Tíminn - 17.01.1989, Blaðsíða 11

Tíminn - 17.01.1989, Blaðsíða 11
10 Tíminn ÍÞRÓTTIR Körfuknattleikur: Naumt hjá Haukum Frá Erni Þórarinssyni fréttamanni Tímans: Haukar sigruðu Tindastól 84-81 í Flugleiðadeildinni í körfuknattleik þegar liðin mættust fyrir norðan á sunnudagskvöldið. Leikurinn var jafn og æsispenn- andi og tóku um 350 áhorfendur virkan þátt í baráttunni. Allan tím- ann var leikurinn jafn, en eftir 5 mín. var staðan 1212, en þegar hálfleikurinn var hálfnaður höfðu Haukarnir náð forystu 26-30. Tind- stælingar náðu að vinna þennan mun upp 34-34, en yfir komust þeir ekki, enda fengu hættulegustu stiga- skorarar Tindastóls, þeir Eyjólfur og Valur lítið að athafna sig. Þegar 3 mín voru eftir af hálflciknum var Pálmar Sigurðsson besti leikmaður Haukanna studdur af leikvelli, eftir að hann skall harkalega í gólfið. Haukar létu þetta ekki á sig fá og höfðu 6 stiga forskot í leikhléinu, 40-46. Pálmar kom til leiks aftur eftir hléið og stjórnaði leik Haukanna, en Ingimar fór út af með 5 villur fljótlega eftir að leikurinn hófst. Tindastólsmönnum gekk illa að vinna upp forskot Hauka, þrátt fyrir ágæt tilþrif á köflum. Það var ekki fyrr en 3 mín. voru eftir aðTindastóll skoraði 5 stig á 20. sck. og jöfnuðu leikinn 77-77. Síðustu mín. ein- kenndust af taugaspennu, Haraldur kom heimaliðinu yfir 79-77. Hauk- arnir jöfnuðu og næst kom Pálmar þeim yfir 79-82 með frábæru þriggja stiga skoti og 1 mín var eftir. Þá fengu Tindastólsmenn 4 vítaskot á röð, en tókst aðeins að nýta 2 og staðan var 81-82. Þá tókst Eyþóri að skora körfu fyrir Hauka, eftir gífur- lega baráttu, sem tryggði þeim endanlega sigurinn. Valur reyndi þriggja stiga skot á síðustu sek. sem ekki rataði í körfuna og sigur Hauka 81-84 var staðreynd. Tindastólsmenn voru óhcppnir að tapa þessum leik, þeir stóðu Hauk- unum fyllilega á sporði og nánast tilviljun réði því hvoru megin sigur- inn lenti. Liðið virkaði ákaflega jafnt að þessu sinni enda hefur stigaskorið sjaldan verið jafnara hjá liðinu í vetur. Haukarnir virtust lengi vel ætla að vinna þennan leik án sérstakra stórátaka, en eftir að Jón Arnar og Ingimar voru farnir út af með 5 villur lentu þeir. í crfiöleikum sem þeir klóruðu sig þó út úr, mest fyrir það hvað Tindastólsmönnum lá óskap- Iega á síðustu mínúturnar. Dómarar voru þeir Gunnar Val- geirsson og Kristinn Óskarsson og höfðu þeir góð tök á leiknum allan tímann. ÖÞ/BL Leikur: UMFT-Haukar 81-84 Lið: Haukar Nöfn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stig Pálmar 5-1 11-5 2 4 2 2 - 18 Henning 6-4 2-1 2 2 2 1 - 16 Haraldur - - - 1 - - - 0 JónArnar 4-2 - - 1 3 - - 4 Eyþór 7-3 - - - - - - 6 Ingimar 4-2 - - 1 - 1 - 4 Tryggvi 11-6 - 4 5 5 - - 16 ívar 12-5 4-1 1 8 3 3 _ 16 Reynir 6-2 1-0 - 10 1 1 - 4 Leikur: UMFT-Haukar 81-84 Lið: UMFT Nðfn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST