Tíminn - 25.01.1989, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Miðvikudagur 25. janúar 1989
FRÉTTAYFIRLIT
MOSKVA — íbúar á jarð-
skjálftasvæðunum í Tajiklstan
í Sovétríkjunum búa sig nú
undir enn frekari skriðuföll af
völdum jarðskjálfta, en yfirvöld
sögðu að jarðvegur í hlíðum
fjalla væri enn á hreyfingu.
Skriðuföll er uröu í Sovétlýð-
veldinu í kjölfar jarðskjálfta í
fyrradag kostuðu rúmlega
1000 manns lífið.
VARSJÁ — Pólski prestur-
inn faðir Stefan Niedselak,
sem þekktur var fyrir andóf sitt
gegn Sovétmönnum og komm-
únistum, fannst látinn á heimili
sínu á laugardag. Hann var
hryggbrotinn með karatehöggi
sem einungis vel þjálfaður bar-
dagamaður hefði getað veitt
honum.
ÚTLÖND
Friöarviðræður í Líbanon virðast bera einhvern árangur:
Atök shíta hiaðna
Líbanskur shíti í átökum við kynbræöur sína. Ekki er ljóst hvort þessi er Amalliði eða HizboIIahmaður.
Vopnahlé virðist vera að komast
milli andstæðra fylkinga shíta niúsl-
íina í Líbanon. Úr átökunum dró í
gær á meðan Iranar og Sýrlendingar
reyndu að tala uin fyrir sínum
mönnum. Þær viðræður viröast vera
að bera árangur því Sheikh Hussein
Mousavi einn helsti leiðtogi hinna
öfgafullu Hizbollah samtaka sagðist
sannfærður uin að vopnahléssam-
komulag næðist í nótt.
Iránar styöja hin öfgaf'ullu Hiz-
bollah samtök sem farið hafa halloka
í átökunum gegn Amalsveitunum,
en Sýrlendingar eru eindregnir
stuðningsmenn þeirra.
Hörð átök voru á mánudaginn í
Iqlim al-Tufah sem er suöur af
Beirút, en tiltölulega kyrrt var í gær.
Utanríkisráðherra írans Ali Akb-
ar Velayati og sýrlenski kollegi hans
Farouq al-Shara höfðu átt aðskildar
viöræður við Amalle'iðtogann Nabih
Berri og tveggja manna sendincfnd
Hizbollah. í kjölfar þeirra viðræðna
hélt Mousavi til Damascus og ræddi
við Hussein forseta Sýrlands og
Velyati utanríkisráðherra írans. Eft-
ir þann fund sagðist Mousavi bjart-
sýnn á vopnahlé.
Hatrið innan samtakanna hvor
tveggja hefur verið það rnikið að
ómögulegt hefur verið að fá þá á
sameiginlega fundi þar til nú.
Ekki er Ijóst hvort Hizbollah sam-
tökin hafi gengið að skilyrðum
Amalliða um að þau framselji morð-
ingja þriggja háttsettra Amalliða, en
þeir voru myrtir t' Beirút í septem-
ber.
Sýrlendingar og íranar hafa verið
ákveðnir bandamenn undanfarin ár.
Því hefur aðstaða þeirra í Líbanon
verið frekar pínleg að undanförnu,
en ekki er talið að innbyrðis átök
shíta hafi á neinn hátt slett upp á
vinskap ríkjanna.
BRUSSEL — Ræningjar
Paul Vandens Boyebabts fyrr-
um forsætisráðherra Belgíu
hafa sent nafnskírteini hans
og dagblað þar sem Paul hefur
ritað bón til ættingja sinna þar
sem hann hvetur þá til að
greiða lausnargjald sem sett
hefur verið upp.
BELGRAD — Leiðtogar
kommúnistaflokksins í Júgósl-'
avíu frestuðu mikilvægum
fundi miðnefndar flokksins, en
mikil valdabarátta fer nú fram
milli flokksleiðtogans Stipe
Suvar og leiðtoga flokksins í
Serbíu Slobodan Milosevic.
