Tíminn - 28.02.1989, Qupperneq 12

Tíminn - 28.02.1989, Qupperneq 12
12 Tíminn Þriðjudagur 28. febrúar 1989 FRETTAYFIRLIT NIKOSÍA -íranarfóru framj á það við Sovétmenn að þeir gerðu sitt til að koma á friði við! Persaflóann með því að þrýsta á íraka um að draga herlið sitt á íranskri jörð til baka inn fyrir landamæri iraks. Ríkisútvarp- ið í Teheran skýrði frá því að Ali Khamenei forseti írans hafi skýrt Eduard Shevardnadze utanríkisráðherra Sovétríkj- anna frá því að (rakar yrðu að kalla heim herlið sitt ef von ætti að verða um varanlegan frið á þessum slóðum. KHARTOUM - Sadeq al- Mahdi forsætisráðherra Súd- ans skýrði þingi landsins frá því að hann muni segja af sérj á sunnudaginn ef herinn gefi j honum ekki frjálsar hendur um að mynda nýja ríkisstjórn og hefja friðarumleitanir í suður- hluta Súdans þar sem skæru- liðar berjast blóðugri baráttu gegn stjórnarhernum. Sadeq skýrði frá þessu degi áður en frestur sá er herinn gaf honum til að skýra frá umbótaáætlun- um rann út. BE|RUT - Múslímaf sem, eru tjúllaðir af reiði vegna bók- ar bretans Salman Rushdies „Sönqvar satans“ hafa tilkynnt' út ao ekkert verði af lausn vestrænna gísla í bráð. HONOLULU - Flugsér- fræðingar reyna nú að finna út hvernig hinir níu farþegar soguðust út í geiminn þegar gat kom á búk Boeing 747 farþegaþotu og hvernig gatið myndaðist. VÍN - Tékknesku mannrétt- indasamtökin Charta ’77 skor- uðu á stjórnvöld í Prag að taka S þátt í því að einangra írana í j kjölfar dauðadóms þeirra yfir . Salman Rushdie. BEIRUT - Arabíska tímarit- ið al-Mustakbal hefur það eftir innanríkisráðherra írans, Ali Akbar Mohtashemi, að allir andófsmenn í írönskum fang- elsum hafi verið teknir af lífi. ÚTLÖND Kynþáttaólgan í Júgóslavíu komin á nýtt stig: Hermenn sendir á námumenn í Kosovo Alríkisstjórnin í Júgóslavíu lýstu yfír sérstöku neyðar- ástandi í sjálfstjórnarhéraðinu Kosovo í gær og sendi herlið til sinknámanna við bæinn Mitrovicia þar sem um eittþúsund námuverkamenn af albönsku bergi brotnir hafa verið í setuverkfalli. Alríkisstjórnin lýsti yfír þessu neyðarástandi til að halda uppi lögum og reglu í Kosovo þar sem mikil kynþáttaólga hefur ríkt að undanförnu. Sjónarvottar sögðu að brynvarðar undanfarin ár, en í Kosovo búa 1,7 bifreiðar hefðu haldið út úr herbúð- um í Pristina sem er höfuðborg Kosovohéraðs þar sem Albanir eru í miklum meirihluta. Herdeildirnar hafi haldið í átt til Motrovicia þar sem námuverkamennirnir sitja nú þúsund metrum undir yfirborði jarð- ar í Trepca námunum og neita að hreyfa sig. Ákvörðun þessi var tekin eftir að upp úr slitnaði í samningaviðræðum við verkfallsmennina, en Rahman Morina leiðtogi kommúnistaflokks- ins í Kosovo sagði af sér í gær vegna ásakana námuverkamannanna um að hann drægi taum Serbíu í kyn- þáttadeilunum. Afsögn Morina var ekki nóg fyrir námuverkamannanna svo alríkisstjórnin ákvað að taka í taumana. Námuverkamennirnir eru reiðir vegna þeirra hugmynda sem eru á lofti um að Serbar fái að nýju meiri áhrif og völd í Kosova en verið hefur Frakkland, Spánn og Portúgal: Nærri 30 farast í fárviðri Fárviðri hefur gengið yfir suðurhluta Evrópu undanfarna daga og er talið að minnsta kosti tuttugu og níu manns hafí misst lífið í rokinu. Tólf manns létust á Spáni um helgina vegna óveðursins. í Valensíu fórust fímm manns á laugardaginn, en þar var vindhraðinn um 100 km þegar verst lét, en slíkur vindhraði er mjög óvenjulegur á þessum slóðum. Þar fuku húsþök, tré og ýmislegt laus- legt. Sjö aðrir létust á sunnudag vt'ðs vegar um Spán að sögn lögreglu. Kona varð undir byggingakrana, unglingspiltur fauk ofan af húsþaki og cldri maður út af svölum sínum. Þá druknuðu þrír vegna flóða cr fylgdu óveðrinu. 