Tíminn - 29.12.1988, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 29. desember 1988
Tíminn 5
Leggst strætisvagnaþjónusta niður í Reykjavík á næstu árum?:
FJORDUNGS FÆKKUN
FARÞEGA Á 2 ÁRUM
Farþegum Strætisvagna Reykjavíkur fækkaði um rúmlega
milljón á þessu ári og verða því um tveim milljónum færri í
ár heldur en 1986 (þ.e. um 5.500 farþega fækkun á dag). Þetta
þýðir í kringum 22% fækkun á aðeins tveim árum, þrátt fyrir
að börnum og öldruðum sem ferðast með vögnunum fjölgi ár
frá ári. Þar sem fjöldi farþega er kominn niður undir sjö
milljónir nú í ár getur fækkun um milljón á ári tæpast haldið
áfram mjög Iengi áður en ráðamenn SVR standa frammi fyrir
alvarlegri spurningu um áframhaldandi rekstur SVR.
Samkvæmt upplýsingum skrif-
stofustjóra SVR er farþegafjöldi
SVR áætlaður unt 7,3 milljónir í ár,
samanborið við 8,4 milljónir s.l. ár,
9,3 milljónir árið 1986 og um 10,1
milljón fyrir fimm árum. Þá voru
börn og aldraðir sem greiddu með
afsláttarmiðum, um 14% farþega,
en það hlutfal! hafði hækkað í 21%
í fyrra. Þar sem börnum og öldruð-
um farþegum fjölgar töluvert ár frá
ári gæti þetta hlutfall hafa nálgast
fjórðung allra farþega SVR í ár -
auk þess fjölda barna og aldraðra
sem staðgreiða fargjaldið.
Á sama tíma og farþegum fækkar
fjölgar hins vegar þeini kílómetrum
sem vagnarnir aka árlega. Fyrir
fimm árum óku þeir samtals 4,2
milljónir kílómetra, en 4,4 milljónir
km árið 1987. Þetta svarar til þess að
vagnarnir hafi ekið að meðaltali
rúmlega fjóra kílómetra með hverja
tíu farþega fyrir fimm árum en
væntanlega um sex kílómetra með
sama farþegafjölda nú á þessu ári.
Miðað við þrjátíu króna meðalfar-
gjald kæmu t.d. aðeins um 300
krónur í kassann fyrir þá sex kíló-
metra ferð.
Fyrir fimm árum voru strætis-
vagnafarþegar rúmlega tíu milljónir
sem áður segir. Peim hafði þá fækk-
að hægt og sígandi úr rúmlega þrett-
án milljónum árið 1970 - og úr 17,5
milljónum árið 1962 þegar borgar-
búar voru þó um fjórðungi færri en
þeir eru nú. - HEI
Ríkisendurskoðun skilar skýrslu um greiðslur
ríkisins til lækna og sérfræðinga fyrir árið 1987:
Fimmtíu sér-
fræðingar með
fimm milljomr
og meira 1987
í skýrslu sem Rikisendurskoðun fram að þarna er um meira að ræða hcldursegjaþcssarniðurstöðurokk-
vann fyrir Heilbrigðisráðuneytið í en beinarlaunagreiðslur, inni íþessu ur það að á sínum tíma voru samn-
tengslum við samningaviðræður sem eru einnig kostnaðargreiðslur. Sér- ingarnir nokkuð rúmir svo ekki sé
nú standa yfir vegna greiðslna ríkis- fræðingamir reka sjálfstæöa þjón- meira sagt."
ins til sérfræðinga, kemur fram að50 ustu, læknastofur, sern þýöir það aö Aðspurður sagði Guðmundur að í
scrfræðingar fengu yfir 5 milljónir í töluverður hluti grciðslnanna frá yfirstandandi samningaviðræðum
heildargreiðslur á árinu 1987. Þetta tryggingakerfinu eru fyrir þeirra að- við læknana hefði miðað í samkomu-
samsvarar því að vera rúmlega Qög- stöðu, bæði húsnæði, tæki og hugs- lagsátt. „Samninganefnd læknanna
ur hundruð þúsund krónur á mánuði anlega laun aðstoðarfólks." hefur vcrið tilbúin að ræða þessi mál
og er þá ótaiinn sá kostnaður sem Guðmundursagðiþaðeinnigvera á þeim nótum að nauðsynlegt sé að
sjúklingar þurfa að greiða úr eigin ljóst að sérfræðikostnaður hefur ná þessum kostnaði niður. Hvort
v»?a. hækkað gríðarlega á undanförnum menn ná saman er þó of snemmt að
1 kjölfar þessara upplýsinga hafði árum og telja verði mjög líklegt að segja til um.“
ríminn samband við Guðmund hægt sé að ná kostnaðinum niður Einn þeirra möguleikasem ræddir
Bjarnason heilbrigðisráðherra. aftur. „Þessar niðurstöður sýna að hafa verið sem leiö til sparnaðar er
Varðandi fyrrnefndar niðurstöður ákvcðnir þættir, t.d. hvað varðar að taka upp að nýju svokallað tilvís-
sagði Guðmundur: „Þessi skýrsla er rannsóknarstofur, cða þjónustu anakerfi sem var fellt niður með
