Tíminn - 25.01.1989, Qupperneq 15
Tíminn 15
Miðvikudagur 25. janúar 1989
Salvör
Jörundardóttir
Ijósmóöir
Fædd 26. ágúst 1893
Dáin 28. desember 1988
í almáttugri hendi hans
er hagur þessa kalda lands,
vor vagga, braut, vor byggð og gröf
þó búum við hin ystu höf.
(M. Joch.)
Það er bjartur og heiðskír vetrar-
dagur. Mikið fjölmenni var í Akra-
neskirkju 5. jan. sl. Þar flutti séra
Jón E. Einarsson, sóknarprestur í
Saurbæ, kveðju og minningarathöfn
um Salvöru Jörundardóttur, ljós-
móður frá Melaleiti í Melasveit. Er
sunginn hafði verið útfararsálmurinn
fagri eftir Hallgrím Pétursson, til-
kynnti presturinn að nú yrði sunginn
sálmurinn „Son guðs ertu með
sanni“. Það væri gert samkvæmt ósk
hinnar látnu og að allir viðstaddir
syngi með kirkjukórnum.
Salvör Jörundardóttir fæddist í
Birnhöfða í Innri-Akraneshreppi.
Sú jörð var ein af mörgum smábýlum
sem tilheyrðu stórbýlinu Ytra-
Hólmi. Afkoma ábúenda þannig
kotbýla var ætíð nátengd sjónum og
gott ef nægilegt aflaðist til matar og
annarra nauðþurfta. Að reisa góð
húsakynni eða afla fjár til að mennta
börn var alveg útilokaður möguleiki.
En útþrá og fróðleiksfýsn ungmenna
hafa ætíð verið söm við sig.
Salvör missti móður sína er hún
var tæplega tveggja ára gömul. Faðir
hennar eignaðist síðar aftur lífsföru-
naut og hann þurfti ekki að láta litlu
stúlkuna frá sér. Salvör dvaldi því í
föðurhúsum þar til menntaþráin
varð æskustöðvunum yfirsterkari. Á
þessum árum var það eins og óskráð
skylda að yfirgefa ekki uppalendur
sína fyrr en um tvítugsaldur. Þessa
kvöð uppfyllti Salvör við föður sinn
og stjúpu. Þá var vandinn að finna
stað, sem borgaði vinnuna, svo fjár-
munir fengjust að borga menntun
síðar. Þann stað fann Salvör. Viðey
tók hana í faðm sinn og gerði vel við
hana. Þar var um þessar mundir
mikil menningarstarfsemi og vel
búið til sjós og lands. Þar naut
Salvör sín vel, hún var bæði dugleg
og hæfileikarík stúlka. Tæplega átti
Salvör nógu góð orð til að íýsa þeim
viðbrigðum að fara úr fátæktinni
heima og á þennan best uppbyggða
stað landsins. í þá daga var Viðey
stórbýli sem ekki átti sinn líka. 50
mjólkandi kýr og allt annað eftir
því. 20 manns í heimili á sumrin en
eilítið færra á veturna. Vel var
stjórnað, unnið skipulega svo vinnan
varð létt sem leikur, ortar gamanvís-
ur um fólk og störf, saga Viðeyjar
numin meðal annarra minninga.
Þuldi Salvör upp fjölda örnefna
þaðan, á að giska 20-30.
En öll var vistin þar vafin töfra-
ljóma í minningum hennar. Mynd
mín af Viðey varð því þannig að þar
væru sólrík sumur með fögru sólar-
lagi og veturnir ætíð með stjörnu-
björtum himni. Það má segja að
Viðeyjardvöl sfna taldi hún einn
yndislegasta kafla lífs síns. Ef ég fer
með rétt mál, var hún þarna eitt ár
og vortíma, en fór um sumarið í
kaupavinnu að Deildartungu í Reyk-
holtsdal. Þar fann hún annað gott
og mikið menningarheimili. Koma
hennar í Reykholtsdalinn varð henni
síðar örlagarík. Nú hafði hún aflað
fjár með mikilli vinnu og ráðdeild
fyrir skólagjaldi, en sú hafði ætíð
verið ætlun hennar að mennta sig
eftir bestu getu.
