Tíminn - 03.12.1988, Page 15
u
Laugardagur 3. desember 1988
hélgÍn f
15
I BETRI SÆTUM
HEARTS AND ARMOUR:
Ævintýramynd um
miðalda-riddara
Aðalhlutverk: Rick Edwards, Tanya
Roberts, Barbara De Rossi.Ron
Moss, Zeudi Arya, Maurizio Nichetti,
Anthony Vogel, Leigh McCloskey,
Giovanni Visentin, Kucien Bruchton
Leikstjóri: Giacomo Battiato
Stjörnugjöf = ★★
Hér er á ferðinni mynd um ástir
og örlög þar sem ofbeldi, göldrum,
og riddaramennsku í orðsins fyllstu
merkingu er ofið saman við sögu-
þráðinn. Aðalpersónur myndar-
innar eru tvær, riddarinn Bradam-
ante, sem er þó ótrúlega hljómi
miðalda-kvenriddari, og hins vegar
Márinn og riddarinn Ruggero.
Þessir tveir riddarar tilheyra hvor
sínum óvinahernum og ættu því
samkvæmt lögmálinu að berjast og
helst drepa hvor annan. Hins vegar
æxlast málin þannig að þau fella
hugi saman og slævir það vígamóð
þeirra, a.m.k. gagnvart hvort öðru.
Söguþráðurinn þróast að megninu
til í kringum „haltu mér slepptu
mér“ samband þessara riddara.
Vissulega koma fleiri við sögu t.d.
hin fallega systir Ruggero sem gat
sér gott orð fyrir fegurð sfna þegar
hún var einn af „englum Charlies"
í þeim víðkunna lögguþætti. Aðrar
fegurðardísir hafa hafið sinn feril í
JULIA OG JULIA:
Hristir upp í
heilasellunum
Stjörnugjöf = ★★★
Aðalhlutverk: Kathleen Turner,
Sting, Gabriel Bryne
Leikstjóri: Peter Del Monte
„Julia og Julia“ er að mörgu leyti
mjög furðulega mynd. Áhorfand-
anum er haldið í efa um hvað er
raunverulega að gerast nær alla
myndina og efanum er ekki eytt
fyrr en í lok myndarinnar EF
honum er þá til fullnustu eytt þá.
Myndin fjallar um konu sem
virðist lifa í tveimur heimum þar
sem annar er ímyndum en hinn
raunveruleiki þó svo að gagnvart
áhorfandanum eins og konunni,
Juliu, virðist báðir þessir heimar
jafn raunverulegir. I öðrum heimi
Juliu er hún ekkja sem hefur
dregið sig nokkuð inn í skel á þeim
sex árum síðan eiginmaður hennar
lést í bílslysi þegar þau voru á leið
í brúðkaupsferð. I hinum heimi
Juliu er eiginmaður hennar enn á
lífi og á hún með honum son.
Þessir tveir heimar eru þó ekki
meira en svo aðskildir að elskhugi
Juliu úr þeim heimi þar sem hún er
ekkja ofsækir hana í fjölskyld-
uheimi hennar og úr verður hið
versta ástand. Eins og áður segir
verður myndin næsta erfið ásýndar
vegna þess að áhorfandinn veit
aldrei hvað er raunverulega að
gerast en myndin verður þó alls
ekki leiðinleg fyrir vikið.
Vart þarf að fjölyrða um leikinn
hjá öllum þremur aðalpersónun-
um, hann er mjög góður, ekki
hvað síst hjá Kathleen Turner í
þessu erfiða hlutverki Juliu.
Vilji menn sjá athyglisverða
mynd sem hægt er að velta vöngum
yfir eftir að búið er að horfa á hana
er þetta rétta myndin. Hinum sem
ekki vilja láta hrista upp í heilasell-
unum þegar þeir horfa á myndband
ættu kannski að fá sér aðra mynd.
- BG
mim
þeim þætti en það er önnur saga.
Að sumu leyti minnti þessi mynd
á þær íslensku myndir sem byggðar
eru á fornsögunum. Mikið er
höggvið og riðið á hestum og látið
dólgslega. Þá er einnig útför í lok
myndarinnar að heiðinna manna
sið þar sem hinn látni er lagður í
langskip og síðan kveikt í öllu
saman í fjöruborðinu. Atriði sem
gæti hafa verið kippt út úr Útlagan-
um. Undirritaður treystir sér ekki
til þess að mæla neitt sérstaklega
með þessari mynd, en vill heldur
ekki mæla gegn henni. Þetta er
ævintýramynd fyrst og fremst þar
sem verið er að boða gildi friðar og
ástar í umhverfi sem slíkar hug-
myndir eiga í rauninni ekki við.
Hins vegar er á myndbandskáp-
unni vitnað til dóms kvikmynda-
tímaritsins Variety, sem nokkuð
hefur verið í umræðunni hér á
landi vegna annarrar myndar, og
þar segir: „Sláandi mynd út frá
myndrænum sjónarhóli og tilfinn-
ingalega aðlaðandi ævintýri."
