Tíminn - 29.12.1988, Blaðsíða 10
10 Tíminn
Fimmtudagur 29. desember 1988
FimmtudagUr 29. desember 1988
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
llllllllllllllll
i lll lllll
lllllllllllllll
Einar Vilhjálmsson kjörinn
íþróttamaður ársins 1988
í hádegisverðarboði Samtaka
íþróttafréttamanna á Hótel Loftlcið-
um í gær, voru niðurstöður úr kosn-
ingu íþróttamanns ársins 1988 kunn-
gjörðar. Samúel Örn Erlingsson for-
maður Samtaka íþróttafréttamanna
lýsti kjörinu.
Eftir að hafa skýrt frá því hvaða
íþróttamenn væru í 11 efstu sætun-
um, lýsti Samúel hverjir hefðu orðið
í þremur efstu sætunum, en þcir
voru verðlaunaðir sérstaklega með
bikurum.
„Hér höfum við lýst afrekum 11
frábærra íþróttamanna, og nú er
komið að því að lýsa kjöri íþrótta-
manns ársins. Fyrst er það þriðja
sætið. Þar fer ungur og efnilcgur
íþróttamaður. Hann hefur unnið
mörg afrek hérlendis og erlendis, en
stærsta afrekið er þó áreiðanlcga
það að hann hefur sigrast á þeim
hömlum sem á hann voru lagðar,
erfiðleikum sem hinn almenni
íþróttamaður þekkir ekki, Haukur
Gunnarsson.
í öðru sæti er íþróttamaður sem
við höfum lengi dáðst að fyrir kraft
og þrautseigju, lítillæti og prúð-
mennsku í hvívetna. Hann eroröinn
tákn sinnar göfugu íþróttar í þessu
landi, Bjarni Friðriksson júdókappi.
Loks er það íþróttamaður ársins.
Hann var maður gullsins á árinu, en
hefði sjálfsagt viljað skipta á gull-
peningunum sínum 12 á þessu ári og
þeim eina sem hann náði ekki. Frátt
l'yrir það er hann íþróttamaður á
heimsmælikvarða, og hefur verið
lengi, þrátt fyrir að vopnin væru
sannarlega slegin úr hendi hans á
miðjum ferli. Þá þurfti hann að
byrja alveg uppá nýtt á tækniatrið-
um, og það kom berlega í Ijós á
árinu að tökin á spjótinu nú eru
orðin eins góð og þau voru á því
gamla. íþróttamaður ársins 1988 og
íþróttamaður ársins í þriðja sinn er
Einar Vilhjálmsson."
íþróttamennirnir 11, en 2 voru
jafnir í 10. sæti fengu bókagjöf frá
bókaforlaginu Iðunni. Þeir fóru
heim með metsölubókina „Ein á
forsetavakt". Þrír efstu menn í kjör-
inu voru síðan verðlaunaðirsérstak-
lega með bikurum. Það voru Flug-
leiðir sem stóðu að kjörinu að þessu
sinni í samvinnu við Samtök íþrótt-
afréttamanna.
Þessir urðu í efstir í kjörinu að
þessu sinni:
Einar Vilhjálmsson, spjótkastari úr
ÚÍA, á fjórða besta afrek spjótkast-
ara í heiminum á árinu. Hann er
einn þeirra sem ekki náðu þeim
árangri sem þeir stefndu að á Ól-
ympíuleikifnum í Seúl: var hárs-
breidd frá því að komast í úrslit, eins
og raunar fleiri af þeim bestu. Hann
varð þar þrettándi og vegalengdin
78,82 metrar, 8 sentimetrum of stutt.
Þetta v.ar ekki síst grátleg niðurstaða
fyrir það að fram að þessum tíma hafði
Einar unnið sigur á 12 mótum, frá
mars og fram í september, 6 alþjóð-
legum, 2 landskeppnum, 2 meistara-
mótum hérlendis og 2 innanlands-
mótum. Einar sigraði á þremur al-
þjóðlegum mótum í röð í Texas í
mars, apríl og maí og á því þriðja
setti hann íslandsmet, 83,36 metra.
Síðan sigraði hann á alþjóðlegu
Flugleiðamóti hérlendis í júní og
nokkrum dögum síðar á Meistara-
móti fslands þar sem spjótið sveif
84,66 metra. Þetta er íslandsmet og
fjórða lengsta kast í heiminum í ár.
