Tíminn - 10.02.1989, Blaðsíða 7
Föstudagur 10. febrúar 1989
Tíminn 7
í sumar, fímmta til sjöunda ágúst verður haldið upp á
hundrað ára afmæli Íslendingadagshátíðarinnar í bænum
Gimli í Manitoba.
Fjölmargir íslendingar námu
land í Manitoba í Kanada á seinni
hluta 19. aldar. Þeir hafa haldið
íslendingadag á því sem næst
hverju ári í heila öld og næstkom-
andi sumar verður óvenju mikið
um dýrðir.
Vigdís Finnbogadóttir forseti ís-
lands fer í heimsókn, Guðný
Guðmundsdóttir fiðluleikari og
konsertmeistari Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands verður á hátíðinni
ásamt eiginmanni sínum Gunnari
Kvaran sellóleikara auk karlakórs-
ins Fóstbræðra. Þá mun Jónas
Kristjánsson koma með sýnishorn
íslenskra handrita og undirbún-
ingsnefnd hátíðarinnar hefur látið
flytja nokkra íslenska hesta til
bæjarins.
íslendingasamfélagið er nokkuð
sterkt í Manitoba. Það kemur með-
al annars til af því að Kanada er
byggt upp af mörgum þjóðarbrot-
um og rík áhersla lögð á uppruna
hvers brots fyrir sig. Þó sagði Jónas
Þór fyrrverandi íslenskukennari
við háskólann í Manitoba og rit-
stjóri Lögbergs- Heimskringlu í
samtali við Tímann, að bein áhrif
frá fslandi færu þverrandi. „Vest-
ur-fslendingarnir sem þarna búa
líta í auknum mæli á sig sem
Kanadamenn og Ameríkana. Þeir
rekja uppruna sinn til fólks sem
fluttist vestur um haf og eiga sífellt
færra sameiginlegt með íslending-
um sem búa hér á landi.“
Síðar á þessu ári kemur út bók í
Kanada eftir Jónas um fslendinga-
daginn og þróun hans undanfarin
hundrað ár. Jónas sagði enskuna
vera nær allsráðandi hjá þessu
fólki. Til að mynda kemur Lög-
berg-Heimskringla út á ensku.
Margir hefðu þó gaman af að grípa
til íslenskunnar af og til og nokkur
áhugi væri fyrir að læra hana.
Jónas sagði ýmislegt spaugilegt
koma fyrir þegar gripið væri til
þess að slá um sig með íslensku, ef
til vill meira af vilja en getu.
„Einn nemanda minna var mað-
ur sem lært hafði íslensku af móður
sinni og ömmu en var að mestu
búinn að týna henni niður. Hann
hafði mikinn áhuga á að rifja upp
kunnáttuna og hafði gaman af að
slá um sig með setningum á ís-
lensku þó að við töluðum alltaf
saman á ensku. Eitt kvöldið að
lokinni kennslustund vorum við að
spjalla saman og þegar við skildum
Hefð hefur skapast fyrir skrúðgöngu um götur Gimli á fslendingadaginn. Hér má sjá hvar fjallkonan og fylgimeyjar
hennar eru dregnar ásamt sjálfu fjallinu. Tímamynd ge
kvaddi hann mig með orðunum
„vertu blessaður ástin mín“. Ég
hafði ekki brjóst í mér til að
leiðrétta hann þarna en reyndi
mikið til þess í næstu kennslustund-
um. Hann skildi mig þó aldrei
þannig að allan veturinn kvaddi
hann mig með þessum orðum.“
jkb
Vestur-íslendingar í Kanada:
íslendingadagurinn 100 ára
Staðarhaldari Viðeyjar í opinbert mál á hendur blaðamanni Tímans fyrir ærumeiðingar:
Hegningarvistar krafist
vegna ummæla um sr. Þóri
Dómtekin var nú í vikunni ákæra á hendur Halli
Magnússyni, blaðamanni á.Tímanum. Ákæran er gefín út
af vararíkissaksóknara Braga Steinarssyni vegna ærumeið-
andi ummæla um sr. Þóri Stephensen, skipaðan dóm-
kirkjuprest og settan staðarhaldara í Viðey. Ummælin lét
Hallur falla í reiði sinni yfír því að kirkjugarðurinn í Viðey
hafði verið sléttaður í starfstíð sr. Þóris, en ummælin
birtust í „vettvangsgrein“ í Tímanum 14.júlí 1988.
krafist að blaðamaðurinn verði
dæmdur til refsingar. í öðru lagi að
ummælin verði dæmd dauð og
ómerk. í þriðja lagi er hann krafinn
greiðslu miskabóta og í fjórða lagi
er hann krafinn greiðslu alls sakar-
kostnaðar. Þyngsta refsing sam-
kvæmt 108. grein hegningarlaga er
fangelsisvist allt að þremur árum.
