Tíminn - 21.01.1989, Blaðsíða 10

Tíminn - 21.01.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn Laugardagur 21. janúar 1989 IIIHIIIIIIIIIlllll ÍÞRÚTTIR lllllllllllllllllllllllllllllflllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllllllllilllllW^............................................................................................................................................................................................................................................................II...................I.................... Körfuknattleikur-Evrópa: Bob McAdoo ennáfullri ferð Sigrún Blómsturbcrg skorar eitt þriggja marka sinna gegn Spartak Kiev í gærkvöldi, án þess að Tatiana Gorb komi vörnum við. . Timamynd Pjelur Handknattleikur: stóð sig vel Fyrrum stigakóngur NBA-deild- arinnar í körfuknattleik og leikmað- íþrótta- viðburðir helgarinnar Stórmót íþróttafréttamanna í innan- hússknattspyrnu á Seltjarnarnesi hefst kl 13.00. á sunnudag. Körfuknattleikur: Laugardagur Bikarkeppnin 16-liða úrslit Njarðvík kl.17.00.UMFN b-UÍA Sunnudagur Flugleiðadeild kl.20.00. Akureyri Þór-ÍBK Grindavík UMFG-KR Hlíðarendi Valur-UMFT Kennaraháskóli ÍS-Haukar Njarðvík UMFN-ÍR Handknattleikur: Sunnudagur 1. deild kvenna 15.15. Strandgata FH-Stjarnan 1. deild kvenna kl.15.15. Vestmannaeyjar ÍBV-Þór Ak. 2. deild karlu kl.14.00. Strandgata ÍH-ÍR 2. deild kvenna kl.20.00. Seltjarnarnes Grótta-Þróttur 2. deild kvenna kl. 15.15. Digranes UBK-KR 3. deild karla kl.16.30. Digranes UBK b-FH b Evrópukeppni meistaraliða kl.2<l.<>0. Laugardalshöll Fram-Spertak Moskva Blak: Laugardagur 1. deild kvenna kl.14.00. Hagaskóli Þróttur R.-Víkingur 1. deild karla kl. 14.30. Glerárskóli KA-Þróttur Nes. 1. deild kvenna kl. 15.45. Glerárskóli KA-Þróttur Nes. Frjálsar íþróttir: Laugardagur Um helgina fer fram Meistaramót íslands í frjálsum íþróttum innan- húss. í dag verður keppt í hástökki karla í Laugardalshöll og hefst kcppnin kl.11.20. Kl. 11.40. verður keppt í 800 m hlaupi karla og kvenna á sama stað. Kúluvarpskcppni karla og kvenna verður í Reiðhöllinni í Víðidal og hefst keppnin kl.11.20. I Baldurshaga verður keppt í 50 m hlaupi karla og kvenna og langstökki kvenna. Keppnin í Baldurshaga hefst kl.13.30. Sunnudagur Keppni verður framhaldið í Baldurs- haga kl.10.00. í Laugardalshöll hefst fjörið kl.13.30 ur með Los Angeles Lakers, Bob McAdoo er enn á fullri ferð í körfunni. Hann leikur nú á Ítalíu með liði Olympia Mílan. McAdoo var stigahæsti leikmaður liðsins gegn Saragossa frá Spáni í Korac Evrópukeppninni í vikunni, en leikurinn fór fram í Mílanó. Olympia vann leikinn 105-73, eftir að staðan í hálfleik var 58-33. McA- doo skoraði 16 stig, en næstir komu Pittis, Premier og Montecchi með 15 stig hvor. Turpin var stigahæstur Spánverja með 18 stig. Annar fyrrum leikmaður í NBA- deildinni spilar nú á Ítalíu. Það er Daye, fyrrum leikmaður Boston Celtics, en hann leikur með Scavol- ini Pesaro. Scavolini tapaði fyrir Barcelona í fyrrakvöld 84-90 á heimavelli. Daye skoraði 27 stig fyrir lið sitt og Larry Drew 20. Stigahæstur í Barcelona liðinu var San Epifanio með 30 