HÖFÐABORG — Forseti
Suður-Afríku P.W. Botha var
útskrifaður frá sjúkrahúsi í
Höfðaborg sex dögum eftir að
hann fékk vægt slag.
KUALA LUMBUR -
Forsætisráðherra Malasíu Ma-
hatir Mohamd gekkst undir erf-
iða hjartaaðgerð. Það hefur ýtt
undir valdabaráttu flokks-
manna hans, en þeir berjast
um hver eigi að taka við honum
• sem valdamesti maður
l landsins.
| LUANDA — Jose Eduardo
dos Santos forseti Angólu út-
| nefndi Pedro de Castro Van-
Dunem sem utanríkisráðherra
landsins. Með þvi er talið að
hann vilji gefa ferskan og trú-
verðugan svip á Angóla í al-
þjóðlegum samskiptum.
FIGUERAS — Smurt lík
j Salvadors Dali var til sýnis
: almenningi í silkiklæddri kistu
! að ósk Dalis sem var fullviss
: um líf eftir dauðann.
JERÚSALEM — ísraelskir
hermenn drápu Palestínu-
mann og særðu annan í fyrri-
nótt þegar húsleit var gerð á
vesturbakkanum aðgrunuðum
forkólfum uppreisnar Palest-
ínumanna.
Atökin í herbúðunum í útverfi Buenos Aires:
„Nýi argentínski
herinn“ gafst upp
Leifar „Nýja argentínska hersins"
sem gerðu árás á herbúðir argent-
ínska hersins í úthverfi Buenos Aires
í fyrradag gáfust upp í gærmorgun
eftir nokkuð harða bardaga. Tuttugu
og finim manns lágu í valnum er upp
var staðið, þar af fjórir hermenn.
Einungis fjórtán árásamannanna
lifðu af, þar af ein kona.
Uppreisnarmennirnir gengu út úr
byggingu sem þeir höfðu náð á vald
sitt með hendur fyrir ofan höfuð og
veifuðu hvítri skyrtu. Á meðal þeirra
var ein kona og var hún særð, enda
Vipstrisinnaðir skæruliðar í El
Salvador hafa farið fram á að for-
setakosningum þeim er fara eiga
fram í landinu í mars verði frestað
þar til ástand í landinu skánar, en
þar hefur ríkt borgarastyrjöld í
fjölda ára. Þess í stað bjóðast þeir til
að styðja og taka þátt í forsetakosn-
ingum sem haldnar yrðu síðar og
nefna 15. septembersem hugsanleg-
an kjördag.
Farabundo Marti þjóðfrelsis-
hreyfingin sem barist hefur gegn
stjórn E1 Salvador í níu ár, stakk
upp á að nú þegar verði vopnavið-
skiptum í landinu hætt og að stjórn-
arherinn skuldbindi sig til þess að
dvelja í herbúðum sínum á kjördag.
Þá muni skæruliðar hvetja stuðn-
ingsmenn sína til að taka þátt í
forsetakosningunum, en hingað til
hafði herlið haldið uppi stanslausri
skothríð á bygginguna.
Herinn . beitti skriðdrekum,
sprengjuvörpum, brynvörðum bif-
reiðum og vélbyssuskothríð á hina
hernutndu byggingu, en uppreisnar-
liðið svaraði með vélbyssuskothríð,
handsprengjuvarpi og eldflauga-
skothríð, svo þau voru greinilega
mjög vel vopnum búin.
Ekki er enn vitað hverjir standa
að „Nýja argentínska hernum". en
hann segist berjast gegn marxisma
og aðför sem þessi nýju samtök
hafa skæruliðar gert allt sem í valdi
þeirra hefur staðið til að eyðileggjar
kosningar í E1 Salvador.
Það var erkibiskupinn Arturo Ri-
vera y Damas sem kom tilboði
skæruliða til stjórnvalda, en hann
hitti leiðtoga Farabundo Marti í
Mexíkóborg á föstudag. Afrit af
bréfinu var sent til reuters frétta-
stofunnar.
