Tíminn - 10.02.1989, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Föstudagur 10. febrúar 1989
Neytendasamtökin - Verð á kartöflum
hækkað um 88% í 18% veröbólgu:
Kæra meint
kartöfluokur
„Það er gersamlega óviðunandi að kartöfluframleiðend-
ur skuli óska eftir ákvörðun sex-mannanefndar um kart-
öfluverð og hundsa það síðan. En það hefur komið í Ijós
að heildsalar kaupa kartöflur á hærra verði (a.m.k. 18%
hærra) en skráð verð er til framleiðenda. Miðað við rétt
verð til framleiðenda og sömu álagningu gæti smásöluverð
á kartöflum t.d. lækkað úr 127,50 kr. niður í 108 kr. á kíló,
eða í kringum 20 krónur‘% sagði Jóhannes Gunnarsson
form. Neytendasamtakanna.
Hundsa löglegt verð
Neytendasamtökin hafa óskað
eftir því að landbúnaðarráðherra
láti þegar í stað fara fram rannsókn
á meintu broti sumra kartöflu-
framleiðenda og hcildsala á lögum
um framleiðslu, verðlagningu og
sölu á búvörum.
Aðdragandi málsins er sá, að
kartöflubændur óskuðu á síðasta
ári eftir ákvörðun sex-manna-
nefndar um verð til framleiðenda.
í byrjun október s.l. hafi það verð
verið ákveðið 42,37 kr. á kíló.
Neytendasamtökunum er hins veg-
ar kunnugt um að heiidsalar hafi
keypt kartöflur frá framleiðendum
fyrir 50 kr. kílóið. Sé því Ijóst að
sumir kartöfluframleiðendur hafi
notað verð sex-mannanefndar ein-
göngu sem grundvöll til að sentja
um hærra verð við heildsala.
tímabil, frá janúar 1985 til janúar
1989, hafi verð á kartöflum hækkað
um 339% á sama tíma og verð á
t. d. hveitibrauði og fiskhakki hafi
u. þ.b. tvöfaldast.
Allt að 174% álagning?
Auk þess að mótmæla harðlega
háu verði og miklum verðhækkun-
um hvetja Neytendasamtökin
landbúnaðarráðherra til að rann-
saka hvort heildsölu og dreifingar-
kostnaður þessarar nauðsynjavöru
sé óeðlilega hár. Má t.d. benda á
að miöað viö framangreint verð
kosta kartötlurnar frá kr. 88 til kr.
116 án söluskatts.
Álagning heildsala og smásala er
því frá 108% til 174% ef miðað er
við rétt verö til bænda (42.37
kr./kg.) en 76% til 132% álagn-
ingu, jafnvel þótt miðað væri við
50 króna „ólöglegt okurverð".
Um 88% hækkun
á einu ári
Neytendasamtökin bcnda á að
verð á kartöflum sé nú mjög hátt
og hafi hækkað óeðlilega inikið á
síðustu árum. Kílóverð á kartöfl-
um frá Þykkvabæjar og Ágæti sé
nú 110 til 145 kr. í smásölu. Þarna
sé um að ræða yfir 88% hækkun að
ræða á s.l. tólf mánuöum, á sama
tíma og framfærsluvísitalan hafi
hækkað í kringum 18%.
Sé hins vegar litið á fjögra ára
Mótmæla frekari
einokunarhugmyndum
í þriðja lagi mótmæla samtökin
ýmsum þeim hugmyndum sem
fram hafa komið í drögum að
reglugerð um dreifingu á kartöflum
- enda sé þar gert ráð l'yrir óeðli-
lega miklu valdi framleiðenda
varðandi heildsöludreifingu. Ljóst
sé að þær einokunarhugmyndir
mundu einungis leiða til enn hærra
verðs á þessari vöru. - HEI
Þessar kartöflur eru nú seldar á alit aö 145 krónur kflóið, sem er mun hærra verð en á algengustu suðrænum
ávöxtum. Verð án söluskatts er því 116 krónur, hvar af bóndinn á að fá 42,37 kr. Samkvæmt því deila heildsaii
og smásali með sér yfir 147 krónum fyrir að pakka ■ og selja okkur svona 2ja kílóa kartöflupoka, sem þýðir
174% álagningu. Tæpast nema von að Neytendasamtökin spyrji hvort ekki sé um óeðlilega háa áiagningu að
ræða. Tímamynd Péíur.
