Tíminn - 21.01.1989, Blaðsíða 5
TínninriT 5
kaugardagur 2<T,jawar;k0§9
Keppst er um hver sé stærstur á tryggingamarkaði, eftir samruna í Sjóvá-Almennar tryggingar hf. í gær:
Samruni í fjögurra
milljarða kr. eign
Rétt fyrir klukkan fjögur í gærdag var klappað ákaft í tveimur
fundarsölum á Hótel Sögu og samþykkti þar með hvort hlutafé-
lagið fyrir sig, Sjóvá og Almennar tryggingar, að ganga til
samruna í eitt félag, Sjóvá-Almennar tryggingar hf. Skömmu
síðar var haldinn fyrsti hluthafafundur í stærsta núverandi
tryggingafélagi landsins, þar sem sameining Brunabótar gt. og
Samvinnutrygginga gt. er ekki enn frágengin.
Hvorugt félagið flytur í húsnæði
hins og verða aðalskrifstofurnar í
nýju húsi í Kringlunni, mitt á milli
Húss verslunarinnar og prent-
smiðju Morgunblaðsins. Það er
enn í byggingu en stefnt er að
opnun þar l.október nk.
Kosið var í sjö manna stjóm
Sjóvá-Almennra trygginga hf. á
fyrsta hluthafafundinum og hlutu
stjómarmenn einróma kjör. For-
maður stjórnarinnar er Benedikt
Sveinsson og varaformaður er
Hjalti Geir Kristjánsson. Fram
kom krafa um að hlutabréfaskrá
verði lögð fram innan viku frá
fundinum. Þá var tilkynnt að fram-
kvæmdastjórar yrðu tveir og eru
það núverandi framkvæmdastjórar
félaganna sem standa að sammn-
anum, þeir Ólafur B. Thors og
Einar Sveinsson. Hlutafé Sjóvá
verður meira í nýja félaginu eða
um 75%, en hlutur Almennra
trygginga verður um fjórðungur.
Er gert ráð fyrir að sameiginleg
starfsemi geti hafist strax í næsta
mánuði.
Stærst tryggingafélaga
Ef efnahagsreikningar félaganna
eru skoðaðir kemur í ljós að sam-
eiginleg velta félaganna við sam-
einingu er tæplega þrír milljarðar
króna og eru eignir þeirra yfir
fjórir milljarðar króna. Á bak við
þessar eignir og veltu standa á
fimmta hundrað manns samanlagt.
Á fyrsta hluthafafundinum sagði
Benedikt Sveinsson, stjórnarfor-
maður, að hér væri stofnað stærsta
og öflugasta tryggingafélag sem
nokkm sinni hafi starfað á Islandi
og jafnvel þó nýlegar fréttir af
sameiningu annarra tveggja félaga
væm teknar með í reikninginn.
Hjalti Geir Kristjánsson, vara-
formaður stjórnar, sagði við þetta
tilefni að ekki yrði gripið til upp-
sagna starfsfólks við sameining-
una. Kom fram á fundinum að
starfsfólk hins sameinaða félags er
liðlega eitt hundrað talsins, en á
síðastliðnum mánuðum hefur ekki
verið ráðið nýtt starfsfólk í stað
þeirra sem hætta störfum.
Frá hluthafafundi í Sjóvá ■ gær.
Undirbúningur að sameiningu
þessari hefur staðið um nokkurt
skeið eða allt frá því í haust og
greindi Tíminn frá því á sínum
tíma. Þann 16. desember sl. var
svo stofnað nýtt vátryggingafélag
og hlaut það nafnið Sjóvá-AImenn-
ar tryggingar hf. Þeir sem stofnuðu
þetta félag voru Almennar trygg-
ingar hf., Ólafur B. Thors, Hjalti
Geir Kristjánsson, Sjóvátrygging-
arfélag fslands hf., Benedikt
Sveinsson ogEinar Sveinsson. Alls
lögðu þeir fram 1.200.000 krónur í
Tímamynd: Ámi Bjama
hlutafé, en hinir þrír síðasttöldu
lögðu samanlagt fram um 900.000
krónur og eiga því meirihluta í
félaginu. Eftir sameininguna í gær
leggja Almennar fram 43,75 millj-
ónir króna og Sjóvá 131,25 millj-
ónir króna. Hlutafé nýja félagsins
er því orðið 175 milljónir króna.