unnin að beiðni ráðuneytisins til að rannsóknarsérfræðinga eru gríðar- bráðabirgðaákvæði til eins árs á
hafa í höndunum upplýsingar um |ega dýrir. Við samanburð á kostn- árinu 1985, en hefur verið notað
það hvað iæknum og sérfræðingum aði hjá sjálfstætt starfandi rannsókn- áfram þrátt fyrir það að raunveruleg
hefur verið greitt á síðasta ári í arsérfræðingum annarsvegar og lagaheimild er ckki til staðar. Til-
santbandi við þá samninga scm nú rannsóknarstofum rikisspltalanna koma tilvísanakcrfisins gerir þaö að
standa yfir. Par kemur í Ijós að hinsvegar kemur í Ijós að það er verkum að sjúklingar fara ekki beint
þessar greiðslur eru nijög mismun- hægt að veita þessa þjónustu á mikiu tii sérfræðinga heldur þurfa þeir að
andi, þorri lækna sem eru í fösturn ódýrari hátt. Nú eru þessar greiðslur fá tilvísun frá heimilislækni eða
störfum hafa yfirleitt meðallaun. samkvæmt samningum þannig að heilsugæslulækni. Annaðhvort verð-
Hinsvegar hefur töluverður hópur hérerekki um að ræða ásakanireða ur því að breyta lögunum eða taka
sérfræðinga fengið mjög háar aðdróttanir um að þetta sé ekki rétt, tilvísanakerfið upp að nýju. SSH
grciöslur. Það er þó rétt að taka-.
Leitað að tveim mönnum á jeppa,
sem ekki hafði spurst til í sólarhring:
Knúðu dyra á
ísólfsskála
Mennirnir tveir, þcir Högni
Högnason og Árni Pétur Jóhannsson
sem leitað var að í gærmorgun og
fram á miðjan dag komu fram síð-
degis, cn þá höfðu þcir samband við
lögregluna í Grindavík frá bænum
Isólfsskála og náði lögreglan í þá
þangað.
Pcir Högni og Árni lögðu af stað
frá Reykjavík um hádegisbil í fyrra-
dag og hugðust fara í stuttan bíltúr
á jeppa í nágrenni Reykjavíkur.
Pegar ekkert hafði spurst til þeirra í
fyrrakvöld var haft samband við
lögreglu og óskað eftir að lcitað yrði
að þeim og jafnframt sagt að þeir
hefðu ætlað Hafravatnshringinn. f
birtingu í gærmorgun hófst leit að
þcini með þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar.
Ætlun mannanna var alltaf að fara
þessa leið að sögn Grindavíkurlög-
rcglunnar og höfðu þeir tvítekið það
fram við konur sínar áður en farið
var af stað, en vegna einhvers mis-
skilnings hafi þær sagt þá hafa farið
Hafravatnshringinn.
-ABÓ
Albert afneitar frétt í DV í gær:
Fer til Parísar
þrátt fyrir allt
f viðtali við Tímann í gær neitaði
Albert Guðmundsson alfarið þeim
möguleika að hann væri hættur við
að fara til Parísar vegna þess sem
gerst hefur í Borgaraflokknum eftir
að hann hætti formennsku.
DV birti frétt þess efnis í gær að
miklar líkur væru á því að Albert
væri hættur við brottförina vegna
stöðunnar í Borgaraflokknum sem
er m.a. til komin vegna stuðnings
einstakra þingmanna við ríkisstjórn-
ina og miklar líkur á að flokkurinn
taki sæti í ríkisstjórn eftir áramótin.
DV þóttist einnig leiða líkur að því
að á aðalstjórnarfundi Borgara-
flokksins, sem var í gærkvöldi,
myndi draga til tíðinda og Albert
tæki við formannsembættinu að
nýju.
í fyrrnefndu viðtali við Tímann
sagði Albert Guðmundsson að hann
hefði gefið utanríkisráðherra já-
kvætt svar varðandi sendiherra-
stöðuna og sú ákvörðun stæði.
„Fréttin í DV er bara tóm vitleysa."
Hvað aðalstjórnarfundinn varðaði
sagðist Albert ekki eiga von á að til
harðra átaka kæmi þar. Hann sagði
jafnframt: „Það er boðað til fundar-
ins til að ganga formlega frá for-
mannsskiptunum og mér er ekki
kunnugt um að önnur mál verði þar
á dagskrá. Ég bað Júlíus Sólnes í
bréfi um að boða þennan fund og
ganga frá þessum málum. Ég reikna
ekki með að mæta sjálfur á þennan
fund.“
Að lokum var Albert spurður að
því hvort hann myndi hai'a afskipti
af hugsanlegri þátttöku Borgara-
flokksins í ríkisstjórn. „Ég tek engan
þátt í því. Það eru aðrir sem hafa
staðið í makki við ríkisstjórnina og
þeir gerðu það ekki með mínu leyfi. “
SSH