Tíminn - 04.04.1989, Blaðsíða 15

Tíminn - 04.04.1989, Blaðsíða 15
Tíminn 15 Þriðjudagur 4. apríl 1989 minning lll!!lll!lllllll!!lllllllllllllllllllll!ll!l!llll!l!!lllllllllll!llllll!!l Jón H. Jonsson bóndi á Miðhúsum Álftaneshreppi, Mýrasýslu t’ann 28. febr. sl. lést á Sjúkrahús- inu á Akranesi Jón H. Jónsson bóndi á Miðhúsum á nítugasta og fyrsta aldursári. Atvikin höguöu því svo, að ég gat ekki fylgt þessunt trausta og skemmtilega samherja mínurn síð- asta spölinn, eins og ég ætlaði. Minningarorð mín eru því hinsta kveðja mín, með einlægu þakklæti til þessa mæta manns. Jón var fæddur að Miðhúsum. Foreldrar hans voru hjónin Jón Ein- arsson og Helga Jónsdóttir. Jón starfaði alla ævi að Miðhúsum, fyrst á búi foreldra sinna, en árið 1932 gerðist hann bóndi sjálfur. Þá var hann nýgiftur Nellý Pétursdóttur. Foreldrar hennar voru Pétur Guö- mundsson kennari á Eyrarbakka og kona hans Elísabet Jónsdóttir. Um samvistir og afkomu þeirra Jóns og Nellýjar má segja að giftan hafi fylgt þeim alla tíð. Heimilið var alla tíð á Miðhúsum, börnin urðu sjö og Itafa þau myndað sín eigin hcim- ili, þar af munu a.nr.k. þrír synir þeirra vcra bændur í Álftaneshreppi. Jón og Nellý voru glæsiieg hjón bæði í útliti og í allri frantkomu. Jón var mikill húmoristi, og gat liann gert hversdagslega atburði að eftir- minnilegum skemmtisögum. Eitt sinn er Jón var á ferð á jeppanum sínum, gaf vegkanturinn sig. svo bíll Jóns valt og lenti á toppnum, en mun ckki hafa skemmst neitt. Vegfarandi einn sem kom þar að var mjög óhress íyrir Jóns hönd og hafði orð á óhappinu við Jón. Pá svaraði Jón: „Nú væri gott að smyrja bílinn. þegar hjólin snúa upp." Jón var söngmaður góður og var því jafnan sjálfkjörinn forsöngvari. hvort sem var í fjölskyidufagnaði eða í gleðskap með sveitungum sínunt. Jón og Nellý sóttu oft spilakvöld sem haldin voru i Borgarnesi á vegum Framsóknarfélags Mýrasýslu og létu sinn hlut í keppninni ekki eftir liggja. Eitt sinn hlutu þau aðalvinninginn, ferð fyrir þau bæði til Mallorca. Pau nutu ferðarinnar vel. Jón sagði síðar frá ferðinni á spilakvöldi við góðar undirtektir áheyrenda, enda nutu frásagnar- hæfileikar Jóns sín vel og var mikið hlegið. Nú hafa þau Miðhúsahjónin bæði lokið sínu ævistarfi. Við sent höfum liaft afþeim kynni, eigum eftirgóðar minningar, sem ylja munu okkur ævikvöldiö. Blessuð sé minning þessa mæta manns. Halldór E. Sigurðsson. Ílllllillll BÓKMENNTiR í EFNILEGIR HÖFUNDAR Flogið stjórnlaust, Upp úr sandkassanum, smásögur og Ijóð, Útgáfufélag framhaldsskólanna, Rvk. 1988. Dálítið er víst orðið um liðið síðan þessi bók kom út, en í henni er úrval af skáldskap nemenda í framhaldsskólum landsins, smásög- ur og Ijóð. Ég viðurkenni að ég er ekki nákunnugur aðdragandanum að tilurð bókarinnar. en samkvæmt frétt, sem fylgdi með henni hingað á Tímann, efndu Útgáfufélag fram- haldsskólanna og Ríkisútvarpið saman til Ijóða- og smásagnakeppni í fyrravor. Urn innsent efni dæmdu Flildur Bjarnadóttir fréttamaður og rithöfundarnir Einar Kárason og Sjón. Hefur sú dómnefnd verðlaun- að hér fjórar sögur og þrjú ljóð. Þctta er önnur bókin sem Útgáfufé- lagið sendir frá sér; hin kom fyrir tæpum tveimur árum með hliðstæðu efni úr fyrri keppni og nefndist Kjaftæði. Það dylst engum að hér eru hressi- legar og um margt forvitnilegar bók- menntir á ferðinni. Úr hópi skóla- skálda hafa líka þjóðskáldin löngum komið, og má sem best vera að einhverjir höfundar, sem hér birta sín fyrstu verk, eigi síðar eftir að láta verulega að sér kveða hér í bók- menntunum. Að minnsta kosti verð- ur ekki annað sagt en að hér sé nóg af hugkvæmni og frískum og óvana- legum hugmyndum. Þó dylst það heldur ekki að hér er töluverður og reyndar mjög áber- andi munur á smásögum og Ijóðum. Svo er skemmst frá að segja að smásögurnar, tíu talsins, mega nán- ast allar kallast áhugaverðar, hver á sinn hátt. Það er áberandi samkenni þeirra að höfundarnir reyna allir greinilega að leita út á einhver þau mið sem lítt eða ekki hafa verið sótt áður. Þeir reyna að leita eftir hug- myndum og inn í hugmyndaheima sem ekki hefur verið sinnt í bók- menntunum hér. Þeini tekst vissu- lega nokkuð misjafnlega, eins og við er að búast, og skortur á stílögun og vandvirkni í meðferð máls er einnig á stöku stað til dálítilla lýta. En hitt fer þó ekki á milli mála að hér er slegiö á ferska strengi og nýstárlegir tónar á ferðinni. Slíkt hlýtur að vera af hinu góða. Aftur á móti eru Ijóðin í bókinni nrun