í lok júní og byrjun júlí keppti Einar
á tveimur stigamótum alþjóðafrjáls-
íþróttasambandsins, heimsleikunum
í Helsinki og Galanmótinu í Stokk-
hólmi. Þar voru mættir allir bestu
spjótkastarar heimsins og enn sigr-
aði Einar á þessum mótum. Eftir
þetta fylgdu landskeppnir, Bikar-
keppni og mót innanlands fram í
september og gullpeningar ársins
urðu 12. Einar Vilhjálmsson hefur
lengi verið í fremstu röð og getur
verið lengi enn. Hann er 28 ára.
Bjarni Friðriksson, júdókappi úr
Ármanni, hefur verið einn fremsti
íþróttamaður íslendinga í heilan
áratug. f nákvæmlega áratug hafa
félagar hans í júdósambandinu kjör-
ið hann besta júdómann ársins, síð-
ast nú fyrr í mánuðinum fyrir afrek
liðins árs. Bjarni keppti í þriðja sinn
á Ólympíuleikum í Seúl, enda orð-
inn 32 ára. Hann tapaði þar fyrir
gullverðlaunahafanum í fyrstu um-
Handknattleikur:
Leifur valinn í
landsliðshópinn
- fyrir leikina gegn Dönum - Birgir og Árni á ný í hópinn
íslcnska landsliðið í handknatt- Markverðir:
leik leikur 2 landsleiki gegn Dön- Einar Þorvarðarson.......Val
um í Laugardalshöll nú á milli jóla Guðmundur Hrafnkelsson . UBK
og nýárs. Fyrri leikurinn er í kvöld Hrafn Margeirsson. ÍR
kl.20.30 en sá síðari á morgun Leifur Dagfinnsson .......KR
einnig kl.20.30.
Bogdan Kowalzcyk landsliðs- Aðrir leikmenn:
þjálfari hefur tilkynnt landsliðs- Geir Sveinsson....Val
hópinn sem leika mun í leikjunum. Jakob Sigurðsson .Val
Hópurinn er óbreyttur frá leikjun- Júlíus Jónsson .....Val
um við Svía að öðru leyti en því að Valdimar Grímsson...Val
Brynjar Kvaran markvörður úr Sigurður Sveinsson .....Val
Stjörnunni gaf ekki kost á sér Alfreð Gíslason....KR
vegna prófa í Háskóia íslands. I páll Ólafsson ...KR
hans stað var markvörðurinn efni- Konráð Olavson...KR
iegi úr KR, Leifur Dagfinnsson Guðjón Árnason...FH
valinn. Þá voru þeir Birgir Sigurðs- Héðinn Gilsson. FH
son línumaður úr Fram og Árni Þorgils Óttar Mathiesen . . . FH
Friðleifsson úr Víkingi einnig vald- Bjarki Sigurðsson .... Víkingi
ir á ný í hópinn. Endanlegt lið fyrir Guðmundur Gumundss. . Víkingi
leikinn í kvöld verður ekki tilkynnt Árni Friðleifsson.Víkingi
fyrr en um miðjan dag í dag. Birgir Sigurðsson.....Fram
Landsliðshópurinn er annars Kristján Arason .Teka
skipaður eftirtöldum leikmönnum: BL
ferð á dómaraúrskurði. Úrskurði
sem í það minnsta enginn okkar
íslendinganna, sem fylgdust með,
skildi. Því næst glímdi hann við
annan bronsverðlaunahafann og
tapaði naumlega. Bjarni keppti á 7
alþjóðlegum júdómótum á árinu og
vann til verðlauna á fjórum. Hann
sigraði í mínus 95 kílógramma flokki
á Norðurlandamótinu og fékk silfur-
verðlaun í opnum flokki. Hann sigr-
aði einnig á opna skoska meistara-
mótinu og varð þriðji á opna belg-
íska mótinu. Á hinu fræga Parísar-
móti komst hann í 8 manna úrslit og
hlaut þar svonefnd Fair Play verð-
laun, eins konar drengskapar- og
prúðmennskuverðlaun.