stig Kári 7-3 4-1 - - 1 3 - 9 Sverrir 11-7 1-0 6 - 2 4 - 16 Eyjólfur 5-3 2-0 5 3 2 1 - 10 Pétur - - - - 1 1 _ 0 Björn 7-1 2-1 - 3 - 1 - 5 Ágúst 1-0 _ _ 1 - - - 0 Haraldur 12-7 2-1 4 5 2 - - 18 Valur 20-7 5-1 9 6 2 1 - 23 Körfuknattleikur: Mikið skorað í lélegum leik Á þriðja hundrað stig litu dagsins Ijós í leik í R og ÍBK í Flugleiðadeild- inni í körfuknattleik í íþróttahúsi Seljaskóla á sunnudagskvöld. Úrslit leiksins urðu 109-93 sigur Keflvík- inga sem höfðu yfir í háiflcik 48-38. Leikurinn var illa leikinn af beggja hálfu og engu líkara en leikmenn hafi gleymt því í jólaleyfinu hvernig á að leika varnarleik. í bæði liðin vantaði lykilmenn, hjá ÍR vantaði Björn Steffensen og hjá Keflvíking- um voru þeir Axel Nikulásson og Magnús Guðfinnsson ekki með. í þeirra stað komu leikmcnn sem ekki hafa leikið í langan tíma, Hjörtur Oddsson lék með ÍR-liðinu eftir tæplega þriggja ára fjarveru og stóð hann sig vel. Óskar Nikulásson lék í stað bróður síns Axels í liði Keflvík- inga. Keflvíkingar náðu þegar undir- tökunum í leiknum, en ÍR-ingar voru ekki langt undan. Tölur eins og 4-11, 14-20 23-27, 25-39, 27-45 og 36-45 sáust á stigatöflunni. í lcikhlé- inu var munurinn 10 stig 38-48. í síðari hálfleik náðu Keflvíkingar 13 stiga forystu mcð þriggja stiga körfu Jóns Kr. Gíslasonar, en hann hafði ekki skorað fram að því í leiknum. Gunnar Örn Þorsteinsson gætti hans af stakri prýði í fyrri hálfleiknum, en Jón Kr. náði að rífa sig lausan annað veifið í síðari hálfleiknum. ÍR-ingár gerðu síðan 10 stig í röð og staðan var orðin 54-57. Keflvíkingar svöruðu með 11 stigum í röð og eftir það var sigur Keflvíkinga aldrei í hættu. Þcgar upp var staðið var munurinn 16 stig 93-109. Bestir Keflvíknga voru Sigurður Ingimundarson og Einar Einarsson, en Falur Harðarson og Albert Ósk- arsson áttu einniggóðan leik. ÍRing- ar voru mjög lélegir í þessum leik, en þeir Jón Örn Guðmundsson og Jóhannes Sveinsson voru þeirra skástir. Gunnar Örn stóð sig vel í vörninni eins og áður segir. Dómarar voru þeir Kristinn Al- bertsson og Leifur Garðarsson og var dómgæsla þeirra á sama plani og leikurinn. BL Leikur: R-ÍBK 93-109 Lið: ÍR Nðfn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stig Falur 8-6 - - - 1 _ 1 17 Sigurður 14-9 - 2 6 3 2 2 24 Albert 10-7 - 2 6 4 - - 17 Egill 1-0 0 Einar 13-6 1-0 2 - - 1 3 19 Guðjón 4-2 2-2 - 1 2 2 2 12 Óskar 3-0 - - - _ - _ 0 Jón Kr. 6-2 3-2 - 3 2 3 4 12 Nökkvi 5-4 - 1 1 1 1 - 8 Leikur. ÍR-ÍBK 93-109 Lið:ÍBK Nðfn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stij) Pétur 4-0 _ _ 1 _ - - 0 Hjörtur 3-2 - - - 1 - - 4 Karl 3-0 6-1 _ - 1 - 7 3 Sturla 9-5 4-1 1 - - - 2 14 Ragnar 10-4 _ 3 3 - 1 - 12 Jóhannes 15-10 - 1 3 - 1 1 20 Gunnar 6-2 - 1 1 _ 2 1 4 BjörnL. - - - 1 - - - 0 Bragi 7-5 - 2 2 - - 1 12 Jónörn 16-10 2-1 - 2 2 2 3 24 Körfuknattleikur: Sömu mistökin hjá Þór Frá