Tíminn - 25.01.1989, Síða 11
10 Tíminn
Miðvikudagur 25. janúar 1989
Miðvikudagur 25. janúar 1989
Tíminn 11
Körfuknattleikur-NBA:
Boston vann sigur á
Philadelphia 76ers
Boston Celtics vann óvæntan sigur
á nágrönnum sínum og erkifjendum,
Philadelphia ’76ers, 117-109 er liðin
mættust á sunnudaskvöld í NBA-
deildinni í körfuknattleik.
Það var einkun góður leikur Bost-
on í 3. leikhluta sem gerði gæfumun-
inn, en þá skoraði liðið 39 stig.
Stigahæstur hjá Boston var Kevin
McHale með 27, en Robert Parish
gerði 22. Philadelphia liðið hefur
unnið tveimur leikjum meira en
Boston í deildinni. Charies Barkley
skoraði mest fyrir Sixers liðið, eða
30 stig. Á sunnudagskvöld vann
Boston síðan sigur á Detroit Pistons,
112-99, þannig að eitthvað virðist
vera að rofa til hjá liðinu þrátt fyrir
að Larry Bird sé enn meiddur.
Ólíklegt er talið að Bird leiki með
liðinu fyrr en í mars. Kevin McHale
var aftur stigahæstur hjá Boston
með 23 stig.
1 fyrrakvöld vann Indiana Pacers
loks leik, eftir að hafa tapað 5
leikjum í röð. Mótherjarnir voru
Denver Nuggets og úrslitin 117-102
koma nokkuð á óvart. Herb Will-
iams var stjarna Pacers í leiknum,
skoraði 21 stig og hann setti að auki
persónulegt met í fráköstum með
þvíaðhirða29slík íleiknum. Richie
Miller var stigahæstur hjá Indiana
með 27 stig, en Alex English skoraði
mest fyrir Denver 25 stig.
Sigurganga Cleveland Cavaliers
heldur enn áfram og í fyrrakvöld
vann liðið stórsigur á Golden State
Warriors, 142-109. Á laugardags-
kvöld vann Cleveland sigur á New
Jersey Nets.
Michael Jordan skoraði 53 stig í
107-116 tapi Chicago gegn Phoenix
Suns á laugardagskvöld. Að mati
fréttamanna sýndi Jordan sinn besta
leik með Chicago liðinu frá því hann
kom til liðsins.
Magic Johnson skoraði 30 stig
fyrir Los Angeles Lakers í sigri
liðsins á Dallas Mavericks á föstu-
dagskvöld, en Lakers liðið hefur enn
ekki tapað leik á heimavelli sínum,
Forum.
Úrslit í NBA-deildinni:
Föstudagur:
Boston Celtics-Philadelphia 117-109
Detroit Pistons-lndiana Pis 132-99
Utah Jazz-Milwaukee Bucks 98-96
Golden State Warr.-Houston 121-114
L.A.Lakers-Dallas Mavericks 115-99
Laugardagur:
Atlanta Hawks-Charlotte Hor . 137-113
Cleveland Cavaliers-N. J.Nets . 115-103
Washington B.-Philadelphia .. 107-105
Phoenix Suns-Chicago Bulls . 116-107
Seattie Supers.-N.Y.Knicks .. 121-119
Milwaukee BucksÐenver Nugg . 116-107
Golden State W.-Sacramento . 136-111
Sunnudagur:
Boston Celtics-Detroit Pist...112-99
N.Y.Knicks-Portland Trailbl .. 120-116
Mánudagur:
Clevel. Cavaliers-Golden S ... 142-109
Indiana Pacers-Denver Nugg . 117-102
San Antonio Sp.-Miami Heat.. 119-101
Staðan i NBA-deiidinni er nú þessi:
Austurdeild:
Atlantshaf sriðill:
New York Knicks............ 40 26 14 52
Philadelphia *76ers ....... 39 21 18 42
Boston Celtics ............ 38 18 20 36
New Jersey Nets............ 38 15 23 30
Washington Bullets......... 36 13 23 26
Charlotte Hornets ......... 39 10 29 20
Miðriðill:
Cleveland Cavaliers ....... 37 30 7 60
Detroit Pistons............. 37 25 12 50
Atlanta Hawks............... 38 24 14 48
Milwaukee Bucks............ 36 23 13 46
Chicago Bulls............... 37 22 15 44
Indiana Pacers.............. 38 10 28 20
Vesturdeildin:
Mið ve sturridill:
Utah Jazz .......
Houston Rockets
Denver Nuggets ...
Dallas Mavericks . .
San Antonio Spurs .
Miami Heat........