Haukur Gunnarsson, frjálsíþrótta-
maður úr röðum fatlaðra íþrótta-
manna, var sigursæll á árinu. Hauk-
ur er 22 ára frjálsíþróttamaður og
keppir í hlaupum. Hann sigraði í
sínum flokki í 100 metra hlaupi á
heimsleikum fatlaðra í Seúl á 12,88
sekúndum og varð þriðji í 200 og400
metra hlaupi. Hann sigraðjj þessum
greinum öllum á alþjóðlegu móti í
Vestur-Þýskalandi í júlí og setti þá
heimsmet í sínum flokki í 400 metra
hlaupi. Haukur Gunnarsson er fjöl-
hæfur íþróttamaður eins og sjá má
af spretthlaupum hans og hefur verið
í fremstu röð fatlaðra íþróttamanna
í boccia og borðtennis. Hann stund-
ar íþrótt sína af sömu elju og
íþróttamenn í fremstu röð og hefur
náð frábærum árangri á sínu sviði.
Það að hann er hér að mati íþrótta-
fréttamanna meðal tíu fremstu
íþróttamanna landsins sýnir þá virð-
ingu sem hann hefur áunnið sér.
Fjóla Ólafsdóttir, fimleikamaður úr
Ármanni, er 15 ára. Hún varð á
árinu fyrst íslendinga Norðurlanda-
meistari í fimleikum, þegar hún
sigraði í keppni á tvíslá á Norður-
landamóti unglinga íFinnlandi. Hún
varð á árinu unglingameistari Islands
og í öðru sæti á íslandsmótinu. Fjóla
stundar íþrótt sína af kappi og á
áreiðanlega glæsta framtíð fyrir sér.
Glæsilegur árangur hennar á
Norðurlandamótinu var líka góð
afmælisgjöf fyrir félag hennar
Ármann, elsta íþróttafélag íslands,
sem er eitt hundrað ára um þessar
mundir.
Úlfar Jónsson, landsliðsmaður í
golfi, stóð sig vel á árinu. Hann var
í fararbroddi íslenskra kylfinga allt
árið, í keppni hér og erlendis, til að
mynda á Norðurlandamótinu þar
sem íslenska sveitin varð í þriðja
sæti. Undantekning á þessu var Is-
landsmótið þar sem Sigurður Sig-
urðsson sigraði glæsilega. Þar varð
Úlfar þriðji, en lslandsmeistari varð
hann bæði í fyrra og hittiðfyrra.
Úlfar Jónsson er aðeins tvítugur að
aldri. Hann hefur undanfarin þrjú ár
ekki einungis verið talinn besti kylf-
ingur okkar heldur einnig sá efnileg-
asti. Hann stóð undir vonum golf-
áhugamanna á árinu þrátt fyrir ís-
landsmótið. Hann sigraði á móti
golfklúbbs síns, Keilis, og var í
sigursveit hans í Sveitakeppni
íslands. Þar vann sveitin sér keppnis-
rétt í Sveitakeppni Evrópu og varð
þar í fjórða sæti nú í nóvember.
Úlfar stóð sig frábærlega og sigraði
í keppni einstaklinga. Það er í fyrsta
sinn sem íslendingur sigrar á alþjóð-
legu golfmóti erlendis.
Kristján Arason var hin aðalskytta
landsliðsins í ár, sem oft áður. Það
mæðir mikið á Kristjáni Arasyni í
leik með landsliðinu og til hans eru
gerðar meiri kröfur en flestra ann-
arra. Kristján var á árinu ávallt á
meðal markahæstu leikmanna á
mótum þar sem landsliðið keppti og
skemmst er þess að minnast að
Kristján varð fjórði markahæsti
leikmaður Ólympíuleikanna í Seúl.
Kristján lék til vors stórt hlutverk í
vestur-þýska liðinu Gummersbach
og liðið varð á vordögum vestur-
þýskur meistari. Eftir Olympíuleik-
ana gekk hann til liðs við spænska
liðið Teka þar sem hann leikur nú.
Kristján er á besta aldri íþrótta-
manns, 27 ára, og mun vonandi ylja
íþróttaáhugamönnum áfram með
góðri frammistöðu. Hann hefurleik-
ið 196 landsleiki.
Alfreð Gíslason var önnur helsta
skytta landsliðsins á árinu og átti
besta ár sitt með landsliðinu fyrr og
síðar. Hann lét ekki síst að sér kveða
í leikjum við Sovétmenn, sem urðu
Ólympíumeistarar eins og menn
muna. Alfreð átti einnig góðu gengi
að fagna með félagsliðum sínum.