Við sameininguna yfirtók nýja fé-
lagið svo rekstur gömlu félaganna
frá og með síðustu áramótum og
allar eignir gengu einnig til Sjóvá-
Almennra hf. KB
Auglýsingabrella Háskólabíós veldur
hneykslan, reiði og jafnvel vonbrigöum:
Blautir
kossar
Það er tekið upp á ýmsu til að ná
athygli fólks. Þeir sem rennt hafa
yfir einkamáladálkinn í DV í þessari
viku hafa eflaust tekið eftir svohljóð-
andi auglýsingu: „Konur og karlar,
þið sem hafið áhuga á mjúkum,
blautum og ástríðufullum kossum
sem standa yfir í 3 daga. Hringið í
síma: 22140“.
En hvað gerist ef hringt er í
umrætt númer? Jú, málmkennd
kvenmannsrödd svarar í símsvara
og tilkynnir að ef þú hafir áhuga á
kossum, blautum og ástríðufullum,
skulir þú mæta í Háskólabíó og
horfa á myndina Bull Durham. Að
sögn Friðjóns Guðmundssonar hef-
ur verið hringt óhemju mikið út af
umræddri auglýsingu í númerið
22140. Viðbrögð manna eru misjöfn,
sumir hneykslast, aðrir verða fyrir
vonbrigðum en flestir hafa gaman af
uppátækinu. Þó nokkuð er um að
fólk sem haft hefur samband við
símsvarann hringi á skrifstofu bíós-
ins og kvarti, annað hvort yfir því að
auglýsingin sé ekki viðeigandi eða
lýsi vonbrigðum sínum. Friðbert
Pálsson framkvæmdastjóri Háskóla-
bíós á upphaflegu hugmyndina að
þessari aðferð við að auglýsa mynd-
ina Bull Durham. Ekki er gott að
segja til um hver áhrif auglýsingin
hefur en aðsókn að myndinni er
þokkaleg. -ág
Borgaraflokkurinn hefur fengiö í hendur útreikninga er sýna hvað kröfur
þeirra kosta ríkissjóð. Reynt verður að finna málamiðlun um helgina:
KRÖFUR B0RGARA
KOSTA MILLJARDA
Að sögn Steingríms Hermanns-
sonar kosta kröfur Borgaraflokksins
ríkissjóð milljarða, en þær fela í sér
verulegar skattalækkanir, svo sem
niðurfellingu skattheimtu á matvæli.
Forsætisráðherra taldi að þrátt fyrir
stærri kröfur af hálfu borgaraflokks-
manna heldur en búist var við, væri
enn góður grundvöllur fyrir sam-
starfi við flokkinn í ríkisstjórn.
Útreikningar á áhrifum þeirra til-
lagna sem Borgaraflokkurinn hefur
lagt fram sem skilyrði fyrir þátttöku
sinni í ríkisstjórn lágu fyrir í dag.
Ríkisstjórnin fundaði í dag þar sem
hún fjallaði um þær breytingar sem
kröfur Borgaraflokksins mundu hafa
í för með sér og hafa þær nú verið
sendar til borgaraflokksmanna til
umfjöllunarþar. Að sögn Steingríms
munu þeir fá frest fram yfir helgi til
að skoða málin og koma með gagn-
tillögur.
