Tíminn - 16.12.1988, Blaðsíða 7
Föstudagur 16. desember 1988
Tíminn 7
Hægt að spara varðandi hátíð barnanna:
Verulegur verðmunur á
leikföngum og spilum
Mikil verðmunlir er á leikföngum
eftir verslunum, allt að 70,8%, en
þar er um að ræða s.k. Snákahöll í
leikfangaseríunni „Masters of the
Universe“. SnákahöIIin er ódýrust í
Hagkaupum, þar kostar hún 2.869
krónur en dýrust í Leikfangahúsinu
á Skólavörðustíg, þar er verðið 4.900
krónur. Þess ber að geta að í sex
verslunum var verðið á bilinu 4.793-
4.900 krónur.
Þessar upplýsingar er að finna í
niðurstöðum verðkönnunar sem
Verðlagsstofnun stóð að dagana 5.
og 6. desember. f könnuninni var
borið saman verð á 54 leikföngum
og 14 spilum í 35 verslunum. Verð-
munur á spilum milli verslana er
ekki jafn áberandi og á leikföngum
þó má nefna að mesti verðmunur var
á Útvegsspilinu, munur á hæsta og
lægsta verði var 73%. Útvegsspilið
kostar 900 krónur hjá Magna Lauga-
vegi en 1.560 krónur í Pennanum.
I átta tilvikum var lægsta verð á
leikföngum í Hagkaupum og Kaup-
stað og í sex tilvikum í leikfanga-
versluninni Fídó og Smáfólk.
Hæsta verð reyndist oftast í leik-
fangaversluninni Liverpool, í 15 til-
vikum af 46. Einnig reyndist vera
hátt verð í Hólasporti og Bókabúð
Fossvogs, en í tveimur síðarnefndu
verslununum voru tiltölulega fá leik-
föng til.
Eins og fyrr segir kemur ekki fram
jafnmikill munur milli verslana hvað
spil varðar. Auk Útvegsspilsins er
mikill munur á verði á Matador,
lægsta verð er 760 krónur í Bókabúð
Vesturbæjar en hæsta verð er í
Ástund Austurveri eða 1040 krónur,
munurinn er 36,8%. Hvað púsluspil
varðar er mesti munur á 1500 stykkja
Jumbo púsluspili. Það kostar 560
krónur í Bókabúð Æskunnar en 770
krónur í Ástund Austurveri, hlut-
fallslegur munur er því 37,5%
Skýringar
Áætlað er að u.þ.b. helmingur
allrar leikfangasölu eigi sér stað á
þessum árstíma, rétt fyrir jólin. Að
fengnum þessum upplýsingum ætti
að vera ljóst að það getur margborg-
að sig að fara sér hægt í innkaupun-
um og athuga verðmun milli versl-
ana.
Að mati Verðlagsráðs eru ýmsar
skýringar á þeim verðmun sem fram
kemur í könnuninni. Má þar nefna
m.a. mismunandi aldur birgða og
mismunandi smásöluálagningu. í
könnuninni er borið saman verð á
nákvæmlega sömu vörutegundum og
vörumerkjum, þannig að gæðamun-
ur skýrir ekki þennan mismun.
Hvað er vinsælast?
Tíminn gerði sér ferð í Leikfanga-
verslunina Liverpool á Laugavegi til
að grennslast nánar fyrir um verð-
lagningu og sölu á leikföngum.
í versluninni fengust þær upplýs-
ingar að leikfangasalan væri komin
á fullt fyrir jólin. Vinsælustu leik-
föngin fyrir þessi jól fyrir stelpur
væru Pony, Sindy og Barbie en
munur á milli verslana á þessum
vörum er á bilinu 5,8-43,7%. Vin-
sælustu leikföngin fyrir stráka eru
geimkarlar og fígúrur eins og Trans-
formers, Action Force og Masters of
the Universe. Verðmunur á þessum
vörum er á bilinu 2,3-18,2%. Fyrir
þá sem blöskra vinsældir „stríðs-
leikja" af þessu tagi er rétt að taka
fram að ýmiskonar spil seljast alltaf
vel og gömlu spilin Bingó og Mat-
ador eru ekki grafin og gleymd.
Verslunarstjóri Liverpool sagðist
helst hallast að því að mikill verð-
munur væri vegna mismunandi
aldurs á vörum í verslununum. Sem
dæmi má nefna að vörur frá Lego
hækkuðu um nærri 30% fyrir tveim-
ur mánuðum og slíkt kemur auðvit-
að fram ef verslanir eru með nýjar
vörur á lager.
Fyrrnefnd Snákahöll sem var rifin
út fyrir jólin í fyrra hefur ekki selst
mikið. Verðmunurinn á henni er
gríðarlegur milli verslana eins og
kom fram hér að ofan. En allt á sínar
skýringar og hjá Hagkaupum feng-
ust þær upplýsingar að verðið á
títtnefndri Snákahöll hefði verið
lækkað nú fyrir jólin og birgðir væru
takmarkaðar.
Álagning
Mikið hefur verið rætt um gríðar-
lega álagningu á leikföngum, og
heyrst hafa tölur eins og 100-200%.
Ekki er hægt að útiloka að um slíkt
sé að ræða í einstökum tilfellum,
líklegra verður þó að telja að álagn-
ingin sé 50-55%. Svo er auðvitað
söluskattur á leikföngum og er hann
25%.
Þegar keypt eru leikföng er rétt að
hafa í huga að hægt er að fá mun
ódýrari vöru ef fólki er ekki umhug-
að að kaupa tiltekin merki sem
mikið hefur verið haldið á lofti bæði
í auglýsingum og sjónvarpsþáttum.
SSH
féSStf Laugavegi 47 flDAflltf'
Herrafatnaður fyrir menn á öllum aldri.
Tískufatnaður og sígildur fatnaður í úrvali.
Verð og gæði fara saman hjá Herrahúsinu og Adam.
S. 29122
S.17575
ADAm*
Kjörgarður
/ i | j |
1 m m J .11 11L
(/} «5 Laugavegur -3 Laugavegur “ Laugavegur -q
|1 r i>r s j j i!
ilJO
Hlemmur