1 Frakklandi fórust fimm manns víðsvegar við Miðjarðarhafs- ströndina þegar öldur gengu langt á land. Mikið tjón varð á veitinga- stöðum og öðruni mannvirkjum við ströndina. Þá eru tólf manns af nígerísku flutningaskipi sem lenti í erfiðleik um út af strönd Portúgals taldir ef en þyrlur náðu að bjarga tuttugu og átta skipverjum. Magnússon BLAÐAMAÐ milljónir manna af albönsku bergi, en einungis 200 þúsund Serbar. Útifundabann hefur verið í Kos- ovo frá því í nóvember. Kynþáttaólga setur sífellt sterkari svip á Júgóslavíu. Nú hafa hermenn verið sendir til að skakka leikinn í sjálfstjómarhéraðinu Kosovo. Ólga á hernumdu svæöunum vegna sveitarstjórnakosningar: PALESTÍNUMADUR STAKK LÖGREGLU Ungur Palestínumaður stakk tsraelskan lögreglumann á hinum hernumda Vesturbakka í gær. Lög- reglumaðurinn er mikið særður en þó ekki talinn í iífshættu. fsraelskir hermenn höfðu hendur í hár hins 19 ára Ahmed Saleh Abdallah Tamimi sem stakk lögreglumann- inn. Staðhæfa Palestínumenn að hermenn hafi skotið Ahmed í fót- inn og barið hann illa eftir að hann var handtekinn. Talsmaður hersins sagði að Ahmed hafi stungið lögreglumann- inn í bakið og í axlirnar í þorpinu al-Bireh. f kjölfar þessa hafi her- menn skotið í fætur tilræðismanns- ins er hann hafi tekið til fótanna og handtekiö hann síðan særðan. Mikil ólga er nú á hernumdu svæðunum vegna sveitastjórnar- kosninga sem framundan eru t ísrael. í bænum Halhol skutu og , særðu hermenn þrjá Araba sem tóku þátt í mótmælagöngu sem haldin var til að minnast tveggja Palestínumanna er drepnir voru fyrir tveimur árum. Á Gaza svæðinu særðu ísraelskir hermenn að minnsta kosti átta Palestínumenn í Jabatya flótta- mannabúðunum og þrjá í Sha’ti búðunum. f Nablus voru hermenn í við- bragðsstöðu en þar var ísraelskur hermaður myrtur á föstudaginn. Palestfnumaður grýtti steinhellu ofan af þriggja hæða húsi á hóp ísraelskra hermanna með fyrr- greindum afleiðingum. Bandaríkjaforseti í Kína og Suöur-Kóreu: Mótmælendum haldið f rá George Bush Það varð ekki eins mikill Ijómi yfir Asíuferð George Bush forseta Bandaríkjanna og hann hafði vonast eftir, en hann kom við í Kína og Suður-Kóreu eftir að hafa fylgt Hiro- hito Japanskeisara til grafar í Tokyo. Moldviðrið í kringum John Tower setti sitt mark á ferð Bush og harka- leg viðbrögð lögreglu í Kína og í Suður-Kóreu gegn einstaklingum er hugðust nota tækifærið og mótmæla við Bush settu einnig dökkan blett á heimsóknir hans. í Kína fór mjög vel á með Bush og hinum aldna Deng, enda eru þeir gamlir vinir frá því George og Bar- bara dvöldu í Peking á þeim tíma sem ríkin voru að undirbúa að taka uppstjórnmálasamband. Enda sagði George við komuna til Peking að honum liði eins og hann væri kominn heim. Skugga bar á dvöl forsetahjón- anna í Kína þegar lögreglan meinaði stjórnarandstæðingnum og andófs- manninum Fang Lizhi og konu hans aðgang að hóteli því sem George og Barbara bjuggu á, en þau höfðu boðið Fang til kvöldverðar ásamt fjölda annarra gesta. Hins vegar fengu fjórir aðrir andófsmenn að snæða með Bush þetta kvöld. í Suður-Kóreu var lögreglan frek- ar harðhent við mótmælendur í Se- oul er hugðust koma mótmælabréfi til forseta Bandaríkjanna. Fimmtán mótmælendur voru dregnir á brott frá bandaríska sendiráðinu af óein- kennisklæddum lögreglumönnum áður en Bush kom þangað. Bush ræddi við Roh Tae-Woo forseta Suður-Kóreu og fullvissaði hann um eindreginn stuðning Bandaríkjamanna. Eftir fjögurra tíma dvöl í Seoul héldu forsetahjón- in til Bandaríkjanna þar sem George þarf að berjast fyrir að vinur sinn John hljóti útnefningu öldungadeild- ar þingsins á morgun. Kólumbía: Eiturlyfjabarón fallinn I valinn Voldugur eiturlyfjabarón var meðal átján manna er féllu í bar- daga við vinstri sinnaða skæruliða í vesturhluta Kólumbíu í gær. Var hann fáum harmdauði, sérlega ekki lögreglu sem varð að sjá á eftir honum úr varðhaldi vegna skort á sönnunum fyrir fimmtán mánuðum eftir að hafa gert upp- tækan stóran kókaínfarm nærri búgarði hans. Gilberto Molina sem gaf sig út fyrir að vera gimsteinasali en lög- regian telur að hafi fyrst og fremst verslað með eiturlyf féll í valinn ásamt sautján manna lífverði þegar um það bil fimmtíu vopnaðir menn, líklega skæruiiðar, gerðu árás á búgarð hans 75 km vestur af Bogóta, höfuðborg Kólumbíu. Þó má vera að kcppinautar Mo- linas um gimsteinanámur eða úr eiturlyfjaheiminum hafi staðið fyr- ir árásinni, en Molinas átti hlut í bestu smaragðanámu heims.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.