Tíminn - 03.12.1988, Side 13
Laugardagur 3. desember 1988
SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL
Holmes settist gegnt henni og hún
greip andann á lofti. - Þú ert frá
lögreglunnni, ekki satt, spurði hún.
- Ég vonaði að þið fynduð mig ekki
áður en ég kæmi til ykkar. Ég veit
ekki enn hvað gerðist.
- Þú þekktir Bryan Thomas og
fórst með honum héðan á þriðju-
dagskvöldið. Það vitum við.
Pauline kinkaði kolli og reyndi að
vera rólegri en hún var. - Ég skal
segja þér það sem ég veit.
Holmes tók upp minnisbók sína -
Hvert fóruð þið héðan?
-Heim til Bryans, svaraði stúlkan.
- Ég var ein á ferð þetta kvöld og
þau settust hjá mér. Við fórum að
spjalla saman og þau voru í mjög
góðu skapi. Mér skildist að Bryan
hefði hitt hin á annarri krá og þau
væru á leið heim til hans í gleðskap.
Hann þekkti manninn áður en hafði
ekki séð stúlkuna. Þau báðu mig að
koma líka en ég hikaði af því ég
þekkti ekkert þeirra. Ég var niður-
dregin og datt í hug að ég hresstist
og þar sem önnur stúlka var þarna
ákvað ég að slá til.
Kvennaskipti ráðgerð
- Hvað hét þetta fólk, vildi Holm-
es vita.
- Ross og Caroline, svaraði Paul-
ine. - Ég veit ekki ættamöfnin. Við
kynntum okkur aldrei formlega.
Caroline sagðist vera dansari á næt-
urklúbbi en að Ross væri atvinnu-
laus. Mér skildist að þau væru trúlof-
uð en það kom ekki í veg fyrir að
Ross færi að reyna stíft við mig um
leið og við komum inn í íbúðina. Ég
heyrði hann segja við Bryan? - Viltu
-taka Caroline að þér í nótt? Ég var
ekki hrifin af svona því ég hafði ekki
í hyggju að eyða nóttinni með nein-
um karlmanni.
Pauline hélt áfram og sagði að
Bryan hefði byrjað á að hella viský
og vatni í glös handa gestum sínum.
Síðan var dansað um hríð en loks
stakk Bryan upp á að þau spiluðu
fatapóker. Ross og Caroline fannst
það snjallræði.
- Ég kærði mig ekki um það, sagði
Pauline. - í fyrsta lagi kunni ég ekki
spilið en Bryan sagði að tilgangurinn
væri að losna við hömlurnar.
Eftir framhaldinu að dæma fór
spilið ekki eins og Bryan hafði
vonað. Hann tapaði fyrstur og sat á
nærfötunum en Pauline missti aðeins
armbandið og hálsfestina til að byrja
með. Þá snerist það við og Caroline
tapaði blússunni og síðan brjósta-
haldinu. Það virtist ekki fá hið
minnsta á hana að tína af sér fötin.
Jafnframt gerðust mennirnir ölv-
aðir og ,það fór í taugarnar á Ross
þegar Bryan fór að fara á fjörurnar
við Caroline.
- Þeir byrjuðu að þrasa og ég var
búin að fá meira en nóg af þessu,
sagði Pauline við Holmes. - Ég
tilkynnti að mér liði illa og væri farin
heim. Þá reiddist Bryan og sagði að
fyrst ég hefði þegið heimboðið yrði
ég að sofa hjá honum.
Ég varð hrædd og fór að gráta en
þá bauðst Ross til að hjálpa mér og
aka mér heim. Caroline fokreiddist,
tók af sér hring og fleygði í hann.
Þau æptu og fóru að takast á en ég
greip bara kápuna mína, hljóp út,
náði í leigubíl og fór heim.
Ég vonaðist til að heyra aldrei
minnst á þetta fólk framar en í dag
fékk ég mér blað og sá frétt um að
Bryan Thomas hefði verið myrtur.
