Tíminn - 04.04.1989, Blaðsíða 14

Tíminn - 04.04.1989, Blaðsíða 14
14 Tíminn Þriðjudagur 4. apríl 1989 AÐ UTAN lllllllllllllll illlllllllllllllllllllllllllllll Enn halda Rússar áfram aö reisa kjarnorkuver: Gorbatsjov heimsækir Tsémóbýl í fvrsta sinn Gorbatsjov Sovétleiðtogi er nýbúinn að heimsækja Tsérnóbýl í Úkraínu í fyrsta sinn, jirem árum eftir stórslysið í kjarnorkuverinu þar. í Úkraínu eru sjö kjarnorkuver, ýmist í rekstri eða byggingu. í einu þeirra verður fyrsti kjarnaofninn settur í gang á þessu ári. Nánar tiltekið er það á Krímskaga, sem tilheyrir Úkraínu og er þekktastur fyrir hversu vinsæll sumarleyfisstaður hann er. Ibúar þar eru 2,4 milljónir. **+ Það er ekki tekið með í reikning- inn að mannvirkið er reist yfir sérlega hættulegri gjá í neðri jarð- lögum. í flokksmálgagninu Prövdu hafa 10 sovéskir vísindamenn mótmælt þessum framkvæmdum. Pegar Gorbatsjov svaraði fyrirspurn órólegra íbúa Kíev um málið sagði hann: „Það má ekki afgreiða slík mál af léttúð, það verður að taka þau alvarlegum tökum. Þið megið ekki trúa að við séum að gabba ykkur - þar með myndum við stilla okkur sjálfum upp við vegg.“ Nú er Sovétleiðtoginn sjálfur nýbúinn að heimsækja Tsérnóbýl í fyrsta sinn. Strax eftir slysið fyrir þrem árum, þegar heimsbyggðin kynntist óttanum vegna ófyrirsjá- anlegra afleiðinga kjarnorkuslyss og 31 maður lét lífið og 135.000 manns urðu að flýja hcimili sín, voru það staðgenglar Gorbatsjovs, Jegor Ligachev, aðalkeppinautur Gorbatsjovs, og Nikolai Ryzhkov forsætisráðherra sem heimsóttu slysstaðinn. Gorbatsjov skoðaði nú stjórn- stöð og vélarsal kjarnorkuversins. Þrír kjarnorkuofnar framleiða nú aftur raforku. Þeir standa á miðju 2800 ferkílómetra svæði sem er lokað fyrir allri umíerð en opinber- lega lýst yfir að sé „hreint“. Við Itlið ofnanna þriggja stendur sá fjórði, slysaofninn nr. 4, í stein- steypulíkklæðum. íhugað að byggja fleiri ofna í Tsérnóbýl íhugað er að hefja byggingu kjarnaofna nr. 5 og 6 eftir tvö ár. Eftir tæprar klukkustundar stans í minnismerki hörmunganna fór Gorbatsjov 52 km leið til nýbyggða þorpsins Slawutitsch þar sem starfsmenn kjarnorkuversins búa og fara þaðan daglega til að standa sína vakt í Tsérnóbýl-kjarnorku- verinu. Á landsvæðunum umhverfis lok- aða svæðið, þar sem fólk hefur haldið áfram að búa, hefur nýlcga verið látið uppskátt að krabba- meinstilfellum, einkum í vörum og vélinda hefur fjölgað um helming og embættismenn ráðleggja van- færum konum að gangast undir fóstureyðingu. Ásamyrkjubúi með 87 svínum létu í fyrra 37 fóstrun- um, kálfar fæddust án hauss og útlima. Þetta gerist í 50 km fjar- lægð frá Tsérnóbýl. Fimmtungur ræktan- legs lands í Hvíta-Rúss- landi geislavirkur Nýlega heimtaði mótmælahópur sem kallar sig „Alþýðufylkinguna" skýr svör frá forsætisráðherra Hvíta Rússlands, sem er næsti nágranni Úkrafnu í norðri, um hvernig ástandið væri á þeirra heimaslóðum. Forsætisráðherrann viðurkenndi að vegna skorts á mælingartækjum hefði það ekki verið fyrr en nýlega sem staðfest