Tíminn - 29.11.1988, Page 13

Tíminn - 29.11.1988, Page 13
Þriðjudagur 29. nóvember 1988 Tíminn 13 UTLÖND John F. Kennedy hefur hér fengið skot í bakið. Sekúndubroti síðar fékk hann skot í andlitið sem banaði honum. Ef kenning breskra sjónvarpsmanna er rétt þá skaut franski mafíósinn Lucien Sarti því afdrifaríka skoti. Sænska sjónvarpið treysti sér ekki til að breiða þá söguskýríngu út og lét klippa hana út úr heimildamyndinni áður en myndin var sýnd. Sænska sjónvarpiö styttir þáttinn um Kennedymoröiö: Ber ekki ábyrgð á morðásðkunum Þór Jónsson Stokkhólmi: Sænska sjónvarpið sýndi á miðvikudag ensku myndina um morðið á Kennedy Bandaríkjaforseta sem nýlega var sýnd á íslandi. En sænskir sjónvarpsáhorfendur urðu að sæta styttingu á þættinum. Sænska sjónvarpið klippti út atriði þar sem mafíósarnir Sauveur Pironti, Lucien Sarti og Roger Bocagani, eru sakaðir um að hafa myrt Kennedy. Það þótti ekki nægjanlega sannað til að sjónvarpið vildi taka þátt í útbreiðslu þeirra ásakana. Trúlega hefur sú ástæða ekki síður skipt máli að til Svíþjóðar höfðu borist fréttir af því að einn hinna nefndu manna, Sauveur Pironti, sem nú hefur aðsetur í Marseilles hafði látið þau orð falla eftir sýningu þáttarins £ Bretlandi og Frakklandi að hann ætli sér hér eftir að lifa í vellystingum praktuglega á skaða- bótum sem lögfræðingur hans á eftir að innheimta af þeim sjónvarps- stöðvum sem keypt hafa kenningu þáttagerðarmanna og ásakað hann um morð. Ásjó Daginn þann fyrir tuttugu og fimm árum sem Kennedy var skotinn var Pironti staddur á frönskum tundur- duflaslæðara 8000 km frá Dallas. Sarti og Bocagani sátu báðir í stein- inum og Sarti, sem sagður var hafa skotið hinu afdrifaríka skoti, hafði svo lélega sjón að frönsk yfirvöld höfðu svipt hann ökuréttindum. Sarti hafði misst annað augað í vinnuslysi við höfnina í Marseilles árið 1962. Þaö hefur einnig vakið athygli hér í Svíþjóð að Gordon L. Amold, sem breskir sjónvarpsmenn kynna sem nýtt vitni í málinu, rakti sömu sögu í viðtali við sænska blaðamann Aft- Lee Harvey Oswald vígreifur. Opin- berlega er hann sagður hafa banað John F. Kennedy, þó öll rök hnígi að því að aðrir hafi séð um banaskot- ið. onbladet í Dallas fyrir átta ámm. Hann lét blaðaljósmyndara ljós- mynda sig ásamt blaðamanni á þeim stað sem hann stóð þegar morðið var framið. Gordon L. Arnold er ef til vill eini maðurinn sem skiptist á orðum við morðingja Kennedy ef kenning bresku þáttagerðarmannanna er rétt. Og reynar er afar lftið sem mælir þeim kenningum í mót sé litið fram hjá ásökunum á hendur mönnunum þremur. Skammt aftan við Arnold þar sem hann stóð og kvikmyndaði forseta sinn koma akandi á opinni blæju- bifreið niður Dealey Plaza hleypti morðinginn af riffli sínum. Skotin þutu fram hjá Arnold sem umsvifa- laust fleygði sér til jarðar. Bar aldrei vitni Arnold sagði í viðtali við Afton- bladet fyrir átta árum: „Ég fann þrýstinginn frá skotinu og það suðaði í höfðinu á mér eftir hvellinn. Sá sem skaut hlýtur að hafa staðið beint fyrir aftan mig og ósjálfrátt fleygði ég mér til jarðar. Það næsta sem gerðist var að lögreglumaður sparkaði í mig og ég spratt á fætur. - Hvern andskotann ertu að gera? sagði hann. - Ég fleygði mér til jarðar, ég varð næstum fyrir skoti! Ringulreiðin allt í kring varalgjör, lögreglumaður fyrir framan mig lá á hnjánum og grét. Lögreglumaðurinn sem hafði komið mér á fætur sneri aftur film- unni í kvikmyndavélinni minni og tók hana með sér. Vélinni skilaði hann en spurði mig ekki að nafni. Ég var aldrei látinn bera vitni og hef ekki hugniynd um hvað varð af filmunni. Oft hef ég velt þeim manni fyrir mér sem rak mig á brott og það tek ég með mér í gröfina - Að einhver fyrir aftan mig skaut á Kennedy forseta, ég sjálfur varð næstum fyrir skoti. Má vera að Oswald hafi átt hlut að máli en hann var ekki einn um það.“ 111 Frá Borgarskipulagi Reykjavíkur! Athygli er vakin á því að sýningu á skipulagstil- lögunum Kirkjusandur - Laugarnes - Klettur og Mýrargata og nágrenni lýkur þann 7. desember 1988. Uppdrættir og líkan er til sýnis hjá Borgarskipulagi Reykjavíkur, Borgartúni 3, 4. hæð alla virka daga frá kl. 8.30 til 16.00. Athugasemdum eða ábendingum, ef einhverjar eru, skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykja- víkur, innan auglýsts kynningartíma. Borgarskipulag Reykjavíkur Borgartúni 3, 105 Reykjavík Basar - Hlutavelta Félag framsóknarkvenna í Reykjavík heldur sinn árlega basar laugardaginn 3. des. kl. 14.00 að Rauðarárstig 18 (Hótel Lind). Við minnum á hið víðfræga laufabrauð framsóknarkvenna og gómsætar jólakökur. Einnig verður hin vinsæla hlutavelta okkar með góðum vinningum og engum núllum. Verið velkomin. Hjá okkur er eitthvað fyrir alla, smáa og stóra. F.F.K. Ath. Tekið verður á móti munum á basarinn alia daga að Nóatúni 21 og að Rauðarárstíg 18 eftir kl. 17 á föstudag. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför systur minnar Guðbjargar Magnúsdóttur Guð blessi ykkur. Ólína Magnúsdóttir Kinnarstöðum t Minningarathöfn um Svein Bergsveinsson prófessor Austur-Berlín verður haldin í Fossvogskapellu fimmtudaginn 1. desember kl. 13.30. Aðstandendur t Faðir okkar Erlendur Árnason Skíðbakka, Austur-Landeyjum lést að morgni 27. nóvember á Sjúkrahúsi Suðurlands Selfossi Árni Erlendsson Ragna Erlendsdóttir Sigríður Oddný Eriendsdóttir t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi Helgi Hannesson frá Kollsá til heimilis að Hraunbraut 2, Kópavogi andaðist í Borgarspítalanum 15. nóvembers.l. Útförin hefurfariðfram f kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð. Synir, tengdadætur, barnabörn og barnabarnabörn

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.