Tíminn - 29.12.1988, Qupperneq 16
nnim'iT
16 Tíminn
.................II naBRrtK lllliillSi:li;i:. :iilllllllllllllll::. :'lllllllllllllllllllllllliliiil
NÝ MENNTAMÁL
Hverjir ráða í skólamálum? nefnist
grein eftir Þórólf pórlindsson prófessor í
nýjasta tölublaði Nýrra menntamála sem
er nýkomið út. Þar kynnir hann skoðanir
kennara á því hverjir ráði í raun mótun
skólastefnu, hversu mikið sjálfstæði í
starfi þeir telji sig hafa og fleiri atriðum
eins og þær birtast í könnun menntamála-
ráðuneytisins á högum og viðhorfum
grunnskólakennara sem gerð var á árun-
unt 1985-86.
Magnús Þorkelsson spyr í grein hvort
hver sem er geti verið kennari og Kári
Arnórsson skrifar um starf og stöðu
skólastjórnenda. Erling Ólafsson á rödd
kennara í dreifbýli og skrifar um kennslu-
miðstöðvar á landsbyggðinni. Þrír menn
fjalla um bók Wolfgangs Edelstcin, Skóli,
nám, samfélag, og eru ekki á einu máli.
Sjálfur skrifar Wolfgang Edelstein andsv-
ar við gagnrýninni.
HERMES
Kominn er út 16. árgangur HERMES,
og er hér um að ræða afmælisútgáfu í
tilefni 70 ára afmælis Samvinnuskólans og
30 ára afmælis Nemendasambands Sam-
vinnuskólans, hið myndarlegasta rit.
f ritinu er mikið og margvíslegt efni og
hafa margir höfundar lagt það til. Þar
skrifar Elías Snæland Jónsson um Jónas
Jónsson og hugmyndir hans að samvinnu-
skóla og síðan er saga og þróun skólans
rakin i fleiri greinum. Félagslíf skólans cr
rakið í máli og myndum, en það hefur alla
tíð verið blómlegt, og mörg viðtöl við fólk
sem tengst hefur skólanum. Verk nafn-
togaðra listamanna, lifandi og látinna,
sem stundað hafa nám við skólann birtast
í blaðinu í bundnu máli og óbundnu,
tónlist og myndlist.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður er Guð-
mundur R. Jóhannsson og útgefandi
Nemendasamband Samvinnuskólans.
Happdrætti
Styrktarfélags vangefinna
Dregið hefur verið í happdrætti Styrkt-
arfélags vangefinna og hafa vinningar
komið á eftirfarandi númer:
Bifreið Subaru Station 1800 kr.
1.000.000: nr. 74654
Bifreið Honda Civic 4D GL kr.
835.000: nr. 30327
Bifreið að eigin vali á kr. 500.000: nr.
40057,46092,55036,81633,43738,51305,
59123, 90877.
BÍLLINN
- blað Félags íslenskra bifreiðaeigenda
er nýkomið út. Ritstjóri er Leó M.
Jónsson og útgefandi Frjálst framtak hf.
Efni blaðsins er margvíslegt að vanda.
Þar er m.a. grein með yfirskriftina Er
malbik verðmætara en mannslíf? þar sem
höfundur veltir fyrir sér hvort standist sá
áróður gatnamálastjórans í Reykjavík að
öryggis vegfarenda í hálku sé nægilega
gætt með ómældum saltaustri og þeir
skuli leggja niður notkun á negldum
hjólbörðum. Ford Scorpio 2-Oi CL er
reynsluekið, reyndar í Vestur-Þýska-
landi. Mikil úttekt er á farsímum og m.a.
greint frá verði og umboðs- og söluaðilum
á íslandi.
í frístundaþætti blaðsins er fjallað unt
skíði og skíðaáhugafólk.
Umferðaróhöpp eru mörg og tíð.og
þegar nýju umferðarlögin tóku gildi 1.
mars sl. var meðal nýmæla að nú þyrfti
ekki að kalla lögreglu á vettvang „vegna
tjóna á ökutækjum eða tjóna sem rakin
verða til ökutækja" heldur dygði að þeir
sem hlut ættu að máli fylltu út eyðublað
fyrir tjónaskýrslu sem sent var hverjunt
bíleiganda. Þetta fyrirkomulag hefur
áreiðanlega vafist fyrir ýmsunt og er
fjallað um það og reynsluna af því í
blaðinu.
