Tíminn - 29.11.1988, Side 15
Þriðjudagur 29. nóvember 1988
Tíminn 15
BÆKUR
Margrét E. Jónsdóttir
Skotta
Bókaútgáfan Selfjall hefur gefið
út bókina Skotta eignast nýja
vini eftir Margréti E. Jónsdóttur,
fréttamann á Ríkisútvarpinu.
Bókin er sjálfstætt framhald
sögunnar um Skottu og vini
hennar sem kom út vorið 1987.
Aðalsöguhetjurnar, húsamýsnar
Skotta og Bolla, eiga heima við
lítinn sumarbústað. Þær langar að
skoða sig um í heiminum og
gerast laumufarþegar í bíl
fjölskyldunnar sem á
sumarbústaðinn. Ætlunin er að
kynnast því sem borgarlífið hefur
upp a að bjóða. En margt fer
öðruvísi en ætlað er. Þær komast
ekki alla leið heldur verða
strandaglópar hjá gamalli
einsetukonu sem býr í svolitlum
torfbæ út við sjó. Þá er að gera gott
úr öllu enda fer svo að dvölin
verður viðburðarík og þ.ær komast
oft í hann krappan. Þær.kynnast
frekri kríu, fyndnum músarindli og
öðrum fuglum sem tófan skýtur
skelk í bringu. Þær ákveða að
ganga til liðs við Láka gamla
refaskyttu og hundinn hans, hann
Neró. Að lokum finna þær
yrðlinginn Steina og fjölskyldu
hans.
Sagan um Skottu og nýju vinina
hennar er ætluð íslenskum
börnum heima og erlendis á
aldrinum fimm til níu ára.
Bókina prýða heilmargar
fallegar myndir eftir Önnu V.
Gunnarsdóttur. Hún er 116
blaðsíður, prentuð og bundin í
prentsmiðjunni Odda. Mál og
menning dreifir henni. Bókin
kostar 980 krónur.
BoúiÍ #£##%
ÁSTIN
ER EILÍF
Ný ástarsaga
effcir Bodil Forsberg:
Ástin er eilíf
Hörpuútgáfan hefur sent frá sér
nýja ástarsögu eftir Bodil
Forsberg. Þetta er 20. bókin sem
út kemur á íslensku eftir þennan
vinsæla höfund.
Á bókarkápu segir m.a.: Sonja
Thorsen missti foreldra sína i
bílslysi, þegar þau óku út af
kröppum fjallvegi. Hún var
einkabarn og erfði milljónaeignir.
Viktor Hauge fékk fyrirmæli frá
föður sínum að giftast henni og ná
þannig eignum hennar.
Ástin er eilíf er saga um
elskendur, sem berjast við
undirferli og launráð. Baráttan
stendur milli góðs og ills, ástar og
haturs ... Spennandi og
áhrifamikil ástarsaga.
Ástin er eilíf er 165 bls. Skúli
Jensson þýddi. Prentverk
Akraness hf. prentaði.
Aflakóngar og
athafnamenn
Hörpuútgáfan gefur nú út nýja
viðtalsbók Hjartar Gíslasonar
blaðamanns við landsþekkta
aflamenn. Á síðasta ári kom út
fyrsta bókin í þessum bókaflokki
og hlaut mjög góðar viðtökur.
Aflakóngar og athafnamenn
gefur raunsanna mynd af lifi
sjómanna og viðhorfum þeirra og
varpar ljósi á ýmis framfaraspor
sem stigin hafa verið í íslenskum
sjávarútvegi. Fjöldi mynda úr lífi
og starfi sjómanna prýðir bókina.
Jólagjöfin
Jólasaga fyrir
yngstu börnin
Bókaútgáfan Forlagið hefur
sent frá sér bókina Jólagjöfin eftir
Lars Welinder. Þar segir frá búálfi,
honum Grástakki gamla. Hann
átti heima í kofa sem staðið hafði
mannlaus árum saman og hann
var fjarska einmana. Þótt búálfar
vilji láta sem minnst á sér bera, þá
líður þeim samt best í návist fólks.
En dag nokkurn birtist heil
fjölskylda í kofanum. Pabbi,
mamma og þrjú börn voru komin
til sumardvalar. Hvílíkt gleðiefni
fyrir gamla búálfinn. Og nú tók
eitt ævintýrið við af öðru uns
Grástakki gamla tókst að gleðja
börnin á jólunum með gjöfum
sínum, segir að lokum í frétt frá
Forlaginu.
Jólagjöfin er 30 bls., prýdd
fjölmörgum litmyndum eftir
sænska myndlistarmanninn
Harald Sonesson. Þorsteinn skáld
frá Hamri þýddi söguna. Bókin er
prentuð í Svíþjóð.
Koppurinn
Jonathan Langley og
Anne Civardi
Iðunn hefur gefið út myndabók
fyrir yngstu börnin, sem nefnist
Koppurinn og segir frá henni
Möggu litlu, sem er að venja sig
af því að nota bleyju. í kynningu
forlagsins á bókinni segir:
„Öll börn verða reynslunni
ríkari þegar þau læra að nota
koppinn sinn. Þessi hlýlega og
gamansama bók rekur sögu lítillar
stúlku þegar hún hætti að nota
bleyju, erfiði hennar og undrun
andspænis þessum umskiptum
og sætan sigurinn þegar björninn
var unninn. Koppurinn er bók sem
lýsir á einfaldan og raunsæjan
hátt reynslu sem öll börn ganga í
gegnum á misjafnlega auðveldan
hátt, bók sem börn og foreldrar
hafa gagn og gaman af að skoða
saman."