Ég kom hingað til að lesa um hvað
gerðist en ætlaði síðan að hringja til
lögreglunnar ef ég gæti gefið upplýs-
ingar.
Leitað að fatafeilu
Pauline sagði ósköp blátt áfram
frá öllu saman og Holmes sá enga
ástæðu til að efast um orð hennar. -
Svo Ross og Caroline voru enn hjá
Bryan þegar þú fórst. Hvað var
klukkan þá? spurði hann.
- Hún var að verða þrjú um
nóttina, svaraði Pauline. - Ég get
ekki ímyndað mér að Ross og Caro-
line hafi átt þátt í morðinu, bætti
hún við. - Ég var ekki hrifin af Ross
en mér virtist hann ekki oðbeldis-
seggur og síst morðingi.
Holmes leit í blokkina. - Geturðu
sagt mér eitthvað fleira um þau?
Sögðu þau hvar þau ættu heima?
- Nei, ég minnist þess ekki.
- Þú sagðir að stúlkan væri fata-
fella. Vissirðu hvar?
- Á næturklúbbi í Soho, held ég.
Hún nefndi ekki nafnið. Samt held
ég að hún hafi kynnst Bryan þar.
Þessar upplýsingar voru ekki til
mikils gagns. Holmes fékk heimilis-
fang Pauline og kvaðst ef til vill
Ross Valore sagði að Bryan hefði
reynt að nauðga unnustu sinni. Var
morðið hefnd fyrir það?
þurfa frekar á henni að halda seinna.
í Soho er allt morandi af lokuðum
klúbbum þar sem fatafellur stunda
iðju sína. Lögreglumenn vissu að
það yrði mikið verk að finna þar
stúlku að nafni Caroline. Lýsingin á
henni gat átt við margar.
Holmes var í þann veginn að kalla
saman sveit manna til að fara á
klúbbana, þegar einn manna hans
hringdi. Sá var enn að spyrjast fyrir
á krám í Kensington.
- Ég er á bar á hóteli, sagði hann.
- Þjónn hérna segist hafa þekkt
Bryan Thomas og að hann hafi
komið hingað til að hitta ljóshærða
stúlku sem alltaf er með hvítan
púðulhund í bandi með sér. Þjónn-
inn telur að stúlkan búi hér á hótel-
inu.
Lýsingin á stúlkunni með hundinn
kom heim við Caroline, svo Holmes
hraðaði sér á hótelið og spurði
móttökustjórann um'þá ljóshærðu.
- Þú hlýtur að eiga við konuna
sem býr með eiginmanni sínum í
íbúð 301, sagði sá. Innan skamms
stóð Holmes augliti til auglitis við
afar glæsilega stúlku sem viður-
kenndi að hafa þekkt Bryan Thomas
og harmaði dauða hans.
Ross og Caroline finnast
Ekki var þó langt komið samræð-
um þegar Ijóst varð að þetta var ekki
Caroline. Hún kvaðst aldrei hafa
komið heim til Bryans, aðeins átt
viðskipti við hann á vegum fyrirtæk-
is, ekkert annað. Hún tengdist
morðinu ekki hið minnsta.
Hins vegar komst skriður á málið
undir kvöldið þegar rannsóknarlög-
reglumaður kom með umslag, fullt
af dóti sem fundist hafði í vösum á
fötum Bryans í skápum og hér og
þar um íbúðina. Það voru reikning-
ar, minnisblöð, sælgæti og lykla-
veski. Á einum króknum í því hékk
lítill, gylltur hlutur, svipaður eggi í
lögun og nafn Bryans Thomas var
grafið á hann.
Holmes horfði um stund á hlutinn
en greip síðan símaskrá og fletti. Þar
fann hann klúbb í Soho sem hét
„Gullna eggið“. Hluturinn í lykla-
veskinu var aðgangseyrir félaga
klúbbsins. Nú ætti eftirleikurinn að
vera auðveldur.
