Tíminn - 21.01.1989, Blaðsíða 4

Tíminn - 21.01.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn Laugardagur 21. janúar 1989 jr Viöamikil íslensk alfræöioröabók í buröarliönum hjá Erni og Örlygi hf: Aætlaður kostnaður við alfræðiorð 75 millj. kr Um eitt hundrað sérfræð- ingar, tíu starfsmenn og tveir ritsjórar vinna öllum stundum að útgáfu Arnar og Örlygs hf. á stærstu og reyndar fyrstu íslensku al- fræðiorðabókinni. Verður hún á að giska um 1700 blaðsíður að stærð í þremur bindum og er unnin á grundvelli alfræðibókar Gyldendals-forlagsins í Danmörku. Um 45 þúsund uppflettiorð verða í 241 efn- isflokki. Nú liggur fyrir að um 70% danska handritsins nýtist til ís- lensku útgáfunnar, en kostnaður við bókina hefur aukist eftir að fyrir lá að um þriöjungur efnisins verður að vera séríslenskur og unninn frá grunni. Heildar kostn- aður við gerð alfræðiorðabókar- innar er talinn nema um 75 milljón- um króna, en nú þegar hefur starfslið Arnar og Örlygs hf. komið um 40% orðanna í útgáfuhæft form. Að sögn Örlygs Hálfdánarsonar, útgefanda, er verkiö eitt það stærsta sem ráðist hefur verið í við bókaútgáfu á íslandi og er þó meðtalið verk eins og Ensk-ís- lenska orðabókin sem Itann gaf út fyrir nokkrum árum. „Ég tel að mcð útgáfu þessari sé verið að leggja grunninn að markvissri ís- lenskri hugsun framtíðarinnar. Það hvílir því mikil ábyrgð á herðum útgáfunnar um að móta verkið í þeim anda að það stuðli að eðlilegri þróun tungunnar," sagði Örlygur Hálfdánarson er Tíminn innti hann eftir gangi verksins. í Svíþjóð eru ráðamenn orðnir uggandi um þróun eigin tungu og hefur ríkisvaidið þar veitt veglega styrki til útgáfu Bra Böcker á alfræðiorðabók af sömu ætt og Örn og Örlygur hf. vinnur að. Að mati ráðamannanna er útgáfa af þessu Frá heimsókn Svavars Gestssonar, menntamálaráðherra, er hann mætti til útgefanda að kynna sér verkið og vinnubrögðin. Milli Svavars og Örlygs Hálfdánarsonar, útgefanda, eru ritstjórarnir Dóra Hafsteinsdóttir og Sigríður Harðardóttir. tagi ein besta leið til að sporna við áhrifum og ásælni engislsaxneskrar tungu. Af því tilefni standa vonir til að ríkisvaldið hér í landi sjái einnig mikilvægi þess að gefið verði út brautryðjendaverk á borð við það sem Örn og Örlygur hf. er þegar kominn langt með að gefa út. Að sögn Örlygs Hálfdánarsonar er kostnaður við þessa alfræðiorða- bók orðinn meiri en búist var við í upphafi, þar sem íslenskunin og fruntvinna séríslenska hlutans hef- ur aukið mestu við. Áhugi ís- lenskra ráðamanna er þó einhver fyrir þessari bók, þar sem Svavari Gestssyni, menntamálaráðherra, þótti ástæða til að heimsækja út- gefanda og ritstjóra alfræðibókar- innar nú í vikunni. Einnig er von á heimsókn stjórnar Iðnþróunar- sjóðs í næstu viku, þar sem stjórn- armenn hafa sýnt þvf áhuga að fá að fylgjast með þessu athyglisverða og umfangsmikla framtaki út- gefanda. Ritsjórar verksins eru þær Dóra Hafsteinsdóttir og Sigríður Harð- ardóttir. KB Grafarvogur 11. stærsta „bæjarfélag“ landsins? fbúum við Grafarvog hefur fjölg- að með ævintýralegum hraða. Af 2.500 manna íbúafjölgun í Reykvík á nýliðnu ári settust um 1.500 (59%) að við Grafarvog. Gróskan í Grafarvogi hefur verið eins og ráða má af eftirtöldum tölum um íbúafjölda þann 1. desember hvert ár samkvæmt skýrslum Hag- stofunnar: 1984 158 1985 744 1986 1.126 1987 2.088 1988 3.578 Ef Grafarvogur væri sérstakt bæjarfélag væri hann þegar orðinn 11. eða 12. stærsti bær á landinu. Því ekki sýnist ólíklegt að íbúum í hverfinu hafi frá 1. desemberfjölgað um þá 180 sem þá vantaði á til að Grafarvogsbúar yrðu fleiri heldur en íbúar Selfoss. Auk Reykjavíkur og nágrannabæja hennar gætu þá að- eins Akureyri, Keflavík, Akranes og Vestmannaeyjar státað af fleiri íbúum heldur en Grafarvogur. Grafarvogur hefur þá sérstöðu að nærri 5. hver íbúi þar (19,1%) er 6 ára eða yngri. Það þýðir að ungbörn eru þar hlutfallslega yfir þriðjungi fleiri heldur en í Breiðholti og hátt í þrefalt fleiri en í Fossvogi þar sem aðeins rúmlega 7% íbúanna eru svo ungir að áruni. Hátt í helmingur íbúa Grafarvogs eru tvítugir eða yngri. „Löggilt gamalmenni“ (67 ára og eldri) finnast hins vegar óvíða færri, aðeins 39, sem er um 1% íbúanna. íbúum Reykjavíkur hef- ur fjölgað um tæplega 7.300 frá árinu 1984. Þarhafasamtalsrúmlega 6.300 sest að í Grafarvogi og hinum nýju íbúðarhverfum í Arbæjar- hverfi. Samanlögð fjölgun í öllum öðrum borgarhverfum er því innan við eitt þúsund. í mörgum hverfum hefur fækkað um nokkur hundruð manns síðustu fimm árin. - HEI Grafarvogur í Reykjavík

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.