Tíminn - 09.11.1988, Síða 13
Miðvikudagur 9. nóvember 1988
Tíminn 13
llllllllllllll ÚTLÖND illlllllllllllllllllllll
r LV/r\rvoo i «nr
Íbúðahverfí norður af Manila á Filippseyjum eftir að hvirfilbylurinn Ruby fór þar yfir fyrir hálfum mánuði. Nú hefur
annar hvirfilbylur, Skip, haldið í kjölfar Rubys og hafa að minnsta kosti 30 manns látið lífið.
Filippseyjar:
Nýr hvirfilbylur
veldur manntjóni
Þúsundir manna hafa flúið heimili
sín á Filippseyjum, en þar gengur nú
yfir hvirfilbylurinn Skip sem sökkt
hefur fjölda skipa og valdið flóðum
og skriðuföllum víðs .vegar um eyj-
arnar. Er talið að þrjátíu manns hafi
látið lífið.
Á eyju í miðjum eyjaklasanum
lögðu skriðuföll heilt fjallaþorp í
rúst á sama tíma og jarðskjálfti skók
eyjarnar í suðri, svo mikið hefur
gengið á. Jarðskjálftarnir ollu þó
ekki manntjóni svo vitað sé, en í
fjallaþorpinu létust að minnsta kosti
sex manns og er fimmtán manns enn
saknað. Þá fórust fjórir við ströndina
nærri Manila þegar flóðbylgja gekk
þar á land og svo mætti áfram telj a.
Hvirfilbylurinn Skip kemur í
kjölfar hvirfilbylsins Ruby sem lagði
allt í rúst á Filippseyjum fyrir hálfum
mánuði og kostaði fimm hundruð
manns lífið auk þess sem um hundr-
að og fimmtíuþúsund maons misstu
heimili sín.
Borgarastyrjöldin í Níkaragva:
Ortega vill ræða
við nýjan forseta
Daniel Ortega forseti Níkaragva
sem segist hafa brotið Kontraliða á
bak aftur vill taka upp friðarviðræð-
ur við nýjan forseta Bandaríkjanna,
hvort sem þar verður um að ræða
Bush eða Dukakis.
„Hvor sem sigrar... verður að
taka það með í reikninginn að
Kontrar hafa þegar verið sigraðir,
svo að fórsetinn verður að finna
raunhæfa leið, sem er að semja við
Níkaragva," sagði Ortega við blaða-
menn á hersýningu í gær. „Stefna
Reagans hefur beðið skipbrot".
Kontrar hafa barist við Sandín-
istastjórnina í Níkaragva í sjö ár og
hefur borgarastyrjöldin kostað um
fjörutíu þúsund manns lífið. Banda-
ríkjamenn hafa ætíð stutt Kontrana
af ráði og dáð og hefur Bush vara-
forseti lýst því yfir að hann muni
auka hernaðarlegan stuðning við
Kontraliða verði Sandínistar ekki til
friðs. Hann hefur reyndar einnig
sagst reiðubúinn að ræða við Sandín-
ista.
Sandínistar hafa ekki viljað upp-
lýsa hvort þeir vilji heldur Bush eða
Dukakis í forsetastól, enda ráða þeir
lítið við það, bandarískir kjósendur
gengu frá því máli í gær. Hins vegar
hefur Ortega lýst því yfir að hann
voni að Dukakis haldi áfram and-
stöðu sinni gegn hernaðarstuðningi
við Kontra nái hann kjöri.
Reaganstjórnin átti í viðræðum
við Sandínistastjórnina í árslok 194
og í byrjun árs 1985, en upp úr þeim
viðræðum slitnaði.
Jarðskjálftinn í Kína:
Þúsund
manns
létust
Jarðskjálftinn mikli sem varð í
suðausturhluta Kína á sunnudag var
mun mannskæðari en í fyrstu var
talið. Nú er Ijóst að um eittþúsund
manns hafa látið lífið og gera kín-
verskir embættismenn ráð fyrir að
enn fleiri hafi farist þar sem ekki
hafa enn borist fréttir frá einangruð-
um þorpum sem liggja meðfram
landamærunum við Burma. ■
Flestir hinna látnu bjuggu í Lanc-
an sýslu í Yunnan héraði, en einnig
varð mikið manntjón í Menglian
sýslu, en ógreiðfært fjalllendi er á
þessum slóðum. Stór hluti fólks á
þessu svæði er af þjóðarbrotum sem
ekki eru kínverskrar ættar.
Jarðskjálftinn mældist 7,6 stig á
Richterkvarða og olli hann gífurlegu
tjóni. Hafa fréttir borist af því að um
70% allra bygginga hafi hrunið til
grunna á þeim svæðum sem verst
urðu úti.