„Skódinn er einfaldlega eins og hugur
manns; stundum dálítið seinn að taka við
sér, en oftast nær alveg spólandi
sprækur." Þannig endar Skódaeigandi
notalega lýsingu á „þarfasta þjóni" sínum
í gamansömum pistli í blaðinu.
ÍB> CJranfctctl í viírtnH:
Qf)ttðtófe«.. - fissuS'vúlím i:
OÍYmpíuleíkar fatlaöríi:
Þmtttir NiéÉ&iflafcitatt.-
SKINFAXI
- tímarit Ungmennafélags íslands er
komið út. Þar ritar Ingólfur Hjörleifsson
ritstjóri aðfaraorð og segir þar m.a.: „Þá
er viðburðaríkt ár að renna sitt skeið á
enda. Ár sigra og ósigra, segja menn oft.
Mikið hefur verið rætt og ritað um eina
þá stærstu viðburði á íþróttasviðinu sem
áttu sér stað, nefnilega Ólympíuleika
fatlaðra og ófatlaðra í Seoul í S-Kóreu.
Oftast er talað um sigur í því fyrra og
ósigur í síðara tilfellinu."
En ritstjórinn tekur fram að „þetta
með ósigurinn er auðvitað mikil einföld-
un“. I því sambandi bendir hann á viðtal
við íris Grönfeldt í Skinfaxa þar sem hún
rekur á hreinskilinn og skýran hátt hversu
einhliða var litið á hlutina.
í blaðinu er rætt við Markús Einarsson,
fræðslu- og útbreiðslufulltrúa íþrótta-
sambands fatlaðra um Ólympíuleika fatl-
aðra og íþróttastarfið almennt meðal
fatlaðra. Líka er rætt við Lilju Maríu
Snorradóttur sem komst á verðlaunapall
í Seoul.
Skákþáttur er í blaðinu í umsjón Ás-
geirs Þ. Árnasonar, bróður Jóns L.
Farið er að huga að undirbúningi fyrir
næsta Landsmót UMFÍ, sem haldið verð-
ur að Varmá í Mosfellsbæ 1990 og eilítið
sagt frá því.
Blakíþróttin á marga aðdáendur á
Norðfirði og er sagt frá því.
Fleira efni er í blaðinu.
Tónleikar í Bústaðakirkju
Bryndís Halla Gylfadóttir og Roglit
Ishay halda tónleika fjmmtudaginn 29.
desember í Bústaðakirkju kl. 20:30.
Bryndís Halla leikur á selló, en Roglit
Ishay á píanó. Þær leika saman Sónötu
fyrir selló og píanó í d-moll eftir Claude
Debussy, Suite Populaire Espagnole eftir
Manuel deFalla og Sónötu í A-dúr eftir
Cesar Franck. Síðan er Sónata fyrir
einleiksselló, op. 8 eftir Zoltán Kadály.
Tónleikarnir eru haldnir til minningar um
Gunnhildi, systur Bryndísar Höllu.
Bryndís Halla Gylfadóttir fæddist í
Bandaríkjunum 1964. Hún hóf nám í
sellóleik 7 ára göntul, fyrst hjá Auði
Ingvadóttur, síðar Páli Gröndal. Hún
fluttist til Kanada 1976 og liélt áfram
námi hjá Adam Mueller í Halifax í Nova
Scotia. 1981 kont hún aftur til fslands og
stundaði þá nám í Tónlistarskólanum í
Reykjavík undir handleiðslu Gunnars
Kvaran. Hún lauk einleikaraprófi 1984.
Síðan var hún í framhaldsnámi við New
England Conscrvatory í Bandaríkjunum
og hcfur lokið þar B.A. prófi og væntir
þess að fá þaðan meistaragráðu vorið
1989. Aðalkennarar Bryndísar við
N.E.C. hafa verð Colin Carr og Laurence
Lesser.
Bryndís Halla hefur komið fram sem
einleikari á fslandi, í Bandaríkjunum og
í Kanada og tekið þátt í hljómleikahaldi.
Hún hefur sótt fjölda námskeiða í list
sinni og tekið þátt í tónlistarhátíðum.
Roglil Ishay er fædd í fsrael 1965. Hún
stundaði tónlistarnám i Tel Aviv þar til
1985, að hún hóf nám við New England
Conservatory, en þar lauk hún B.A.prófi
og mun Ijúka meistaragráðu vorið 1989.
