Tíminn - 20.12.1988, Síða 19
Þriðjudagur £0. desémbér 1988
Tíminn 19
ii\nuo
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Stóra sviðið
Fjalla-Eyvindur
og kona hans
leikrit eftir Jóhann Sigurjónsson
Annan dag jóla kl. 20.00 Frumsýning,
uppselt
Miðvikudag 28. des. 2. sýning
Fimmtudag 29. des. 3. sýning
Föstudag 30. des. 4. sýnlng
Þriðjudag 3. jan. 5. sýning
Laugardag 7. jan. 6. sýning
ibo)fmanne
Föstudag 6. jan., fáein sæti laus
Sunnudag 8. jan.
Takmarkaður sýningafjöldi.
íslenski dansflokkurinn og Arnar
Jónsson sýna:
Faðir vor
og Ave Maria
dansbænir eftir Ivo Cramér og
Mótettukór Hallgrimskirkju syngur undir
stjórn HarAar Áskelssonar.
Sýningar í Hallgrímskirkju:
Fimmtudag 22. des. kl. 20.30 Frumsýning
Þriðjudag 27. des. kl. 20.30
Miðvikudag 28. des. kl. 20.30
Fimmtudag 29. des. kl. 20.30
Föstudag 30. des. kl. 20.30
Aðeins þessar 5 sýningar
Miðasala Þjóðleikhússins er opin alla
daga nema mánudaga kl. 13-20 fram til
11. des., en eftir það er miðasölunni
lokað kl. 18. Simapantanir einnig virka
daga kl. 10-12.
Simi í miðasölu: 11200.
Leikhúskjallarinn er opinn öll
sýningarkvöld frá kl. 18.00.
Leikhúsveisla Þjóðleikhússins: Máltið
og miði á gjafverði.
Munið Gjafakort Þjóðleikhússins:
Jolagjof sem gleður.
i.i:iKi--f-:iA(;2(2 22
kfakiavIkijr •r
SVEITASINFÓNÍA
eftir Ragnar Arnalds
'g' 1
Tónlist: Atli Heimir Sveinsson
Leikmynd og búningar: Sigurjón
Jóhannsson
Leikstjóri: Þórhallur Sigurðsson
Þriðjudag 27.12. kl. 20.30.
Miðvikudag 28.12 kl. 20.30
Fimmtudag 29.12. kl. 20.30
Föstudag 30.12. kl. 20.30
Söngleikur eftir Ray Herman
Þýðing og söngtextar: Kari Ágúst Úlfsson
Tónlist: 14 valinkunn tónskáld frá ýmsum
tímum
Leikstjóm: Karl Ágúst Úlfsson
Leikmynd og bgningar: Karl Júlíusson
Tónlistar-, söng- og hljómsveitarstjóm:
Jóhann G.Jóhannsson
Lýsing: Egill Örn Ámason
Dans: Auður Bjamadóttir
Leikendur: Pétur Einarsson, Helgi
Björnsson, Hanna María Karlsdóttir, Valgeir
Skagfjörð, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Harald
G. Haraldsson, Eria B. Skúladóttir, Einar
Jón Briem, Theódór Júlíusson, Soffía
Jakobsdóttir, Anna S. Einarsdóttir, Guðný
Helgadóttir, Andri Örn Clausen, Hallmar
Sigurðsson, Kormákur Geirharðsson,
Guðrún Helga Arnarsdóttir, Draumey
Aradóttir, Ingólfur Björn Sigurðsson,
Ingólfur Stefánsson.
Sjö manna hljómsveit valinkunnra
hljóðfæraleikara leikur fyrir dansi.
Frumsýning á Broadway 29. desember kl.
20.30
Miðasalan í Iðnó er opin daglega kl. 14-17.
Forsala aðgöngumiða: Nú erverið aðtaka
við pöntunum til 9. jan. 1989. Símapantanir
virka daga frá kl. 10. Einnig símsala með
VISA og EURO á sama tíma.
Ath. Munið gjafakort Leikfélagsins.
Tilvalin jólagjöf.
Tv-
Sr
- Er þaö satt aö þú sért bensín-
laus, eða ertu bara aö plata mig í
kelerí, eins og venjulega?
- Komdu bara inn... Þaö er ekki
læst...
Fjórir af dvalargestunum taka Dick upp og giska á hvað hann sé þungur. Þarna eru þessi fjögur þegar
búin að losna við nokkur aukakíló, - en þó sér ekki högg á vatni
í stríði gegn offitu
- Fitubollurnar flykkjast í megrun til Dick Gregory,
fyrrv. grínleikara, sem nú helgar sig baráttunni gegn offitu
Dick Gregory losnaði und-
an þungu fargi þegar hann
hafði barist við aukakílóin
með góðum árangri og náð
„kjörþyngd" sinni, sem hann
segist ætla að halda allt lífið.
Hann Iangaði því til að hjálpa
öðrum sem áttu í þessari
örðugu baráttu við offituna.
Því bauð hann 13 manns að
taka þátt í námskeiði hjá sér,
en fólkið var allt geysilega illa
farið vegna offitu.
