Tíminn - 20.12.1988, Qupperneq 5
Þriðjudagur 20. desember 1988
Tíminn 5
Sjálfstæðismenn tala mikið og lengi í báðum deildum þingsins. Munu þeir tefja afgreiðslu fjárlaga fram yfir áramót?
Sjálfstæðismenn þæfa
en neita þó málþófi
Sjálfstæðismenn heyja um þessa dagana sitt einkastríð
gegn ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar í formi mara
þonræðuhalda er tefja afgreiðslu mála bæði í efri og neðri
deildum Alþingis. Þess er skemmst að minnast að fyrir
jólin í fyrra hélt þáverandi stjórnarandstaða uppi málþófi
er fór mjög i taugarnar á þingmönnum Sjálfstæðisflokksins.
Núna beita sumir þingmenn flokksins hins vegar mjög
svipaðri taktík sjálfir, þrátt fyrir gefnar yfirlýsingar Ólafs
G. Einarssonar formanns þingflokksins um að þeir hyggist
ekki teQa þinghald.
Við málþófið í fyrra var horfið
frá þeirri meginreglu er verið hafði
við lýði í þinginu að einn fulltrúi
hvers þingflokks hélt framsögu-
neðu um lagafrumvörp er til um-
ræðu voru hverju sinni en aðrir
þingmenn komu með stuttar at-
hugasemdir ef þeim þótti við hæfi.
Þess í stað héldu ailir þingmenn
stjómarandstöðunnar ræður svo
kiukkutfmum skipti til að tcfja
þinghaid. Pað fór því þannig f fyrra
að afgreiðsla fjárlaga dróst fram
yfir áramót og hafðist ekki í gegn
fyrr en á fyrri hluta janúarmánaðar
eftir stíf fundahöld í jólaleyfi
þingmanna.
Menn velta því fyrir sér núna
hvort sagan ætli að endurtaka sig.
Það er ijóst að sjáifstæðismenn
geta haft það í hendi sér hvort
fjárlög verða afgreidd fyrir áramót
eða ekki. Afgreiðsla þeirra fyrir jól
er löngu dottin út úr myndinni og
reyndar eru uppi efasemdír um að
nokkuð af tekjuöflunarfrumvörp-
um stjómarinnar fyrir næsta ár
verði afgreitt sem lög fyrir jói. Þeir
hafa lýst því yfir að þeir muni ekki
samþykkja þriðju og síðustu um-
ræðu fjárlaga fyrr en tekjuöflun
þeirra liggi ljós fyrir. Það er vissu-
lega ekki ósanngjörn krafa en á
möti kemur að þeir tefja sjálfir
fyrir afgreiðslu tekjuöflunarfrum-
varpanna með óþarflega mörgum
og löngum ræðum.
Ekki tefja þó allir þingmenn
Sjálfstæðisflokksins þinghald.
Mest ber á þrenningunni í-neðri
deild, Þorsteini Pálssyni, Fríðrik
Sophussyni og Geir H. Haarde.
Peir eru mikið fyrir að ræða málin
og koma gjaman þrisvar tii fjórum
sinnum upp í hverri umræðu unt
þau mál sem stjórnin vill hraða
afgreiðslu á.
1 efri deild þingsins er Halldór
Blöndal lang afkastamestur
ræðumanna, er jafnah efstur á
mælendaskrá á eftir frummælanda
hverju sinni og skammar stjórnar-
liða svo klukkutímum skiptir.
Enda er nú svo komið að Halldór
er oft og tíðum orðinn hás þegar
liðíð er fram yfir miðjan dag, en í
hita leiksins liggur honum gjarnan
hátt rómur.
Þessi nýi siður er virðist nú vera
að festast í sessi á Alþingi að
formenn þingflokka takmarki ekki
ræðutíma sinna manna, getur eins
og er ekki talist málþóf, þar sem
stjórnarandstaðan stendur ekki
saman að honum heldur nokkrir
þingmenn sjálfstæðismanna. Þetta
er þó óneitanlega töf. Stjómarliðar
hafa bent á að þessi töf geti ekki
talist einkamá! þeirra sem að henni
standa, því tii að áframhaldandi
efnahagsaðgerðir ríkisstjómarinn-
ar geti talist marktækar, verður
rekstur ríkissjóðs á næsta ári að
liggja fyrir. Megin inntak málflutn-
ings sjálfstæðismannana er van-
þóknun á auknum sköttum á ein-
stakiinga og sérstakiega fyrirtæki.