Jóhannesi Bjarnasyni fréttamanni Timans: Það ætlar að ganga crfíðlcga hjá Þórsurum að lagfæra þau atriði í leik sínum sem orsaka hvert tapið á eftir öðru í Flugleiðadeildinni í körfu- knattleik. Liðið er skipað nokkrum ágætis leikmönnum, sem þó gera sömu mistökin leik eftir leik, óþarfa villur og klaufaleg sóknarmistök ein- kenna leik liðsins, en þess á milli spilar liðið ágætlega. Leikurinn við Val á sunnudags- kvöld var dæmigerður. Allan fyrri hálfleik spilaði liðið vel og hafði forystu í hálfleik 53-50. Allt hrökk í baklás í upphafi síðari hálfleiks og Valsmenn sigldu fyrirhafnarlítið fram úr og náðu 17 stiga forskoti 88-71. En þá fóru heimamenn að spila eðlilega aftur og náðu að minnka muninn fyrir leikslok. Loka- tölur voru 112-102 Val í hag. Hlíðarendaliðið vann sanngjarn- an sigur, en tæplega munu þcir þó blanda sér alvarlega í baráttuna um íslandsmeistaratitilinn, til þess er hópurinn ekki nægjanlega öflugur. Örlög Þórsara eru hins vegar þau að berjast við ÍS um fall og þar ættu þeir að hafa betur. Konráð Óskarsson var bestur heimamanna þó ekki hafi hann spilað gallalaust. Eins átti Eir- íkur þjálfari Sigurðsson góðan leik og baráttan var í lagi á þeim bæ. Bárður Eyþórsson átti afbragðsleik með Valsliðinu og Einar Ólafsson Leikur: Þór-Valur 102-112 Lið: Þór Nðfn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST LÉl Bjöm 9-4 1-0 2 5 - - 3 11 Konráð 12-7 8-4 1 - 6 2 1 27 Stefán 5-4 - - 2 - - - 8 Jóhann 7-5 1-0 3 1 - 1 - 14 Guðmundur 14-7 3-1 4 3 1 - 3 17 Eiríkur 12-4 1-0 9 2 1 1 - 16 Einar - - - - - - 1 0 Kristján 9-3 1 3 3 - - 9 Leikur:Þór-Valur 102-112 Lið:Valur Nðfn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Slifi Matthias 11-4 - 1 3 1 - - 10 Hreinn 4-2 - 1 2 3 1 - 6 Elnir 11-7 - - 1 4 - - 18 Birðui 9-5 5-2 1 2 1 1 - 24 Björo 11-6 - 2 2 1 _ - 20 .TÁftar^n 2-0 0 Anur 3-2 M 1 - 1 - - 7 Tóouc 0-5 _ 3 3 6 1 14 fUonar M 2-0 1 2 - 1 - u var drjúgur í síðari hálflcik. Dómarar voru þeir Kristján Möller og Helgi Bragason og hafa sést bæði verri og betri dómarar hér norðan heiða í vetur. JB/BL I Leikur: ÍS-UMFH 74412 Uð: UMRll I3!3Bi[33EE3E3!jLi3[SlElCilCfl Helgi 7-5 _ 1 3 - J 13 Stefán - - - - J - 1 Hreiðar 6-2 1-1 - 4 l 3 1 9 Alexander 4-3 _ _ - 2 - 6 FrlðifkR. 8-5 2-1 1 - L J 2 16 Krittinn 7-4 2-1 - 3 2 1 17 Táitur 7-4 5-2 1 2 2 5 1 17 lÁKann M - - - - 4 íok 5-2 4-1 - 1 J. 1 - ð Qttrg - ! - - - ~ 0 Þriðjudagur 17. janúar 1989 Þriðjudagur 17. janúár 1989 ÍÞRÓTTIR Alfreð Gíslason skorar eitt af mörkum sínum í landsleikjunum um helgina Tímamynd Pjetur Handknattleikur: A-Þjóðverjar náðu að bjarga andlitinu í upphafí síðari hálfleiks í landsleik íslendinga og A-Þjóðverja á laugardaginn stefndi í yfírburða sigur íslands eftir góðan leikkafla. A- Þjóðverjum tókst að minnka muninn og bjarga andlitinu en góður sigur íslands var samt staðrevnd 26-21. fslendingar voru ákveðnari aðilinn allan leikinn og Héðinn Gilsson gerði fyrsta markið, Alfreð Gíslason bætti öðru við Njarðvtkingar unnu Stúdenta 92-74 er liðin mættust í íþróttahúsi Kennaraháskól- Staðan Keflavík .... 