Tíminn - 04.04.1989, Side 3

Tíminn - 04.04.1989, Side 3
Þriðjudagur 4. apríl 1989 Tíminn 3 Miðstjórnarfundur í Alþýðubandalaginu á miðvikudagskvöld: STADA FORMANNSINS GÆTI ORDID TVÍSÝN „Það er lang líklegast að þeir menn sem Ólafur Ragnar og fylgismenn hans hafa verið að vega innan flokksins undanfarin ár, muni nú bjarga honum lifandi úr þeim háska sem hann er í,“ sagði Úlfar Þormóðsson miðstjórnarmaður í gær þegar Tíminn spurði hann um skyndifund í miðstjóm flokksins, sem boðað hefur verið til á miðvikudagskvöld. Á fundinum á að ræða almennt um stefnu Alþýðubandalagsins í þeirri kjarabaráttu sem nú stendur yfir og stefnu ríkisstjórnarinnar. Erfitt er á þessari stundu að segja hvaða afleiðingar þetta gæti haft fyrir Ólaf sem formann flokksins. Ragnar Stefánsson jarðskjáifta- fræðingur er einn tuttugu miðstjórn- armanna í Alþýðubandalaginu sem krafist hafa fundar í miðstjórn flokksins vegna ástandsins í samn- ingamálunum og ákvörðunar fjár- málaráðherra að draga frá fyrirfram- greiddum launum þeirra ríkis- starfsmanna sem boðað hafa verkfall á fimmtudaginn kemur. BHMR telur að samkvæmt lögum beri fjármálaráðherra að standa þeim skil á fyrirframgreiddum laun- um enda þótt verkfall hefjist á fimmtudaginn kemur, takist ekki samningar fyrir þann tíma. Á launaseðlum þeirra nú um mán- aðamótin er nú „frádráttur vegna verkfalls frá 6. til 30 apríl.“ BHMR menn segja að ákvörðun fjármálaráðherra að greiða þeim ekki laun nema til fimmtudagsins byggi á lögum sem fallin eru úr gildi og sé því ólögmæt. „Mikið lifandis skelfing væri það nú gott ef Dagsbrún fengi fyrirfram- greidd laun í verkföllum, eins og BHMR menn telj a sig hafa lagalegan rétt til. Það létti nú aldeilis á ef fyrstu þrjár vikurnar væru á fullum laun- um, en það sem framyfir færi, yrði dregið af með jöfnum afborgunum yfir allt árið,“ sagði Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrún- ar. Ragnar Stefánsson sagði að ákvörðun fjármálaráðherra stangað- ist á við þá stefnu Alþýðubandalags- ins að styðja baráttu launafólks við að ná upp launaskerðingu undanfar- ins árs, eða frá því að bráðabirgða- lögin voru sett s.l. vor, en sú kjara- skerðing var metin þann 5. mars sl. á launataxta nálægt 15% Verkalýðsmálaráð Alþýðubanda- lagsins hefði sett fram tvær aðalkröf- ur í þessu sambandi; annars vegar að launþegar endurheimti þessi 15% en hins vegar að lægstu laun yrðu 50 Ólafur Ragnar Grímsson. þúsund krónur á mánuði. Því bæri ansi mikið í milli stefnu flokksins og gerða Ólafs Ragnars. Álfheiður Ingadóttir sagði í gær orðið býsna langt síðan miðstjórnar- fundur var haldinn síðast og þess vegna hefði verið óskað eftir fundi nú. Ekki væri þó fyrir að synja að þessa fundar hefði verið óskað að gefnu tilefni. Álfheiður sagði síðan: „Það hefur verið sett á oddinn í flokknum að staðið skuli við gerða samninga, þar á meðal fyrirframgreiðslu launa hjá ríkisstarfsmönnum. Aðgerðir fjár- málaráðuneytisins í síðustu viku eru ekki í samræmi við ályktanir flokks- ins til stuðnings þessu sama fólki sem stóð í svipaðri baráttu fyrir nokkrum árum. Þegar ríkisstjórnin tók við í haust sögðu ýmsir að prófsteinn á líf hennar eða