NÁTTURUNNAR
lORMALI:
SIR DAVID AITENBOROUGH
Lífríki
náttúrunnar
Höfundur: Mark
Carwardine
Þýðandi: Gissur Ó.
Erlingsson.
Þessi fallega myndskreytta bók
fjallar um fjölbreytt úrval þeirra
þúsunda dýrategunda sem lifa
víðsvegar í veröldinni. Hún greinir
i frá hinni athyglisverðu tilbreytni í
útliti og atferli og furðulegri
aðlögunarhæfni. Hún greinir lika
frá tengslum lífsins við vistsvæðin
-frá hinum frjósömu regnskógum
hitabeltisins til hinna harðbýlu
freðmýra og heimskautasvæða.
Lífríki náttúrunnar er auðug
fróðleiksuppspretta.
Áhugaverðustu sérkennum
hverrar tegundar er vandlega lýst
- hvemig hún þróaðist, að hvaða
leyti hún er sérstök, hvernig hún
aðlagar sig umhverfi sínu og hvað
er sérkennilegt við lífsmáta
hennar. Þessar upplýsingar eru
dregnar fram í fljótlesnu yfirliti
yfir helstu atriði varðandi hvert
dýranafn þess á alþjóðlegu
fræðimáli (latínu), hvernig
vísindamenn greina það,
vistsvæði þess og útbreiðslu um
jörðina, meðalstærð þess og
kjörfæðu. Mörg dýranna sem
greint er frá í þessari bók eru í
útrýmingarhættu. Þegar svo
stendur á greinir textinn frá
orsökum þess og hvað gert er, ef
eitthvað er gert, til að vernda
tegundina.
Auk þess sem Lífríki
náttúmnnar gefur til kynna hvaða
tegundur séu í útrýmingarhættu
hjálpar hún dýmnum sjálfum.
Hagnaðurinn rennur beint til
Alþjóða
náttúmverndarsamtakanna —
stofnunar sem meir en nokkur
samtök önnur vinna að vernd og
hjálpa til að viðhalda
dýrategundum sem eru í
útrýmingarhættu um víða veröld.
Mark Carwardine nam
dýrafræði við Lundúnaháskóla og
starfaði fimm ár sem vísindalegur
ráðgjafi við World Wildlife Fund -
Alþjóða náttúruverndarsamtökin.
í því starfi hefur hann átt hlutdeild
í fjölda mörgum
verndunarráðstöfunum víðsvegar
um heim. Hann hefur líka starfað
að umhverfisáætlunum á vegum
Sameinuðu þjóðanna sem
vísindalegur ráðgjafi og
rithöfundur. Hann hefur skrifað
fjölda greina í blöð og tímarit bæði
í Bretlandi og öðrum löndum og er
höfundur bókar um náttúrulíf og
friðunarmál á íslandi - hinnar
fyrstu sinnar tegundar. Mark
Carwardine flytur einnig
reglulega þætti um
náttúrufræðileg efni í útvarp.
Sir David Attenborough er
éinhver víðkunnasti og virtasti
núlifandi rithöfundur og
fyrirlesari um lifríki náttúrunnar.
Hinir vinsælu
sjónvarpsþættir hans, t.d. Life on
Earth (Lífið á jörðinni) og The
Living Planet (Hin lifandi pláneta)
eru meðal vinsælustu
fræðsluþátta sjónvarpsins.
nr
Borgnesingar - nærsveitir
Spilum félagsvist í samkomuhúsinu, Borgarnesi, föstudaginn 2.
desember kl. 20.30.
2. kvöldið í 3ja kvölda keppni.
Framsóknarfélag Borgarness
Framsóknarvist
Hafnfirðingar og nágrannar, munið næst síðustu umferð í kvöld kl.
8.30 í íþróttahúsinu við Sfrandgötu.
Kaffiveitingar. Fjölmennum.
Framsóknarfélögin í Hafnarfirði.
Úthlutun úr Vilborgarsjóði
Sóknarfélagar - Sóknarfélagar
Hin árlega úthlutun úr Vilborgarsjóöi stendur frá þriöju-
deginum 6. des. til 17. des.
Umsækjendur komi á skrifstofu félagsins í Skipholti 50
A eöa hafi samband í síma 681150 og 681876.
Stjórn Starfsmannafélagsins Sóknar
Frá menntamálaráðuneytinu
Lausar stöður
við framhaldsskóla
Að Fjölbrautaskólanum í Breiðholti vantar
stundakennara á vorönn í:
þýsku, eðlisfræði, efnafræði, sálarfræði og rafiðnir,
en í þá grein er óskað eftir tæknifræðingi.
Þeir sem hug hafa á kennslu eru beðnir að senda
umsóknir til skólameistara fyrir 10. desember n.k.
Menntamálaráðuneytið
ÓKEYPIS
hönnun auglýsingar
þegar þú auglýsir í
TIMANUM
AUGLÝSINGASÍMI 680001
BLIKKFORM
______Smiðjuvegi 52 - Sími 71234__
Öll almenn blikksmíðavinna, vatnskassavið-
gerðir, bensíntankaviðgerðir, sílsalistar á alia
bíla, (ryðfríít stái), og einnig nælonhúðaðir í
öllum litum.
Póstsendum um allt iand-
(Ekið niður með Landvélum).