stig. Önnur úrslit í Evrópukeppninni: Estudiantes Spáni 89 Mariembourg Belgíu 95 Olympiakos Grikklandi 87 Hapoer Tel Aviv ísrael 99 Cantu Ítalíu 102 Orthez Frakklandi 96 Red Star Belgrade Júgóslavíu 83 Mechelen Belgíu 76 Veresi Italíu 75 Partizab Belgrade Júgóslavíu 77 í Evrópukeppni meistaraliða: Yugoplastika Júgóslavíu 89 CSKA Moskva Sovétríkjunum 77 í Ronchetti Evrópukeppni kvenna urðu þessi úrslit: Toledo Spáni 59 Basket Feminile Mílan Ítalíu 60 CSKA Moskva Sovétríkjunum 78 SF Versailles Frakklandi 75 Iskra Jezica Júgóslavíu 84 Tungsram Budapest Ungverjalandi 54. “ BL Karfa-bikarinn: Dregið í dag I dag verður dregið í 8-liða úrslit bikarkeppninnar í körfuknattleik í beinni útsendingu í íþróttaþætti ríkissjónvarpsins. Eftirtalin lið leika í 8-liða úrslitun- um: Njarðvík, KR, ÍR, Haukar, Tindastóll, Breiðablik, ÍS b og að öllum líkindum Njarðvík b, en liðið á að leika gegn UÍ A á dag. Njarðvík vann fyrri leikinn með allnokkrum mun. Á þessu sést að liðin eru mjög misjöfn að getu og dragist lakari liðin áfram saman og þau sterkari dragist einnig saman, gæti úrslita- leikurinn hugsanlega orðið á milli Njarðvík a og Njarðvík b. BL Fram Framstúlkur sýndu sannarlega hörku og yfirvegun í síðari hálfleikn- um gegn sovésku meisturunum Spertak Kiev í Laugardalshöll í gærkvöld. Eftir að hafa verið 9 mörkum undir í hálfleik, unnu þær síðari hálfleikinn með 3 mörkum. 22-16 fyrir Spartak Kiev, besta fé- lagsliði heiins eru hreint ekki svo slæm úrslit. Þær sovésku mættu sterkar til leiks og náðu þegar yfirhöndinni. f Henson búningunum sínum komust þær í 4-1 og 7-2, síðan 14-7, en í Njarðvíkingar sigruðu nágranna sína Kcflvíkinga 86-61 í 16-liða úr- slitum bikarkeppninnar í körfu- knattleik í Keflavík í gærkvöld. Stað- an í hálfleik var 47-37. Stemningin í íþróttahúsi Keflavík- ur var eins og um úrslitaleik væri að ræða. Lúðrasveit Tónlistarskóla Keflavíkur lék áður en leikurinn hófst, Bjarni Felixson íþróttafrétta- maður Sjónvarpsins var heiðurgest- ur leiksins og heilsaði hann uppá leikmenn, og áhorfendur sem troð- fylltu íþróttahúsið létu vel í sér heyra. Leikurinn var jafn í byrjun og skiptust liðin á uni að skora. Um miðjan hálfleikinn leiddu Keflvík- ingar 20-18, en þá kom góður kafli hjá Njarðvíkingum. Þeir skoruðu 4 þriggja stiga körfur í röð og síðan 4 hálfleik var staðan 16-7. Þess má geta að Halldór Einarsson í Henson hefur gert þriggja ára samning við Spartak Kiev og er það sterkt fyrir fyrirtækið að svo frægt lið skuli leika í Henson búningum. Síðari hálfleikur var mun betri hjá Framstúlkunum en sá fyrri og þær söxuðu á forskot Kiev liðsins. Þegar upp var staðið skoraði Fram þremur mörkum meira í s.h. en Kiev og úrslitin 22-16; rós í hnappagat Fram. Sovéski þjálfarinn Igor Turchin var allt annað en ánægður með frammistöðu leikmanna sinna og stig og staðan breyttist í 20-34. Njarðvíkingar héldu þessum mun til loka hálfleiksins, en Keflvíkingar skoruðu tvær fyrstu körfurnar í seinni hálfleik eftir að staðan hafði verið 37-47 í leikhléi. Þegar 5 mín. voru liðnar af síðari hálfleik var staðan orðin 42-57, kom þá til handalögmála á milli Kristins