17 14 3 1501-1285 28 KR 17 12 5 1356-1263 22 Haukar 17 9 8 1504-1421 18 ÍR 17 8 9 1306-1321 16 Tindastóll .. 17 3 14 1359-1505 6 Njarðvík ... 17 16 1 1520-1247 32 Valur 17 10 7 1458-1324 20 Grindavik .. 17 10 7 1384-1275 20 Þór 17 2 15 1312-1609 4 ÍS ••••••••• 17 1 16 1090-1502 2 skömmu síðar og þar með voru íslendingar komnir með forystu í leiknum, forystu sem þeir létu ekki af hendi. Staðan breyttist í 9-7 og 11-8 og þegar blásið var til leikhlés var munurinn orðinn 5 mörk, 15-10. Eins og áður segir átti íslenska liðið mjög góðan leikkafla í upphafi síðari hálfleiks og skoraði fjögur fyrstu mörkin, staðan var þá orðin 19-10 og í afhroð stefndi hjá A-Þjóðverjum. Þeim tókst að ans á sunnudagskvöld. Lokatölur voru 92-74 eftir að jafnt var í hálfleik 41-41. Stúdentar höfðu frumkvæðið allan fyrri hálfleikinn og það var ekki fyrr en á lokasekúndum hálfleiksins að Njarðvík- ingum tókst að jafna. Pressuvörn Njarð- víkurliðsins bar árangur í síðari hálfleikn- um er Stúdentar voru farnir að lýjast og þeir skriðu fram úr og sigruðu 92-74. Leikurinn bar þess merki að þar léku efsta og neðsta lið deildarinnar og hjá Njarðvíkingum lék nýliði, Stefán örlyas- son, en hann er bróðir þeirra Teits/to Gunnars sem báðir leika með UMFN^tg Sturlu þjálfara ÍR. Hjá ÍS lék Alfrlð Túliníus sinn fyrsta leik með liðinu. en hann lék áður með Val. ,1 BL laga stöðuna í 21-14, en þá fékk Einar Þorvarðarson markvörður rauða spjaldið og varð að yfirgefa völlinn. Einar, sem varði mjög vel sérstaklega undir það sem hann var rekinn af velli, mun hafa verið full hvassyrtur í garð dómaranna og því fengið reisupassann. Það sem eftir lifði af leiknum var jafnræði með liðunum, þau skiptust á að skora og Hrafn Margeirsson, sem kom í markið í stað Einars varði meðal annars vítakast. Þegar leiktíminn rann út var staðan 26-21 fyrir ísland og góður sigur í höfn. Héðinn Gilsson lék á vinstri vængnum í þessum Ieik, sem og síðustu leikjum lands- liðsins og stóð sig afar vel. Alfreð Gíslason lék nú á miðjunni og virðist það henta honum og liðinu stórvel. Alfreð átti mjög góðan leik á laugardaginn, svo og Einar Þorvarðarson og Bjarki Sigurðsson. Þor- gils Óttar var góður þann tíma sem hann var inná og aðrir leikmenn stóðu sig einnig með sóma. Greinilegt er að breiddin í landsliðinu er að aukast og Bogdan er farinri að gera sér grein fyrir því að ekki er alltaf hægt að keyra á sömu mönnunum leik eftir leik. Sigurður Sveinsson lék nú í byrjunarliðinu, þar sem Kristján Arason er farinn til Spánar. Sigurður skoraði að vísu ekki mikið, en átti margar góðar línusendingar. Mörk íslands: Héðinn Gilsson 6, Alfreð Gíslason 