Tíminn - 10.02.1989, Page 6
6 Tíminn
Föstudagur 10. febrúar 1989
KENNARA-
HÁSKÓU
ÍSIANDS
STAKKAHLÍÐ - 105 REYKJAVÍK
FRÁ KENNARAHÁSKÓLA ÍSLANDS
B.A.-nám í sérkennslufræðum
Kennaraháskóli íslands býöur upp á eftirfarandi
nám í sérkennslufræðum sem hefst aö hausti
1989:
B.A.-nám í sérkennslufræðum, fyrri hluti. Þetta
er hlutanám með starfi og tekur tvö ár.
B.A.-nám í sérkennslufræðum, síðari hluti.
Þetta er fullt nám og tekur eitt ár.
Umsóknarfrestur er tii 1. mars 1989.
Frekari upplýsingar og umsóknareyöublöö fást í
Kennaraháskóla íslands.
Rektor
fn
^|r Lóðaúthlutun
Til úthlutunar eru 83 lóðir fyrir einbýlishús og lóðir
fyrir 30 parhús norðan Lokinhamra í Grafarvogi.
Gert er ráð fyrir að lóðirnar verði byggingarhæfar
í júlí 1989.
Nánari upplýsingar verða veittar á skrifstofu borg-
arverkfræðings, Skúlatúni 2, 3. hæð, sími 18000.
Þar fást einnig afhent umsóknareyðublöð og
skipulagsskilmálar.
Tekið verður við lóðarumsóknum frá og með
mánudeginum 13. febrúar 1989 á skrifstofu borg-
arverkfræðings. Athygli er vakin á því, að endur-
nýja þarf eldri lóðarumsóknir.
Borgarstjórinn í Reykjavík.
Lögtök
Eftir kröfu gjaldheimtustjórans í Reykjavík og að
undangengnum úrskurði verða lögtök látin fram
fara án frekari fyrirvara á kostnað gjaldenda, en
ábyrgð Gjaldheimtunnar, að átta dögum liðnum frá
birtingu auglýsingar þessarar, fyrir eftirtöldum
gjöldum:
Vanskilafé, álagi og sektum, skv. 29. gr. laga nr.
45/1987 um staðgreiðslu opinberra gjalda, sbr. 14.
gr. laga nr. 90/1987 fyrir 1.-12. greiðslutímabil
1988 með eindögum 15. hvers mánaðar frá
febrúar 1988 til janúar 1989.
Reykjavík, 7. febrúar 1989
Borgarfógetaembættið í Reykjavík
Skip til sölu
Til sölu er r/s Dröfn RE 135. Skipið er 75 brl.
eikarbátur smíðaður árið 1961 á ísafirði, með 500
hestafla vél af gerðinni Caterpillar. Skipið selst án
veiðiheimilda og er til sýnis í Reykjavíkurhöfn.
Nánari upplýsingar eru veittar í Sjávarútvegsráðu-
neytinu, Skúlagötu 4, sími 91-609670.
Tilboðum óskast skilað til ráðuneytisins fyrir 7.
mars 1989.
Sjávarútvegsráðuneytið, 7. febrúar 1989
Utanríkismálanefnd Alþingis mun fylgjast náið með þróun
markaðsmála og framvindu vísindaáætlunar Alþjóða hvalveiðiráðsins:
ENGIN STEFNU-
BREYTING í
VÍSINDAÁÆTLUN
Utanríkismálanefnd Al-
þingis kallaði á sinn fund í
vikunni utanríkisráðherra og
sjávarútvegsráðherra, auk
nokkurra sérfræðinga, til að
kynna sér stöðu mála varð-
andi nýlega tapaða viðskipta-
samninga við fyrirtæki í V-
Þýskalandi og stöðu vísinda-
rannsókna á hvalastofnum.
Að sögn Jóhanns Einvarðssonar,
formanns utanríkisnefndar, hefur
ekki verið kannað hvort samhengi sé
á milli riftunar sölusamninga Sölu-
miðstöðvar lagmetis við verslunar-
keðjuna Aldi og þeirrar staðreyndar
að sendingum hefur verið skilað
vegna galla. „Málið hlýtur þó alltaf
að snúast um þá staðreynd að með
riftun samninganna hefur atvinnuör-
yggi og framleiðslufyrirtækjum hér
heima verið teflt í hættu,“ sagði
Jóhann. Sagði hann að þrátt fyrir
áföll væri engin stefnubreyting vænt-
anleg næstu mánuði á framkvæmd
vísindaáætlunar og þar með hval-
veiðiþáttarins.
Jóhann Einvarðsson sagði að ekki
hafi verið ætlunin að taka neina
ákvörðun á þessum fundi, en það sé
vilji nefndarmanna að fylgjast náið
með þróun þessara mála næstu mán-
Jóhann Einvarðsson, alþingismaður
og formaður utanríkismálanefndar
Alþingis.
uði. Þá hafi komið fram greinileg
skilaboð frá nefndarmönnum til við-
komandi ráðuneyta að nauðsynlegt
sé að efla upplýsingastarfsemi um
vísindaáætlunina og þá ekki síst hér
á landi, þar sem ekki virtist vera
ríkjandi almennur skilningur á því
að hvalveiðum í atvinnuskyni hefur
verið hætt fyrir nokkrum árum.
Einnig væri greinlegt af umfjöllun
flestra fjölmiðla að ekki væri leitast
við að kanna nægilega í hverju
vandræði söluaðila eins og Sölu-
stofnunar lagmetis felast þegar rift-
unarmálin hafa borið á góma.