Um haustið fór hún á Lýðháskól-
ann að Hvítárbakka (svo heyrði ég
hann ætíð nefndan). Þar stýrði skóla
hinn ágætasti menntamaður Sigurð-
ur Þórólfsson. Þetta var þriðji dval-
arstaður Salvarar frá því hún fór að
heiman. En veturinn, sem nú fór í
hönd, var hinn illræmdi Frostavetur
1917-18. Skólahúsið var mjög stórt,
timburhjallur óupphitaður að mestu
eða öllu leyti. Þeim erfiðleikum og
vanlíðan, sem frostin ollu nemend-
um og öðru heimilisfólki, myndu nú
fæstir skilja eða trúa, því skal sleppa
að lýsa þeim. Nemendur voru víðs-
vegar af landinu, flest þroskað fólk
sem sótti um skólavist af knýjandi
menntaþrá og fróðleiksfýsn (orðið
eða hugtakið námsleiði þá óþekkt).
Þó dvölin á Hvítárbakkaskóla væri
bæði köld og ströng, taldi Salvör
hana hafa orðið sér mikinn ávinning
fyrir framtíðina. Kynningin við
skólasystkini voru í endurminning-
um hennar dýrmætar perlur.
Framtíðarsýn eða draumur Sal-
varar var að verða hjúkrunarkona
eða ljósmóðir. Skilyrði til inngöngu
í ljósmæðraskóla á þessum árum
voru þau að koma með skrifleg
meðmæli um væntanlegt ljósmóður-
umdæmi. Loforð upp á það fékk hún
með góðu móti í Reykholtsdal. Svo
vel hafði hún áður kynnt sig þar. Nú
var sótt um skólavist í Ljósmæðra-
skólanum. Svarið var jákvætt. Þetta
var haustið 1918. Flestir íslendingar
munu kunna nokkur skil á sögu
þessa vetrar, en þá geisaði hin skelfi-
lega Spánska veiki með ægilegum
afleiðingum í Reykjavík og víðar.
Salvör veiktist mikið. Þegar bati
kom var ekki til setunnar boðið.
Hjúkrunarstörf út um allan bæ,
ólýsanlega erfið. Alkunna var að
flestar barnshafandi konur dóu og
ungbarnadauði skelfilegur. Allt tek-
ur enda, veikin mikla dó út - Salvör
hafði náð takmarki sínu vorið 1919.
Hún tók strax við umdæmi sínu í
Reykholtsdal sem einnig náði yfir
Hálsasveit. Að ári liðnu (1920) giftist
Salvör ungum ágætismanni, Kristó-
fer Guðbrandssyni frá Kleppjárns-
reykjum í Reykholtsdal. Sá bær
varð heimili þeirra. Að þrem árum
liðnum eignuðust þau dóttur er skírð
var Vilborg. Um líkt leyti fékk
Kristófer lömun sem lagði hann í
gröfina 2 árum síðar, þá aðeins
þrítugan mann en dóttirin 2ja ára.
Skömmu fyrir þennan tíma var
læknissetur héraðsins flutt að Klepp-
járnsreykjum. Héraðslæknir var þá
hinn vel menntaði ágætismaður Jón
Bjarnason. Hann gerðist fyrstur
lækna í héraði þessu til að stunda
skurðlækningar (handlækningar).
Læknisbústaðurinn var því nefndur
sjúkraskýli. Þarna fékk Salvör starf
við hjúkrun og við hlið hins góða
læknis annaðist hún fyrir hann svæf-
inguna. Að þrem árum Iiðnum eign-
aðist Salvör annan lífsförunaut,
Magnús Eggertsson frá Vestri-
Leirárgörðum í Leirár- og Mela-
sveit. Fluttist hún til hans sama ár.
Þau eignuðust saman soninn Jón
Kristófer. 1945 keyptu þau jörðina
Melaleiti í Melasveit. Nú fóru í hönd
mörg góð ár í lífi þessara hjóna.
Róleg ár án stórviðburða. Þeim
búnaðist með afbrigðum vel í Mela-
leiti, fyrirmyndarumgengni úti sem
inni. Barnalán þeirra var mikið.
Systkinin fluggreind og mannkosta-
fólk. Farsæld fylgdi makavali þeirra.
Vilborg giftist Einari Helgasyni frá
Stangarholti í Borgarhreppi; þau
búa að Læk í Leirár- og Melasveit.
Hann er mikill álitsmaður í sveit
sinni. Þau hjón eiga dóttur, Ásdísi
að nafni. Hún er kennari að mennt
og á maka og 2 syni.
Jón Kristófer giftist Kristjönu
Höskuldsdóttur frá Vatnshorni í
Skórradal, borgfirskri í móðurætt en
þingeyskri í föðurætt. Þau hjón búa
í Melaleiti. Jón er búfræðingur en
Kristjana er organisti og spilar í
þrem kirkjum hér sunnan heiðar og
LESENDUR SKRIFA
Samviska eða sambands-
leysi við hinn mikla mátt
„En ef ekkert á oss bítur,
engill fer og Jánið þrýtur".