5, Bjarki Sigurðsson 5, Sigurður Sveinsson 3/1, Þorgils Óttar Mathiesen 3, Guðmundur Guðmundsson 2, Jakob Sig- urðsson 1 og Geir Sveinsson 1. Markahæstur A-Þjóðverja var Holger Winnselmann með 7 mörk. BL Körfuknattleikur: Stúdentar gál lu eftir í síðari hálfle iknum Tírriinn 11 Handknattleikur: Boltinn er heitur! Já, hann var ekki til að hrópa húrra fyrir sóknarleikur íslenska landsliðsins í handknattleik í viður- eign þess gegn A-Þjóðverjum á sunnudagskvöld og mátti greina þreytu í leik íslenska liðsins, enda fímmti leikurinn á sex dögum. Hins vegar var varnarleikur liðsins stór- góður og varð A-Þjóðverjum lítið ágengt gegn íslenska múrnum. Gangur leiksins Það voru Þjóðverjar sem máttu þakka fyrir j afnteflið í þessum frekar leiðinlega og kaflaskipta leik, þar sem varnarleikur var í hávegum hafður hjá báðum liðum. Það voru vorir menn sem opnuðu leikinn með marki Sigurðar Sveins- sonar, en fljótlega jöfnuðu þó aust- antjaldsbúar. En Sigurður lét ekki þar.við sitja. Af fyrstu sjö mörkum íslenska liðsins átti Siggi Sveins fimm og sýndi hreint ágætan leik og hafði íslenska liðið náð tveggja marka forystu. Undir lok fyrri hálfleiks datt sóknarleikur íslenska liðsins niður og Þjóðverjar gengu á lagið og skoruðu fimm mörk í röð og staðan í hálfleik því 8-10. Sfðari hálfleikur var ekki mikið fyrir augað, sóknarleikur beggja liða tómt rugl, hraðaupphlaup fóru oftar en ekki í vaskinn og var engu líkara en boltinn væri heitur; í þvílíkum erfiðleikum áttu menn með að hand- fjatla hann. Það voru þó íslendingar sem höfðu yfirhöndina allan síðari hálfleikinn ef frá eru taldar síðustu 45 sek. og var þar að þakka ótrúlega góðri íslenskri vörn og góðri mark- vörslu Einars Þorvarðarsonar. Þjóð- verjar skoruðu ekki mark í 18 mínút- ur í síðari hálfleik. Þegar 45 sek. voru til leiksloka jöfnuðu Þjóðverjar metin 18-18 og spennan í hámarki. Okkar menn hófu sókn og þegar 2 sek. voru til leiksloka var brotið á Alfreð Gíslasyni og dæmt var auka- kast. Stöðvuðu þá dómarar klukk- una, en því miður þá tóku tímaverðir ekki eftir því. 1 snarheitum var aukakastið tekið og komst Guð- mundur Guðmundsson inn úr horn- inu og skoraði glæsilegt mark, en vegna fyrrnefndra mistaka var þetta mark dæmt af. Leikurinn í heild var frekar léleg- ur og greinilegt var aá einhver þreyta er komin í liðið, enda kannski ekki nema eðlilegt eftir stranga dagskrá undanfarna daga. En gleði- legt verður að telja hversu traust vörnin er. Þessir léku og skoruðu mörkin Tvímælalaust besti maður ís- lenska liðsins var Einar Þorvarðar- son í markinu, sem varði ein fimm- tán skot og er óðum að komast í sitt fyrra form. Sigurður Sveinsson var atkvæðamestur íslenska liðsins með sjö mörk þar af þrjú úr vítum. Siggi byrjaði lcikinn af krafti og skoraði fimm mörk á fyrstu tíu mín. Síðan virtist grípa Sigga eitthvað kæruleysi og datt leikur