Kyrrahaf sridill:
Los Angeles Lakers
Phoenix Suns......
Seattle Supersonics
Golden State Warriors
Portland Trailblazers
Sacramento Kings . . .
Los Angeles Clippers
38 23 15 46
38 22 16 44
39 20 19 40
36 19 17 38
38 11 27 22
37 4 33 8
39 27 12 54
37 23 14 46
37 23 14 46
37 20 17 40
37 20 17 40
36 11 25 22
38 'ÍÖ 28 20
BL
Kevin McHale átti góða leiki með Boston liðinu um helgina. Hér er hann í
baráttu við Michael Thompson leikmann Los Angeles Lakers.
RÓm. Inter Mílan er nú komið
með fjögurra stiga forskot á toppi
ítölsku 1. deildarinnar í knatt-
spyrnu, eftir auðveldan 1-0 'sigur á
heimavelli á móti Lazio á sunnudag-
inn. Inter er ósigrað í síðustu 14
leikjum sínum. Næstu lið Napólí og
Sampdoría gerðu markalaust jafn-
tefli, en Napólí var án Diego Mar-
adona í þessum leik. Napólí liðið er
nú 4 stigum á eftir Inter og Sampdor-
ía er 6 stigum á eftir.
Skíðaganga:
Sveinn var
langfyrstur
Sveinn Ásgeirsson Þrótti Nes-
kaupstað sigraði í Toyota skíða-
göngumótinu sem fram fór í Bláfjöll-
um. Sveinn gekk 8 km á 24,34 mín.
Einar Jóhannesson Skíðafélagi
Reykjavíkur kom annar í mark á
29,05 mín. og í þriðja sæti varð
Marinó Sigurjónsson SR á 30,54
mín. Fjórði varð Guðni Stefánsson
SR á 30,54 mín. og fimmti varð
Sigurjón Marinósson SR á 31,15.
mín.
í öldungaflokki voru gengnir 4
km. Sigurvegari varð Hörður Guð-
mundsson SR á 14,33 mín. og annar
varð Páll Guðbjörnsson Fram á
15,09 mín.
í kvennaflokki voru einnig gengn-
ir 4 km. Víví Petersen bar sigur úr
býtum á 29,08 mín. BL
Körfuknattleikur:
Guðmundur Jóhannsson ÍS brýtur hér á Jóhannesi Sveinssyni íR, svo ekki verður um villst ■ leik
liðanna í gærkvöld í Seljaskóla. Timamynd pjeiur.
Rallakstur:
Tveir Svíar létust í
Monte Carlo rallinu
lag i
rallinu, þegar Lancia bifreið Italans Alessand-
ro Fiorio fór út af veginum í Suður Frakklandi.
Bifreiðin lenti á fimm áhorfendum og létu tveir
þeirra lífið og þrír slösuðust.
Mennirnir tveir sem fórust voru sænskir
undanfarar fyrir Top Run liðið. Þcir hétu
Wilhelm Lars-Erik Torph 28 ára og Bertil
Rune Rehnfeldt 51 árs. Þeir voru undanfarar
fyrir sænska ökumanninn Fredrik Skoghag.
Báðir voru þeir reyndir rallkappar, Torph varð
annar í rallkeppni á Fílabeinsströndinni 1986
og einnig annar í Hong Kong-Peking rallinu
sama ár. Rehnfeldt var aðstoðarökumaður
fyrir landa sinn Bo Ljungfeldt á sjöunda
áratugnum, en þeir kepptu marg oft á Monte
Carlo rallinu.
Fredrik Skoghag hætti keppni eftir slysið.
ítölsku ökumennirnir hlutu aðeins skrámur
við útafaksturinn, en þeir þrír sem slösuðust
voru enn meðvitundarlausir í gær. Skipuleggj-
endur keppninnar sögðu í gær að áhorfendum-
ir hefðu ekki staðið of nálægt veginum. BL
Körfuknattleikur-Bikarkeppnin:
Á laugardaginn var dregið um það
hvaða lið mætast í 8-liða úrslitum
bikarkeppninnur í körfuknattleik. Aft-
ur fór svo að stóru liðin drógust saman
og þau lakari lentu einnig saman.
íslandsmeistarar Hauka leika gegn
bikarmeisturum Njarðvíkur, KR-ingar
leika gegn Tindastól. Þá leika ÍS b og
UMFN b saman. ÍR-ingar voru
heppnir, þeir drógust gegn Breiðabliki
úr Kópavogi. Ekki verður annað sagt
en þessi dráttur sé hinn furöulegasti.
