Tíminn - 20.12.1988, Blaðsíða 4

Tíminn - 20.12.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn Þriðjudagur 20. desember 1988 VINNUFATABÚÐIN Laugavegi 76, Hverfisgötu 26 RÚLLUKRAGABOLIR r Efni: 100% bómull. Litir: svart, hvítt, dökkblátt. Stærðir: M, L, XL. Verð kr. 795,- FLUGMÁLASTJÓRN Námskeið fyrir verðandi flugkennara hefst á Reykjavíkurflugvelli laugardaginn 14. janúar n.k. kl. 1300 og stendur í 10 vikur. Kennt verður 10 klukkustundir á viku. Rétt til þátttöku eiga þeir sem þegar hafa lokið bóklegu námi fyrir atvinnuflugmannsskírteini III. flokks og blindflugsréttindi og þeir sem eru í slíku námi og ætla að Ijúka því á árinu. Innritun og frekari upplýsingar fást hjá Flugmála- stjórn/loftferðaeftirliti, flugturninum á Reykjavíkur- flugvelli, sími 91-694100. Flugmálastjórn. Auglýsing um styrki til leiklistarstarfsemi i frumvarpi til fjárlaga fyrir áriö 1988 er gert ráö fyrir sérstakri fjáreitingu, sem ætluð er til styrktar leiklistarstarfsemi atvinnuleikhópa, er ekki hafa sérgreinda fjárveitingu í fjárlögum. Hér með er auglýst eftir umsóknum um styrki af þessari væntanlegu fjárveitingu. Umsóknareyðublöð fást í ráðuneytinu. Umsóknir skulu hafa borist menntamálaráðuneytinu fyrir 15. janúar næstkomandi. Menntamálaráðuneytið, 15. desember 1988. Hafírðu smákkað - láttiTþér þá AUDREI detta í hug ^ ' að keyra! IUMFERÐAR Iráð Níu manna þingmannanefnd telur að íslendingar hafi ekki fylgst nógu vel með þróun Evrópusamvinnu: Bein aðiid að EBE ekki á döfinni nú - Þróunin er afar hröð hvaö varöar Efnahagsbandalagið og íslendingar hafa því miður ekki fylgst nægilega vel með og ég tel að Norðurlandaþjóðirnar hafi hér talsvert forskot fram yfir okkur. Þetta sagði Kjartan Jóhannsson, en hann er formaður níu manna nefndar sem stofnuð var með þing- sályktun þann 11. maí sl. en nefnd- inni er ætlað að kanna sérstaklega þróun Evrópu með tilliti til ákvörð- unar Evrópubandalagsins um sam- eiginlegan innri markað frá 1992 og á hvern hátt ísland geti tengst honum. Nefndin kynnti störf sín blaða- mönnum í síðustu viku og sagði Kjartan Jóhannsson að þau byggðust á þeirri afstöðu Alþingis að aðild íslands að bandalaginu væri ekki á döfinni a.m.k. að sinni. Kjartan sagði að þar sem allar hræringar hjá Evrópubandalaginu skiptu viðskipta- og atvinnulíf fs- lendinga svo miklu, væri lífsnauð- synlegt að fylgjast vel með þróuninni og komast að samningum við banda- lagið. Nauðsynlegt væri að fylgjast vel með þróuninni til að tryggja hags- muni okkar og freista þess að hafa áhrif á að ekki verði teknar ákvarð- anir skaðlegar íslendingum. Þá sé ljóst að íslendingar verða að breyta á margvíslegan hátt löggjöf sinni einkum í sambandi við banka- starfsemi og fjármagnsmarkað, at- vinnu- og rekstrarréttindi milli landa þegar þessi mál verða frjáls innan bandalagsins. Fram kom að slíkar lagabreyting- ar hafa þegar hafist og fyrir skömmu voru samþykkt ný lög um vörumerki og einkaleyfi sem eru í samræmi við lög ríkja Evrópubandalagsins og taka eiga gildi innan skamms. Nefndina skipa Kjartan Jóhanns- son, Eyjólfur Konráð Jónsson, Kristín Einarsdóttir, Guðmundur H. Garðarsson, GuðmundurG. Þór- arinsson, Hjörleifur Guttormsson, Júlíus Sólnes, Páll Pétursson og Ragnhildur Helgadóttir. Nefndin birtir jafnharðan afrakst- ur starfs síns og hefur nú komið út bæklingurinn; „ísland og Evrópa, skipan og þróun viðskiptasam- vinnu.