Tíminn - 10.02.1989, Blaðsíða 12

Tíminn - 10.02.1989, Blaðsíða 12
12 Tíminn Föstudagur 10. febrúar 1989 FRÉTTAYFIRLIT SANTA MARIA - Björg unarsveitir leituöu líka úr flaki • bandarísku farþegaþotunnar sem fórst meö 144 manns innanborðs á eyjunni Santa Maria í Azoreyjaklasanum í fyrradag. Björgunarmenn fundu svokallaðan svartan kassa sem hefur að geyma segulbandsupptöku á sam skiptum flu_ er mjög illa farið. Flakið WASHINGTON - George Bush forseti Bandaríkjanna sem nú er í hálfgerðum vand- ræðum með John Tower sem hann útnefndi sem varnar- málaráðherra, en öldunga- deildin er í vafa um að stað- festa það val, býr sig nú undir að leggja fram sitt fyrsta fjár- lagafrumvarp fyrir þingið. Heimildir herma að samkvæmt frumvarpinu séu skorin niður framlög til varnarmála en þess í stað sé veitt meiru til mennta- mála og ýmissa innanlands- verkefna. — WASHINGTON — Dómar- inn í máli Olivers Norths, fyrr- um ráðgjafa í Hvíta húsinu, hafnaði kröfu ríkisstjórnar Ge- orge Bush um að réttarhöldin verði stöðvuð þar sem þau skaði þjóðaröryggi Bandaríkj- anna. Ríkisstjórnin fór fram á að réttarhöldin yrðu stöðvuð á meðan lögfræoingar Banda- ríkjastjórnar leiti úrskurðar áfrýjunarréttar um að fá hert eftirlit með þeim upplýsingum sem North geti Ijóstrað upp fyrir dómstólnum. Oliver North er fyrir rétti vegna vopnasölumálsins svokallaða, en hann sá um leynilega sölu vopna til írans og notaði 14 milljón dollara gróða til að styrkja Kontraliða í Níkaragva. North hefurallatíð haldið því fram að yfirmenn hans hafi vitað um söluna og verið henni samþykkir, en þeir neita. — TOKYO - Lögreglan hand- tók tvo leiðtoga róttækra vinstrimanna sem fóru huldu höfði, en lögreglan er nú að reyna að koma sem flestum öfgamönnum úr umferð áður en útför Hirohitos keisara fer fram 24. febrúar. öryggisráð- stafanir Japana við útförina verða gíurlegar enda verður þar samankominn fjöldinn állur af leiðtogum hinna ýmsu ríkja. ÚTLÖND Sprengjutilræði í Tékkóslóvakíu Sprengja sprakk á ráðhúsinu í Usti nad Labem í Tékkósl- óvakíu á miðvikudaginn. Ekki er ljóst hvort manntjón eða meiðsl hafí hlotist af, en öruggt er að um sprengjutilræöi gegn kommúnistaflokknum var að ræða. Það var dagblað komm únistaflokksins, Rude Pravo sem skýrði frá þessu í gær. Mikil ólga hefur verið að undan- förnu í Tékkóslóvakíu og hefur lögreglu verið óspart beitt gegn mót- mælagöngum stjórnarandstæðinga, en tékknesk stjórnvöld hafa ekkert gefið eftir í lýðræðisátt þrátt fyrir umbótastefnu Gorbatsjovs í Sovét- ríkjunum og frjálsræðisþróun í ýms- um öðrum austantjaldslöndum. Dagblaðið skýrði frá því að sprengjutilræðið hefði komið í kjöl- far margra ónafngreindra hótana um að sprengjum yrði komið fyrir í almenningsbyggingum í Bæheimi. Dagblaðið var ekki með getgátur um það hverjir stæðu að tilræðinu. Hins vegar sagði: -Við skulum ekki gleyma þeirri staðreynd að það eru öfl í Tékkó- slóvakíu sem munu aldrei sætta sig við hið sósíalíska þjóðfélag sem við búum við. Rude Pravo hélt því fram að þessi öfl hygðust greinilega beita hryðju- verkum til að reyna að koma á öngþveiti og trufla daglegt líf fólks. Kommúnistaflokkurinn í Tékkó- slóvakíu er ekki á því að lina tökin á almenningi. Nú hafa einhverjir stjórnarandstæðingar tekið upp rót- tækar aðgerðir, en í gær sprakk sprengja í tékkneskú ráðhúsi. Indónesíuher í átökum á Suður-Súmötru: Hópur róttækra múslíma felldur Að minnsta kosti tuttugu og sjö róttækir múslímar féllu í átökum við hermenn Indónesíustjórnar á Suður- Súmötru í kjölfar þess að liðsforingi í stjórnarhernum var myrtur af skæruliðum. Talsmaður hersins skýrði frá þessu í gær. Talsmaðurinn sagði hersveit hefði verið send á þessar slóðir til að freista þess að ná líki liðsforingjans sem hafði verið tekinn í gíslingu af hópi er