Tíminn - 21.01.1989, Síða 15

Tíminn - 21.01.1989, Síða 15
níFímiiKínðg7 op ^u^ardW21.janúar 1989 O I Guðrúnu síðustu æviárin, þáði hún það og gladdist yfir því að geta verið áfram innan um sitt fólk. En þrátt fyrir það vissi Oddný að kallið kæmi innan tíðar og hafði búið sig undir það. í huga hennar og hjarta var friður og ró. Frá Másstöðum og Hjallalandi er hvað fegurst útsýni yfir Vatnsdal. Fjöllin, Hnjúkurinn, Flóðið með sínum svanasöng og Vatnsdalshól- arnir. Stórkostlegt landslag. Þarna var Oddný alin upp og þar dvaldi hún nánast alla sína ævi. Ég mun ætíð minnast hennar í þessu fagra umhverfi. Um leið og Oddný er nú kvödd með djúpri virðingu og þakklæti sendi ég samúðarkveðjur til bræðr- anna í Hnausum og heimilisfólksins á Bjarnastöðum. Útför Oddnýjar Jónsdóttur verð- ur f dag frá Þingeyrakirkju. Sigurður Dagbjartsson til þess eins, að þiggja höfðinglegar veitingar á herragarðssetri. Þar ríkti glaðværð og hlýja og gagnkvæmur skilningur lá í lofti. Þar voru allir ætíð sem ein fjölskylda. Þar samein- aðist á auðveldan hátt höfðingsbrag- ur, hógværð og lítillæti. Ættliða- skiptin breyttu engu í því efni. Reisnin og höfðingsbragurinn virðist hafa erfst frá kynslóð til kynslóðar og húsfreyjan reykvíska, sem nú situr í sárum, hefur síst látið sinn hlut eftir liggja. Heimilið að Víði- völlum er fagurt á að líta, enda hefur mikið manndómsfólk átt þar húsum að ráða í langa tíð. Fyrir u.þ.b. 50 árum hófust kynni okkar Gísla frænda. Þau voru allnáin og samfundir okkar tíðir fyrstu 10- 15 árin. Oft bar fundum okkar saman á Víðimel, hjá Árna sáluga bróður hans og Báru. Þar var oft gestkvæmt og gjarnan tekið lag. Þeir bræður voru ákaflega samrýndir - listelskir og listfengir - höfðu eink- um yndi af söng og tónlist. Virðist sú hneigð ættlæg. Báðir sungu þeir í kórum í áratugi. Gfsli stundaði nám í Laugaskóla í Reykjadal í tíð Leifs Ásgeirssonar og mat hann lærimeist- ara sinn mikils. Gísli var greindur - ágætur reikningsmaður og hafði gaman af meðferð talna og reikn- ingsþrautum. Sagði hann mér síðar að Leifur hefði hvatt sig til frekara náms á þeirri braut. Gísli á Víðivöllum var ríflega meðalmaður að vexti, fríður sýnum, kvikur í spori og bar sig vel, óþving- aður í allri framkomu og mikið snyrtimenni. Svipfarið var góðlegt og hlýtt. Hann var aðlaðandi maður, kurteis og drengilegur í framkomu. Hógvær en hýr. Hann var góður heimilisfaðir, jafnlyndur og glaðvær. Konu sína mat hann mikils og lét sér annt um velferð barna sinna og fósturbarna. Öllum umbrotum í mannlegum samskiptum sneiddi hann hjá. í þeirri opinberu umsýslu, sem hann tókst á hendur fyrir sveitunga sína, var hann sanngj arn og samvinnuþýð- ur, en hélt þó fast á sínu máli, ef því var að skipta. Hann var mikill mannvinur og aldrei heyrði ég hann hallmæla nokkrum manni. Hann lét meiru skipta að varðveita alla ævi barnseðli sitt og barnatrú. Og það sýnir enga smæð. Hann mat kirkju sína og kristna trú mikils og var þar tíður gestur. Eðlisgróin glaðværð barg honum öðru fremur yfir torleiði lífsins í 70 ár. Fyrir nokkrum árum sátum við Gísli saman og spjölluðum margt um lífið og tilveruna. Meðal annars um endadægur samtíðarfólks í þess- um heimi. Það var á þeim tíma sem Gísli hafði fullkomna ástæðu til að hugsa um, hve vistaskiptin geta reynst erfið. Ég fann það þá að hann óskaði ekki eftir að ellin sækti sig heim. Máske hefur honum orðið að ósk sinni - honum hafi ekkert verið að vanbúnaði, þótt hann vildi ekki kalla á lokadaginn. Staðreynd er, að Gísli frændi minn er farinn í hið undarlega ferðalag til dánarheima, sem allir eru skyldir til, þegar klukk- an slær, sem virðist vera fremur handahófslega. Unni og aðstandendum er beðið blessunar. Ég kveð þig, frændi. og þakka samfylgdina. Konráð Gíslason. SAMKEPPNI UM NAFN Brunabótafélag íslands og Samvinnutryggingar g.t. efna hér með til samkeppni meðal almennings um nafn hlutafélagsins sem þessir aðilar ætla að stofna til að annast vátryggingarekstur þann, sem þeir hafa haft með höndum. Samkvæmt lögum nr. 50/1978 verður nafnið að