Kínverjar
fframleiða
amerískar
sígarettur
Kínverjar eru nú farnir að fram-
leiða amerískar sígarettur. Banda-
ríska tóbaksfyrirtækið R.J.Reyn-
olds og tvö kínversk fyrirtæki hófu
framleiðslu á sígarettum eftir
bandarískri fyrirmynd í tóbakverk-
smiðjum í borginni Xiamen í
suðurhluta Kína fyrir nokkru.
R.J. Reynolds Tobacco Inter-
national fyrirtækið skýrði frá því í
sérstakri yfirlýsingu af þessu tilefni
að verksmiðjan sem kostar um 21
milljón Bandaríkjadala muni fram-
leiða 2,5 milljarða sígaretta á ári
hverju og skapa þrjúhundruð og
fimmtíu manns atvinnu.
Kínversk-bandaríska sígarettu-
fyrirtækið mun framleiða hinar sí-
vinsælu Camel og Winston síga-
rettur, auk þess sem tvær nýjar
tegundir munu sjá dagsins ljós,
Golden Bridge og Sprint.
20. Flokksþing Framsóknarmanna
Hótel Saga 18.-20. nóv. 1988
Dagskrá
Föstudagurinn 18. nóv. 1988
Kl. 10:00 Þingsetning
Kosning þingforseta
Kosning þingritara
Kosning kjörbréfanefndar
Kosning dagskrárnefndar
Kl. 10:15 Yfirlitsræða formanns
Kl. 11:15 Skýrsla ritara
Kl. 11:30 Skýrsla gjaldkera
Kosning kjörnefndar
Kosning kjörstjórnar
Kosning málefnanefndar
Kl. 12:00 Matarhlé
Kl. 13:20 Mál lögð fyrir þingið
Kl. 14:30 Almennar umræður
Kl. 16:00 Þinghlé
Kl. 16:30 Nefndastörf
Laugardagurinn 19. nóv. 1988
Kl. 10:00 Almennar umræður, framhald
Kl. 12:00 Matarhlé
Kl. 13:30 Kosning 25 aðalmanna í miðstjórn
Kl. 14:00 Afgreiðsla mála - umræður
Kl. 16:00 Þinghlé
Kl. 16:15 Nefndastörf - starfshópar - undirnefndir
Kvöldið frjálst
Sunnudagurinn 20. nóv. 1988
Kl. 10:00 Afgreiðsla mála- umræður
Kl. 12:00 Matarhlé
Kl. 13:30 Kosning 25 varamanna í miðstjórn
Kl. 14:00 Aðrar kosningar skv. lögum
Kl. 14:30 Afgreiðsla mála og þingslit að dagskrá tæmdri (um kl
16:00)
Kl. 19:30 Kvöldverðarhóf í Súlnasal
Framsóknarfélag Garðabæjar
og Bessastaðahrepps
Aðalfundur félagsins verður haldinn að Goðatúni 2 fimmtudaginn 10.
nóvember kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
Stjórnin
Ahugakonur um pólitík
Landssamband framsóknarkvenna gengst fyrir léttum matarspjalls-
fundi fimmtudagskvöldið 10. nóv. að Veitingahúsinu Lækjarbrekku
(uppi) kl. 19.00.
Ath. breyttan fundartíma.
Allar áhugakonur um pólitík velkomnar.
Framkvæmdastjórn LFK.
Kjördæmisþing framsóknarmanna
í Reykjaneskjördæmi
verður haldið sunnudaginn 13. nóvember n.k. í félagsheimilinu á
Seltjarnarnesi.
Dagskrá auglýst síðar.
Stjórnin.
Árnesingar
Síðasta umferð I hinni árlegu spilavist okkar verður 11. nóvember
n.k. kl. 21.00 í Aratungu.
Glæsileg verðlaun.
Guðmundur Búason flytur ávarp.
Framsóknarfélag Árnessýslu
Aðalfundur Framsóknarfélags
Austur-Húnavatnssýslu
verður haldinn sunnudaginn 13. nóvember kl. 15 á Hótel Blönduósi.
Stjórnin
Flokksþing
20. flokksþing framsóknarmanna verður haldið dagana 18.-20." nóv.
n.k. að Hótel Sögu. Þingið hefst föstudaginn 18. nóv. kl. 10. Dagskrá
auglýst síðar.
Framsóknarflokkurinn.
Reykjanes
Skrifstofa kjördæmissambandsins að Hamraborg 5 verður opin
mánudag til fimmtudaga kl. 16-19.
KFR