Tíminn - 10.02.1989, Blaðsíða 16

Tíminn - 10.02.1989, Blaðsíða 16
f , "1 \ Ingibjörg Gísli Gfslason Steinunn Pálmadóttir Sigurðardóttir Anarés Magnús H. Ólafsson Ólafsson Akranes - Fjárhagsáætlun Almennur fundur um fjárhagsáætlun bæjarins fyrir áriö 1989 veröur haldinn í Framsóknarhúsinu við Sunnubraut mánudaginn 13. febr. kl. 20.30. Gísli Gíslason bæjarstjóri gerir grein fyrir áætluninni. Bæjarfulltrúarnir svara fyrirspurnum. Allir velkomnir. Fulltrúaráðið Ulf Árnesingar Guðjón B. Ólafsson Framsóknarfélag Árnessýslu boðar til félagsfundar um málefni samvinnuhreyfingarinnar miövikudaginn 15. febrúar kl. 21 aö Eyrar- vegi 15, Selfossi. Frummælandi veröur Guöjón B. Ólafsson, forstjóri SlS. Félagsmenn og aðrir áhugamenn um málefni samvinnuhreyfingarinn- ar eru hvattir til aö mæta. Stjórnin. Steingrímur Hermannsson forsætisráöherra og formaður Fram- sóknarflokksins verður í umræðunni á hádegisverðarfundi Félags ungra framsóknarmanna Gauki á Stöng mánudaginn 13. febrúar. Steingrímur mun ræða um Fjármagnsmarkaðinn og Hvaðtekurvið af verðstöðvun. Hann mun síöan svara fyrirspurnum fundargesta. Allir velkomnir á fundinn sem hefst kl. 12.00. Súpa, fiskréttur og kaffi á aðeins krónur 535,- FUF í Reykjavík. Keflavík Fundur verður haldinn í Framsóknarfélögunum í Keflavík mánudag- inn 13. febrúar kl. 20.45 aö Austurgötu 26. Fundarefni: 1. Stjórnmálaviðhorfið. Jóhann Einvarðsson fjallar um stjórnmálaviðhorfið. 2. Húsnæðismál Framsóknarfélaganna. 3. Önnur mál. Kaffiveitingar. Mætið stundvíslega. Framsóknarfélögin. Félag framsóknarkvenna í Reykjavík Almennur félagsfundur verður haldinn laugardaginn 11. febrúar kl. 14 að Nóatúni 21. Athugið breyttan fundartíma. Stjórnin. Illlllllllllllllllllllllllll DAGBÓK Níels Hafstein. Níels Hafstein og ívar Valgarðsson sýna í Nýlistasafninu Laugardaginn 4. febrúar kl. 16:00 opn- ar Níels Hafstein sýningu í Nýlistasafninu á „verkum sem fjalla um listbrögð sem verður að beita til að öðlast heiður, auðsæld, ást og orðstír,“ eins og segir í fréttatilkynningu. Á síðasta ári átti Níels Hafstein verk á tveim veigamiklum sýningum; hin fyrri var haldin í Ruine der Kiinsste í Berlín á alþjóðlegri listahátíð undir nafninu: Berlín, listahöfuðborg Evrópuráðsins. Hin sýningin var á Listasafni íslands: Nýlistasafnið 10 ára (sýnishorn eldri verka safnsins). Sýningunni lýkur 19. febrúar. Laugardaginn 4. febrúar kl. 16:00 opn- ar ívar Valgarðsson sjöundu einkasýn- ingu sína í Nýlistasafninu. (var átti á síðasta ári verk á eftirtöldum sýningum: Listasafn Islands „Aldarspegill", íslensk myndlist í eigu safnsins 1900-1987, Seoul, Suður-Kóreu: The Arts Olympics, sýning í tengslum við Olympíuleikana, Listasafn (slands: Fimm ungir listamenn. Sýning- unni lýkur 19. febrúar. Guðbjörg Lind sýnir í Nýhöfn Guðbjörg Lind Jónsdóttir opnar mál- verkasýningu í Listasalnum Nýhöfn, Hafnarstræti 18, laugard. II. febrúar kl. 14:00-16:00. Á sýningunni verða olíumálverk og vatnslitamyndir unnar á síðastliðnu ári. Guðbjörg Lind er fædd á ísafirði árið 1961. Hún stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Islands frá árinu 1979 til 1985. Þetta er önnur einkasýning Guðbjarg- ar, en fyrstu einkasýningu sína hélt hún í heimabæsínum Isafirði. Húnhefureinnig tekið þátt í nokkrum samsýningum. Sýningin er sölusýning. Hún er opin virka daga kl. 10:00-18:00 og um helgar kl. 14:00-18:00. Sýningunni lýkur 22. febrúar. Listasafn íslands I Listasafni (slands standa nú yfir sýningar á íslenskum verkum í eigu safnsins. í sal 1 eru kynnt verk Jóhannesar Kjarvals, Jóns Stefánssonar og Gunn- laugs Schevings. Landslagsmálverk Þór- arins B. Þorlákssonar og Ásgríms Jóns- sonar eru sýnd í sal 2. Á efri hæð safnsins eru sýnd ný aðföng, málverk og skúlptúrar eftir íslenska lista- menn. Leiðsögn um sýningar í húsinu t fylgd sérfræðings fer fram á sunnudögum kl. 15:00 og eru auglýstar leiðsagnir ókeypis. Leiðsögnin „Mynd mánaðarins“ fer fram á fimmtudögum kl. 13:30. Mynd janúarmánaðar er „Hjartaö" eftir Jón Gunnar Árnason. Listasafn íslands er opið alla daga, nema mánudaga, kl. 11:00-17:00 og er aðgangur ókeypis. Veitingastofa hússins er opin á sama tíma. Sýning Gríms í