Utandeildarlið kemst sem sagt í undan-
úrslit, því b-lið Njarðvíkinga og Stúd-
enta er skipað leikmonnum úr Lávarð-
ardeildinni, þ.e.a.s. leikmönnum 30
ára og eldri. í Njarðvíkurliðinu eru
garnlir landsliðsmenn eins og Gunnar
Þorvarðarson, Þorsteinn Bjarnason,
Stefán BjarkasonogJúIíusValgeirsson,
en í liði Stúdenta eru meðal annarra
Bjarni Gunnar Sveinsson,' Stcinn
Sveinsson, Guðni Kolbeinsson og fleiri
gamlir refir.
Viðureign gömlu mannanna verður
áreiðanlega spennandi. ÍS liðið vann
Létti neð einu stigi í báðum leikjunum
í 16-liða úrslitunum og Njarðvfkurliðin
vann UÍ A með 28 stigum i fyrri ieiknum
og 3 stigum i síðari leiknum.
Þá verður gaman að fylgjast méð
hvernig íslandsmeisturum Hauka geng-
ur að glíma við bikarmeistarana úr
Njarðvík. KR-ingar ættu að vinna
Tindastó! létt t Hagaskóla, en norðan-
menn eru erfiðir heim aðsækja. ÍR-ing-
ar ættu að eiga létta leiki fyrir dyrum
gegn Breiðabliki og vera eina örugga
liðið í undanúrslitin.
UMFN b á að leika gegn ÍS b mánu-
daginn 6. febr. kl.20.00. í Njarðvík, en
síðari Ieikurinn verður í Kennarahá-
skólanum fimmtudaginn 9. febr. Þá
mætir a-lið Njarðvíkinga í Hafnarfjörð
fimmtudaginn 9. febr. kl.20.00, en
síðari leikur liðanna verður laugardag-
inn 11. febr. kl. 16.00. í Njarðvík. Fyrri
leikur KR og Tmdastóls verður í Haga-
skóla þriðjudaginn 6. febr. kl.20.00. og
síðari leikurinn á Sauðárkróki laugar-
daginn 11. febr. kl. 14.00. Breiðablik á
heimaleik á undan gegn ÍR og verður
hann þriðjudaginn 7. febr. kl.21.00.
Sfðari leikurinn verður laugardaginn
11. febr. f Seljaskóla kl. 16.00.
í kvennaflokki eru Keflavík. Njarð-
vík og Haukar komin í undanúrslit, en
ÍR á eftir að leika siðari leik sinn gegn
Grindavík í 8-liða úrslitunum. ÍR vann
fyrri leikinn í Grindavík 74-56, eftir að
Grindavík hafði verið yfir t hálfleik
33-32. BL
Slakt í Seljaskóla
Það var heldur fátt um fína drætti
í leik ÍR og ÍS í gærkvöld og
leikurinn sennilega lltil skemmtun
fyrir áhorfendur. Bæði liðin léku
mjög hægan körfubolta sem ekki var
áferðarfallegur.
Fyrri hálfleikur var lengst af í
jafnvægi. Sjá mátti tölur eins og 4-4,
KR'ingar lágu í
framlengingu
6-6, 12-12, 18-18 og 24-24 en á
síðustu mínútum hálfleiksins náðu
ÍR-ingar nokkru forskoti og höfðu
yfir í hálfleik 37-33.
f byrjun seinni hálfleiks keyrðu
ÍR-ingar upp hraðann og náðu, eins
og hendi væri veifað, tólf stiga
forskoti og héldu svo áfram að auka
forskotið allt til leiksloka. Leikurinn
endaði svo með sextán stiga sigri ÍR;
87-61.
Sturla Örlvgsson lék best IR-inga
sem léku flestir mjög undir getu en
þó má geta að Karl Guðlaugsson
sýndi oft skemmtilega hluti og
Gunnar Örn Þorsteinsson lék vel í
vörninni. Bestir ÍS-inga voru Jón
Júlíusson og Guðmundur Jóhanns-
son, sem er kominn til liðs við
Stúdenta aftur og á eftir að vera
þeim mikill liðsstyrkur á lokasprett-
inum í Flugleiðadeildinni. J.S.
Síðustu mínútur leiks Grindvík-
inga og KR-inga í Flugleiðadeildinni
í körfuknattleik í Grindavík í
gærkvöld, voru æsispennandi og
framlengingu þurfti til að úrslit
fengjust. Það voru heimamenn sem
stóðu uppi sem sigurvegarar í lokin
66-60.
