Tíminn - 21.01.1989, Blaðsíða 2
•+. ;'.*V
2 Tíminn
Q(iQ, r ofse.i rír*f *yir*t.r? I
Laugardagur 21. janúar 1989
1,2 miíljarðar í úttekt
umfram aðra mán. ársins
Um næstu mánaðamót er komið að skuldadögum hjá
þeim sem freistuðust til að fjármagna jólahaldið með
notkun kreditkorta. í gær lágu nákvæmar tölur enn ekki
fyrir hjá kreditkortafyrirtækjunum en samkvæmt þeim
upplýsingum sem fengust hjá forráðamönnum þeirra má
gróflega áætla að jólaúttektir landsmanna hafí verið 1,2
milljarðar króna umfram það sem úttektarupphæðin er
aðra mánuði.
Þcssi upphæð staðfestir það
væntanlega sem kom fram í frétt-
um Tímans milli jóla og nýárs að
„kreppan" margumtalaða hafi
týnst í jólaösinni. Þar kom einnig
fram, bæði í viðtölum við kaup-
menn og út frá þeim tölum sem þá
lágu fyrir hjá kreditkortafyrirtækj-
unum, að úttektir á kreditkort
voru ekki meiri en fyrir jólin ’87 og
fjárráð fólks virtust síst vera minni
en áður.
Samkvæmt heimildum Tímans
hefur töluvert borið á því að kaup-
menn hafi trassað að leita úttektar-
heimildar hjá viðkomandi kredit-
kortafyrirtæki, eins og þeir eiga að
gera ef viðskiptavinurinn verslar
fyrir háa upphæð, en úttektar-
mörkin í almennum verslunum
miðast yfirleitt við átta þúsund
krónur.
í framhaldi af þessum upplýsing-
um hafði Tíminn samband við
framkvæmdastjóra Visa og Euro-
card en hvorugur kannaðist við að
þessi misbrestur hefði verið áber-
andi. Þess má geta að hjá Eurocard
gildir sú regla að ef viðskiptavinur-
inn framvísar persónuskilríkjum
má úttekt án heimildarnúmers vera
allt að 25 þúsund krónum og 50
þúsund krónur fyrir handhafa gull-
korta.
Hjá kreditkortafyrirtækjunum
gilda þær reglur ef ekki hefur verið
leitað eftir heimildarnúmeri á upp-
hæðir, sem eru fram yfir tiltekin
viðmiðunarmörk sem gilda hjá ein-
stökum kaupmönnum og þjónustu-
stöðum, að þá er reynd innheimta
en ef hún bregst þá er viðkomandi
kaupmaður eða þjónustustaður
ábyrgur.
Þeir einstaklingar sem eru með
s.k. „gullkort" hafa bæði hærri
úttektarheimild, a.m.k. 220 þús-
und á mánuði, og úttektarmörk
þeirra eru tvöfalt hærri í almennum
verslunum og þrefalt hærri ef skipt
er við ferðaskrifstofu. SSH
m
'MSAÍStAmj
Innanlandsflug Flugleiða féll niður í gærdag vegna veðurs.
Suðvesturhornið:
Vandræði
í ófærð
Töluverð vandræði urðu á suð-
vesturhorni landsins í gær sökum
ófærðar. Snjó kyngdi niður á þessu
svæði og mikið var um að menn væru
á ferð á illa búnum bílum. Hjá
lögreglunni í Reykjavík fengust þær
upplýsingar að annríki hefði verið
töluvert, aðallega f gærmorgun, en
árekstrar hefðu ekki verið margir
miðað við hvað færðin var slæm.
Á meðfylgjandi myndum sést að
Mikið öngþveiti varð norðan við Kópavogslækinn vegna mikillar hálku og
Stóð lögreglan í ströngu VÍð að ýta. Tímamynd: Pjetur
fólk lenti þó í ýmsum vandræðum og áður en þeir halda aftur út í ófærðina
margir hugsa sig vafalaust um tvisvar á sumardekkjunum. SSH
Ökumaður þessa jeppa var á ferð við Reykjavíkurflugvöll, og eins og sjá má endaði ferðin niðri í skurði.
Tímamynd: Árni Bjama
Skáís kannaði fylgi stjórnmálaflokka:
Ríkisstjórn
Skáís gerði skoðanakönnun
varðandi fylgi flokka, traust til
þingmanna og fleira.
Urtakið náði til 900 einstaklinga
18 ára og eldri af öllu landinu.
Mjög góð þátttaka fékkst eða
89,4%.
Fyrsta var spurt hvaða flokk fólk
myndi kjósa ef efnt yrði til alþing-
iskosninga núna. 59,5% að-
spurðra, eða samtals 479 manns,
tóku afstöðu.
Athygli vekur að sé aðeins tekið
mið af þeim er tóku afstöðu eykur
Sjálfstæðisflokkurinn fylgi sitt frá
síðustu könnun. Fylgi Alþýðu-
bandalagsins eykst og Alþýðu-
flokks einnig lítillega. Kvennalist-
inn og Borgaraflokkurinn tapa aft-
ur á móti þó nokkru fylgi miðað við
síðustu könnun.
Einnig var spurt hvort fólk styddi
ríkisstjórnina. Afstöðu til þess
tóku 86,7% aðspurðra eða 698
manns.
Meirihluti þeirra er afstöðu
tóku, eða 52,5%, svöruðu því til
að ríkisstjórnin nyti ekki stuðnings
þeirra. Þetta er hærri tala en prós-
entustig þeirra er ekki báru traust
til ríkisstjórnarinnar í síðustu
skoðanakönnun í október 1988.
Þetta er þó töluvert meiri stuðn-
ingur en var við skoðanakönnun
sem gerð var í júlí á síðasta ári. Af
því má dæma að traust almennings
til ríkisstjórnarinnar gangi nokkuð
í bylgjum og á ef til vill eftir að
aukast aftur. jkb
Ef kosift vasri til alþingis núna, hvaiba flokk myixiir þú kjósa?
Fjöldi % af Staöal- % af þain
Úrtaki frávik sem tóku
afstöðu
Alþýðuflokkur 54 6.7% 0.9% 11.3%
Frajnsóknarflokkur 94 11.7% 1.1% 19.6%
Sjálfstæðisflokkur 176 21.9% 1.5% 36.7%
Alþýðubandalag 62 7.7% 0.9% 12.9%
Kvennalisti 69 8.6% 1.0% 14.4%
Flokkur œannsins 5 0.6% 0.3% 1.0%
Þjóðarflokkur 2 0.2% 0.2% 0.4%
Síanbök ua jafnrétti 3 0.4% 0.2% 0.6%
Borgaraflokkur 12 1.5% 0.4% 2.5%
Aðrir flokkar 2 0.2% 0.2% 0.4%
Óókveðnir 196 24.3% 1.5%
Ký3 ekki/skila auðu 88 10.9% 1.1%
Svara ekki 42 5.2% 0.8%
Alls 805 100.0%
Þar af tóku afstöðu 479 59.5% 100.0%
Tafla yfir fyigi flokka í skoðanakönnun sem gerð var af fyrírtækinu Skáís.