Nefnd um málefni Tilraunastöövarinnar á Keldum:
Sum tækin væru
söfnum til sóma
Nefnd sem skipuð var til að endur-
skoða málefni Tilraunastöðvar Há-
skólans í meinafræðum að Keldum
hefur nú lokið störfum og skilað
niðurstöðum sínum og tillögum til
menntamálaráðherra.
Nefndin gerði úttekt á stöðu og
þróunarmögleikum Tilraunastöðv-
arinnar meðal annars með hliðsjón
af mikilvægi hennar við uppbyggingu
rannsókna á undirstöðusviðum líf-
tækni hér á landi.
Leggur nefndin til að könnuð
verði þörf fyrir eflingu og endurnýj-
un tækjakosts Tilraunastöðvarinnar
en á því virðist ekki vera vanþörf ef
dæma má af greinargerð matsmanna
sem fengnir voru til að meta stöð-
una. Þar segirmeðal annars: „Undr-
un sætir að í eigu Tilraunastöðvar-
innar eru tæki sem tækniminjasöfn-
um þætti sæmd af að eiga, þar á
meðal er 30 ára gömul rafeindasmá-
sjá.“
Helstu tillögur að lagabreytingum
voru þær að sett verði samræmd lög
sem taka til allrar starfsemi Keldna
í stað þeirra mörgu lagagreina sem
nú eru í gildi. Að hlutverk Tilrauna-
stöðvarinnar verði að annast rann-
sóknarstörf auk þróunar og þjón-
ustustarfa á sviði meinafræði, dýra-
læknisfræði og dýralíffræði svo og
framleiðslu bóluefna og lyfja eftir
því ssem þörf krefur í þágu dýra-
lækninga á landinu. Einnig að Til-
raunastöðin verði háskólastofnun
með sjálfstæðan fjárhag með réttind-
um og skyldum sem því fylgja auk
fleiri atriða.
Aðrar tillögur nefndarinnar eru
meðal annars á þá leið að sérfræðing-
um og aðstoðarmönnum við stofn-
unina verði fjölgað. Að greitt verði
úr fjárhagslegum vanda stofnunar-
innar og fleira. jkb
Starfsmenn Reykjavíkurborgar lenda greinilega í ýmsum hrakningum við
að hreinsa götur borgarinnar. Bflstjórí þessa vörubfls var að losa snjó við
Skúlagötuna á miðvikudag. Þá vildi svo óheppilega til að bakkinn lét
undan og eins og sést á myndinni var bíllinn gjörsamlega fastur í snjónum.
Tímamynd: Arni Bjarna
Nýskipuð stjórn
Vinnueftirlits
Félagsmálaráðherra hefur skipað
Vinnueftirliti ríkisins nýja stjórn til
fjögurra ára.
Formaður nefndarinnar er Guð-
rún Agnarsdóttir alþingismaður.
Aðrir stjórnarmenn eru tilnefndir af
Alþýðusambandi (slands, Vinnu-
veitendasambandi íslands, Vinnu-
málasambandi samvinnufélaganna.
Bandalagi starfsmanna ríkis og bæja
og Sambandi íslenskra samvinnufé-
laga. Þeir eru Karl Steinar Guðna-
son, Hilmar Jónasson, Kristín
Hjálmarsdóttir, Óskar Maríusson,
Ólafur Birgisson, Hjörtur Eiríksson,
Ólafur Jóhannesson og Hersir
Oddsson. jkb
/