Tíminn - 28.02.1989, Síða 15
Þriðjudagur 28. febrúar 1989
SAMVINNUMAL
Nýja Sambandshúsið við Sætún.
Tímamynd: Ámi Bjarna.)
Nýja Sambandshúsii
ai veria tilbúii
Framkvæmdum hefur miðað vel
áfram við nýja Sambandshúsið á
Kirkjusandi í Reykjavík. Eins og
menn muna seldi Sambandið ríkinu
húseignir sínar við Sölvhólsgötu og
Lindargötu í október 1987 undir
stjórnarráðsskrifstofur. Ákveðið var
að nota kaupverðið til að endur-
byggja frystihús Kirkjusands hf.
milli Laugarnesvegar og Sætúns fyrir
nýjar höfuðstöðvar Sambandsins, og
keypti Sambandið hluta sameignar-
aðila sinna í frystihúsinu Kirkjusandi
hf. í þeim tilgangi. Þessari endur-
byggingu hefur miðað vel, og núna
er stefnt að því að Sambandið flytji
í húsið eftir rúman mánuð eða í
byrjun apríl.
Húsið er fimm hæðir, um 1300
fermetrar hver. Þær eru nú sem
óðast að verða tilbúnar til notkunar
hver af annarri, og er þegar byrjað
að setja upp milliveggi fyrir skrifstof-
ur á einni [Deirra. Þá hefur húsið allt
verið klætt að utan með álplötum,
sem eru gráar og bláar að lit. Eins
og stendur eru hlífar yfir plötunum
og vinnupallar með öllu húsinu, en
þegar það hvortveggja verður fjar-
lægt mun framtíðarútlit hússins
koma í ljós.
Á einum stað
Úr Sambandshúsinu við Sölvhóls-
götu og gamla Edduhúsinu við Lind-
argötu flytja í nýja húsið aðalskrif-
stofa Sambandsins, Fjárhagsdeild,
Sjávarafurðadeild, Búvörudeild og
Skipadeild. Verslunardeild er hins
vegar með aðsetur í Holtagörðum
og Búnaðardeild í Ármúla 3.
1 skemmu á baklóð hússins við
Laugarnesveg er Þróunarstöð Sjáv-
arafurðadeildar um það bil að taka
til starfa, og í hliðarbyggingu þess
hefur Skipadeild þegar í nokkurn
tíma haft frystigeymslur. Við hliðina
á þessari byggingu er einnig til húsa
Afurðasala og Kjötiðnaðarstöð Bú-
vörudeildar, auk fleiri smærri starfs-
greina. Verður það því talsvert stór
hluti af starfsemi Sambandsins sem
þarna kemur til með að vera á einum
og sama staðnum, auk þess sem
tiltölulega stutt leið er þaðan inn í
Holtagarða og á Holtabakka, þar
sem er aðsetur Verslunardeildar og
athafnasvæði Skipadeildar.
Aðalfundur í nýja húsinu
Á stjórnarfundi í Sambandinu,
sem haldinn var í síðustu viku, var
ákveðið að næsti aðalfundur þess
yrði haldinn í nýja húsinu, en ekki
að Bifröst eins og annars er venja.
Verður fundurinn haldinn þar dag-
ana 5. og 6. júní nú í vor. Gefst
aðalfundarfulltrúum því væntanlega
tækifæri til að skoða nýjar og glæsi-
legar aðalstöðvar við það tækifæri.
-esig
Nýja Sambandshúsið eins og það mun líta út eftir að vinnupallar hafa verið
fjarlægðir.
Hæðirnar fimm eru nú hver af annarri að nálgast það að verða tilbúnar fyrir
skrifstofur Sambandsins. (Tímamynd: Ámi Bjama.)
Ólafur Sverrisson stjórnarformaður
Sambandsins.
Þorsteinn Sveinsson nýkjörinn vara-
formaður.
Eins og kunnugt er lét Valur
Arnþórsson af starfi stjórnarfor-
manns í Sambandinu um síðustu
mánaðamót, er hann gerðist banka-
stjóri í Landsbankanum. Við for-
mennskunni tók þá Ólafur Sverris-
son, fyrrum kaupfélagsstjóri í Borg-
arnesi, sem var áður varaformaður
stjórnar.
Á fyrsta fundi stjórnarinnar eftir
formannaskiptin, sem haldinn var í
síðustu viku, var kosinn nýr varafor-
maður í stað Ólafs. Kosningu hlaut
Þorsteinn Sveinsson kaupfélags-
stjóri á Egilsstöðum. Þorsteinn hefur
setið í stjórninni sem aðalmaður frá
1985, en var áður varamaður uni
árabil. -esig
Tíminn 15
rbvi\i%ðð ■ Mnr
FÉLAGSMÁLASKÓLI
Gissur Pétursson
Egill H. Gíslason
Finnur Ingolfsson
Hrólfur Ölvisson
Arnar Bjarnason
Helgi Pétursson
Samband ungra framsóknarmanna og Kjördæmissambönd
Framsóknarflokksins hafa ákveðið að fara á stað með
Félagsmálaskóla þar sem boðið verður uppá eftirfarandi
námskeið:
A. Grunnnámskeið í félagsmálum:
Efni: Fundarsköp og ræðumennska, tillögugerð, stefnumál
Framsóknarflokksins o.fl.
Tímalengd: 8 klst.
Leiðbeinendur verða: Gissur Pétursson, Egill Heiðar Gísla-
son, Finnur Ingólfsson, Arnar Bjarnason og Hrólfur ölvisson.
Stefnt er að því að halda námskeiðið í febrúar og mars á
eftirtöldum stöðum ef næg þátttaka fæst: Fteykjavík, Keflavík,
Selfoss, Vestmannaeyjar, Höfn, Egilsstöðum, Akureyri, Sauð-
árkróki, (safirði, Ólafsvík og Akranesi.
B. Fjölmiðlanámskeið:
Efni: Framkoma í sjónvarpi og útvarp. Undirstöðuatriði í
frétta- og greinaskrifum. Áhrif fjölmiðla.
Tímalengd: 16 klst.
Leiðbeinandi: Helgi Pétursson, fréttamaður, Stefnt er að því
að halda námskeið í Reykjavík og á Akureyri.
Þeir aðilar sem hafa áhuga á þessum námskeiðum eru hvattir
til að hafa samband við eftirtalda aðila:
Reykjavík: Skrifstofa Framsóknarflokksins, s. 91-24480
Reykjanes: Ágúst B. Karlsson, sími 91-52907
Vesturland: Bjami Guðmundsson, sími 70068
Vestfirðir: Sigurður Viggósson, sími 94-1389
Norðurland vestra: Bogi Sigurbjörnsson, sími 95-71527
Norðurland eystra: Snorri Finnlaugsson, sími 96-61645
Austurland: Ólafur Sigurðsson, sími 97-81760
Suðurland: Guðmundur Búason, sími 98-23837
Samband ungra framsóknarmanna
Kjördæmissambönd Framsóknarflokksins
Fjölnotaglösin
fyrir 1. mars, eigum til lítið eitt af glösum með flokksmerkinu. Pantanir
í síma 24480.
LFK.
Landssamband framsóknarkvenna
Nóatúni 21, - s. 24490.
SUF í Viðey
Miðstjómarfundur Sambands ungra framsóknarmanna verður hald-
inn laugardaginn 18. mars í Viðeyjarstofu.
Dagskrá og sérmál fundarins auglýst síðar.
Framkvæmdastjórn SUF