Roglit hefur undanfarin ár notið hand-
leiðslu Veronicu Jochum. Hún hefur
víðtæka reynslu í kammertónlist og sem
einlcikari, bæði í ísrael og í Bandaríkjun-
um. Jafnframt aðalnámi hefur hún sótt
fjölda námskeiða í list sinni og tekið þátt
í tónlistarhátíðum.
ÓKEYPIS
hönnun auglýsingar
þegar þú auglýsir í
TÍMANUM
AUGLÝSINGASÍMI 680001
r' f l . i 1
1 .1 i- 1
Fimmtudagur 29. desember 1988
Umboðsmenn Tímans:
Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Sími
Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Kópavogur Linda Jónsdóttir Holtagerði 28 45228
Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195
Keflavík GuðriöurWaage Austurbraut 1 92-12883
Sandgerði Margrét Magnúsdóttir Hjallagötu 4 92-37771
Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-13826
Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut55 93-11261
Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata 26 93-71740
Stykklshólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410
Ólafsvík Linda Stefánsdóttir Mýrarholti 6A 93-61269
Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604
Hellissandur Ester Friðþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629
Búðardalur Kristiana Guðmundsdóttir Búðarbraut3 93-41447
ísafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541
Bolungarvík Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366
Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi 2 94-7673
Patreksfjörður Ása Þorkelsdóttir Urðargötu 20 94-1503
Bíldudalur HelgaGisladóttir TjarnarbrautlO 94-2122
Þingeyri KaritasJónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131
Hólmavik ElísabetPálsdóttir Borgarbrautö 95-3132
Hvammstangl FriðbjörnNíelsson Fífusundi 12 95-1485
Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut 20 95-4581
Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772
Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð13 95-5311
Siglufjörður Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut54 96-71555
Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði 4 96-22940
Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016
Húsavík Ólafur Geir Magnússon Hjarðarhóli2 96-41729
Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir Hrannarbyggð8 96-62308
Raufarhöfn Ófeigurl.Gylfason Sólvöllum 96-51258
Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157
Vopnafjörður Svanborg Víglundsdóttir Kolbeinsgötu44 97-31289
Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar13 97-1350
Seyðisfjörður Anna Dóra Árnadóttir FjarðarbakkalO 97-21467
Neskaupstaður KristínÁrnadóttir Nesbakka16 97-71626
Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167
Eskifjörður ÞóreyÓladóttir Svínaskálahlíð19 97-61367
Fáskrúðsfjörður Guðbjörg H. Eyþórsdóttir Hlíðargötu4 97-51299
Stöðvarfjörður SvavaG. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839
Djúpivogur Óskar Guðjón Karlsson Stapa, Djúpavogi 97-88857
Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut13 97-81255
Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 98-22317
Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún 51 98-34389
Þorlákshöfn Þórdís Hannesdóttir Lyngberg 13 98-33813
Eyrarbakki ÞórirErlingsson Túngötu28 98-31198
Stokkseyri Friðrik Einarsson Iragerði 6 98-31211
Laugarvatn Halldór Benjamínsson Flókalundi 98-61179
Hvolsvöllur Jónínaog ÁrnýJóna Króktún 17 98-78335
Vík VíðirGylfason Austurveg 27 98-71216
Vestmannaeyjar MartaJónsdóttir Helgafellsbraut 29 98-12192
Effco þurrkan læknar ekki kvef
En það er óneitanlega gott að snýta sér í hana
Hún er svo stór og mjúk og
særir nebbann ekki neitt. Svo þegar
kvefið er batnað getur þú notað
afganginn af rúllunni til annarra
hluta, eins og t.d. til að þrífa bílinn,
bátinn, sumarbústaðinn og svo
getur þú að sjálfsögðu notað hana
til algengustu heimilisstarfa.
Það er eitthvað annað að þrífa
með Effco þurrkunni. Hún gerir
heimilisstörfin, sem áður virtust
óyfirstíganleg, að skemmtilegum
leik. Ohreinindin bókstaflega leggja
á flótta þegar Effco þurrkan er á
lofti.
Effco-þurrkan fæst á betri bensínstöðvum
Heildsala Hóggd
ojLverslunum. . _ _
eyfir — EFFCO sfmi 73233
Hafírðu
smakkað
- láttu*þér þá AljDREI
detta í hug
að keyra!
IUMFERÐAR
Iráð