Tíminn - 10.02.1989, Blaðsíða 15

Tíminn - 10.02.1989, Blaðsíða 15
Föstudagur 10. febrúar 1989 Tíminn 15 BÓKMENNTIR „Hel fer með hlíðum ii III Sigurður A. Magnússon: Hvarfbaugar, Úrval Ijóða 1952-1982, Mál og menning, 1988. Sigurður A. Magnússon kemur víða við í þessu nýja ljóðaúrvali sínu, og á einum stað er hér ljóð sem hann nefnir Sumarnótt: Mjólkurhvít nótt kerlingarvella í lægðum Jarmur úr fjallshlíð hrafnar voka yfir bænum Hundgá í fjarska spói vellir í mónum Áin við túnfótinn kliðmjúk líður að ósnum Grængresið döggvott falla mun fyrir Ijánum Hel fer með hlíðum heitir mér stundargriðum Þetta er hlýleg og býsna persónu- leg mynd úr íslenskri sumarnáttúru og eiginlega talsvert ólík því sem menn máski eiga von á frá þeim hávaðasama Sigurði A. Magnússyni sem margir þekkja hvað best úr fjölmiðlum. En þetta á hann til líka. Og svo er skemmst frá að segja að þessi bók dregur upp talsvert fágaðri og yfirvegaðri mynd af höfundi sín- um en þá sem hann kannski skapaði sér helst með blaðaskrifum sínum hér fyrr á árum. Sigurður kom heim frá óvenju fjölbreyttu námi erlendis árið 1956 og réðst þá strax til starfa sem blaðamaður við Morgunblaðið. Þar starfaði hann rúman áratug, m.a. sem bókmenntagagnrýnandi, leik- dómari og ritstjóri Lesbókar. Seinna var hann ritstjóri Samvinnunnar og eftir það skólastjóri Bréfaskólans. Síðan hefur hann svo í rúman áratug starfað sjálfstætt sem rithöfundur og m.a. sent frá sér stóra skáldsögu sem byggð er á ævi hans sjálfs og fræg hefur orðið. Blaðamennska Sigurðar var óneit- anlega litrík, kannski hörð og óvæg- in og trúlega ekki öllum að skapi. En eigi að síður hefur alla tíð verið óhugsandi að neita því að maðurinn er bullandi pennafær og fljúgandi mælskur á prenti. Líka hefur það engum dulist, sem fylgst hefur með ritferli Sigurðar, að hann hefur markvisst agað stíl sinn, þannig að með árunum hefur hann orðið stöð- ugt meitlaðri og markvissari en fyrr var. Er þetta ekki síst ljóst ef litið er til skáldsögu hans sem nefnd var og borið saman við fyrri ritverk Hans. Menn hafa líka lengi vitað að Siguröur fékkst við ljóðagerð, þó að mikið megi vera ef hún hefur ekki fallið töluvert mikið í skuggann af blaðamennsku hans og lausamálsrit- un. Hann gaf út fyrstu ljóðabók sína, Krotað í sand, árið 1958, og í kjölfarið fylgdi svo Hafið og klettur- inn 1961. Eftir langt hlé kom svo bókin Þetta er þitt líf 1974 og loks í ljósi næsta dags 1978. Það sem Sigurður hefur núna gert Sigurður A. Magnússon rithöfundur. er að hann hefur tekið allar þessar fjórar bækur sínar, valið úr þeim meginþorra ljóðanna, en jafnframt endurskoðað þau og breytt þeim talsvert á köflum. Þá hefur hann einnig raðað ljóðunum upp á nýtt svo að gömlu bækurnar halda sér hér ekki. Þvert á móti verður að segja að hér sé komin fram ný bók úr áður þekktu efni. Og í skemmstu máli er svo l'rá að segja að í heild hefur þessi endufskoðun orðið til mikilla bóta. Þessi bók ber með sér þá stílögun sem ég gat um og einnig nýtur hún þess að núna er litið á yrkisefnin úr meiri fjarlægð og af ólíkt meiri rósemi en oft hefur verið áður. í þessari nýju bók heldur Sigurður þeirri flokkun, sem hann tók upp í bókinni Þetta er þitt líf, og skiptir meginþorra Ijóðanna í tvo hópa. Nefnir hann þá upp á grískan máta Míkrókosmos og Makrókosmos. Vísar hið fyrra til einkaheims skálds- ins og þess er næst honum stendur, en hið síðara til umheimsins, verald- arinnar í heild. Bókin hefst annars á forleik sem hefur að geyma vænan hluta Ijóð- anna úr Krotað í sand. Síðan kemur Míkrókosmos, og fer þar fyrst ljóða- flokkurinn Dauði Baldurs, en síðan koma tveir kaflar sem nefnast Ástar- saga og Hjúskapur. Þá kemur Ijóða- flokkurinn Hafið og kletturinn, og loks kafli sem nefndur er Innlönd og í eru allmörg ljóð