Tíminn - 09.11.1988, Side 12
12 Tíminn
Miðvikudagur 9. nóvember 1988
FRÉTTAYFIRLIT
WASHINGTON - Banda-
ríkjamenn gengu aö kjörborð-
inu til að kjósa sér sinn 41.
forseta. Michael Dukakis fram-
bjóðandi demókrata sagði að
sigur væri innan seilinpar en'
George Bush leiðir þó í skoð-
anakönnunum. Kaupsýslu-
menn heimsins vilja endilega
að Bush vinni en óttast við-
skipta- og fjárlagahalla Banda-!
ríkjanna.
TOKYO - Heilsa Hirohito!
Japanskeisara skánaði örlítið'
þftir slæman kafla, en læknar;
"telja nú tíma hans í hérvistinni'
vera að renna út.
— í
GENF - Irakar samþykktu
tilboð írana um að sleppa öll-
um stríðsföngum sem særðir
eru eða sjúkir. Er þetta fyrsta
samkomulagið sem þessi ríki
ná frá því vopnahlé komst á í
Persaflóastríoinu i ágústmán-
uði. [
JERUSALEM - Þegar vika \
er liðin frá þingkosningunum í j
ísrael hefur Yitzak Shamir ekki I
náð að mynda þá meirihluta-1
stjórn sem hann taldi auðvelt
ao mynda með smáum hægri j
flokkum og strangtrúarflokk-
um. Ástæðan er ströng skilyrði
strangtrúarflokkanna.
GDANSK - Róttækir verka- J
menn í Samstöðu lögðu niður >
vinnu þrátt fyrir það að Lech I
Walesa hafði farið fram á að I
verkamenn frestuðu fyrirhug-1
uðu verkfalli í Lenín skipa- j
smíðastöðvunum. Þátttaka í
verkföllunum var þó lítil. j
SÍDON - Líbanskar her-1
sveitir hliðhollar ísraelum
drápu þrjá skæruliða Pales-
tínumanna í umsátri í suður-
hluta Líbanons. Skæruliðarnir J
voru á ferli innan áhrifasvæðis I
suðurlíbanska hersins vopn-
aðir handsprengjum og sjálf-
virkum rifflum.
VÍN - Sovétmenn segjast
reiðubúnir að leysa ellefu póli- <
tíska fanga úr haldi á næstu ■
þremur árum. Þetta eru færri'
fangar en Kohl kanslari Vestur- f
Þýskalands gaf í skyn að
sleppt yrði, en hann lýsti því ;■
yfir á meðan á heimsókn hans [
í Sovétríkjunum stóð á dögun- [
um að Sovétmenn væru reiðu- ’
búnir að sleppa öllum pólitísk-
um föngum. Vandinn er ein-1
ungis sá að skilgreining vest-
rænna ríkja og Sovétríkjanna
á pólitiskum föngum er ólík
svo ekki sé meira sagt.
ÚTLÖND
DIXVILLE NOTCH
George Bush vann öruggan sigur
í Dixville Notch í New Hampshire-
’fylki í forsetakosningunum í gær, en
Dixville Notch var að venju fyrsti
> kjörstaðurinn sem lokaði í Banda-
ríkjunum. Kosning hófst eina sek-
úndu yfir miðnætti að staðartíma og
var kosningu lokið hundrað og tíu
sekúndum síðar. Þá höfðu allir þeir
■ þrjátíu og sjö íbúar staðarins, sem
hafa kosningarétt, kosið. Tveimur
mínútum síðar voru úrslit kunn.
Repúblikaninn George Bush hlaut
þrjátíu og fjögur atkvæði, en demó-
kratinn Michael Dukakis hlaut þrjú
atkvæði.
Árangur Dukakis vakti mikla at-
hygli því kosningasérfræðingar stað-
arins höfði slegið því föstu að Duka-
kis hlyti einungis eitt atkvæði í
Dixville Notch, þar sem demókratar
frá nágrannafylkinu Massachusetts
eru taldir af hinu illa. Bendir þetta
til þess að Dukakis hafi bætt við sig
á endasprettinum í kosningabarátt-
unni, en hvort það nægir til þess að
sigra Bush, það var ekki ljóst þegar
þessar línur voru ritaðar.
, Dixville Notch hefur verið fyrsti
bærinn í Bandaríkjunum sem birtir
úrslit atkvæðagreiðslu í forsetakosn-
ingum allt frá árinu 1960 þegar
demókratinn John F. Kennedy og
repúblikaninn Richard Nixon
kepptu um forsetaembættið. Þá fékk
Nixon níu atkvæði en Kennedy ekki
neitt. Þrátt fyrir það sigraði Kennedy
í forsetakosningunum.
Síðustu skoðanakannanir fyrir
kosningarnar sýndu að Bush ætti að
vera öruggur með sigur, þó ekki
yrðu hlutföllin þau sömu og í Dix-
ville Notch. Talið var að hann ætti
um .þrjúhundruð kjörmenn vísa, en
Dukakis tæplega hundrað. Vafasamt
var talið um hundrað og fimmtíu
kjörmenn. Samkvæmt því þurfti
Dukakis að vinna sigur í öllum
vafafylkjunum og næla sér í rúmlega
þrjátíu kjörmenn að auki með því
að sigra í fylkjum þar sem Bush er
talinn eiga sigurinn vísan.
