í þetta skiptið.
Hjá Vilhjálmi Vilhjálmssyni,
framkvæmdastjóra íslenskrar get-
spár fengust þær upplýsingar að
þetta væri þriðji hæsti vinningur í
lottóinu frá upphafi. ssh
Áhugahópur um bætta
umferöarmenningu:
Útifundur á
Lækjartorgi á
laugardaginn
Á laugardaginn kemur veröur bar-
áttufundur um bætta umferðar-
menningu haldinn á Lækjartorgi.
Fundurinn sem haldinn verður að
tilstuðlan Áhugahóps um bætta um-
ferðarmenningu hefst með kröfu-
göngu sem leggur af stað frá Hlemmi
kl. 13.30 og verður gengið þaðan
niður á Torg.
Undirbúningur fyrir fundinn hefur
staðið um nokkurn tíma í grunnskól-
um borgarinnar þar sem krakkarnir
búa til kröfuspjöld og slagorð sem
borin verða í göngunni og á fundin-
um.
Á fundinum munu meðlimir
áhugahópsins gera grein fyrir starfi
sínu og hugmyndum sem stuðlað
gætu að bættri umferðarmenningu,
aðstandendur og fórnarlömb um-
ferðarslysa munu skýra frá reynslu
sinni og skemmtikraftar munu koma
fram.
Áhugahópur um bætta umferðar-
menningu hefur látið að sér kveða
við gerð áróðursefnis og auglýsinga
um umferðarmál sem vakið hafa
athygli og umtal og verið er að vinna
að gerð fræðsluefnis fyrir skóla,
sjónvarp og kvikmyndahús. - sá