um óskyld efni. Þá kemur Makrókosmos, og fara þar fyrst allmörg ljóð undir hinu latn- eska samheiti Personae og fjalla, eins og nafnið bendir til, um einstak- ar persónur, fornar og nýjar. Þar næst kemur kaflinn Útlönd, með erlendum ljóðmyndum, og síðan Fjargveður, þar sem helst er að tala um safn ádeiluljóða. Bókinni lýkur svo á öðrum kafla með latnesku heiti, Ars poetica, og er þar ort um vanda og vegsemd skáldskaparins. Hér kennir þannig margra grasa og fleiri en svo að nokkur marktæk grein verði gerð fyrir þeim öllum í dagblaðsritdómi. En sameiginlegt einkenni á allri ljóðagerð Sigurðar hér er þó greinileg tilhneiging hans til að opna sig og yrkja á ljóðrænan hátt um sínareigin innri tilfinningar. Með öðru orðalagi mætti kannski orða þetta þannig að honum sé sem ljóðskáldi vel ljós sú hætta sem fylgir því að lifa og vera maður. Það er með enn öðrum orðum lífsháski hinnar daglegu tilveru sem víðast hvar reynist honum einna nærtækast yrkisefni. Þetta kemur meðal annars fram í nokkrum af tiltölulega hörðum ádeiluljóðum hans á spillingu sam- tímans sem þarna eru. En þetta kemur þó kannski hvað best fram í nokkuð opinskáum ljóðum sem þarna eru undir samheitunum Ástar- saga og Hjúskapur. Þar dregur hann upp býsna skýrar myndir af því hvernig fyrsti ástarbríminn getur dofnað hjá fólki þegar kemur að tilbreytingarleysi hversdagsins, sem ætti vissulega að geta átt nokkuð víða skírskotun til fólks í samtíman- um. Og þessi sami tilvistarvandi er enn viðfangsefnið í ljóðaflokknum Hafið og kletturinn, býsna marg- slungnu verki sem sækir efni víða að úr fornum sögum. í formála ræðir Sigurður reyndar vinnubrögð sín hér og segir að þess séu ófá dæmi að Ijóðasmiðir hafi varið ævinni til að setja saman eina og sömu bók, grisja hana og auka að umfangi, breyta og betrumbæta eftir því sem árin færðust yfir þá. Á þessa bók segir hann líka að líta ntegi sem litla grein á þeim meiði. Hún sé heildarsafn þess sem hann telji sig kinnroðalaust geta kannast við í þessari tilteknu bókmenntagrein. Þessi endurskoðunarvinna verður að telja að honum hafi í heild tekist býsna vel. Það er töluvert meiri akkur að því að eiga Ijóð hans í þessari einu bók heldur en í hinum fjórum áður. -esig Olympiska fræðsluráðið Suður á Pelopsskaga Grikklands, í héraðinu Elís, eru rústir bygginga og leikvanga hinna fornu Olympiu- leika. Er þessi staður undir lágri hæð, sem nefnist Kronos og við ármót ánna Alpheios og Kladeos, sem huldi mannvirkin leir og sandi eftir mikla jarðskjálfta um miðja 6. öld. Með samstöðu nokkurra þjóða voru rústirnar hreinsaðar og þar á meðal „Stadion", hinn sögufrægi íþróttavöllur, sem lá undir 7 m jarðlagi. Um rústirnar er heillandi að reika og heimsækja síðan söfnin tvö til að fræðast um mannvirki og sögnum umvafið mannlíf. Annað stendur skammt frá rústunum og geymir smáa og stóra muni, sem fundust við uppgröft. Meðal þeirra er styttan af Hermes, sem hverjum verður ógleymanleg sem fær augum litið. Hitt er í útjaðri þorpsins Olym- piu og varðar meir hina endurvöktu leika. Upp frá Stadion í dalverpi upp með Kronoshæðinni er fagurlega ræktaður garður. Inn á milli sýprus- og píl- og grátvíða eru grasi vaxnir leikvellir eða lagðir bundnum slitlög- um. Þar leynist sundlaug. Lág, löng, skeifulaga leirbrún hús hafa verið reist þarna í þessum Edenlundi. Hér er til húsa fræðslu- stofnun Alþjóða-Olympiunefndar- innar (I.O.A.). Hingað hefur for- stöðunefnd stofnunarinnar í 28 ár boðið Olympiunefndum þjóðanna að senda fulltrúa sína til dvalar í eina eða tvær vikur, til þess að fræðast um störf að Olympiuleikum og hug- sjónir þeim tengdum. Þá njóta full- trúarnir fræðslu um forna og endur- vakta Olympiuleika, - og eigi gleym- ist kynning á fornminjum. í sambandi við fornminjar er rétt að geta