Bókasafni Kópavogs: „STEINN OG STÁL“ Nú stendur yfir í Listastofu Bókasafns Kópavogs sýning á verkum Gríms M. Steindórssonar. Á sýningunni eru 20 verk, sem unnin eru á síðustu 2 árum og hafa ekki áður komið fyrir almennings- sjónir. Þau eru úr stáli og steini, bæði vegg- og standmyndir. Grímur M. Steindórsson hefur fengist við myndlist frá unga aldri, sótt námskeið í Myndlistaskóla Reykjavíkur og m.a. notið handleiðslu Ásmundar Sveinsson- ar, Kjartans Guðjónssonar og Þorvaldar Skúlasonar. Hann hefur tekið þátt í mörgum sýningum, síðast með Mynd- höggvarafélagi Reykjavíkur að Kjarvals- stöðum 1987. Grímur hefur fengið viðurkenningar fyrir verk sín og unnið í samkeppnum um listaverk. Hann fæddist 25. maí 1933 í Vestmannaeyjum, en hefur búið í Kópa- vogi sl. 30 ár. Verkin eru til sölu. Sýningin stendur til 28. febrúar. Erla B. Axelsdóttir sýnir í F.Í.M.'Salnum Laugardaginn 4. febrúar opnar Erla B. Axelsdóttir myndlistarsýningu í F.I.M.- salnum, Garðastræti 6 í Reykjavík. Erla stundaði nám við Myndlistarskól- ann í Reykjavík 1975 til 1982 og við listadeild Skidmore-háskóla, Saratoga Springs. Þetta er sjötta einkasýning Erlu, en síðast sýndi hún á Kjarvalsstöðum 1986. Hún átti jafnframt myndir á sýningunni „Reykjavík í myndlist“ það sama ár. 1 F.f.M. salnum sýnir Erla málverk og pastelmyndir sem unnar eru á s.l. þrem árum. Sýning Erlu stendur frá 4. febrúar til 21. febrúar og verður opin virka daga kl. 13:00-18:00 ogum helgarkl. 14:00-18:00. Síminn er 25060. Sýning Kristjáns Guðmunds- sonar að Kjarvalsstöðum Laugard. 28. janúar var opnuð að Kjarvalsstöðum sýning á verkum eftir Kristján Guðmundsson, sem ber yfir- skriftina „Teikningar 1972-1988“. Kristján var á sínum tíma einn helsti fulltrúi SÚM-hópsins og einna fyrstur til að tileinka sér myndmál og aðferðir konseptlistarinnar í byrjun 8. áratugarins. Sýning Kristjáns að Kjarvalsstöðum er opin daglega frá kl. 11:00 til 18:00 og stendur til 12. febrúar. Aukasýningar á Koss kóngulóarkonunnar Vegna mikillar aðsóknar hefur Alþýðu- leikhúsið tvær aukasýningar á leikriti Manuels Puig, Kossi kóngulóarkonunn- ar. Sýningarnar verða á föstudag kl. 20:30 og sunnudaginn kl. 17:00 í Hlaðvarpan- um, Vesturgötu 3. Sr. Gunnar messar í Háskólakapellunni Sunnudaginn 12. febrúar, sem er fyrsti sunnudagur í föstu, verður guðsþjónusta og altarisganga í Háskólakapellunni kl. 14:00. Organleikari er Jakob Hallgríms- son. Eftir messuna munu kirkjugestir safnast saman til kaffidrykkju. Pennavinur í Hollandi Frá Hollandi hefur borist bréf þar sem óskað er eftir pennavini á íslandi. Utaná- skrift til Hollendingsins er: Simon Bartels, Moldau 26, NL-1186 KX Amstelveen The Netherlands KVENNAATHVARF Húsaskjól er opið allan sólarhringinn og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið fyrir nauðgun. Síminn er 21205 - opinn allan sólar- hringinn. Félagsvist Húnvetningafélagsins Húnvetningafélagið í Reykjavík heldur félagsvist laugardaginn 11. febrúar kl. 14:00 í Húnabúð, Skeifunni 17. Hjartans þakkir til ykkar allra, vina minna og vandamanna, sem glöddu mig á afmælisdaginn minn 2. febrúar, meö heimsóknum, gjöfum og skeytum og gerðu mér daginn ógleymanlegan. Guð blessi ykkur öll. Elín Helga Helgadóttir, Bogahlíð 14, Reykjavík. r' r '»;) - • . I f.i I Föstudagur 10. febrúar 1989 lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll Hlíf Sigurjónsdóttir, fiðluleikari. Jónas Tómasson tónskáld. Hróðmar I. Sigurbjörnsson tónskáld. „Mvrkir músíkdagar" í Reykjavik: 2. tónleikar: Ný fiðlutónlist Á öðrum tónleikum „Myrkra músík- daga“ flytur Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleik- ari ásamt Erni Magnússyni píanóleikara nýja fiðlutónlist eftir þau Jónas Tómas- son, Caroline Ansink, Carl Nielsen, Hróðmar I. Sigurbjörnsson og Louis Andriessen. Þessir tónleikar verða sunnudaginn 12. febrúar kl. 20:30 í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar. meö utibú allt i kringurri landiö, gera þér mögulegt aö leigja bíl á einum st:að og skila honum á öörum. Reykjavík 91-31615/31815 Akureyri 96-21715/23515 Pöntum bíla erlendis interRent Bilaleiga Akureyrar

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.