Tíminn - 28.02.1989, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 28. febrúar 1989
Tíminn 7
Þróunarstöð Sambandsfyrirtækja í sjávarafurðavinnslu við Kirkjusand.
Timamynd Pjetur
Sigurður Markússon, framkvæmdastjóri,
líkir markmiði nýrrar Þróunarstöðvar við menntun:
ÞRÓUN AFURDA
ÞARFSTÖÐUGT
AD FULLKOMNA
Hafín er starfsemi í sérhannaðri þróunarstöð fyrir sjávaraf-
urðir við Kirkjusand í Reykjavík. Ætlunin er að þróa þær
sjávarafurðir sem þegar er verið að framleiða á vegum
vinnsluhúsa Sambandsins og taka við öllu þróunarstarfí sem
verið hefur á því sviði til þessa meðal sjávarafurðafyrir tækja
Sambandsins.
Fram að þessu hefur allt annað
verklegt þróunarstarf farið fram í
sjálfum fiskvinnslustöðvunum.
Starfsemin felur í sér að verið er að
þróa nýjar afurðir og vinna afurðir
meira en áður. Um 30 milljónum
króna hefur verið varið í stofnkostn-
að og er gert ráð fyrir um 25-30
milljón króna árlegum rekstrar- og
fjármagnskostnaði.
Þróunarstöðin er sameigninlegt
átak fjögurra aðila. Þeir eru Sjávar-
afurðadeild Sambandsins, fram-
leiðendur (bæði frystitogarar og
vinnslustöðvar í landi) og tvö sölu-
fyrirtæki SÍS erlendis, í Bandaríkj-
unum og í Bretlandi. „Við reiknum
með því að rekstur stöðvarinnar,
húsnæðiskostnaður, laun, orka,
afskriftir, fjármagnskostnaður og
fleira, verði á bilinu 25-30 milljónir
króna á ári miðað við verðlag eins
og það er í dag,“ sagði Sigurður
Markússon, framkvæmdarstjóri
Sjávarafurðadeildarinnar.
Fram að þessu hefur mikið þróun-
arstarf verið unnið á Höfn í Horna-
firði, Húsavík og við Eyjafjörð og
víðar. Að sögn Sigurðar hefur því
verið iðkað þróunarstarf í nokkuð
mörg ár og hafa þrír starfsmenn
verið á fullum launum við það á
vettvangi vinnslustöðvanna. „Auk
þess er það nú þannig að ýmsir aðrir
í framleiðslunni hafa lagt hönd á
plóginn í þessu verki, auk okkar
framleiðenda."
„I raun er ekki hægt að tala um
fullunna vöru, því ég vil tala um
vinnslu sjávarafurða eins og talað er
um menntun. Ég vil ekki nota orðið
fullvinnsla, ekki frekar en ég vilji
nota orðið fullmenntun. Hvenær er
afurð fullunnin? Því vil ég frekar
tala um framhaldsvinnslu og við
vinnum afurðir meira en var áður,“
sagði Sigurður.
Ætlunin er að vinna verkefni í
þróunarstöðinni þannig að hvert
verk verður tilbúið að fara rakleiðis
í framleiðslu. Þannig er ætlunin að
ekki komi upp nema sem allra
minnst af ágöllum eftir að ákveðið
hefur verið að hefja tiltekna fram-
leiðslu. „Það getur alltaf komið upp
alls konar vandi við framleiðsluna.
Við ætlum okkur að ráða bót á þeim
vanda áður en afurðin fer út í húsin.“
Einnig er ætlunin að lokið verði
við að prófa nýjar vélar sem notaðar
verða. Þannig opnast sú leið að
öðlast fullvissu um ágæti eða galla
nýrra véla áður en farið er að setja
þær upp í fyrirtækjunum. Þannig á
ekki að koma upp sú staða að
fyrirtæki sitji uppi með óvænt vanda-
mál vegna nýrra véla meðan sér-
fræðingar eru ekki til staðar.
„í fyrsta lagi þýðir þetta það að
við þurfum minna að trufla húsin við
þessi þróunarstörf. Forsvarsmenn
þeirra hafa að vísu verið mjög viljug-
ir að hjálpa til við þróunarstarf,
enda um leið að hjálpa sjálfum sér.
Svona þróunarstarf truflar vinnsluna
ef það er stundað í vinnslustöðvun-
um sjálfum.
