Tíminn - 29.11.1988, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 29. nóvember 1988
Tíminn 19
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðiö
Stór og smár
eftir Botho Strauss.
í kvöld kl. 20 4. sýning
Fimmtudag kl. 20 5. sýning.
Laugardag kl. 20 6. sýning.
Þriðjudag 6.12 7. sýning.
Fimmtudag 8.12 8. sýning.
Sunnudag 11.129. sýning.
Þjóðleikhúsið og islenska óperan sýna
iboffmanní
Miðvikudag kl. 20 Uppselt
Föstudag kl. 20 Uppselt
Sunnudag kl. 20 Uppselt
Miðvikudag 7.12 Fáein sæti laus
Föstudag 9.12 Uppselt
Laugardag 10.12. Uppselt
Föstudag 6. jan.
Sunnudag 8. jan.
Ósóttar pantanir seldar eftir kl. 14 daginn
fyrir sýningardag
Takmarkaður sýningafjöldi
í islensku óperunni, Gamla bíói:
Hvar er hamarinn?
Sunnudag kl. 15. Aukasýning. Siðasta
sýning.
Miðasala í islensku óperunni, Gamla
Bíói, alla daga nema mánudaga frá kl.
15-19 og sýningardaga frá kl. 13 og fram
að sýningu. Sími 11475.
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga kl. 13-20.
Simapantanireinnig virka daga kl. 10-12.
Simi i miðasölu: 11200.
Leikhúskjallarinn er opinn öll
sýningarkvöld frá kl. 18.00.
Leikhúsveisla Þjóðleikhússins: Þríréttuð
máltíð og leikhúsmiði á óperusýningar:
2700 kr., á Stór og smár: 2.100 kr.
Veislugestir geta haldið borðum
fráteknum í Þjóðleikhúskjallaranum eftir
sýningu.
l
VfSA
___________________________I
Brooke Shields
er ánægð með að fá í fyrsta
sinn hlutverk þar sem hún
á að sýna vonda og
ógeðfellda persónu. „Þetta
er alveg sérstakur áfangi
fyrir mig,“ segir Brooke, hin
fagraog sakleysislega, sem
hefur verið stjarna frá því
hún lék í „Pretty Baby“ 12
ára að aldri.
Brooke Shields leikur nú í
mynd sem heitir
Demantagildran (Diamond
Trap). Þetta er 14. mynd
hennar og þarna leikur
Brooke hörkukaldan
ljósmyndara sem fær
ágirnd á demöntum, er hún
ljósmyndar þá fyrir uppboð
á Manhattan í New York.
Síðan færist fjör í leikinn,
þegar bandarísk leynilögga
kemur til London til
samstarfs við Scotland
Yard, því að ljósmyndarinn
fallegi hafði flogið yfir haf ið
og nú leikur grunur á að hún
hafi haft fleira í
ferðatöskunni en föt til
skiptanna.
Brooke segist njóta þess
að vera einu sinni laus við
að leika „góðu stelpuna".
i.i:iKiT:iA(;a2
KKYKjAVlKlJK
Fimmtudag kl. 20.
Sunnudag 4.12 kl. 20.
Ath.Næst síðasta sýning
SVEITASINFÓNÍA
eftir Ftagnar Arnalds
Tónlist: Atli Heimir Sveinsson
Leikmynd og búningar: Sigurjón
Jóhannsson
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson
I kvöld kl. 20.30. Örfá sæti laus
Miðvikudag 30.11 kl. 20.30. Örfá sæti laus
Föstudag 2.12 kl. 20.30. Uppselt
Laugardag 3.12 kl. 20.30. Uppselt
Þriðjudag 6.12 kl. 20.30.
Fimmtudag 8.12 kl. 20.30.
Miðasalan i Iðnó er opin daglega kl. 14-19
og fram að sýningu þá daga sem leikið er.
Forsala aðgöngumiða: Nú er verið að taka
við pöntunum til 11. des. Símapantanir virka
daga frá kl. 10. Einnig símsala með VISA
og EURO á sama tíma.