KR-ingar voru ákveðir framan af
leiknum, en Guðni Guðnason lék nú
á ný með liðinu, eftir dvöl í Banda-
ríkjunum. í hálfleik var staðan 31-
40, gestunum í vil. Þegar9 mín. voru
til leiksloka voru KR-ingar 5 stigum
yfir 49-54, en þeim tókst aðeins að
gera 2 stig það sem eftir lifði af
leiknum. Þegar 6 sek. voru til leiks-
loka og staðan var 53-56, skoraði
Hjálmar Hallgrímsson þriggja stiga
körfu fyrir heimamenn og jafnaði
leikinn, 56-56. Liðin skoruðu sína
körfuna hvort í upphafi framlenging-
arinnar, en síðan skoraði Ástþór
Ingason þriggjastiga körfu gegn sín-
um gömlu félögum. Eftir það var
leikurinn í höndum heimamanna,
sem sigruðu 66-60.
Dómgæslan var í höndum Leifs
Garðarssonar og Sigurðar Vals Hall-
Staðan í
Flugleiða
deildinni
Keflavík . . 17 14 3 1501-1285 28
KR.......... 17 12 5 1356-1263 22
Haukar ... 18 10 8 1598-1477 20
ÍR .......... 18 9 9 1393-1382 18
Tindastóll .18 3 15 1441-1591 6
Njarðvík . . 18 17 1 1606-1329 34
Grindavík . 18 11 7 1450-1335 22
Valur .... 17 10 7 1458-1324 20
Þór......... 17 2 15 1312-1609 4
ÍS.......... 19 1 18 1187-1783 2
dö Mzbsbv Ferguzon
Fáðu þér sæti.
Dráttarvélasæti
Hagstætt verð
BUNABARDHLD
BAMBANDBIHS
; ARMULA3 REYKJAVtK SlMt 38900
dórssonar.
Stigin UMFG: Steinþór 15,
Hjálmar 13, Ástþór 11, Guðmundur
11, Jón Páll 10, Rúnar 4 og Ólafur
2. KR: ívar 14, Ólafur 13, Mattías
9, Birgir 9, Guðni 8, Jóhannes 5 og
Gauti 2. BL
Leikur. R4S 87-61 • Lið: ÍR
Nóln Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stifl
Pétur _ - _ 2 _ _ _ 1
BjömSt. 8-3 - 1 2 1 4 3 6
Karl 1-1 3-0 _ 1 _ 1 7 6
Sturla 16-10 6-1 4 12- 5 3 6 26
Ragnar 6-8 - 3 3 1 - 2 8
Jóhannes 5-3 - 3 2 5 - 5 6
Gunnar 1-0 - - - 2 - 2
BjömL. 7-5 - 2 3 _ 5 - 13
Bragi 6-3 - - 3 - 2 2 10
Jónö.G. 6-3 2-1 - 2 1 1 1 9
Leikun R-ÍS 87-61 Lið: ÍS
Nöfn Skot 3.SK SFK VFK BT BN ST Stij)
Gudmund. 5-4 _ 3 4 1 _ 1 11
Sólmundur - 1-0 - - - _ - -
Heimir 4-3 - - _ - - 3
Gisli 4-2 2-0 0 1 - 1 - 6
Kristján 5-3 1-0 - 1 4 - 2 6
Auðunn - 4-1 - 2 1 _ - 6
Þorsteinn 3-2 1-0 - 1 1 - - 6
Valdimar 4-0 - - 1 2 3 3 1
Jón 9-5 - 1 3 3 1 2 18
Bjami 1-1 - - 1 - - - 4
Hnífjafnt á Króknum
Njarðvíkingar rétt mörðu sigur
gegn Tindastól, er liðin mættust í
Flugleiðadeildinni í körfuknattleik á
Sauðárkróki í gærkvöld, 86-82.
Gífurleg stemmning var í íþrótta-
húsinu og um 500 áhorfendur létu
vel í sér heyra. Leikurinn var hníf-
jafn allan tímann og í fyrri hálfleik
var mikið skorað, alls 100 stig.
Gestirnir voru yfir 51-49 í leikhléinu.
í síðari hálfleik var spennan jafn
mikil og þegar 3 mín. voru eftir var
staðan jöfn. Njarðvíkingar skoruðu
þá 6 stig í röð og gerðu út um
leikinn. Sigur þeirra 86-82 var ekki
án fyrirhafnar og heimamenn sýndu
góðan leik.
Dómgæslan var í hönduni William
Jones og Sigurðar Valgeirssonar og
skiluðu þeir hlutverki sínu mjög vel.