dauða yrði á vordögum þegar samninga- og verkfallsbanni yrði aflétt og launþegar fengju aftur rétt til að semja um kaup sitt og kjör. -sá Albert Guðmundsson Albert til Parísar á sunnudaginn: Litríkastur þingmanna Albert Guðmundsson, alþingis- maður hætti störfum sem slíkur í gær eftir fimmtán ára þingmanns- feril. Við þetta tækifæri sagði Guðrún Helgadóttir, forseti sam- einaðs Alþingis, að þótt Albert hafi ekki setið manna lengst á Alþingi, hafi hann að sínu mati veríð sá litríkasti sem hún hafi kynnst. I viðtali við Tímann neitaði Albert því að hann væri að snúa yfir til Sjálfstæðisflokksins nú á þessum tímamótum, er hann tekur við sendiherrastöðu ■ París. ..Ég er ekki að senda frá mér nein skilaboð til Borgaraflokks- manna um að ganga yfir í Sjálf- stæðisflokkinn. Ég hef heldur ekk- ert skipt mér af Borgaraflokknum síðan hann sneri af þeirri stefnu sem ég stofnaði flokkinn um á sínum tíma,“ sagði Albert. Sagði hann að það legðist vel í sig að komast út til Parísar og sagðist vona að hann yrði landi og þjóð að gagni í þessu nýja starfi. „Þetta er mikið rask að taka sig upp á þennan hátt, en það leggst ágæt- lega í mig.“ Albert mun fara um leið og fyrrverandi sendiherra hef- ur rýmt fyrir honum í bústaðnum og hefur Albert stefnt að því að fara utan á sunnudaginn kemur. Sæti Alberts á Alþingi hefur þegar verið ráðstafað og sest í það varamaður hans, Benedikt Boga- son. Þegar Tíminn hafði samband við hann í gær, var skammt um liðið síðan hann hafði verið látinn vita að hann ætti að taka sæti á Alþingi. Sagðist hann vona að fyrir þinglok í vor yrðu komnar fram skýrari línur í því hvað gert verður í efnahagsmálum þjóðarinnar, enda væri það grundvöllur að öllu starfi Alþingis. „Ég á auðvitað til mál sem ég vil vinna að og lúta t.d. að samgöngum á íslandi, en ekki síst hér í höfuðborginni. Þar hvílir mikið á ríkissjóði að greiða sinn hluta í aðalbrautargerð," sagði Benedikt. ÁG/KB Bragi Steinarsson, ríkissaksóknari, um niöurstööu héraösdóms í möskvamáli Danska Péturs: Alveg óskiljanleg niðurstaða í Eyjum Ákæruvaldið getur ekki unað þessari niðurstöðu héraðsdóms og hefur því lýst yfir áfrýjun til Hæsta- réttar. Niðurstaða Sakadóms Vest- mannaeyja er óskiljanleg. Mæling- arnar sýna að þarna voru veiðarfærin langt undir áskilinni möskvastærð," sagði Bragi Steinarsson, ríkissak- sóknari og opinber ákærandi á hend- ur skipstjóranum á Danska Pétri. Skipstjórinn, Jóel Þór Andersen, hefur nú verið sýknaður af öllum ákæruatriðum án þess að dómurinn véfengi mælingar eða aðgerðir Land- helgisgæslunnar. Ekki hefur verið sýknað áður í slíkum málum án þess að mælingar eða mælingartæki hafi verið véfengd. Það var Jón Ragnar Þorsteinsson sem var dómari í málinu heima í héraði. Hann sagði að dómurinn hafi að vandlega athuguðu máli komist að þeirri niðurstöðu að skip- stjórinn hafi verið að nota þorskanet og það hafi þótt sannað af sérstökum skoðunarmönnum réttarins. Jón Ragnar kvaddi til tvo sérfróða menn í dóminn, en það voru þeir Friðrik Ásmundsson, skólastjóri Stýri- mannaskólans í Vestmannaeyjum, og Finnbogi Ólafsson, netagerðarm- eistari. Sagði Jón Ragnar að í niður- stöðum dómsins