þess, að farið er með þátttak- endur allt til Delfí norður í Þessalón- iku, til þess að njóta skoðunarferðar um einn hinn unaðslegasta stað ver- aldar. í ár er fulltrúum Olympiunefnda boðið að sækja 29. fræðslustefnu I.O.A. í Olympiu, 29. júní-12. júlí. Hámarksfjöldi fulltrúa frá einni þjóð er 5. Olympiusamhjálpin, „Olympic Solidarity", greiðir helmings far- gjald fyrir einn karlmann og eina konu (ekki fyrir tvo af sama kyni) og Olympiunefnd fslands hinn helming- inn. Dvalarkostnaður er 400,- doll- arar á mann. 1.0.A. sér fulltrúum fyrir gistingu í Aþenu, bæði við komu til landsins og við brottför, og enn fremur flutningi til og frá Olym- piu. Þátttakendur skulu vera virkir í íþróttastarfi og íþróttaiðkendur og ekki eldri en 35 ára. Þeir þurfa að vera vel að sér í ensku eða frönsku, þar sem fyrirlestrar og umræður fara fram á þeim tungumálum. Fræðsluráð Olympiunefndar ís- lands efnir til fræðslufundar í Odda (Háskóla íslands) í stofu 101, 25. febrúar n.k., og hvetur alla, sem hugsa sér að sækja um dvöl í Olym- piu að koma á fundinn. Þar verða til umfjöllunar, að ósk I.O.A. helstu málefni, sem tekin verða fyrir á fræðslustefnunni í Olympiu, svo sem Olympiustarfsemin, Olympiuleik- arnir, neysla örvunarlyfja o.fl. Er því hér um að ræða góðan undirbún- ing fyrir væntanlega Grikklandsfara. Hvcr sá, sem dvelur á vegum I.O.A. í Olympiu, nýtur kynningar og fræðslu, sem verður honum ógleym- anleg og eykur skilning hans á al- þjóðastörfum að Olympiuleikum. Fræðsluráð Olympiunefndar Islands Námskeið Landssamband framsóknarkvenna hyggst standa íyrir eftirfarandi námskeiðahaldi á næstunni. Námskeiðin munu hefjast í byrjun febrúar og standa fram að páskum. Eru þau öllum opin og verði stillt í hóf að venju. Staðsetning námskeiðanna fer eftir þátttöku á hverjum stað. 1. Félagsmálanámskeið. Grunnnámskeið fyrir byrjendur í fundarsköpum, ræðumennsku og eflingu sjálfstrausts. Kennarar verða: Unnur Stefánsdóttir, Ragnheiður Sveinbjömsdóttir, Inga Þyrí Kjartansdóttir, Ásdís Óskarsdóttir. 2. Framhaldsnámskeið. Raddbeiting og framsögn. Kennari: Baldvin Halldórsson, leikari. Undirstaða í ræðutækni fyrir sjónvarp, hljóðvarp og ræðustól. Kennari: Kristján Hall 3. Námskeið fyrir framkomu í fjölmiðlum. Framkoma í hljóðvarpi og sjónvarpi. Undirstöðuatriði í greinarskrifum og blaðaútgáfu. Kennari: Amþrúður Karlsdóttir, Qölmiðlafræðingur. Þátttaka tilkynnist til Ingu Þyrí Kjartansdóttur í síma: 91-24480 sem fyrst L.F.K. Áfram Forum Landssamband framsóknarkvenna og kvenfélagasamband íslands halda sameiginlegan fund um störf kvenna í dreifbýli að Hallveigar- stöðum 16. febr. n.k. kl. 20. Fundur þessi er einn í fundaröð með efni frá Nordisk Forum s.l. sumar. Dagskrá: 1. Myndband frá Nordisk Forum. 2. Bjarney Bjarnadóttir rifjar upp efni frá LFK á Forum. 3. Ulla Magnusson flytur erindi sem nefnist: Konur hver er markaður- inn fyrir okkur? 4. LitskyggnurfráKÍ umkonurogsmáfyrirtækisemsýntvaráForum. Kaffiveitingar. Allir velkomnur og konur sem fóru til Noregs með LFK sérstaklega hvattar til að mæta með gesti. Stjórn LFK Kópavogur Skrifstofan í Hamraborg 5 er opin þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-13. Sími 41590. Heitt á könnunni. Opið hús alla miðvikudaga kl.17-19. Félagsmenn eru hvattir til að líta inn og taka með sér gesti. Eflum flokksstarfið. Framsóknarfélögin í Kópavogi. Grenivík og nágrenni Almennur stjórnmálafundur verður haldinn á Grenivík sunnudaginn 12. febrúar kl. 16.00. Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra og Valgerður Sverrisdóttir alþingismaður mæta á fundinn. Framsóknarfélag Grýtubakkahrepps Nýtt símanúmer Iðnaðarráðu- neytisins verður frá og með mánudegi 13. febrúar 609420 Iðnaðarráðuneytið

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.