Utanríkismálanefnd mun á næstu
mánuðum fylgjast mjög náið með
þróun mála á þessum vettvangj. Að
sögn Jóhanns eru sérfræðingar sjáv-
arútvegsráðuneytis og fulltrúar
hvalarannsóknardeildar Hafrann-
sóknarstonunar í óða önn að undir-
búa vorfund vísindanefndar Alþjóð-
lega hvalveiðiráðsins. Þar verða bor-
•in saman þau gögn sem aðildarþjóð-
unum hefur tekist að afla um hvala-
stofnana. Búast má við að m.a. verði
lagðar fram bráðabirgðatölur f
hvalatalningum, en þær eru fcrsenda
þess að hægt sé að áætla stofnastærð
hvalategundanna.
„Þessar nýjustu uppákomur hafa
ekki bara þrýst á viðbrögð gagnvart
útlendingum, heldur gagnvart þeim
vanda sem hlýtur að skapast í fyrir-
tækjum hér heima og hjá sveitarfé-
lögum. Það sem ég held að hafi
skinið mjög skýrt í gegn á fundinum
í gær (þriðjudag) var þörfin á auk-
inni kynningu á þessu máli sem heild
og þá ekki hvað síst hér innanlands,"
sagði Jóhann Einvarðsson. KB
Hæstiréttur þyngir dóm í fjársvikamáli:
18 mán. fangelsi
Hæstiréttur hefur dæmt Val Magnússon fyrrum fasteignasala í 18
mánaða fangelsi fyrir fjársvik. Dómur undirréttar hljóðaði upp á 15
mánaða fangelsi. Valur hafði með sviksamlegum hætti haft 7.5
milljónir króna á núvirði af fólki sem hann átti viðskipti við gegnum
fasteignasöluna Skálafell sem hann rak á sínum tíma.
Valur hafði fé af viðskiptavinum
sínum með því að kaupa fasteignir
og selja þær jafnharðan aftur, án
þess að standa við greiðsluskyldur
sínar við fyrri seljendur. A rúmlega
þriggja mánaða tímabili, frá mars til
júní 1982, festi hann kaup á fimm
fasteignum í Reykjavík, seldi þær
jafnóðum og hagnýtti sér verulegan
hluta söluandvirðisins til persónu-
legra nota og til greiðslu á eldri
fjárskuldbindingum. Að lokum átti
Valur ekki fyrir skuldum sínum og
var úrskurðaður gjaldþrota í apríl-
mánuði 1983. Valur bar því við að
hann hafi ætlað að bjarga eigin
fjárhag með þessum sviksamlegu
Nú stendur yfir bókamarkaður
Bókvörðunnar í Bókaverslun Snæ-
bjarnar. Þar verða allar bækur seldar
á annað hvort fimmtíu eða hundrað
krónur.
Á markaðinum verða til sölu á
milli sex og sjö þúsund bókatitlar,
allt frá ævisögum til orðabóka, hand-
viðskiptum.
í dómi Hæstaréttar segir að sak-
borningi hafi ekki getað dulist, að
með því að verja fé því sem hann
fékk fyrir endursölu fasteignanna til
annars en greiðslu kaupverðs þeirra
stefndi hann hagsmunum viðsemj-
enda sinna í verulega hættu, enda
hafi komið á daginn að hann var
ófær um að standa skil á skuldbind-
ingum sínum. í dóminum segir jafn-
framt að brot ákærða sé stórfellt,
hann hafi haft atvinnu af fasteigna-
viðskiptum og þá kunnáttu sína hafi
hann notfært sér við brotin. Á þess-
ari forsendu var dómurinn þyngdur
um þrjá mánuði.
bækur, tímarit og margt fleira. Þær
innbundnu kosta hundrað hinar
fimmtíu.
Seldar verða bækur allt frá síðustu
öld til okkar daga. Á hverjum degi
verður bætt bókum og blöðum á
markaðinn en hann mun standa yfir
í tíu til tólf daga. jkb
Engar bótakröfur voru gerðar í
þessu máli, hins vegar voru gerðar
kröfur í þrotabú Vals er hann varð
gjaldþrota en aðeins hluti krafnanna
fékkst greiddur.
Til frádráttar fangelsisvistinni
kemur sá tími er Valur sat í gæslu-
varðhaldi 1983, eða tvær vikur.
Hann var dæmdur til að greiða allan
sakarkostnað, málsvarnarlaun og
áfrýjunarkostnað, þar eru meðtalin
75 þúsund króna saksóknaralaun og
sama upphæð fyrir málsvarnarlaun
verjandans.
Dóminn kváðu upp hæstaréttar-
dómararnir Guðmundur Jónsson,
Haraldur Henrysson, Hrafn Braga-
son, Þór Vilhjálmsson og Arnljótur
Björnsson sem var settur hæstarétt-
ardómari. SSH
Leiðrétting
Leiðrétting á skýringu á mynd
frá setningu Alþingishátíðar 1930.
Það sem átti að standa undir
myndinni er þetta:
„Tryggvi Þórhallsson flytur setn-
ingarræðu á Alþingishátíð 1930 í
Almannagjá.“
Til gamans skal þetta rifjað upp:
1. Setning hátíðarinnar. Tryggvi
Þórhallsson.
2. Kristján konungur 10. setti
síðan þingið og talaði íslensku.
3. Þar næst flutti Ásgeir Ásgeirs-
son, forseti Sameinaðs þings, há-
tíðarræðu.
Að kvöldi þriðja dags sleit
forsætisráðherra (Tr.Þ.) hátíðinni.
Staðlað bókaverð
á bókamarkaði