Ráðherrar í ríkisstjóm Steingríms
Hermannssonar hafa vaxandi
áhyggjur af hægri ferð mála i
gcgnum þingið. Þeir benda á að
með þessum maraþonræðum séu
þrcmenningarnir í neðri deild og
sólóistinn í efri deild ekki að hjálpa
atvinnuiífinu t iandinu sem þeim er
svo tíðrætt um heidur, þvert á
móti, lengi þeir biðtímann eftir
frekari aðgerðum til stuðnings at-
vinnulífinu. Þvt' lcngur scm dregst
að afgreiða fjárlög þvf lengri verð-
ur biðin eftir framhaldi efnahags-
aðgerða.
Þorsteinn er ekki foringi
Þorsteinn Pálsson leggur mikið
upp úr því t málflutningi sínum að
stjómarandstaöan standi saman
sem ein heild gegn auknum
skattaálögum rfkisstjórnarinnar.
Því fer þó víðs fjarri að svo sé.
Málefnalega eru Kvennalisti og
Sjálfstæðisflokkur nánast andstæð-
ur enda hafa konumar helst stutt
þau mál sem sjálfstæðismenn berj-
ast harðast gegn, s.s. skatt á vcrsl-
unar- og skrifstofuhúsnæði og
hækkaðan tekjuskatt hátekju-
manna. Borgaraflokkurinn virðist
ekki heldur samstíga sjálfstæðis-
mönnum, enda býsna ólfk viðhorf
ríkjandi hjá þingmönnum flokks-
ins og nægir þar að nefna Aöalheiði
Bjarnfreðsdóttur sem er upprunn-
in í vcrkalýðsstétt og mikið lengra
til vinstri en til dæmis Ingi Björn
Albertsson. -ág
Bráöabirgðalögin og tekjuöflunarfrumvörpin til fjárhags- og
viðskiptanefndar neðri deildar:
■■
Orlög stjórnarinnar
ráðast í nefndinni
Frumvarp til breytinga á lögum um Háskólann:
Aukið frelsi
við ráðningar
Senn líður að því að þingstyrkur
ríkisstjórnar Steingríms Hermanns-
sonar komi í ljós. Lög til staðfesting-
ar bráðabirgðalögunum voru til
fyrstu umræðu í neðri deild þingsins
í gær og stóð fundurinn fram á nótt.
Lögin hafa verið afgreidd frá efri
deild og ætlunin var að freista þess
að Ijúka umræðunni í neðri deild
fyrir daginn í dag, svo hægt sé að
leggja bráðabirgðalögin fyrir fjár-
hags- og viðskiptanefnd deildarinn-
ar.
Viðbúið er að lögin taki einhverj-
um breytingum í meðförum nefndar-
innar, til að koma til móts við
sjónarmið stjómarandstöðunnar.
Falli bráðabirgðalögin á jöfnum at-
kvæðum í neðri deild, fellur stjórnin
einnig samkvæmt yfirlýsingum for-
sætisráðherra.
Þá munu örlög tekjuöflunarfrum-
varpanna einnig ráðast í meðförum
fjárhags- og viðskiptanefndarinnar.
Takist ekki að gera á þeim þær
breytingar sem einhver hluti stjóm-
arandstöðunnar fellir sig við verða
að minnsta kosti einhverjir hlutar
þessara frumvarpa felldir á jöfnum
atkvæðum. Þau frumvörp sem mest
óvissa ríkir um eru frumvarpið um
breyttan tekju- og eignaskatt og
vörugjaldsfrumvarpið. Til að koma
til móts við sjónarmið Kvennalistans
hefur heyrst að Ólafur Ragnar
Grímsson fjármálaráðherra hafi lagt
fram tillögur um að lækka vörugjald
í 10% og hækka tekjuskattsprósent-
una um 0,3%-0,5%. Til að ná inn
sömu tekjum af vörugjaldinu hefur
verið rætt um að breikka skattstofn-
inn og leggja 15% aukaskatt á sykur
og sykurvörur. Hækkuð prósenta í
tekjuskatti yrði notuð til þess að
færa greiðslubyrði tekjuskatts frá
hinum launalægri til þeirra sem hafa
hærri laun. Þannig ætti að nota það
Jón Kristjánsson þingmaður.
fé sem inn kemur af hærri prósentu
til að auka barnabætur og færa
skattleysismörkin ofar.