hans niður. Alfreð Gíslason var traustur, skoraði fimm mörk, var firnatraustur í vörn og átti stórgóðar línusendingar á Þorgils, sem gáfu mörk. Þorgils Óttar læddi inn tveimur boltum, en hefur oft leikið betur. Sigurður Gunnarsson skoraði tvö mörk og voru þau bæði sérlega glæsileg, dæmigerð mörk fyrir Sigurð. Þar sem ekkert gekk í sóknarleiknum reif Siggi Gunn sig lausan og afgrciddi knöttinn í netið. Héðinn Gilsson átti sinn slakasta leik af leikjum hans að undanförnu. Hann skoraði eitt mark og er óhætt að segja að mark hans hafi verið eitt það glæsilegasta sem sést hafi á fjölum Hallarinnar. Geir Sveinsson skoraði eitt mark úr hraðaupp- hlaupi. Geir var góður að venju í vörninni, en það voru ósköp að sjá til hans í hraðaupphlaupum þar sem á stundum virtist sem hann gæti ekki gripið knöttinn og er engin spurning að Geir hefur og getur gert miklu betur. Hornamenn okkar skoruðu ekki eitt einasta mark og voru þeir mjög slakir í sókninni. Þeir Bjarki Sig- urðsson, Guðmundur Guðmunds- son og Jakob Sigurðsson léku þenn- an leik og höfðu ekki árangur sem erfiði, og minnti þett'a mjög á leik liðsins í Seoul þar sem hornamönn- um gekk mjög illa. Júlíus Jónasson Enska knattspyrnan: Örugg forysta Arsenal Með 3-1 sigri sínum á Everton á útivelli á laugardag tryggði Arsenal sér 5 stiga forystu í 1. deild ensku knattspyrnunnar því Norwich tapaði 1-2 fyrir Coventry á heimavelli. Arsenal á auk þess 1 leik til góða á Norwich sem er í öðru sæti. Þeir félagar úr íslenska landslið- inu, Guðni Bergsson og Sigurður Jónsson, voru báðir í sviðsljósinu með liðum sínum um helgina. Sig- urður með Sheffield Wednesday, en liðið mætti meisturum Liverpool á heimavelli sínum. Sheffield Wed- nesday náði 2-0 forystu í leiknum með mörkum þeirra Mark Proctor á 5. mín. og Imre Varadi á 15. mín. Lengi leit út fyrir sigur Wednesday í leiknum, sem sýndur var í beinni útsendingu í ríkissjónvarpinu. Meistararnir náðu að jafna leikinn undir lokin með tveimur mörkum á stuttum tíma. Pressa Liverpool var þá orðin mikil, eins og reyndar allan síðari hálfleikinn. Fyrra markið gerði Steve Nicol, en jöfnunarmark- ið kom frá John Aldridge, sem komið hafði inná sem varamaður. Sigurður Jónsson átti mjög góðan leik og var með betri mönnum á vellinum. Á sunnudag léku síðan Totten- ham og Nottingham Forest á White Hart Lane. Norska landsliðsmark- verðinum, Erik Thorstvedt hjá Tot- tenham, voru mjög mislagðar hend- ur í leiknum og var síðara mark Nottingham Forest algjörlega á reikning Norðmannsins. Hann missti knöttinn í markið eftir skot Nigel Clough. Fyrra mark Forest gerði Gary Parker mínútu áður. Chris Waddle náði að minnka mun- inn fyrir hlé, en hvorugu liði tókst að skora í síðari hálfleiknum. Guðni Bergsson lék með Tottenham og átti góðan leik í stöðu hægri bakvarðar. Úrslitin í 1 deild: Aston Villa-Newcastle........... 