Stigin Tindastóll: Valur 31, Björn
16, Eyjólfur 13, Haraldur 11, Sverrir
5, Ágúst 4 og Kári 2. Njarðvík:
Helgi 19, Friðrik Ragnars, 19, fsak
15, Teitur 15, Hreiðar 10 og Kristinn
8. ' BL
London. Manchester United
tókst að slá GPR út úr ensku bikar-
keppninni í knattspyrnu, er liðin
mættust í aukaleik á mánudags-
kvöld. United vann stóran sigur 3-0.
Brian McClair gerði tvö mörk og
enski landsliðsfyrirliðinn, Brian
Robson, sem lék nú með að nýju
eftir meiðsl, gerði eitt mark.
Birmingham. Sovéska parið
Marina Klimova og Sergei Ponomar-
enko urðu Evrópurfteistarar í ísdansi
á föstudaginn. Landar þeirra Maia
Usova og Alexander Zhulin urðu í
öðru sæti og Natalía Annenko og
Genrikh Sretenki í þriðja sæti.
Oberhof. A-Þjóðverjinn Jens
Weissflog sigraði í skíðastökki af
lágum palli í heimalandi sínu um
helgina. Hann stökk 90 m í fyrra
stökkinu og 87,5 m í því síðara.
Norðmenn komu í næstu tveimur
sætum, Ole-Gunnar Fidjestol varð
annar og Jon Inge Kjörum varð
þriðji.
Amsterdam. psv Eindhoven
er enn í efsta sæti hollensku 1.
deildarinnar í knattspyrnu. Liðið
vann 3-1 sigur á MVV á útivelli um
hclgina, en helsti keppninautur
liðsins, Ajax vann einnig á útivelli,
1-0. PSV hefur nú 29 stig eftir 18
leiki, en Ajax hefur 26 stig. FC
Twente og Fortuna Sittard koma
næst með 23 stig.
Valletta. Spánn vann Möltu 2-0
í landsleik í knattspyrnu á sunnudag-
inn. Leikurinn var í undankeppni
HM. Spánverjar hafa unnið alla þrjá
lciki sína í 6. Evrópuriðli undan-
keppninnar og hafa því 6 stig. Mörk-
in gerðu Michel Gonzalez úr víta-
spyrnu á 16. mín. og Aitor Beguir-
istain á 51. mín. Malta hefur 1 stig í
riðlinum eftir þrjá Ieiki.
Hvalrengi
Bringukollar
Hrútspungar
Lundabaggar
Sviöasulta súr
Sviðasulta ný
Pressuð svið
Svínasulta
Eistnavefjur
Hákarl
Hangilæri soðið
Hangifip.soð.
Úrb. hangilæri
Úrb. hangifrp.
Harðfiskur
Flatkökur
Rófustappa
Sviðakjammar
Marineruð síld
Reykt síld
Hverabrauð
Seytt rúgbrauð
Lifrarpylsa
Blóðmör
Blandaður súrmatur
í fötu
Smjör 15 gr.
30
kr.
kr.kg
flakið
kr.stk.
kr.
kr.kg
kr.stk.
K
Tj
Glæsibæ
0 68 5168.
RANNSÓKNARRÁÐ RÍKISINS
auglýsir styrki til rannsókna
og tilrauna árið 1989
Umsóknarfrestur er til 1. mars nk. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu
ráðsins, Laugavegi 13, sími 21320.
Um styrkveitingar gilda m.a. eftirfarandi reglur:
• Um styrk geta sótt einstaklingar, stofnanir eða fyrirtæki.
• Styrkfé á árinu 1989 skal einkum verja til verkefna á nýjum og álitlegum
tæknisviðum.
Sérstök áhersla skal lögð á:
- efnistækni,
- fiskeldi,
- upplýsinga- og tölvutækni,
- líf- og lífefnatækni,
- nýtingu orku til nýrrar eða bættrar framleiðslu,
- matvælatækni,
- framleiðni- og gæðaaukandi tækni.
• Mat á verkefnum sem sótt er um styrk til skal byggt á:
- líklegri gagnsemi verkefnis,
- gildi fyrir eflingu tækniþekkingar eða þróunar atvinnugreina,
- möguleikum á hagnýtingu á niðurstöðum hér á landi,
- hæfni rannsóknarmanna/umsækjenda,
- líkindum á árangri.
• Forgangs skulu að öðru jöfnu njóta verkefni sem svo háttar um að:
- samvinna stofnana eða fyrirtækja og stofnana er mikilvægur þáttur í
framkvæmd verkefnisins,
- fyrirtæki leggja umtalsverða fjármuni af mörkum,
- líkindi eru á skjótum og umtalsverðum árangri til hagnýtingar í atvinnulífi.
Þó er einnig heimilt að styrkja verkefni sem miða að langframa uppbyggingu
á færni á tilteknum sviðum.