Hvort það hefur tekist var ekki
Ijóst þegar Tíminn fór í prentun,
enda voru úrslit ekki ljós fyrr en urh
klukkan þrjú í nótt að íslenskum
tíma.
Þess má geta að ef George Bush
hefur borið sigur úr býtum í kosning-
unum í gær þá er hann fyrsti vara-
forseti Bandaríkjanna sem kosinn er
Þetta er vinnustaðurinn þar sem þeir George Bush og Michael Dukakis vilja starfa á næstunni, en þeir hafa háð
harða baráttu um eitt valdamesta embætti heimsins. Hvíta húsið stendur við Pennsylvania Avenue og í bakgrunni
er minnismerkið um George Washington, fyrsta forseta Bandaríkjanna.
forseti þar í landi í tuttugu ár.
En það er ekki aðeins kosið um
forseta í þessum kosningum. Kosið
er um öll fiögurhundruð þrjátíu og
fimm sæti í fulltrúadeild bandaríska
þingsins og um þrjátíu og þrjú sæti
af hundrað sætum í öldungadeild-
inni. Demókratar hafa nú meirihluta
í báðum þingdeildunum og er ekki
búist við að það muni breytast. Þá er
einnig kosið um fylkisstjóra í tólf
ríkjum.
BUSH SIGRAÐI í
Mannvíg vegna
trúarleiðtoga
Þó mikil harka hafi á stundum
verið í prestkosningum á íslandi þá
hafa óánægðir safnaðarmeðlimir
ekki gengið eins langt og óánægðir
múslímar í borginni Sokoto í Níg-
eríu. Stór hópur þeirra er nú mjög
óánægður með val á soldáninum í
Sokoto, en hann er andlegur leið-
togi múslíma í borginni. Múslím-
arnir bera græn laufblöð sem þýðir
að þeir séu óánægðir með valið, en
þeir hafa ekki látið þar við sitja því
að minnsta kosti tíu manns hafa
látið lífið í óeirðum sem orðið hafa
í kjölfar kosninganna.
Það er Ibrahim Dasuki, átjándi
soldáninn í Sokoto, sem er svona
óvinsæll. Almenningurhefurráðist
að opinberum byggingum í borg-
inni til að láta óánægju sína í ljós
og meðal annars var lögreglustöð
brennd til grunna. Ballið byrjaði á
sunnudaginn þegar héraðsstjórinn
í Sokoto tilkynnti að hinn vellauð-
ugi Dasuki, sem verið hefur sendi-
fulltrúi Nígeríu víða um heim, hafi
verið valinn soldán. Það leist hin-
um almenna múslíma ekki á því
þeirra fulitrúi var Mohammadu
Maccido, sonur Sir Siddiq Abba-
kar sem þjónað hefur sem soldán
frá því árið 1938, en Siddiq hefur
nú gengið á fund Allah.
Reyndar brutust út átök þegar
Siddiq var valinn þar sem bresk
yfirvöld beittu áhrifum sínum til að
hann yrði valinn, en ekki frændi
hans Áhmadu Bello. En þau sár
greru fljótt, enda var Belio stjórn-
málaleiðtogi múslímanna í
norðurhluta Nígeríu allt þar til
hann var myrtur árið 1966.
Eistlendingar á móti
áætlunum Gorbatsjovs
Tugir þúsunda Eistlendinga hafa
.undirritað skjal þar sem skorað er á
þing sovétlýðveldisins að berjast
gegn>þeim breytingum sem fyrirhug-
aðar'efu á stjórnarskrá Sovétríkj-
^nna, éri feistlendingar telja breyt-
ihgarnar verða til þess að yfirvöld í
Moskvu hafi meira að segja um
málefni sovétlýðveldanna en hingað
til.
Undirskriftum þessum hefur verið
safnáð á skrifstofum og stofnunum,
verslunum og strætum víðsvegar um
Eistland, en Eistlendingar hafa verið
í fararbroddi í stuðningi við þær
umbætur sem orðið hafa í sovésku
þjóðlífi að undanfömu. En nú þykir
þeim að lýðræðinu vegið.
„Fólkið vilí að þingið greiði at-
kvæði gegn breytingum á stjórnar-
skránni sem þeim finnst takmarka
alvarlega yfirráð okkar sjálfra og
annarra sovétlýðvelda,“ sagði
ónafngreindur blaðamaður í Tallin í
samtali við fréttamann Reuters í
.Moskvu.
Breytingar þær sem Gorbatsjov
vill koma á er að gera forsetaembætt-
ið mun valdameira en nú, svipað og
forsetaembættið í Bandaríkjunum.
Haifn vill einnig að kjörið verði nýtt
þing er starfi í tveimur deildum allt
árið um kring og hafi víðtækt lög-
gjafarvald sem nái til Sovétríkjanna
allra. Þetta telja Eistlendingar að
takmarki sjálfsákvörðunarrétt
þeirra og annarra sovétlýðvelda, en
í stjómarskrá Sovétríkjanna frá því
1920 er vald þinga sovétlýðveldanna
mikið þó í veruleikanum hafi raunin
verið önnur. Þeir telja að með
stjómarskrárbreytingunum verði
Jögleidd mun meiri miðstýring en
gert er ráð fyrir í núverandi stjórnar-
skrá og lýðræði takmarkað þó það
hafi ekki verið mikið í framkvæmd í
gegnum tíðina.