ALÞÝÐULEIKHÚSIÐ
HOSS
KöTiimöimomMm
Höfundur: Manuel Puig
18. sýning fösludaginn 2. des. kl. 20.30
19. sýning sunnudaginn 4. des. kl. 16
20. sýning mánudaginn 5. des. kl. 20.30
Sýningar eru í kjallara Hlaðvarpans,
Vesturgöfu 3. Miðapantanir í sfma 15185
allan sólarhringinn. Miðasala í,
Hlaðvarpanum kl. 14.00-16.00 virka daga
og 2 tímum fyrir sýningu.
Maryam d’Abo
sem lék í síðustu James
Bond myndinni (fyrstu
Bond-mynd Timothy
Daltons), lék nýlega ásamt
Joe Cortese í mynd sem
kölluð er „Something Is Out
There“, en Joe Cortese
leikur lögreglumann í Los
Angeles sem með aðstoð
fallegrar og dularfullrar
konu reynir að finna og
yfirvinna skelfilega veru
frá öðrum heimi, sem
vinnur voðaverk á jörðinni.
Ánægður með sumarið
Svona fer Luciano Pavarotti að því að njóta lífsins í góða
veðrinu heima hjá sér.
BARN í
VÆNDUM
Bob Geldof og Paula Yates
eiga nú von á öðru barni sínu.
Þegar Paula tilkynnti Bob
það símleiðis, fleygði hann
öllu frá sér þar sem hann var
heima á írlandi að taka upp
kvikmynd og flaug til London
á stundinni til að fagna með
Paulu. Þess má geta að þau
voru skilin að borði og sæng
um hríð en nú virðist sem
sagt allt vera komið í besta
lag á þeim bæ. Hjónin eiga
dóttur fyrir og blessað barnið
heitir því skondna nafni Fifi
Trixibelle. Nú bíður heimur-
inn í eftirvæntingu eftir að
heyra hvað þeim dettur í hug
að láta nýj a borgarann heita.
Efnilegur unglingur
Fyrir tveimur árum eða svo
kom ungur utanbæjarmaður
til Los Angeles til að hefja
nám í hönnun. Áður en leið
á löngu kviknaði með honum
löngun til að spreyta sig sem
leikari líka. Hann byrjaði
smátt og fékk agnarlítil hlut-
verk í agnarlitlu leikhúsi.
Einhver með sambönd kom
þó auga á hann og útvegaði
honum meira að gera. Piltur-
inn heitir Brad Pitt og fékk
Iítið hlutverk í Dallas. Eftir
það virtust honum allir vegir
færir. Nú hefur hann lokið
við fyrstu kvikmynd sína og
byrjaður á annarri. Ef trúa
má þeim sem vit hafa á svona
hlutum í Hollywood er hér á
ferðinni upprennandi kvik-
myndastjarna.
Stórsöngvarinn Lueiano
Pavarotti er afaránægður
með nýliðið surnar. Ekki að-
eins fór hann í mikla hljóm-
leikaför og hafði upp úr henni
jákvætt umtal, geysimikið
klapp og rúmlega fyrir salti í
grautinn á næstunni, heldur
var veðrið heima hjá honum
á Ítalíu með allra besta móti
svo hann naut lífsins þar fram
í fingurgóma þegar hann
mátti vera að. Hann býr ann-
ars í Pesaro á Norðaustur-ít-
alíu.
Oft hefur verið sagt um
Pavarotti að hann sé mcsti
tenór heinisins og það má satt
vera þó ekki sé litiö nema á
vaxtarlagið. Par er hann
sannarlega mikill...
Paula Yates og Bob Geldof eru sátt á ný og eiga von á
öðru barni.
Afneitar
föðurlandinu
Krókódíla-Ástralinn Paul
Hogan er byrjaður á nýrri
kvikmynd en vill lítið láta
uppi um hvað hún fjallar. Þó
má telja fullvíst að Krókó-
díla-Dundee komi þar hvergi
við sögu. Hetja myndarinnar
mun þó vera Ástrali í Banda-
ríkjunum. Skrítið af Paul,
því hann hefur látið hafa eftir
sér að hann vilji helst að
áhorfendur gleymi alveg að
liann sé ástralskur. Hann
bætti meira að segja við að
áhorfendur gleymdu um leið
og þeir settust til að horfa á
mynd með Michael Caine, að
hann væri breskur.
Paul Hogan vill að fólk gleymi að hann er Ástrali.