kallar sig Komando Muja- hidin Fisabilillah. Bardaginn á miðvikudag er sá harðasti sem orðið hefur á Indónesíu frá því í september 1984 þegar þrjátíu manns voru drepnir í átökum á hafnarsvæði Jakarta í kjölfar rósta öfgafullra múslíma. í Indónesíu er fjölmennasta ríki múslíma í veröld- inni. Talsmaður hersins sagði að liðs- foringinn sem myrtur var hefði hald- ið ásamt hersveit sinni, sveitarstjórn- aryfirvöldum á þessum slóðum til höfuðstöðva öfgasamtakanna í þorpinu Talangsari til að kanna starfsemi samtakanna. Slegið hefðij brýnu og eftir snarpan bardaga hafi hinir róttæku múslímar tekið liðsfor- ingjann höndum. Herinn var sendur aftur á staðinn degi seinna, en öfgamennirnir hefðu varist með eitruðum örvum, sverð- um og molatovkokkteilum. Pví hafi verið nauðsynlegt að leggja til atlögu af fullum þunga. Talsmaðurinn sagði að öfga- mennirnir hefðu að undanförnu gert árásir á einangraðar lögreglustöðvar og varðstaði hersins, drepið lög- reglumann og sveitarstjóra. Barnsfæðing í Júmbóþotu Júmbóþota franska flugfélags- ins Air France sem var á leið frá Frakklandi til Guadeloupe í Karabíska hafinu þurfti að snúa við til Frakklands í gær eftir að þunguð kona tók sótt og fæddi þriggja kílóa stúlkubarn í þot- unni. Skurðlæknir sem var um borð í þotunni tók á móti stúlkubarn- inu með hjálp flugáhafnarinnar. Talsmaður Air France vísaði á bug fréttum um að flugfélagið hygðist veita „Júmbóínu" litlu fríar flugferðir það sem eftir er. Bæði móðir og barn eru við góða heilsu á sjúkrahúsi í Tou- louse, en móðirin er ættuð frá Guadeloupe. Indland: Fjörutíu manns brenna inni í kvikmyndaveri Fjörutíu manns fórust þegar eldur kom upp í kvikmyndaveri í Mysore í Indlandi, en allar útgönguleiðir voru læstar til að halda æstum aðdá- endum leikara frá upptökusalnum. Fjórtán aðrir slösuðust og eru tíu þeirra í lífshættu vegna þriðja stigs brunasára. Upptökur stóðu yfir á mjög vin- sælum sjónvarpsþáttum. Eldurinn gaus upp stuttu eftir að flugeldum hafði verið skotið á loft þar sem verið var að mynda brúðkaup í sviðsmynd sem byggð var úr kókos- hnetutrjám og heyi til að skapa rétta þorpsstemmningu. Þurr leikmyndin fuðraði upp á svipstundu eftir að eldurinn komst í hana. Það tók slökkvilið rúma tvo tíma að ráða niðurlögum eldsins sem breiddist út um ailt sjónvarpsverið á skömmum tíma, en það var sett saman úr sex stórum upptökusölum. Bruninn í kvikmyndaverinu var ekki eini bruninn á Indlandi í gær. Eldur kom upp í flugstöðinni á millilandaflugvellinum í Bombay og fylltist hún af miklum reyk. Því var flugvellinum lokað í rúmar tvær klukkustundir á meðan slökkvilið réði niðurlögum eldsins. Bandaríkjamenn slaka á í við- skiptastríðinu Ríkisstjórn George Bush mun að líkindum leggja frarn nýjar hugmyndir til að ná málamiðlun í viðskiptastríði Bandaríkjamanna og Evrópubandalagsins sem mjög hafa eitrað samskipti þessara við- skiptablokka. Um þetta mátti lesa á síðum New York Times í gær. Evrópubandalagið bannaði frá áramótum innflutning á kjöti af dýrum sem gefin hafa verið vaxtar- hormón, en stærsti hluti þess kjöts sem framleiddur er í Bandaríkjun- um er vaxtahormónakjöt. Svar Bandaríkjastjórnar var að setja háa tolla á vissar vörur frá löndum Evrópubandalagsins. Það mun hafa verið hinn nýi utanríkisráðherra Bandaríkjanna James Baker sem ákvað að gefa eftir og leita samkomulags við Evrópuríkin, þar sem hann taldi það mjög alvarlegt ef fyrstu skref George Bush í embætti forseta gagnvart Evrópuríkjum væru stigin í skugga þessa verðstríðs. New York Times segir að mála- miðlunartillögur Bandaríkjanna séu þær að þriðjungur þeirra kjöt- afurða sem seldar verði til Evrópu- bandalagsins sé hágæðakjöt sem ekki hafi verið meðhöndlað með vaxtarhormónum.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.