Svo kvað Grímur Thomsen. um
þá, sem ekki gefa gaum að æðri rödd
í eigin brjósti og geta þessi orð átt
við hvern mann í víðtækum skiln-
ingi.
Samviska þýðir: Það að hafa sam-
vit eða samvitund við annan, hafa
vitsamband við annan.
Samviskan er okkur sem engill að
ofan sendur, til að aðvara okkur og
leiðbeina. Þessi engill hefur sjaldan
hátt, en lætur þó jafnan til sín heyra
nægilega skýrt, ef hlustað er grannt
eftir orðum hans. En ef við jafnan
brjótum öll boð hans og óhlýðnumst
leiðsögn hans, er hætt við að rödd
hans hljóðni í sálum okkar og að þá
fari illa og ófarsæid sigli í kjölfarið.
Þetta á ekki aðeins við hvern
einstakling, heldur einnig við þjóð-
arheildir, þvt stundum breyta þjóðir
sem heild, gegn betri vitund, t.d.
þegar ein þjóð ræðst með ofbeldi og
manndrápum gegn annari, í þeim
tilgangi einum að hagnast sjálf á
undirokun hennar, eða ræna auð-
lindum hennar. Með slíku athæfi er
Iagt á hættulega óheillabraut, því
rödd samviskunnar (rödd hins
hæsta) er þar með kæfð og leiðsögn
hennar virt að vettugi.
Þegar einstaklingur eða þjóð rýfur
sambandið við hinn mikla mátt með
óhæfuverkum og brýtur þar með öll
lögmál lífsins, er verið að grafa
undan eigin velferð og eigin framtíð,
því sambandsleysi upp á við leiðir
jafnan til sambands við hina verstu
staði í ríki tilverunnar, þaðan sem
allt hið illa á í raun og veru frum-
upptök sín.
Ingvar Agnarsson.
æfir sjálf kóra þeirra kirkna. Þau
eiga 4 dætur sem allar hafa gengið
menntaveginn og heita Sólveig,
Salvör, Áslaug og Védís.
Svo brá skúgga á hið hamingju-
sama heimili í Melaleiti er Salvör
veiktist af illkynja sjúkdómi og
gekkst undir niikla aðgerð á Sjúkra-
húsi Akraness. Hún náði undraverð-
um bata, komst heim til sín og hélt
um nokkurn tíma heimili fyrir sig og
mann sinn, með aðstoð góðrar
tengdadóttur. Þegar dvalarheimili
aldraðra var reist og tók til starfa
1978, fluttust þau þangað og voru
fyrstu innflytjendurnir. Af sinni
framsýni sá hún hag þeirra best
borgið hér. Salvör sá líka sívaxandi
útivinnu húsmæðra til sjávar og
sveita og síst vildi hún íþyngja
tengdadóttur sinni með umönnun
þeirra. Magnús maður hennar, sem
var eilítið yngri að árum og heilsu-
betri, hefði gjarnan kosið að dvelja
ögn lengur á jörð sinni en hann er
drengskaparmaður sem stóð við hlið
konu sinnar þá og ævinlega og flutti
strax með henni á dvalarheimilið.
Hann hefur vonandi séð það fyrir
löngu að þetta var góð lausn mála
fyrir alla. Hann dvelur nú einn í íbúð
þeirra hjóna, tekur lífinu skynsam-
lega og bíður rólegur í trú, von og
kærleika.
Með honum vil ég hafa þetta
erindi sálmaskáldsins:
Blessuð von í brjósti mínu
bú þú meðan hér ég dvel,
lát mig sjá í Ijósi þínu
Ijómann dýrðar bak vid hel.
(H. Hálfd.)
Þessi skrifuðu orð hér að framan
eru aðeins ytri rammi um lífshlaup
Salvarar ljósmóður. Að sinna Ijós-
móðurstarfi í 50 ár, eins og Salvör
gerði með heppni og sæmd, er mikil
lífsfylling. Stundum fylgdu því starfi
óhjákvæmilegir erfiðleikar. En oft-
ast fylgdu ljósmóðurstarfinu ham-
ingja, gleði og þakklæti.
Kynning okkar Salvarar Ijósmóð-
ur var orðin löng. 1921 sá ég Salvöru
ljósmóður fyrst. Þá beið hún eftir
fyrstu fæðingu hjá húsmóður minni
í nær 3 vikur. Það var um snjóþung-
an hávetur. Bærinn á ystu mörkum
umdæmis hennar. Kannski varlangt
í 30 km á milli staða. Aðeins hestar
komu til greina sem farartæki. Loks
kom stund konunnar: „Þú verður
hér inni hjá okkur, Ólína, ef ég þarf
að senda þig eitthvað eða rétta mér
hluti.“ 3 kvenpersónur voru á hcim-
ilinu, auk eiginmanns. En nærvera
þeirra var ekki kornin í tísku þá.