Hann lék með vestur-þýska liðinu
Essen til vors. Þá varð liðið vestur-
þýskur bikarmeistari og lék til úrslita
í Evrópukeppni meistaraliða, tapaði
þeim leik á fleiri mörkum skoruðum
á útivelli, fyrir CSKA Moskva. Al-
freð hélt síðan heim á leið með
fjölskyldu sína, til að undirbúa Ól-
ympíuleika og leika með KR. Hann
hefur á íslandsmótinu verið aðal-
skytta KR-inga og honum ber ekki
síst að þakka góða stöðu liðsins á
mótinu nú. Alfreð er, auk þess að
vera öflug skytta, einn bestu varn-
armanna okkar. Hann hefur leikið
156 landsleiki og er 29 ára.
Arnór Guðjohnsen lék með gegn
Sovétmönnum og átti snilldarleik.
Hann lék raunar alla leiki Islands í
undankeppni heimsmeistaramóts-
ins. Arnór er nú á hátindi ferils síns
sem knattspyrnumaður, 27 ára.
Hann var í fararbroddi í liði sínu
Anderlecht síðastliðið vor, þegar
liðið varð belgískur bikarmeistari.
Arnór átti stórkostlegan leik í úr-
slitaleiknum, belgískir íþróttafrétta-
menn sögðu hann þá besta mann
vallarins. Arnór hélt uppteknum
hætti í haust, átti hvern snilldarleik-
inn af öðrum með Anderlecht, allt
þar til hann meiddist í Evrópuleik í
lok síðasta mánaðar. Hann hefur nú
leikið 28 landsleiki fyrir íslands hönd
og þeir leikir eiga áreiðanlega eftir
að verða miklu fleiri. Og það er rétt
að geta þess í lokin að Amór er
íþróttamaður ársins 1987.
Ásgeir Sigurvinsson lék gegn Sovét-
mönnum og lék alla þrjá leikina í
undankeppni heimsmeistaramóts-
ins. Hann hefur nú leikið 42 lands-
Ieiki fyrir ísland, er nú fjórði leikja-
hæsti landsliðsmaðurinn frá upphafi.
Ásgeir er fyrirliði liðs síns, VFB
Stuttgart í Vestur-Þýskalandi, og
var sem fyrr aðaluppbyggjari í leik
liðsins á árinu. Hann átti um tíma
við erfið meiðsl að etja og margir
áttu ekki von á honum í landsleiki á
árinu. En Ásgeir náði sér og var með
og er enn síungur á knattspyrnuvell-
inum, þrátt fyrir að vera nú elstur
landsliðsmanna, 33 ára. Hann leikur
nú sextánda keppnistfmabil sitt sem
atvinnumaður í fremstu röð á er-
lendri grundu. Og þetta er 18.
keppnistímabil hans í fyrstu deild,
því tvö átti hann fyrir hér á landi. Og
honum og félögum hans í Stuttgart
gengur vel, eru á meðal efstu liða í
vestur-þýsku deildinni og enn með í
Evrópubikarkeppninni og vestur-
þýsku bikarkeppninni.
Atli Eðvaldsson, fyrirliði landsliðs-
ins í knattspyrnu, Iék alla landsleiki
fslands á árinu sem hann var gjáld-
gengur í og var fyrirliði í þeim öllum.
Hann lék alls 9 landsleiki af 13, lék
ekki 4 Ólympíulandsleiki vegna
reglna sem gilda þar um. Atli lék á
árinu 50. landsleik sinn og er nú
annar leikjahæsti fslendingurinn í
knattspyrnu frá upphafi með 56
landsleiki. Hann er nú 31 árs og
hefur undanfarin 8 ár verið atvinnu-
maður í vestur-þýsku knattspyrn-
unni, var raunar fyrstur fslendinga
til að keppa í þýsku úrvalsdeildinni.
Atli kom frá Vestur-Þýskalandi í vor
og gekk til liðs við gamla félagið sitt,
Val. Það er óhætt að segja að Atli
hafi sett svip sinn á íslenska knatt-
spyrnu, því eftir að hann hóf að leika
með Val breyttist leikur liðsins til
hins betra eftir stirða byrjun. Liðið
varð bikarmeistari og í öðru sæti á
íslandsmótinu. Eins og áður var
nefnt er jafnteflið við Sovétmenn
eftirminnilegast afrek knattspyrnu-
manna á árinu. Atli Eðvaldsson var
þar í fararbroddi íslendinga eins og
þeir tveir knattspyrnumenn aðrir
sem við heiðrum hér í dag.
Einar Þorvarðarson var í ár besti
handknattleiksmarkvörður íslands.