- BG
„TOPP TUTTUGU“
1. ( 1) Bestseller (Skífan)
2. ( 2) TheUntouchables (Háskólabíó)
3. ( 5) Flightof the Navigator ((Steinar)
4. ( 8) SomeonetoWatchOverMe (Skífan)
5. ( 4) Et-TheExtraTerrestrial (Laugarásbíó)
6. (20) Though Guys Don t Dance (Myndbox)
7. ( 6) Stakeout (Bergvik)
8. (-) Nuts (Bergvík)
9. ( 3) Spaceballs:TheVideo (J.B. Heildsala)
10. ( 7) TheLostBoys (Steinar)
11. (15) Julia and Julia (Steinar)
12. ( 9) The Bedroom Window (J.B. Heildsala)
13. (13) Nadine (Steinar)
14 UJ2) Bodyof Evidence (Steinar)
15. (10) Making Mr. Right (Skífan)
16. (-) MurderOne (Skífan)
17. (23) TheChinaGirl (J.B. Heildsala)
18. (14) TheBelievers (Skífan)
19. (-) Síðasti keisarinn (Myndbox)
20. (19) Hairspray (Skífan)
( -) Táknar að viðkomandi myndband (titill) er nýtt a list-
anum
<‘V w. *>.-<. y
--'V v-- . ?§>>&&' r’
Stjörnugjöf = ★
NUTS:
SKAPSTORA
BARBARA
Stjörnugjöf = ★★★
Aðalhlutverk: Barbara Strelsand, Rlchard
Dreyfuss, Maureen Stapelton, Eli Wallach,
Robert Webber, James Withmore og Karl
Maden.
Leikstjóri: Martin Ritt.
Ég fór að horfa á þessa mynd
með heldur neikvæðu hugarfari,
þar sem Barbara Streisand var í
aðalhlutverki. Einhverra hluta
vegna hef ég aldrei kunnað við
hana sem leikara, en þetta hlutverk
hefur fengið mig til að endurskoða
afstöðu mína.
Barbara Streisand leikur hér
viljasterka konu sem segir dóm-
kerfi New-York borgar, fjölskyldu
sinni og geðlæknum stríð á hendur.
Hún hefur haft vændi, í hæsta
gæðaflokki, sem atvinnu og svo
óskemmtilega vill til að hún drepur
einn af kúnnum sínum í sjálfsvörn.
Þá er hún hneppt í varðhald og
foreldrarnir reyna að fá hana
dæmda geðveika, svo hún þurfi
ekki að koma fyrir rétt. En Barbara
berst við alla þá sem halda fram
þeirri skoðun að hún sé geðveik.
Eftir að hún hefur slegið einn
virtasta og dýrasta lögfræðing
New-York niður í dómssalnum,
kemur annar lögfræðingur, ekki
mikils metinn að því er virðist, til
sögunnar. Richard Dreyfuss er í
hlutverki þess lögfræðings og fær
hann að heyja hatramma baráttu
við fjölskyldu hennar og dómskerf-
ið til að sanna að hún sé heil á geði.
Ég verð nú að segja að þessi
mynd kom mér á óvart. Hér er á
ferðinni góð mynd með ágætis
söguþræði, sem heldur athygli
áhorfandans á meðan á sýningu
stendur. Leikur þeirra skötuhjúa
Barböru Streisand og Richard
Dreyfuss er mjög góður að mínu
mati, sem og annarra aðalleikara í
myndinni. -ABÓ
Flodder/Flodder fjölskyldan
Aöalhlutverk: Nelly Frldja, Huub Stapel,
Tatjana Slmlc og Rene Van‘t Hof.
Handrit og leikstjórn: Dick Maas
Með nokkuð jákvæðu hugarfari
er hægt að gefa þessari mynd eina
stjörnu. Hún flokkast undir B-
grínmynd sem kryddaðar eru með
brjóstum, brjóstum og klipptum
atlotssenum. Þrátt fyrir kryddið er
niðurstaðan heldur bragðdauf sam-
setning.
Leikarar eru lítt þekktir og verða
það sjálfsagt áfram.
Myndin greinir frá því er Flodd-
er fjölskyldan - aigert skítapakk -
er hrakin út af heimili sínu, þar
sem borgaryfirvöld telja húsnæðið
heilsuspillandi. Mikill húsnæðis-
vandi er og eina húsið sem laust er
- að þvf er virðist í allri borginni?
- er í fínasta hverfi borgarinnar.
Fjölskyldan samanstendur af
tveimur systrum, önnur með brók-
arsótt, þremur bræðrum, sem allir
. stunda afbrotastarfsemi, móður
sem bruggar og kolrugluðum
frænda í hjólastól. Myndin fjallar
svo um samskiptin við nýju ná-
grannana.
Flodder nær því aldrei að verða
skemmtileg. Húmorinn erekkifyr-
ir minn smekk og aðrir sem horfðu
með mér grétu ekki af hlátri.
-ES
Öðruvísi nágrannar