Enginn kom inn allan tímann, fyrr
en allt var um garð gengið, eins og
sagt er. Salvör var mér afar góð
þcnnan tíma, ég var vandalaust
tökubarn á bænum. Ég hlýddi strax
orðalaust þessari ákvörðun ljósmóð-
urinnar, hvað annað, litli anginn
tæplega 11 ára. Alla lífstíð Salvarar
hugsa ég að henni hafi sjaldan verið
andmælt að ráði, hún var þannig
kona. En síðar og allt fram á þennan
dag hef ég undrast þessa ákvörðun
hennar, en ég ræddi hana aldrei við
hana. Allt var svo rétt og hnitmiðað
sem Salvör sagði fyrir um. Næsta ár
bólusetti hún mig sem barn. Leit á
mig brosandi með afar föstu augna-
ráði. Það var sem innsigli á ævilanga
vináttu.
Eftir að hún fluttist í Leirár- og
Melasveit gerðist hún Ijósmóðir þar,
þó ekki strax (Ijósmóðir var þar
fyrir). En litlu seinna flutti ég búferl-
um í sveitina. Salvör varð því ljósa
3ja minna barna. Um þetta leyti
hafði hún stofnað kvenfélag í sveit-
inni og hún vann mig í félagið.
Nokkrum árum seinna tók ég við
formennsku af henni. Síðar bar ég
upp tillögu að gera hana að heiðurs-
félaga.
Salvör var afar traustvekjandi
kona og trölltrygg. Skarpskyggn á
menn og málefni. Lét engan teyma
sig lengra en hún ákvað. Hún var vel
að sér í matargerðarlist og öllu
húshaldi. Þá var handavinna hennar
víðfræg, þó mest lopapeysur með
frumlegum munstrum. Jafnvel bjó
þau til en mikið tók hún upp gömul
og falleg munstur frá Þjóðminjasafn-
inu. Einu sinni heyrði ég hún nefndi
töluna 200 stykki af lopapcysum er
hún prjónaði eftir að hún Óuttist á
„Höfðann". Síðustu ár gat hún að-
eins valdið að prjóna vettlinga -
vegna þess að kraftar voru á þrotum
- sarna snilldarhandbragðið á þeim.
Já, mikið starf og allt vel gert vann
þessi kona! Hún naut líka mikillar
virðingar m.a. vistmanna og starfs-
fólks á Höfða.
Undanfarin ár hef ég búið í svo til
næsta húsi við dvalarheimilið Höfða.
Ég er þar hálfgerður heimagangur.
Því leit ég við og við upp til þeirra
hjóna Magnúsar og Salvarar. Sjaldn-
ar þó en hugur stóð til því ég vissi að
hjá þeim var töluverður gestagangur
vegna vinsælda beggja. Því ég veit
að of mikið má af gera. En íbúð
þeirra hjóna var hið fegursta heimili.
Bækur í fögru bandi, vel með farnar,
útsaumsmyndir eftir húsmóðurina
prýddu alla veggi. Þá báru blómin
hennar Salvarar af öllu fögru er
stofuna prýddu. „Hvernig getur
staðið á því, Salvör mín, að blómin
þín blómstra betur og meira en
annarra blóm? Það var alveg ómögu-
legt annað en að dást að blómskrúð-
inu. Þá leit hún bara brosandi á þau,
einsogástrík móðir líturá börn sín.
Salvör Ijósmóðir var mikilhæf
heiðurskona. Ég er.þakklát fyrir að
hafa eignast vináttu hennar og
traust. Blessuð sé minning hennar.
Algóður guð annist hana og geyrni.
Þetta er mín hinsta kveðja.
Ólína I. Jónsdóttir.
Afmælis- og minningargreinar
Þeim, sem óska birtingar á afmælis- og/eða
minningargreinum í blaðinu, er bent á, að
þær þurfa að berast a.m.k. tveim dögum
fyrir birtingardag. Þær þurfa að vera vélrit-
aðar.
Alúðarþakkir færi ég öllum þeim, sem heiðruðu mig
með gjöfum, árnaðaróskum og á annan hátt á
áttræðis afmælinu mínu 18. janúar sl.
Kristján Guðbjartsson
Jaðarsbraut 39,
Akranesi
t
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför
Runólfs Guðmundssonar
fyrrverandi pósts
Ásbrandsstöðum.
Guðrún Jonsdottir
börn, tengdabörn, barnabörn, bamabarnabörn og systkini.