fælist að mælistika Landhelgisgæslunnar sé viður- kennd, enda sé hún löggilt, aðferðir starfsmanna einnig viðurkenndar og því sé viðurkennt að hluti mældra möskva hafi verið undir löglegri stærð. Togskipið Danski Pétur fór í gærmorgun aftur til veiða, en hann hefur verið kyrrsettur síðan hann var tekinn að veiðum með ólöglega smárri möskvastærð síðdegis á mið- vikudag í síðustu viku. Veiðarfæri hans verða hins vegar áfram í vörslu Sakadóms Vestmannaeyja sem sönnunargagn. Búist er við því að þetta opinbera mál njóti forgangs sem slíkt og verði því tekið fyrir í Hæstarétti strax í haust. Að sögn Braga Steinarssonar, saksóknara, hefur engum látið sér það til hugar koma að draga ein- hverja hlutdeildarmenn til ábyrgðar nema skipstjórann sjálfan. Reyndar sé ekki látið að því liggja beinum orðum í dómsniðurstöðu og því sé m.a. ekki auðvelt að skilja niður- stöðurnar. Engan annan en skip- stjórann sé hægt að draga til ábyrgð- ar og þar sem möskvarnir voru of litlir á þessu veiðisvæði hafi verið um augljóst brot á reglugerð um möskvastærð nr. 125 frá 1979 að ræða. Á þessari skoðun byggi áfrýj- un ákæruvaldsins. Þröstur Sigtryggsson, stjórnstöðv- arstjóri hjá Landhelgisgæslunni, sagði að í ár og fyrra hafi verið lögð meiri áhersla á mælingar en áður, vegna fjölda ábendinga. Því hafa fleiri skip verið tekin og nokkur þeirra hafa verið ákærð og dæmd. Sagði Þröstur að reyndar hafi varð- skipamenn verið í nokkrum vanda fram að þessu með löggildingu mæli- tækja. „Niðurstöður Sakadóms Vestmannaeyja og sú áfrýjun sem nú hefur verið tilkynnt, er viður- kenning á því að við erum að gera rétt,“ sagði Þröstur. KB HitaveitaSuðureyrarendurnýjuð í sumar: Kostnaður um 50 milljónir Mikil vandræði hafa verið með hitaveituna á Suðureyri allt frá því hún var tekin í notkun árið 1977. Nú liggur fyrir að vegna þess hve hitaveituvatnið er kalt og mikil kalkmyndun í því verður nýtt hita- veitukerfi svo til endurbyggt á Suðureyri í sumar og ráðgert er að framkvæmdum verði lokið í nóv- ember. Samkvæmt áætlunum sem gerðar voru síðastliðið haust er kostnaður við þær framkvæmdir um 47 milljónir. Einnig hafa margir húseigendur orðið að skipta um ofnakerfi í húsum sínum vegna mikillar tæringar. Ragnar Jörundsson sveitarstjóri sagði í samtali við Tímann í gær að það væri margsinnis búið að reyna að koma þessum málum í lag með ódýrari hætti en það hefði ekki gengið upp. Sú varanlega lausn sem nú er fyrirhuguð er að tvöfalda bæjarkerfið og byggja kyndistöð. Með tvöföldu kerfi er komið upp lokaðri hringrás vatnsins, þannig að kerfisvatnið er einangrað frá jarðhitavatninu og þar með á tær- ingarhættan að vera úr sögunni. Ragnar sagði einnig að á sínum tíma þegar olíuverð var mjög hátt þá hafi útreikningar bent eindregið til þess að hitaveitan yrði hagstæð. Ekki væri hægt að sjá fyrir að vatnið yrði ekki eins heitt og áætlað var og Orkustofnun bæri enga ábyrgð á því þó menn á hennar vegum hafi álitið að framkvæmdin yrði hagstæð. Súgfirðingar munu fá ákveðna fyrirgreiðslu hjá því opinbera vegna þessara framkvæntda, m.a. verður eldri lánum aflétt. SSH

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.