Tíminn - 21.01.1989, Qupperneq 3
Laugardagur 21. janúar 1989
Tíminn 3
Nýr togari Skipakletts til heimahafnar á Reyðarfirði á þriðjudag:
33%stærri
Snæfugl SU
Togarinn Snæfugl SU-20, er vænt-
anlegur til heimahafnar á Reyðar-
firði á þriðjudag. Er um að ræða nýtt
skip, sem smíðað var í Flekkefjord
í Noregi fyrir útgerðarfyrirtækið
Skipaklett hf. á Reyðarfirði. Snæfugl
kemur í stað nafna síns sem einnig
var í eigu Skipakletts hf. Snæfugl
sem kemur á þriðjudag er fjórði
Snæfuglinn frá því 1981, að Guð-
björgin frá ísafirði var keypt til
Reyðarfjarðar og gefið nafnið
Snæfugl. Skipaklettur er hlutafélag í
eigu Gunnars hf., Snæfugls hf.,
Kaupfélags Héraðsbúa og Reyðar-
fjarðarhrepps.
Skipaklettsmenn nýttu sér heim-
ildir varðandi úreldingar skipa og er
nýi Snæfugl 33% stærri en gamli
togarinn. Að sögn Hallgríms Jónas-
sonar framkvæmdastjóra Skipa-
kletts er Snæfugl 598,74 lestir og er
það samkvæmt nýjum mælingaregl-
um. Sambærilegt skip er togarinn
Björgvin frá Dalvík, en það skip er
með mælingaböndum og mælist sam-
kvæmt eldri reglum tæplega 500
lestir.
Snæfugl kemst þó ekki til veiða
þegar í stað, því ófrágengið er slitlag
á millidekk og munu menn frá Sjöfn
á Akureyri annast verkið og fara
austur væntanlega í byrjun vikunn-
ar.
Hallgrímur Jónasson vildi geta
þess að ef veður leyfði yrði yngri
íbúum Reyðarfjarðar boðið í stutta
skemmtisiglingu um klukkan 14.
Hinsvegar stendur til að bjóða þeim
fullorðnu um borð klukkan 17 til 19
sem Hallgrímur sagði vera löggiltan
„kokkteiltíma."
Hallgrímur sagði að „kvótabréf-
ið“ hefði komið í pósti í gær og þyrfti
hann að fara að setja sig í stellingar
við að ákvarða hvort Snæfugl færi á
sóknar- eða aflamark. Skila þarf
niðurstöðum til sjávarútvegsráðu-
neytisins um mánaðamót.
53 skipstjórar mótmæla veiðafæraeftirliti Landhelgisgæslu:
„Nomaveiðar í stað
eðlilegra samskipta11
„Við teljum að framkvæmd mæl-
inga á möskvastærð í vörpu togara
sé komin út fyrir það að vera eðlilegt
eftirlit og löggæslustarf og líkist nú
fremur nornaveiðum miðalda en
eðlilegum samskiptum löggæslunnar
og þeirra sem lögum eiga að hlíta.“
Þetta segir meðal annars í sím-
skeyti sem 53 skipstjórar togskipa
sendu sjávarútvegsráðuneyti þar
sem mótmælt er aðförum Gæslunnar
gagnvart togskipum og telja þeir að
þegar togarinn Ásbjörn var færður
til hafnar fyrir skömmu, hafi mælir-
inn verið fylltur.
Skipstjórarnir segja að meðal-
stærð möskvanna í trolli Ásbjarnar
hafi reynst vera 1-2,2% undir lög-
legri stærð og slíkt geti ekki með
sanngirni talist saknæmí og verði að
taka tillit til þess að möskvastærðin
geti breyst lítillega við notkun
trollsins. - sá
Verður Kvennalistinn
tekinn til kostanna?