Afrek landsliðsins eru ekki síst
byggð á honum, og þegar allt annað
hefur brugðist hefur Einar staðið
uppréttur og gert hið ótrúlega. Hann
hefur ekki síður verið mikilvægur
liði sínu Val. Síðastliðið vor varð
liðið bæði íslands og bikarmeistari.
Valsmenn áttu á síðasta keppnis-
tímabili bestu vörnina, og besta
markvörðinn. Þeir skoruðu ekki
flest mörk í deildinni, en þeir fengu
á sig langfæst mörk, og það réði öðru
fremur úrslitum. Einar Þorvarðar-
son lék á Ólympíuleikunum 200.
landsleik sinn og er nú einn reyndasti
handknattleiksmaður okkar. Hann
hefur nú leikið 204 landsleiki og er
31 árs.
Kjör íþróttamanns ársins
1988, úrslit:
1. Einar Vilhjálmsson 2. Bjarni Friðriksson 3. Haukur Gunnarsson 4. Fjóla Ólafsdóttir 5. Úlfar Jónsson 6. Kristján Arason 7. Alfreð Gíslason 8. Arnór Guðjohnsen 9. Ásgeir Sigurvinsson 10. Atli Eðvaldsson 10. Einar Þorvarðarson 130 stig 125 - 110 - 85 - 80 - 74 - 73 - 64 - 33 - 32 - 32 -
Þorgils Óttar Mathiesen 29 —
Ragnheiður Runólfsdóttir 25 -
Geir Sveinsson 21 —
Pétur Ormslev 17 _
Ólafur H. Ólafsson 12 —
Lilja María Snorradóttir 12 —
Magnús Ólafsson 11 —
Sigurður Grétarsson 11 -
Bjarki Sigurðsson 10 -
Pálmar Sigurðsson 10 -
Kjartan Briem 9 -
Haraldur Ólafsson 6 _
Broddi Kristjánsson 5 -
Guðni Bergsson 5 -
Sigurður Gunnarsson 5 -
Eðvarð Þór Eðvarðsson 4 -
Guðrún H. Kristjánsdóttir 4 -
Guðlaugur Halldórsson 3 -
Valur Ingimundarson 3 -
Haukur Valtýsson 2 -
Sævar Jónsson 2
Einar Vilhjálmsson var veðurtepptur á Egilsstöðum meðan á hófinu stóð, en kom um síðir beint
úr flugvélinni til að taka við bikarnum sem fylgir kjöri íþróttamanns ársins, í þriðja sinn. Þess
má geta að faðir Einars, Vilhjálmur Einarsson var fimm sinnum kjörinn íþróttamaður ársins.
Timamynd Pjetur.
[þróttamaður ársins:
Eru allir jafnir?
Að undanförnu hefur mikið verið rætt
um það manna á milli og einnig nokkuð í
blöðum hvort fatlaður íþróttamaður eigi
rétt á því að vera valinn íþróttamaður
ársins. Ekki hafa allir verið á eitt sáttir og
hafa menn bent á að erfitt sé að bera saman
fatlaðan mann og ófatlaðan.
Vissulega er þetta rétt, það er erfitt að
gera upp á milli manna sem stunda ólíkar
íþróttagreinar og ekki hvað síst þegar
fatlaðireru bornir saman við ófaltaða. Það
er-iskoðun undirritaðs að allir íþróttamenn
eigi'að standa jafnir þegar að kjöri íþrótta-
manns ársins kemur, burt séð frá því hvaða
grein hver stundar, eða hvort viðkomandi
er fatlaður eða ekki.
Það er hlutverk íþróttafréttamanna að
segja frá og meta afrek íþróttamanna
okkar og svo er einnig um valið á íþrótta-
manni ársins. Það er ekki víst að al-
menningur sé sáttur við valið hverju sinni,
en stundum hafa risið deilur eftir að
kjörinu hefur verið lýst. Svo kann einnig
að verða nú, en víst er að þeir 3 sem efstir
voru í kjörinu að þessu sinni eru allir miklir
afreksmenn og hafa ber í huga að fáum
atkvæðum munaði á milli þeirra.
Einar er afreksmaður á heimsmæli-
kvarða, þó hann hafi ekki náð að sýna sitt
besta á stórmótum. Bjarni hefur staðið á
toppnun í sinni grein í 10 ár, en aldrei verið
valinn íþróttamaður ársins. Þannig hafa
kringumstæðurnar hagað því, en hann
hefði sannarlega átt skilið að fá þessa
nafnbót. Haukur er ungur og á framtíðina
fyrir sér. Hann hefur unnið hug og hjörtu
almennings með afrekum sínum og dugn-
aði. Það að hann er valinn einn af þremur
mestu afreksmönnum ársins sem er að líða
er mikil viðurkenning fyrir hann og um leið
uppörvun fyrir fatlað fólk að láta ekki
fötlun sína aftra sér frá því að iðka íþróttir.