bera með sér að félagið reki vátryggingarstarf- semi. Sjálft heitið þarf þó ekki að bera þetta með sér, ef fyrir aftan eða framan við það kemur „vátrygging- arfélag". Hver þátttakandi í þessari samkeppni má senda inn fleiri nöfn en eitt, en þarf að láta koma skýrt fram eigið nafn, heimili og símanúmer undir hverri tillögu. Tillögur skulu afhentar í aðalskrifstofur og öll umboð Brunabótafélagsins og Samvinnutrygginga g.t. fyrir lok fimmtudagsins 26. janúar 1989 Verðlaun að fjárhæð kr. 200.000,- verða veitt tillögumanni að því nafni, sem valið verður. Ef fleiri en einn eiga uppástungu um það nafn verður dregið á milli þeirra. I dómnefnd eru: Axel Gíslason, Jónas Kristjánsson, forstöðu- maður Árnastofnunar og Ingi R. Helgason. Brunabótafélag íslands og Samvinnutryggingar g.t. Auglýsing um álestur ökumæla Samkvæmt lögum nr. 3/1987, um fjáröflun til vegagerðar, skal eigandi eða umráðamaður dísil- bifreiðar koma með bifreið sína til álesturs á síðustu 20 dögum hvers gjaldtímabils, þ.e. næst á tímabilinu 20. janúar til 10. febrúar nk. Álestur fer fram hjá Bifreiðaskoðun íslands hf. á eftirtöldum stöðum: Reykjavík, Keflavík, Selfossi, Akureyri, Akranesi, Borgarnesi, Húsavík, Egilsstöðum, Reyðarfirði/ Eskifirði og Hvolsvelli. Samkvæmt ákvörðun dómsmálaráðuneytisins sinna lögreglustjórar og eftir atvikum hreppstjórar, svo sem verið hefur, álestrinum annars staðar á landinu. Fjármálaráðuneytið. FLUGMÁLASTJÓRN Loftferðaeftirlit Flugmálastjórn óskar eftir aö ráða starfsmann í flugrekstr- ardeild Loftferöaeftirlits. Starfið er m.a. fólgiö í eftirliti með einkaflugi og atvinnuflugi, flugskólum, flugrekendum og flugrekstri, þ.m.t. sérleyfum, áætlunarleyfum, starfsreglum flugrekenda, flugliöum, svo og afkomu flugrekenda. Aöstoð viö rannsóknir flugslysa og flugóhappa. Önnur verkefni eftir ákvörðun deildarstjóra. Flugmanns- eöa flugvélstjóraskírteini eöa sambærileg menntun og kunnátta æskileg. Laun samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Nánari upplýsingar um starfiö veitir deildarstjóri flugrekstrar- deildar. Umsóknum sé skilað til starfsmannastjóra fyrir 10. febrúar 1989 á eyðublöðum sem fást hjá Flugmálastjórn. Flugmálastjóri Aðalbókari Verslunardeild Sambandsins óskar að ráða í starf aðalbókara. Um er að ræða nýtt starf, sem tengist sjálfstæðri tölvuvæðingu deildarinnar. Starfið krefst frumkvæðis og stjórnunarábyrgðar ásamt því að ná glöggri yfirsýn fyrir gagnaflæði fjárhags- og dreifingarkerfis. Gerðar eru kröfur um viðskiptafræðimenntun, endurskoðunarmenntun eða víðtækrar reynslu í sambærilegu starfi. Starfið er laust nú þegar. Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmannastjóra er veitir nánari upplýsingar. Umsóknarfrestur er til 27. þessa mánaðar. SAMBAND ÍSL. SAMVINNUFÉIAGA STARFSMANNAHALD Lyfsöluleyfi er forseti íslands veitir. Lyfsöluleyfi Sauðárkróksumdæmis (Sauðárkróks Apótek) er auglýst laust til umsóknar. Fráfarandi lyfsala er heimilað að neyta ákvæða 11. gr. laga um lyfjadreifingu nr. 76/1982, varðandi birgðir, áhöld og innréttingar. Verðandi lyfsali skal hefja rekstur lyfjabúðarinnar 1. júlí 1989. Umsóknir um ofangreint lyfsöluleyfi skulu hafa borist ráðuneytinu fyrir 19. febrúar n.k. Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið 18. janúar 1989. Starf kaupfélagsstjóra Staða kaupfélagsstjóra við Kaupfélag Rangæinga er laus til umsóknar. Umsóknarfrestur er til 20. febr. n.k. en staðan veitist 1. júní 1989. Upplýsingar veitir Ólafur Ólafsson, kaupfélags- stjóri Hvolsvelli. Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf sendast til formanns félagsins Pálma Eyjólfssonar Hvolsvegi 19, Hvolsvelli. Stjórnin Bókin „Á ýmsum leiðum heima og erlendis“ eftir Magnús Sveinsson frá Hvítsstööum, kom út nokkru fyrir jól. Bókin fæst í bókabúðum á Stór-Reykjavíkur- svæðinu og á nokkrum stöðum úti á landi. Tilvalin fyrir þá, sem unna þjóðlegum fróðleik. Ódýr bók. Nýtt símanúmer Frá mánudeginum 23. janúar 1989 hefur Stjórnar- ráð íslands símanúmerið 609000

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.