hefði verið að allt að því fimmti hluti ræktanlegs lands í Hvíta- Rússlandi, þ.e. 2,4 milljónir hekt- ara, sýni geislavirkni og það gefi af sér hundruð þúsunda tonna af menguðu korni. Sent skaðabætur, til að geta keypt heilbrigð matvæli, fá íbúarn- ir eina rúblu á dag (um 85 ísl. kr.) og 25% launauppbót. í byrjun febrúar varð enn einu sinni að flytja fólk burt af heimilum sínum frá 20 nýreistum þorpum (áður hafði fólk verið flutt burt frá 107 nýjum samfélögum) og Kowaljow forsætisráðherra sagði að til greina kæmi að flytja fólk frá fleiri stöðum. Þó að Sovétríkin séu stórauðug af olíu, gasi, kolum og vatnsorku eru þau líka mestu orkueyðslu- seggir jarðarinnar. Þess vegna halda Sovétmenn áfram að byggja kjarnorkuver þrátt fyrir afdrifarík- ar afleiðingar Tsérnóbýl-slyssins sem ekki sér enn t'yrir endann á. Reyndar hefur áætluninni unt að byggja 28 kjarnaofna af sama tagi og í Tsérnóbýl, RBMK, verið breytt þannig að nú verður látið sitja við 21 stykki. Litháar fengu frestað áætlun um bygg- ingu kjarnorkuvers Áætlun um að reisa þriðja ofninn í kjarnorkuvcrinu Ignalina í Lit- háen var slegið á frest eftir gtfurleg mótmæli íbúanna. Þarátti að reisa kjarnaofn af því tagi, RBMK, sem eðlisfræðingurinn Walerij Legas- sow hafði lýst sem óáreiðanlegum. Legassow vissi utn hvað hann var að tala. Hann var ábyrgur fyrir því að ná tökum á ógæfunni í Tsérnóbýl 1986. Síðar, áður en hann svipti sig lífi í fyrra, skrifaði hann: Tíðar sprungumyndanir á mikilvægum tengileiðslum, renni- fletir stóðu á sér, strengir í ofnun- um duttu af. Eitthvað þessu líkt gerðist á hverju ári. Sá sem sá kjarnorkuver í byggingu undraðist hversu áberandi hroðvirknislega var unnið að slíkum hlutum, sem þó kröfðust fyllstu vandvirkni.“ „Kjarnorkuofn er ekki flóknari en samóvar“ Til að sýna fram á „geðþótta- ákvarðanir starfsfólksins" geymdi Oktemberjan-kjarnorkuverið í grennd við Eriwan. Orkuvinnslu var hætt þar í kjölfar Tsérnóbýl- slyssins en vinnsla var þegar hafin á ný þegar jarðskjálftarnir skelfi- legu dundu yfir Armeníu í desem- ber sl. Legassow í peningaskáp sínum af- rit af símasamtali milli tæknimanna í Tsérnóbýl rétt í þann mund sem eldurinn braust út. Þar var spurt: Hér í leiðarvísin- um stendur hvað verður að gera, en svo er strikað yfir heilmikið. Hvað á ég að gera? Svar: Gerðu frekar það sem er strikað yfir. Legassow skýrði frá því að það hafi verið vitað um gallann í örygg- isstýringu kjarnorkuofns nr. 4 í Tsérnóbýl áður en slysið varð, en ofninn samt ekki verið tekinn úr sambandi. Hann vitnar til eins háttsetts stjórnanda í Tsérnóbýl, sem hafi sagt: „Af hverju ertu að æsa þig svona upp? Kjarnorkuofn er ekki flóknari en samóvar, miklu einfaldari en hitaveitustöð. Starfs- fólkið hefur langa starfsreynslu. Það á ekkert eftir að koma fyrir hér.