í gær mátti lcsa f DV að maður,
sem var spurður vegna skoðana-
könnunar um fylgi stjórnamála-
flokka, gaf þá skýringu á sjálfum
sér að hann ætti sjö börn með sex
konum og myndi því kjósa
Kvennalistann „vegna þess hvað
þær væru viljugar". Þetta karl-
rembusvín var sagt eiga heima á
höfuðborgarsvæðinu en engin nán-
ari skýring fylgir. Nú hlýtur það að
vera krafa aimennings í landinu,
fyrst slíkt yfirburða þarfanaut er
fundið í röðum stuðningsmanna
Kvennaiista að það verðir a.m.k.
upplýst hvort maðurinn er úr Aust-
urbænum eða Vesturbænum. Af
orðanna hljóðan má ráða að hér sé
um hestamann að ræða, cn þeir
tala oft um að „taka hross til
kostanna“.
Brandarasamkeppi
í Ijósvakafréttum
Fréttastofa Bylgjunnar, sem svo er
kölluð, heldur úti þætti á tveggja
tíma fresti sem þeir kalla „Heita
pottinn". t>ar á að segja brandara
f beinni útsendingu, og að því
dropateljara skiist fréttatengda
brandara. Segja menn að þessu sé
stefnt gegn fréttastofu Stjömunnar
en þar á bæ hafa menn getið sér orð
fyrir að vera fyndnir. Misjafnlega
tekst þeim þó upp í Heita pottinum
og pftar en ekki eru sagðir fimm-
aurabrandarar sem leitt hafa til
þess að útvarpsstöðin hefur nú
fengið á sig viðurncfnið „skóiaút-
varpið Bylgjan“.
Byigjan kaupi fréttir
Dropateljari hleraði það á ritstjórn
eins dagblaðsins að til umræðu
væri að taka upp þann hátt að selja
fréttastofu Bylgjunnar afgangs-
fréttir, þ.e. fréttir sem unnar eru á
blöðunum en sökum plássleysis
fást ekki birtar. Ýmislegt gæti unn-
ist meðslíkufyrirkomulagi. ífyrsta
lagi myndi það lífga upp á frétta-
tíma stöðvarinnar og þar yrðu þá
sagðar fréttir sem ekki er þegar
búið að segja í dagblöðunum. í
öðru lagi kæmi það í veg fyrir að
gamlar fréttir færu inn í blöðin
fyrir mistök. Auk þcss að vera
ágætis tckjulind -fyrir dagblöðin
gæti þetta sparað stöðinni talsverð-
ar upphæðir í mannahaldi á frétta-
stofu. Dropateijari hefur ekki
fregnað hvort fyrirhúgað cr að
gera alvöru úr þessari annars gagn-
merku hugmynd.
Ást á rauðu Ijósi
Fundaferð Jóns Baldvins og Ólafs
Ragnars til þess að kanna hvort
alþýða landsins vill ekki gera einn
myndarlega'n flokk úr tveimur litl-
um - því það er tilgangur ferðanna
- hefur verið nefnd „Ást á rauðu
ljósi“ vegna þess að nánustu aö-
standendur telja alvarlega mein-
bugi á þessum samdrætti fonnann-
anna.
Dropateljari fékk sent af þessu
tilcfni eftirfarandi kvæðiskorn frá
manni sem kaiiar sig H.F.
Þótt sleiki dali og firdi Fróns
að finna þá sem báda kjósi,
- frá óttuskeiði og allt til nóns
eigi dvöl í skúr og fjósi -,
ástir þeirra Óla og Jóns
cru og verða á rauðu Ijósi.
KOTASÆLA
fitulítil og freistctndi
Þessi fitulitla og kalkríka afurð býr yfir óþrjótandi fjölbreytni:
Hún er afbragð ein sér, frábær ofan á brauðið með t.d.
kryddjurtum, gæðir súpuna rjómabragði og gefur sósunni
á grænmetissalatið fyllingu og ferskleika.
KOTASÆLA - fitulítil og freistandi
ELDISKVIAR
eldiskvíar eru framleiddar fyrir
hámarks ÁLAG, ÖRYGGI og HAGKVÆMNI í rekstri
Sölumaður frá • verður til viðtals
hjá okkur í fyrstu viku febrúar.
VINSAMLEGAST HAFIÐ SAMBAND EF ÞIÐ ÓSKIÐ EFTIR
NÁNARI UPPLÝSINGUM.
SINDRA AÁSTALHF
Pósthólf 880, Borgartúni 31, 105 Reykjavík, sími: 627222