“ í bæklingnum er fjallað um sögu viðskipta og efnahagssamvinnu í Evrópu frá stríðslokum. Þá er yfirlit yfir tilhögun og skipulag samvinnu milli Evrópulandanna og loks um áform Evrópubandalagsins um hindrunarlausan heimamarkað. Nýr bæklingur kemur frá nefnd- inni í þessari viku og fjallar hann um samvinnu Evrópubandalagsins og EFTA á síðari árum og þau verkefni sem unnin eru í þessu samstarfi. Nefndin vill eins og áður sagði stuðla að almennri umræðu um þessi mál og ætlar hún síðar meir að leita álits ýmissa samtaka atvinnulífsins um þessi mál og út frá því móta tillögur sínar og ábendingar. -sá Dr. Sturla Friðriksson. Dr. Sturla Friðriksson hefur ferð- ast víða um heim og komið til margra forvitnilegra staða í fjarlæg- um löndum í fimm heimsálfum. Hann hefur skrifað ýmsar greinar um ferðalög sín og lýst staðháttum og náttúruundrum margra framandi landa en einnig ort um þau Ijóð á hefðbundinn hátt. Þessi kvæði birt- ast nú í bók hans Ljóð langföruls. í bókinni er brugðið upp ljóðrænum myndum af sögu, umhverfi og líf- heimi á ýmsum landsvæðum jarðar allt frá Svalbarða til Suðurskauts- landsins. Sem dæmi um yrkisefni má einnig nefna kvæði frá Eldlandi, Galapagos- og Falklandseyjum og ýmsum svæðum Afríku, Asíu og Evrópu. í bókinni eru yfir fimmtíu ljóð. Ljóð lang föruls Markaðsskrif- stofa stóriðju Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur greint frá því að stofnuð hafi verið sérstök markaðsskrifstofa á vegum iðnaðarráðuneytisins og orkustofnunar, er kannaði hag- kvæmni á uppbyggingu orkuvera og stóriðju. Markaðsskrifstofan var stofnuð um mitt þetta ár og er starf hennar þess vegna ekki komið nema að litlu leyti í Ijós. Þetta kom fram í svari ráðherrans við fyrirspurn Jóns Kristjánssonar og Valgerðar Sverrisdóttur um hvaða ráðstafanir iðnaðarráðuneyt- ið hefði gert til að leita samstarfs við erlendra aðila um uppbyggingu stór- iðju annars staðar en í Straumsvík. Jafnhliða því, hvort að í gangi sé kynningarstarfsemi á öðrum mögu- leikum í orkufrekum iðnaði. í því sambandi voru nefndir kostir eins og álver við Eyjafjörð og kísilmálm- verksmiðja við Reyðarfjörð. Jón Sigurðsson sagði að eins og sakir standa virtust hvorugur þessi kostur vera hagkvæmur, en áhersla verði lögð á að leita út fyrir suðvestur horn landsins við hagkvæmniathuganir. -ág Tvíhneppt víð jakkaföt í ár Tvíhneppt, víð jakkaföt eru vin- sælust sem jólaföt í ár og einhnepptir stakir jakkar úr grófum efnum. Bux- urnar eru víðar og þægilegar og peysur tvíhnepptar, grófar, og víðar yfir axlir, að sögn herramanns í Herrahúsinu. Guðgeir Þórarinsson, annar tveggja eigenda og verslunarstjóri Herrahússins, tjáði Tímanum að þetta væri vinsælast meðal ungu mannanna í dag.“ Þegar menn eru að nálgast eða eru um miðjan aldur, fara þeir rólegar í sakirnar", sagði Guðgeir. „Eftir að verslunin flutti í nýja húsið að Laugavegi 47, hefur öll aðstaða batnað til muna. Við kunnum alveg prýðilega við okkur hérna og svo eru hér hugguleg hús á alla kanta.“ í nýja húsinu fer öll starfsemi fyrirtækisins frarn. Á fyrstu hæð er „Víð tvíhneppt föt er það sem ungu ntennirnir vilja helst í dag“. Guðgeir Þórarinsson, annar eigandi Herra- hússins og verlunarstjóri til vinstri.og Einar Sigurvinsson.einnig verlunarstjÓri.Tinianiynd: Pjetur Adam, Herrahúsið er á 2. hæð og á þriðju hæðinni er skrifstofan. Þar er saumastofan einnig, og varðandi fatabreytingar er yfirleitt hægt að fá þær samdægurs, enda afburða dugn- aðarkonur á saumastofunni! elk

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.