Borgarastyrjöldin í El Salvador
hefur kostað rúmlega 70 þúsund
manns lífið og er sú harðasta sem nú
er í gangi í Mið-Ameríku, þótt þar
sé einnig barist í Níkaragva og
Guatemala. Hafa skæruliðar stóra
hluta landsins algerlega á sínu valdi.
Fjórum sinnum hafa stjórnvöld og
Rarabundo Mart þjóðfrelsishreyf-
inginn hafið friðarviðræður, en þær
ætíð runnið út í sandinn.
segja að gerð hafi verið að argentín-
ska hernum.
Meðan á þessum átökum stóð
dvaldi Raul Alfonsin forseti Argent-
ínu í stjórnarráði landsins ogfylgdist
með framvindu mála. Þar höfðu
hermenn í bardagabúningi tekið við
gæslu af skrúðbúnum verði.
Lögreglunni
fyrirskipað
að skjóta á
óeirðaseggi
Stjórnvöld í smáríkinu Benin
sem er á vesturströnd Afríku
fyrirskipuðu í gær lögreglu og her
að skjóta án viðvörunar á alla þá
er taka þátt í mótmælum í Porto
Novo höfuðstað landsins. Þessar
fyrirskipanir komu í kjölfar þess
að tveir lögregluforingjar voru
grýttir til bana af æstum múgnum
sem staðið hefur fyrir óeirðum
undanfarna daga.
íbúar í Porto Novo segja að
nokkrir óeirðaseggja hafi særst í
átökunum sem breiddust út um
borgina á mánudag. Stúdentarog
opinberir starfsmenn fóru í verk-
fall í borginni á mánudaginn og
gerðu mikinn usla í opinberum
byggingunt. Þeir héldu heim er
lögregla hóf viðvörunarskothríð
út í loftið.
Ástæða þessara óeirða er
harkaleg stefna ríkisstjórnar
herforingjans Maithieu Kerekou
sem ríkt hefur í landinu frá því
árið 1972. Opinberir starfsmenn
hafa ekki fengið greidd laun sín í
þrjá mánuði og eru að vonum
óánægðir með það.
El Salvador:
Skæruliðar biðja
um frest á for-
setakosningunum
UMSJÓN:
Hallur
Maqnússon
BLAÐAMAÐ
Grikkland:
Vinstri
öfgamenn
myrða sak-
sóknara
Vinstrisinnaðir borgarskæruliðar
í Grikklandi skutu til bana saksókn-
ara í þriðju skotárás sem gerð er á
háttsetta menn innan gríska dóms-
kerfisins í þessum mánuði.
Gríska ríkisstjórnin boðaði til
neyðarfundar í gærkvöldi vegna
morðsins sem framið var af tveimur
grímuklæddum byssumönnum á vél-
hjóli. Þeir skutu fimrn skotum að
saksóknaranum Anastasios Venart-
hos utan við heimili hans í Aþenu.
Venarthos lést samstundis.
I bréfi sem skilið var eftir á
morðstaðnum sagði að „Byltinga-
samtökin fyrsti maí“ bæru ábyrgð á
ódæðinu. Þau samtök eru mjögöfga-
sinnuð til vinstri. Sögðust samtökin
hafa drepið saksóknarann þar sem
hann hefði stutt hugmyndir um að
framselja grunaðan liðsmann
„Rauðu herdeildanna" á Ítalíu til
ftalíu.
Skotárásirnar hófust 10. janúar
þegar ríkissaksóknarinn Costas
Androulidakis var særður þremur
skotsárum. Hann liggur enn illa
haldinn á sjúkrahúsi. Þá var annar
saksóknari, Panayotis Tarasouleas
særður skotsárum átta dögum
seinna.
Öfgasamtökin 17.nóvember lýstu
ábyrgð þeirra skotárása á hendur sér
og sögðu að þær væru refsing fyrir
fjármálaspillingu.