BL
Santa Monica. Carl Lewis
mun keppa á að minnsta kosti 3 alþjóðleg-
um frjálsíþróttamótum í Evrópu í vetur.
Hann mun hinsvegar ekki keppa á Heims-
mcistaramótinu innanhúss og ekki í
Heimsbikarkeppninni í september. Þá
mun Lewis jafnvel keppa á móti í Ástralíu
og koma fram í kvikmynd. Á þeim mótum
sem hann ætlar að keppa á í Evrópu í vetur
mun hann að öllum líkindum keppa í
langstökki á móti í Stuttgart og á móti í
Houston í Bandaríkjunum, heimabæ
sínum. Á öðrum mótum mun hann keppa
í spretthlaupum. Hin mótin í Evrópu eru
mót í spænsku borgunum San Sebastian og
Sevilla.
New York. Boston Celtics stcinlá í
fyrrakvöld er liðið mætti Denver Nuggets
í NBA-körfuknattleiksdeildinni í Banda-
ríkjunum. Úrslitin í fyrrakvöld urðu annars
þessi:
Atlanta Hawks-N.Y.Knicks . . . 128-126
Houston Rockets-Miami Heat . 101-93
Cleveland Cavaliers-Chicago . . 107-96
allas Mavericks-S.A.Spurs . . 110-101
Hwaukee Bucks-Indiana Pac. . 120-107
enver Nuggets-Boston Celtics . 130-109
Golden State-Philadelphia .... 119-112
L.A.CIippers-Seattle Supers . . 104-100
Sacramento Kings-Portland T. . 112-111
Zagreb. í gærdag var dregið um hvaða
lið leika saman í riðlum í úrslitum Evrópu-
keppni landsliða í körfuknattleik, en
keppnin verður háð í borginni Zagreb í
Júgóslavíu dagana 20.-25. júní í sumar.
í A-riðli leik Holland, Ítalía, Sovétríkin og
Spánn, en í B-riðli leika Frakkland, Júgó-
slavía, Grikkland og Búlgaría. Fyrst leika
liðin saman i hvorum riðli. í undanúrslitum
leika sigurvegararnir í riðlunum gegn lið-
inu í öðru sæti í hinum riðlinum. Þau lið
sem vinna þessa leiki leika síðan úrslita-
leikinn, en tapliðin leika um þriðja sætið.
Norwich. Arsenal var ekki
Iengi í efsta sæti 1. deildar ensku
knattspyrnunnar. Norwich vann
West Ham á þriðjudagskvöldið 2-1.
Öll mörkin voru gerð í síðari hálf-
leik. Norwich komst í 2-0 með
mörkum þeirra Dale Gordon á 53.
mín. og Ándy Townsend á 60. mín.
en Ray Stewart náði að minnka
muninn fyrir West Ham úr vítasp-
yrnu á 71. mín.
New York. Nokkrir leikir
voru í NHL-íshokkídeildinni í fyrra-
kvöld. New York Rangers vann
New Jersey Devils 7-5, Washington
Capitals vann Philadelphia Flyers
4-3 og Montreal vann nauman sigur
á Los Angeles Kings 3-2.
InBBfssÍBSfs^^
LESTUNARAfETLUN
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Aarhus:
Alla þriöjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla miövikudaga
Gautaborg:
Annan hvern föstudag
Varberg:
Alla fimmtudaga
Moss:
Alla laugardaga
Larvik:
Annan hvern laugardag
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Skiþ............15/1 '89
Gloucester:
Skip............16/1 '89
Skip..............6/2 '89
New York:
Skip............16/1 '89
Skip.............6/2 '89
Portsmouth:
Skip............16/1 '89
Skip.............6/2 '89
SKJPADEILD
SAMBANDSJNS
LINDARGÖTU 9A-101 REYKJAVlK
SlMI 698100
± ± A. A A A Á A
!AKN TRAIJSIRA f LUTNIIMGA
a föstudag
handa þér, ef þú hittir
á réttu tölurnar.
Láttu þínar tölur ekki
vanta í þetta sinn!
Leikandi og létt! Upplýsingasími: 685111