“ Ivan Schescherun eðlisfræðingur hefur skýrt frá því að mikilvægum upplýsingum sé enn haldið frá vísindamönnum. Vísindastofnun ein hafi fengið efnisyfirlit banda- rfska tímaritsins „Science“ þar sem ritskoðarinn hafði strikað yfir fyrir- sagnir tveggja greina, „Glasnost gætir í eðlisfræði í Sovétríkjunum" og „Kjarnorkuvinnsla eftir Tsérnó- býl“. Schescherun lýsti því líka yfir að eldsvoðinn hafi „engan veginn ver- ið tilviljun. Þegar kjarnorkuofninn RBMK á í hlut getur svona lagað alltaf gerst. Allir kjarnaofnar af þessari gerð eru lögmálum sam- kvæmt í sprengihættu". Kjarnorkuver á jarð- skjálftahættusvæðum Eftir áfallið í Tsérnóbýl var tekið úr sambandi kjarnorkuverið „Okt- emberjan" í Medsamor í grennd Eriwan í Armeníu, eina kjarn- orkuverið í Kákasus. Það sá líka Nató-ríkinu Tyrklandi fyrir raf- magni. Þegar jarðskjálftarnir skelfilegu urðu í Armeníu í desember sl. var það aftur tekið til starfa. 27. fundur sovéska kommúnistaflokksins hafði m.a.s. ákveðið 1986 að reisa enn stærra kjarnorkuver á jarð- skjálftahættusvæði í Armeníu, og þar að auki kjarnorkuúrgangs- vinnslu, í 24 kílómetra fjarlægð frá Eriwan. En nú var Armenum nóg boðið. 350 menntamenn sneru sér í snatri beint til Gorbatsjovs. Þeir skýrðu frá því að nú þegar hefðu orðið 150 alvarleg tilfelli þar sem geislavirkar gastegundir hefðu komist út í and- Gorbatsjov er nýbúinn að fara í sína fyrstu heimsókn til Tsérnóbýl. Hann segir mannkynið „gísla kjarnorkuvinnslu“. rúmsloftið og vatn hefði mengast. í nágrenni Medsamor endaði önn- ur hver meðganga konu annað hvort með fósturláti eða fæðingu andvana barns. Æðstu menn þjóðarinnar fengu þá viðvörun, að: „Að byggja kjarn- orkuver á svæði þar sem Iíkur eru á jarðskjálftum að styrkleika 5-9 stig, þar sem hafa opnast 40 gjár við eldsumbrot, það er siður sem á ekki sinn líka í notkun kjarnork- unnar og alvarlegur glæpur gagn- vart armensku þjóðinni." Þegar í september sl. lofaði flokksforinginn Suren Arutunjan því að þessum „árangri skamm- sýnnar tæknistefnu" verði lokað - eftir þrjú ár. Eftir jarðskjálftana, sem eiga þó ekki að hafa skaðað kjarnorkuverið, ákvað Ryzhkov forsætisráðherra að taka Med- samor fyrr úr sambandi - í mars 1989. Síðar var ákveðið að falla frá ákvörðun um nýtt kjarnorkuver 50 km suður af höfuðborg Azer- bajdzjan, Bakú. Þá var þegar búið að leggja þar járnbraut, eina götu og eitt íbúðahverfi. Nú á að reisa þar hitaveitu sem notar að orku- gjafa jarðgas úr Kaspíahafinu. „Við erum öll gíslar kjarnorkuvinnslunnar“ Eitt alstærsta kjarnorkuverið (6000 megawött) á þó að reisa í Austur-Karelíu, í hundrað kíló- metra fjarlægð frá finnsku landa- mærunum. Það á að skapa gjald- eyri, með því að selja rafstraum til Svíþjóðar, en Svíar ætla að leggja niður alla sína kjarnaofna í áföng- um fyrir árið 2010. Það er þó engin allsherjarlausn að taka kjarnorkuver úr sambandi, segir Isvestía. „Það sem eitt auðug- asta land heims hefur ráð á getur meirihluti ríkja ekki leyft sér,“ stendur þar. Yfirlýsing Gorbatsjovs eftir Tsérnóbýl-heimsóknina var í stíl vestrænna stjórnmálamanna og hljómaði eins og forlögin yrðu ekki umflúin. „Við erum öli gíslar kjarnorkuvinnslunnar," sagði hann.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.