Ein af kröfum borgaranna er sú að
söluskattur á matvæli verði afnum-
inn. Þetta er atriði sem ríkisstjórnin
á mjög erfitt með að fallast á vegna
þess mikla tekjutaps sem niðurfell-
ing söluskatts á matvæli mundi hafa
í för með sér. Þá væri það einnig
mjög bagalegt fyrir gamla andstæð-
inga matarskattsins að þurfa að
kyngja því að Borgaraflokkurinn
mundi knýja það fram að matar-
skatturinn yrði lagður niður, eftir að
hafa tekið þá stefnubreytingu sjálfir
að fallast á að skattur verði inn-
heimtur af matvælum áfram.
Borgaraflokksmenn munu hafa
lagt fram á móti einhverjar hug-
myndir um aðrar leiðir til tekjuöfl-
unar er kæmu í staðinn fyrir skatt á
matvæli, en Steingrímur vildi ekkert
tjá sig um hverjar þær hugmyndir
væru. -ág
Björn og Stefán ráðnir
Björn Líndal og Stefán Péturs-
son voru ráðnir aðstoðarbanka-
stjórar Landsbankans í gær. Þá
breytti bankaráð starfsheiti Barða
Árnasonar úr framkvæmdastjóra
alþjóðasviðs bankans í aðstoðar-
bankastjóra alþjóðasviðs.
Sex aðstoðarbankastjórar starfa
við Landsbankann, en einn þeirra
gegnir starfi bankastjóra lram til
mánaðamóta, er Valur Arnþórs-
son tekur við starfi sínu. _ág
Bjöm Líndal.
Stefán Pétursson.
MUNUR EINKA- OG
RÍKISBANKA VEX
Landsbankinn hækkaði vexti á
almennum óverðtryggðum fjár-
skuldbindingum um 1% í gær og
vextir kjörbókarinnar hækka um
rúm 4%. Þá hafa einkabankarnir
einnig hækkað vexti um 3-6%. Með
þessu eykst vaxtamunur á milli
einkabanka og ríkisbanka enn, en
fyrir 10 dögum hækkuðu einkabank-
arnir vexti en ríkisbankarnir ekki.
Vextir almennra víxla verða frá
og með deginum í dag 17% í Versl-
unarbankanum og Iðnaðarbankan-
um, en 12% í Landsbankanum.
Vextir almennra sparisjóðsbóka
munu líka verða mismunandi eftir
því hvort einkabanki eða ríkisbanki
á í hlut. Þær munu bera 8% vexti í
flestum einkabönkunum, 6% vexti í
Landsbankanum og einungis 6%
vexti í Búnaðarbankanum.
-ág
Vetur í Portúgal
1 upp í
10 vikur
Lissabon
Algarve
Madeira
Golfferðir
Ferðaskrifstofurnar EVRÓPUFERÐIR, RATVÍS OQ FERÐAVAL
bjóða ykkur upp á 4,6,8 og 10 vikna ferðirtil Portúgal í vetur.
Hægt er að velja um gistingu á Ma<Mralí Algarve eða á Ussa-
bon-ströndlnnl. Verð frá kr. 63.200,-
Einnig standaykkurtil boða styttri ferðir (3-30 dagar) með gist-
ingu í íbúðum eða 3 til 5 stjörnu hótelum víðsvegar um
Portúgal. Þið getið heimsótt heimsborgirnar Llssabon og
London í einni ferð, spókað ykkur á strönd ALGARVE eða leik-
ið golf á einhverjum bestu golfvöllum Evrópu.
Þeir sem vilja hvílast og slappa af í fögru umhverfi býðst úrval
af gististöðum á hinni margrómuðu eyju Madaira.
Golfhótel viö 7 úrvals golfvelli í Algarve
Vallargjöld á sérstaklega lágu veröi.
Nánari upplýsingar fúslega veittar á skrifstofum okkar
evrópuferðir CraMs
KLAPPARSTlG 25-27 Traitol
KLAPPARSTlG 25-27
101 REYKJAVlK,
SÍMI 628181.
Travel
HAMRABORG1-3,200 KÓPAVOGUR
SÍMI641522
FERÐAfímVAL hf
TRAVEL AGENCY V3jí/
HAFNARSTRÆTI 18,
101 REYKJAVÍK, SÍMI 14480.