3-1 Charlton-Luton.................. 3-0 Derby-Westham .................. 1-2 Everton-Arsenal................. 1-3 Manchester United-Millwall...... 3-0 Norwich-Coventry ............... 1-2 Sheffield Wednesday-Liverpool .. 2-2 Southampton-Middlesbrough .... 1-3 Wimbledon-Queen’s Park Rangers 1 -0 Tottenham-Nottingham Forest ... 1-2 Úrslit i 2. deild: Brighton-Plymouth............... 2-2 Chelsea-Crystal Palace.......... 1-0 Hull-Boumemouth ................ 4-0 Leeds-Birmingham Leicester-Portsmouth Oldham-Manchester City .... ... 0-1 Shrewsbury-Blackburn ... 1-1 Stoke-Bradford ... 2-1 Sunderland-Oxford Swindon-Barnsley Walsall-lpswich Watford-West Bromwich .... ...2-0 Staðan í 1. deild: Arsenal , 20 13 4 3 45 21 43 Norwich , 21 10 8 3 30 22 38 Coventry . 21 9 6 6 29 21 33 Millwall . 20 9 6 5 30 24 33 Liverpool . 21 8 8 5 26 18 32 Nott.Forest .... . 21 7 10 4 27 24 31 Man. United .. . 21 7 9 5 28 18 30 Everton . 20 8 6 6 26 22 30 Derby . 20 8 5 7 22 16 29 Wimbledon ... . 20 8 4 8 24 27 28 Middlesbrough . 21 8 4 9 27 32 28 Aston Villa ... . 21 6 8 7 31 32 26 Southamton .. . 21 6 8 7 34 40 26 Tottenham ... . 21 6 7 8 31 32 25 Q.P.R . 21 6 6 9 23 21 24 Luton . 21 5 8 8 23 26 23 Sheff.Wed. ... . 20 5 7 8 17 28 22 Charlton .... . 21 4 8 9 22 32 20 West Ham .... . 21 4 5 12 18 36 17 Newcastle .... . 21 4 5 12 17 38 17 lék að mestu í vörninni og gekk ágætlega. Tveir leikmenn eru þá ónefndir, þeir Leifur Dagfinnsson og Valdimar Grímsson, sem vermdu varamannabckkinn. Bestir í a-þýska liðinu voru þeir Ruediger Borchardt með sex mörk og Juerger Oueren- geassen með fimm mörk. Þá varði a-þýski markvörðurinn mjög vel. PS I m I 515 kr.kg 295 _ 590 570 695 821 720 379 490 1.590 1.555 - Hvalrengi Bringukollar Hrútspungar Lundabaggar Sviðasulta súr Sviðasulta ný Pressuð svið Svínasulta Eistnavefjur Hákarl Hangilæri soðið Hangifip.soð. Úrb. hangilæri Úrb. hangifrp. Harðfiskur Flatkökur Rófustappa b Sviðakjammar Marineruð síld Reykt síld Hverabrauð Seytt rúgbrauð Lifrarpylsa Blóðmör Blandaður súrmatur í fötu 389 - Smjör 15 gr. 6.70 kr.stk. 721 ■ I kr. kr.kg flakið kr.stk. kr. 507 kr.kg 427 _ r- Kjötetöðfat Glæsibæ SS 68 5168. I I TOLURNAR ÞINAR? ÞAR KOM AÐ ÞVI! BÓNUSTALA Þatta eru tölumar sem upp komu 14. janúar Heildarvinnlngsupphæö var kr. 6.322.705,- 1. vinnlngur var kr. 2.910.895,-. Elnn var með fimm tölur réttar. Bónusvinningur (fjórar tölur + bónustala) var kr. 506.136,- skiptist á 4 vinningshafa og fsar hver þeirra kr. 126.534,- Fjórar tölur róttar, kr. 672.910,-, skiptast á 183 vinningshafa, kr. 4.770,- á mann. Þrjár tölur róttar kr. 2.032.764,- skiptast á 5.554 vinningshafa, kr. 386,- á mann. Sðlustaóimir aru opnlr frá mánudagi tll laugardaga og loka akkl fyrr an 15 mfnútum fyrir útdiátL Sími 685111. Upplýsingasímsvari 681511

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.