Viðræður á milli stjórnar og
stjórnarandstöðu hafa farið fram á
undanförnum dögum og var síðasti
fundur haldinn í hádeginu í gær. Að
sögn Jóns Kristjánssonar þingmanns
Framsóknarflokksins hafa ekki verið
í gangi neinar sérviðræður við neinn
einn flokk, heldur rætt við stjórnar-
andstöðuna í heild.
-ág
Bráðlega verður lagt fyrir Alþingi
frumvarp til breytinga á lögum um
Háskóla íslands. Frumvarpið tekur
til mannaráðninga og helstu breyt-
ingar eru þær að gert er ráð fyrir að
ekki verði unnt að skipa menn í
stöður, prófessora, lektora og dós-
enta, án þess að fyrir liggi meirihluti
í dómnefnd og á deildarfundi við-
komandi deildar.
Á blaðamannafundi með mennta-
málaráðherra kom fram að frumvarp
þetta er komið frá Háskólaráði og er
sett saman í beinu framhaldi af
umdeildri ráðningu Hannesar Hólm-
steins Gissurarsonar í lektorsstöðu
fyrr á þessu ári. En í því tilviki tók
Birgir Isleifur Gunnarsson hvorki
tillit til álits dómnefndar né deildar-
fundar.
Önnur breyting sem frumvarpið
felur í sér er að ritari skuli starfa með
hverri dómnefnd. Gert er ráð fyrir
að hann verði skipaður af Háskólar-
áði og á hann að vera til ráðuneytis,
leiðbeiningar og annarrar aðstoðar.
Hjá Svavari Gestssyni mennta-
málaráðherra kom fram að mikil-
vægi þessa frumvarps felist fyrst og
fremst í því að með samþykkt þess
fái Háskólinn aukið sjálfstæði og
ábyrgð háskólaforystunnar verði
meiri. SSH
Skatan á 420 kr.
Þorláksmessuskatan er fylgifisk-
ur þeirrar stórhátíðar sem fram-
undan er og hafa fisksalar og
framleiðendur að undanförnu ver-
ið að undirbúa forrétt jólamatar-
ins. Hjá sumum eru engin jól
komin nema Þorláksmessuskatan
hafi verið á borð borin.
í Fiskbúrinu á Langholtsvegi
174 fengust þær upplýsingar að
verðið á Þorláksmessuskötunni í
ár væri 420 krónur kílóið. „Skatan
sem við bjóðum upp á er söltuð,
kæst og útvötnuð, sem sagt tilbúin
í pottinn," sagði Bjarni Kjartans-
son í Fiskbúrinu í samtali við
Tímann. Aðspurður sagði hann að
það hefði færst mjög í aukana á
síðustu árum að fólk borðaði skötu
á Þorláksmessu, enda tilheyrði það
jólahaldinu.
Bjarni sagði að skötusalan hefði
farið hægt af stað. „Það er búið að
vera smá kropp síðustu daga, en
búast má við að í dag og á morgun
fari að komast kippur í söluna,"
sagði Bjarni. Skatan sem Fiskbúrið
er með í fiskborðinu kemur frá
Suðurnesjum. Aðspurður um
bestu matreiðsluaðferðina sagði
Bjarni að sér þætti best þegar
skatan væri sem minnst soðin.
„Það á að láta suðuna koma upp
og slökkva þá undir pottinum og
láta hana standa örstutta stund í.
Ekkert vera að sjóða hana í lengri
tíma,“ sagði Bjarni, síðan mætti
bera fram kartöflur og hamsa eða
annað sem fólki þætti viðeigandi.
Að sögn fisksala er nóg til af
Þorláksmessuskötu að þessu sinni,
svo enginn ætti að missa af forrétt-
inum að jólamatnum. - ABÓ
„Skata var það heillin,“ sagði Snæbjörn Magnússon, eigandi Fiskbúrsins
á Langholtsvegi, þegar hann valdi skötuna handa einum viðskiptavinanna.
Tímamynd Pjetur