Holmes hringdi þegar í stað og
talaði við framkvæmdastjórann sem
upplýsti fúslega að hjá honum starf-
aði stúlka að nafni Caroline Carey
en hún hefði átt frí á þriðjudags-
kvöld. Hún hefði komið til vinnu á
miðvikudag og fimmtudag en ekki
sést á föstudag-og ekki heldur hringt
til að skýra það.
Holmes varð forvitinn um Caro-
line og fékk heimilisfang hennar.
Hún reyndist búa á efri hæð leigu-
húss í Soho. Enginn svaraði þegar
lögreglan barði að dyrum. Haft var
uppi á húsverðinum sem staðfesti að
leigjandinn væri dansari og hjá henni
væri iðulega karlmaður. Ekki vissi
hann hvar parið var þá stundina.
Meðan hann var að enn að tala,
birtust Caroline Carey og vinur
hennar, Ross Valore í stiganum.
Holmes kynnti sig og þau viður-
kenndu þegar í stað að hafa verið
heima hjá Bryan Thomas á þriðju-
dagskvöld en ekki hafa neina hug-
mynd um hvernig dauða hans bar að
höndum.
Hálftíma síðar sat Ijóshærða glæsi-
kvendið á skrifstofu Holmes á lög-
reglustöðinni og Ross við hlið
hennar. Hann kvaðst vera frá Hert-
fordshire en búa líka í Soho.
Nauðgunartiiraun
Ross sagði Holmes einkennilega
sögu. Eftir að Pauline Biggs fór úr
íbúðinni, róaðist Bryan til muna og
þau þrjú fengu sér meira að drekka.
Þá kvaðst Ross hafa orðið ákaflega
syfjaður og ekki getað hugsað sér að
fara alla leið heim:
- Bryan var augafullur en hann
setti þó dýnuna á gólfið handa okkur
Caroline, en fór sjálfur upp í sitt
rúm. - Nokkru seinna vaknaði ég
við að Caroline æpti. Ég kveikti og
sá þau Caroline slást við hliðina á
mér. Hann var að reyna að nauðga
henni. Ég kýldi hann og hann snerist
gegn mér. Ég fór fram úr og náði í
viskýflösku og sló hann tvisvar eða
þrisvar með henni einhversstaðar
nálægt eyranu eða á hálsinn. Hann
róaðist svolítið við það og ég setti
flöskuna frá mér. Hann krossbölvaði
í hálfum hljóðum og ég sparkaði í
hann, því ég var bálreiður honum
fyrir svona framkomu en það var
langt frá að ég missti stjórn á mér.
Ross sagði ennfremur að þá hefðu
þau Caroline snarað sér í fötin og
farið. Caroline gleymdi einhverju af
fötunum. Þau voru basði handviss
um að Bryan hefði verið á lífi þegar
þau fóru. Aldrei hefði hvarflað að
þeim að hann gæti verið alvarlega
skaddaður eftir átökin.
- Tókuð þið nokkuð úr íbúðinni?
spurði Holmes.
- Ef einhvers er saknað
hlýtur einhver að hafa komið inn um
frönsku gluggana eftir að við fórum
og rænt því um leið og hann drap
Bryan, svaraði Ross. - Gluggarnir
voru opnir.
Holmes fyrirskipaði gæsluvarð-
hald yfir parinu. Síðan útvegaði
hann húsleitarheimild og þó fram-
orðið væri, fór hann heim til Ross
Valore. Eftir ítarlega leit fannst
peningaveski og ávísanahefti,
hvorutveggja merkt Bryan Thomas,
fest aftan á kommóðuskúffu.
Ross Valore var ákærður fyrir
morðið. Ljóst þótti að Caroline
hefði hvergi nærri komið.
Verjandi Ross fékk ákærunni
breytt í manndráp af gáleysi og
endirinn varð sá að Ross Valore var
dæmdur til 7 ára fangelsisvistar.
HELGIN T
Þú getur fengið
7,25% vexti
umfram verð-
tryggingu næstu
a:
15 mánuðina
ef þú leggur
strax inn á
Afmælisreikning
Landsbankans.
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
13