Lögmaður sr. Þóris, Guðmund-
Ákæran er byggð á því að um-
mælin þykja varða við 108. grein
almennra hegningarlaga frá 1940
um ærumeiðandi ummæli um opin-
beran starfsmann. Er kæran var
dómtekin, lét lögmaður ákærða,
Ragnar Aðalsteinsson, bóka vænt-
anlega frávísunarkröfu vegna þess
að sr. Þórir falli ekki undir skil-
greiningu laga um opinberan
starfsmann þegar vettvangsgrein
Halls birtist í Tímanum. Einnig lét
hann bóka að ákæran væri svo
óskýr og illa skilgreind að ekki væri
hægt að halda uppi vitrænum vörn-
um í málinu.
Formaður Blaðamannafélags
íslands, Lúðvík Geirsson, sagði í
viðtali við Tímann í gær að hann
hafi óskað eftir öllum gögnum um
málið og bjóst hann við því að það
yrði tekið fyrir í stjórn Blaða-
mannafélagsins í næstu viku. Taldi
hann ekki ólíklegt að stjórnin léti
eitthvað frá sér fara um málið
innan tíðar, því ljóst væri að siða-
reglur blaðamanna setja engar
beinar hömlur á tjáningarfrelsi
blaðamanna sem skrifa undir fullu
nafni afmarkaða þætti í fjölmiðla.
Krafa ríkissaksóknara er í fjór-
um liðum. í fyrsta lagi er þess
Vettvangsgrein Halls Magnússonar í Tímanum 14.júlí í fyrra
ur Pétursson, fór hins vegar fram á
rannsókn og höfðun opinbers máls
með það að markmiði að koma yfir
Hall þyngstu refsingu sem lög
heimila. Auk þess fór hann fram á
að blaðamaðurinn greiddi máls-
kostnað og kostnað af birtingu
dóms og forsendu dóms í dagblöð-
um og útvarpi. Einnig fór hann
fram á að ummæli Halls yrðu
dæmd dauð og ómerk. Gerði hann
einnig kröfu um að ritstjórn Tím-
ans verði gerð ábyrg fyrir að breiða
út meiðandi ummæli um sr. Þóri
Stephensen.
Nokkru eftir birtingu vettvangs-
greinar Halls Magnússonar í júlí
sl., barst honum hins vegar bréf frá
lögmanni sr. Þóris, þarsem honum
er gefjnn frestur til 6. ágúst til að
afturkalla ummæli sín og biðjast
afsökunar á opinberum vettvangi
og bera af því allan kostnað sjálfur.
Gangi hann ekki að þessu sátta-
boði, muni lögmaðurinn leggja
fram kæru til saksóknara fyrir hönd
sr. Þóris. Þessu bréfi svaraði lög-
maður blaðamannsins með þeim
orðum að ekki sé hægt að fallast á
slíka afarkosti og því séu ekki
forsendur fyrir sáttum.
Meðal þess sem rakið er í ákæru
saksóknara ríkisins á hendur Halli,
eru þau ummæli að sr. Þórir hafi
skipað sjálfan sig í stöðu staðar-
haldara í Viðey, athæfi hans sé
ekki kristilegt hvað varðar meðferð
kirkjugarðsins og pólitískar
skoðanir hans og ráðríki ætíð kom-
ið á undan kristilegum náungakær-
leik. Auk þessa hafi sr. Þórir sýnt
í stólræðum sínum, þar sem hann
blandar pólitík inn í orð Guðs, og
með spjöllum í Viðey að hann sé
—
Sr. Þórir Stephensen, staðarhald-
ari í Viðey og skipaður dómkirkju-
prestur.
alls ekki hæfur til að gegna embætt-
um dómkirkjuprests eða staðar-
haldara í eynni. Þess vegna ætti
hann að vfkja. Einnig er Hallur
m.a. ákærður fyrir að geta sér þess
til að eitt af næstu stórvirkjum sr.
Þóris verði að láta mála kirkjuna í
Viðey heiðbláa. KB