Það var í júní sem megrun-
arnámskeiðið hófst, og í
haust hafði árangurinn þegar
orðið mikill, - en betur má ef
duga skal, sagði Dick Greg-
ory. Hann lýsti því yfir við
offitu-sjúklingana í byrjun
kúrsins, að hann væri að gera
tilraun til að bjarga lífi þeirra,
en þau væru að éta sig í hel.
Dick segir, að um 30%
Bandaríkjamanna séu hættu-
lega feitir. Þeir fari í megrun-
arkúra um tíma, en síðan
sæki allt í sama horfið, því að
nauðsynlegt sé fyrir þetta fólk
að breyta um lífshætti, matar-
æði og hreyfingu.
Reginald Toran, 31 árs að-
stoðarforstjóri megrunar-
stöðvarinnar í Newark, New
Jersey, segir, að aðaluppi-
staðan í fæðinu þar sé megr-
unarduft, uppfullt af vítamín-
um og nauðsynlegum snefil-
efnum. Grænmeti og ávextir
eru svo sem uppbót á fæðið.
Sálrænar ástæður
getaveriðorsökoffitu
Ron Miller, sem er mat-
sveinn frá Marion, Indiana,
sagði að hann hefði byrjað
ofát um 10 ára aldur. Hann
kenndi sér um drukknun syst-
ur sinnar, og til að deyfa
sársaukann og sektarkennd-
ina fór hann að borða í tírna
og ótíma. „Þess vegna varð
ég kokkur,“ sagði Ron, „því
þá gat ég alltaf verið að
borða.“ Hann var yfir 300
kíló þegar hann kom á nám-
skeiðið. Eftirtveggjamánaða
dvöl hafði hann losnað við 70
kíló, og ætlar að halda áfram
og reyna að losa sig við 40
kíló í viðbót.
Mæðgin komu
saman í megrun
Joe Gray er 16 ára og hann
og Nancy, mamma hans
bjuggu tvö ein saman. Þau
voru hrifin af stöppuðum kar-
töflum og sterkum, feitum
sósum og notuðu það sem
meðlæti með öllum mat.
Hann var hættur að fara í
skólann, því að þó skólasyst-
kini hans væru ekki stríðin,
þá gátu þau ekki annað en
hlcgið að honum þegar hann
sat fastur í sæti sínu í skóla-
stofunni eða skólabílnum.
Joe var orðinn 160 kíló og
mamma hans 180 kíló þegar
þau leituðu til Dicks Greg-
ory. Joe hefur losnað við 30
kíló á tveimur mánuðum og
mamma hans álíka mikið.
Margar fleiri sögur eru
sagðar af þessu fólki sem við
sjáum hér myndir af, en
myndirnar tala samt best sínu
máli.
Hvað verður
um Athinu?
Dauði Christinu Onassis
19. nóvember sl. kom öllum
á óvart. Hún var aðeins 37
ára og var í heimsókn hjá
vinafólki í Buenos Aires,
þegar hjarta hennar brást.
Talið er að mikil lyfjaneysla
árum saman hafi átt sinn þátt
í harmleiknum.
Athina dóttir hennar var
heima í Sviss hjá barnfóstr-
unni. Telpan verður 4 ára 29.
janúar nk. og er einkaerfingi
Onassis-auðævanna sem talin
eru nema um 50 miiljörðum
króna.
Þrátt fyrir öll auðævin var
Christinu Onassis vorkennt
sárlega í uppvextinum. Vissu-
lega fékk hún allt sem hún
benti á af veraldlegum gæð-
um og óþarfa en foreldrar
hennar máttu tæpast vera að
því að sinna henni að öðru
leyti og hún ólst að mestu upp
á heimavistarskólum í Evr-
ópu og Bandaríkjunum. Það
hlutskipti var það versta sem
hún gat hugsað sér til handa
dóttur sinni. Síðan missti hún
móður sína, einkabróður og
loks föður sinn, öll fyrir aldur
fram.
Faðir Athinu, Thierry
Roussell hefur látið sér annt
um telpuna og þau Christina
höfðu sæst eftir skilnaðinn og
voru góðir vinir. Nú spyr fólk
sem svo, hvort Thierry taki
við uppeldi telpunnar. Flytur
hann ef til vill í íbúð Christinu
í París til að telpan fái að
alast upp í kunnu umhverfi?
Þess má geta að hann á aðra
dóttur með þekktri, franskri
fyrirsætu og er sú aðeins fáum
mánuðum yngri en Athina.
Þegar Thierry og Christina
skildu, fékk hann að halda
sveitasetri þeirra skammt frá
París, aðeins steinsnar frá
heimili foreldra hans. Þar
hefur hann búið, innan við
rammgerðar girðingar og
með varðhunda á hverju
strái. Þegar hann skreppur í
Athina litia Onassis er einkaerfingi 50 milljarða
króna eftir seinasta harmleikinn í fjölskyldunni.
bæinn, fer hann ekki akandi áreiðanlegt að allir sem láta
sig uppeldi hennar varða,
vilja henni aðeins það besta.
Hún er hæglát telpa, brosmild
og hvers manns hugljúfi.
eins og nágrannarmr, heldur
með þyrlu.
Hvort sem Athina elst upp
í íbúð móður sinnar eða á
setri föður síns, má telja alveg