Einarssonar og Nökkva Jónssonar. Dómarar úrskurðuðu að annað hvort spiluðu báðir áfram, eða hvor- ugur. Lee Nober þjálfari Keflvík- inga neitaði Nökkva um að spila og það varð úr að báðir yfirgáfu völlinn. Keflvíkingar skoruðu síðan 8 stig í röð, staðan varð 48-57, en Njarðvík- ingar svöruðu með 6 stigum og juku síðan forskotið jafnt og þétt og mestur varð munurinn 28 stig. Njarðvíkingar sigruðu eins og áður segir 86-61. í fyrri leik liðanna í bikarkeppn- inni skoruðu Keflvíkingar 60 stig í fyrri hálfleik, en aðeins 1 stigi betur í öllum leiknum núna. Jón Kr. Gíslason sagði eftir leikinn að skytturnar í liðinu liefðu brugðist og varð því úr ein vitleysa. Njarðvíkingarnir hittu vel í þessum leik og spiluðu mestan hluta tímans skynsamlega. Teitur Örlygsson var bestur Njarðvíkinga, góður í sókn og vörn og átti mörg fráköst. Annars var það liðs- heildin sem skóp þennan sigur, Hreiðar var drjúgur í fyrri hálfleik, en lenti í villuvandræðum. Kristinn Einarsson skoraði mikið í fyrri hálfleik, en spilaði lítið í þeim síðari. (sak Tómasson fór á kostum í lok leiksins, og Friðrik Ragnars- son, gífurlega efnilegur leikmaður, átti mjög góðan leik. Hjá Keflvíkingum bar mest á Axel Nikulássyni og Sigurði Ingi- mundarsyni. Eins og áður sagði brugðust skyttur Keflvíkinga. Magnús Guðfinns- son lék ekki með Keflvíkingum að þessu sinni, Lee Nober setti hann í bann fyrir að mæta ekki á æfingar. setti á æfingu þegar eftir leikinn. Þar húðskammaði hann markverðina og þeir síðan látnir æfa útköstin. Guðríður Guðjónsdóttir átti mjög göðan leik hjá Fram í gær. Síðari leikur liðanna verður í Höllinni á sunnudagskvöld kl.20.00. Mörkin; Fram: CJuðríöur 8/2, Ing- unn Bern. 3, Sigrún Blómst. 3, Margrét Blöndal 1 og Ósk Víðis. 1. Spartak Kiev: V. Garnosova 6, M. Bazanova 4, T. Gorb 3, T. Olesiuk 3, O. Semenova 3, L. Poliakh 2 og A. Shvaikoskaia 1. BL Stigin UMFN: Teitur 19, Hreiðar 16j Friðrik Ragn. 16, ísak 13, Kristinn 10, Friðrik Rún. 10og Helgi 4. ÍBK: Axel 15, Sigurður 14, Guðjón 10, Albert 9, Jón Kr. 7, Falur 2, Nökkvi 2 og Egill 2. Dómarar voru Kristinn Albertsson og Helgi Bragason. jjj Körfuknattleikur-NBA: Enn sigrar Cleveland í fyrrakvöld vann Cleveland Cava- liers enn einn sigurinn í NBA-deild- inni í körfuknattleik með þvi að leggja Indiana Pacers 113-106. Phoenix Suns unnu öruggan sigur á nýliðum Charlotte Hornets 126- 112 og hinir nýliðarnir, Miami Heat töpuðu fyrir Chicago Bulls á heima- velli 112-108. Washington Bullets unnu nauman sigur á San Antonio Spurs 115-112 og Sacramento Kings unnu óvæntan sigur á New York Knicks 112-106. Þá sigraði Seattle Supersonics Houston Rockets 124- 108. BL Skíði-Brun: MARC VAR FYRSTUR í MARK Marc Girardelli frá Luxemborg sigraði í brunkeppni heimsbikar- keppninnar í Wengn í Sviss í gær. V-Þjóðverjinn Markus Wasmeier varð í öðru sæti og Daniel Mahrer Sviss varð þriðji. BL GOLF TIL SÖLU VOLKSWAGEN GOLF CL ÁRGERÐ ’86. BRÚNN VEL MEÐ FARINN, GLÆSILEG BIFREIÐ. SKIPTI MÖGULEG. VERÐTILBOÐ UPPLÝSINGAR í SÍMA 91-617620 (EGILL) Körfuknattleikur: Frá Margrcti Sandcrs frcttamanni Tímans:

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.