Hitt er það að væntanlega verður
framleiðsluferillinn og allt sem að
framleiðslunni lýtur, tilbúið til fram-
leiðslu. Þessi stöð er það stór að
hægt verður að hafa sömu vélar og
verða notaðar í sjálfri vinnslunni og
þróunarstarfið fer fram við sömu
skilyrði og vinnslan býr við,“ sagði
Siguröur.
Stöðin er í 350 fermetra húsnæði.
Þar verður vinnslustöð, sem búin
verður pökkunnarsamstæðu, frysti-
tækjum, tilraunaeldhúsi, verkstæði
og ýmsu öðru sem fylgir vélrænni
framleiðslu. Fastir starfsmenn þró-
unarstöðvarinnar eru þeir Marteinn
Halldórsson og Páll Gunnar Pálsson.
KB
Náttúru-
verndarráð
auglýsir stöður landvarða í þjóðgörðunum í
Jökulsárgljúfrum og Skaftafelli og í Friðlandi að
Fjallabaki, sumarið 1989, lausar til umsóknar.
Umsækjendur skulu vera 20 ára eða eldri og hafa
góða málakunnáttu. Þeir er hafa tekið námskeið í
náttúruvernd - landvarðanámskeið, sitja fyrir um
vinnu.
Skriflegar umsóknir skulu berast Náttúruvernda-
ráði, Hverfisgötu 26, 101 Reykjavík fyrir 10. mars
1989.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Hitaveitu Reykjavíkur, óskar
eftir tilboðum í 46 km af stálpípum. Stærð.20-4500.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, fimmtudaginn 30. mars 1989, kl.
11.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu mér
vinsemd og hlýju á 95 ára afmæli mínu 24. febrúar
s.l.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún Gunnarsdóttir
Hallgeirsey.
t
Sambýlismaður minn, sonur, faðir, fósturfaðir, tengdafaðir og afi
Þórður Sigurðsson
Hörgatúni 9, Garðabæ
lést á heimili sínu 26. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Elma Jónatansdóttir
Rúnarlngi Þórðarson
Sigríður Amalía Þórðardóttir
Kjartan Magnússon
Unnur Erna Óskarsdóttir
Ester Inga Óskarsdóttir
tengdabörn og barnabörn.
Guðrún Guðjónsdóttir
Arnar Þór Þórðarson
Árni Elvar Þórðarson
Katrín Linda Óskarsdóttir
Elma Ósk Óskarsdóttir
Lágmarksverð
ákveðið á grá-
sleppuhrognum
Lágmarksviðmiðunarverð fyrir
hverja tunnu af söltuðum grásleppu-
hrognum verður hið sama og á
síðasta ári, eða 1.100 þýsk mörk, en
það er verðið sem fulltrúar grá-
sleppuveiðimanna lögðu til að sam-
þykkt yrði.
Þetta var ákveðið á fundi þann 7.
febrúar sl. með fulltrúum grásleppu-
veiðimanna annars vegar og hins
vegar umboðsmönnum erlendra
kaupenda, milligöngumanna um
sölu hrogna og kaupenda grásleppu-
hrogna hér á landi.
Á fundinum kom fram tillaga um
að gefa verðið frjálst á komandi
vertíð, en eftir talsverðar umræður
var ekki sæst á þá tillögu.
Ætla niá að hægt verði að selja 13
til 14 þúsund tunnur á þessu ári, en
það er um 30-40% aukning frá því í
fyrra.
Þeir sem ætla sér að stunda grá-
sleppuveiðar á komandi vertíð verða
að hafa sótt um leyfi til sjávarútvegs-
ráðuneytisins, til grásleppuveiða fyr-
ir 1. mars nk. - ABÓ
AUGLÝSING
UMINNLAUSNARVERÐ
VERÐTRYGGÐRA
SPARISKlRTEINA RlKISSJÓÐS
FLOKKUR INNLAUSNARTÍMABIL INNLAUSNARVERÐ* ÁKR. 100,00
1982-1. fl. 01.03.89-01.03.90 kr. 925,77
1983-1. fl. 01.03.89-01.03.90 kr. 537,87
1984-2. fl. 10.03.89-10.09.89 kr. 360,54
‘Innlausnarverð er höfuðstóll, vextir, vaxtavextir og verðbót.
Innlausn spariskírteina ríkissjóðs ferfram í afgreiðslu
Seðlabanka íslands, Kalkofnsvegi 1, og liggja þar jafnframt frammi
nánari upplýsingar um skírteinin.
Reykjavík, febrúar 1989
SEÐLABANKIÍSLANDS