dauflegri sem heild. Skóla- skáldin héryrkja áberandi innhverft. og ekki verður séð að umheimurinn höfði í marktækum mæli til þeirra. Þvert á móti leita þau t ljóðum sínum inn á við, inn í drauma- og tilfinningaheima, og skortur á fornr- skyni er einnig áberandi. Þctta er þó vissulega ekki nema í fullum takti við það sem helst má kalla tísku í ljóðagerð hér þessi misserin og stendur henni greinilega talsvcrt fyr- ir þrifum, svo að máski er ekki sanngjarnt aö áfellast skáldin hér fyrir þetta. En hitt fer þó ekki á milli mála að í ljóðunum hér er alls ekki sami ferskleikinn og í smásögunum. Fremst í bókinni fer sagan sem hlaut fyrstu verðlaunin, Ólga í sjumpanum eftir Sigurgeir Orra Sig- urgeirsson. Að vísu hefur mér ekki tekist að finna út hvað orðið „sjampi“ þýðir. en þetta er eigi að síður vel sanrin saga sem gerist jöfnum höndum á jörðu niðri og á astralplaninu, meira og minna í návist Guðs almáttugs. Segir þar frá baráttu þjóns hans eins við að ná til sín aðstoðarmanni við uppvask, og verður víst ekki annað sagt en að þar sé frjóu hugmyndaflugi beitt til hins ýtrasta og af umtalsverðri fimi. Sagan sem hlotið hefur önnur verðlaun er eftir Sindra Freysson og nefnist Kattardansinn. Hún er að ýmsu leyti hefðbundin að formi, en í henni er býsna haganlega fléttað Upp úr £íiodkassönura CJrr Ktihjartt. l<m ppp saman lýsingu á vindsveip og draum- sýnum stúlku ásamt minningum hennar um föður sinn. Þriðju verðlaun hafa svo skipst á milli tveggja sagna. Önnur nefnist Uppgjör Ijóss og mvrkurs og er eftir Guðmund Frey Úlfarsson. Sú saga leynir býsna drjúgt á sér þrátt fyrir heldur einfalt fornt, en hún gerist inni í einhverri ótímasettri framtíð- arveröld, í hópi unglinga sem það eitt bíður að verða teknir af lífi. Hin heitir Á elleftu stundu og er eftir Sigurð H. Pálsson. Þar segir frá verndarengli ásamt amstri hans í daglegum störfum sínum, og er þar nokkuð haglega fléttað saman þrem- ur samstæðum frásögnunt í eina söguheild. Og allar eru sögurnar þarna raun- ar áhugaverðar, svo að Ijóst er að úr vöndu hefur verið að velja fyrir dómnefndina. En þó ekki sé nema fyrir smásögurnar hérna er Ijóst að þessi litla bók hefur átt fullt erindi á prent. Ég sé í henni töluverðan umbrotavilja, en slíkt er alltaf, þegar öllu er á botninn hvolft, helsta skilyrðið fyrir framþróun bókmennt- anna og fyrir því að hér á landi haldi yfirleitt áfram að koma út áhuga- vekjandi skáldskapur. Það fer ekki á milli mála að hér eru á ferðinni ýmsir býsna efnilegir lausamálshö- fundar og lofa góðu. - esig t Maðurinn minn Stefán Ögmundsson prentari er látinn. Elfn Guðmundsdóttir. Auglýsing um sumarafleys- ingastörf Sumarafleysingafólk óskast til starfa viö fangelsin á höfuðborgarsvæðinu. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist Fangelsismálastofnun ríkisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, fyrir 20. apríl n.k. Fangelsismálastofnun ríkisins, 30. mars 1989. Helga Proppé er látin. Lúðvík Kristjánsson, Véný og Vésteinn. t Minningarathöfn um móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu Stefaníu Þorvaldsdóttur Fossgeröi, Beruneshreppi verður í Kópavogskirkju miðvikudaginn b. apríl kl. 13.30. Jarðsungið verður frá Beruneskirkju laugardaginn 8. apríl kl. 14.00. Börn, tengdabörn, b-arnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir Sigurvin Einarsson fyrrverandí alþingismaöur verðurjarðsunginnfrá Dómkirkjunni miðvikudaginn 5. apríl kl. 13.30. Jörína Jónsdóttir RafnSigurvinsson Elín Sigurvinsdóttir Sólveig Sveinsdóttir Sigurður Eggertsson Einar Sigurvinsson Björg Sigurvinsdóttir SigrúnLárusdóttir Kolfinna Sigurvinsdóttir ÓlafurSigurvinsson Sverrir M. Sverrisson barnabörn og barnabarnabörn. t Minningarathöfn um Huldu Árdísi Stefánsdóttur fyrrv. skólastjóra fer fram í Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 6. apríl næstkom- andi og hefst kl. 13.30. Útför hennar verður gerð frá Þingeyrakirkju laugardaginn 8. apríl og hefst kl. 14.00. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Þingeyrakirkju eða Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi. Kirkjan hefur gíróreikning 49543, en safnið 49535 í Landsbanka íslands (aðalbanka). Guðrún Jónsdóttir og Páll Líndal Hulda Sigríður, Anna Salka, Stefán Jón, Bára og Páll Jakob Þórir Jónsson og Sigríður Guðmannsdóttir Jón Guðmann og Margrét. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginmanns míns, frænda og vinar Þórðar Sigurðssonar Undralandi. Hallfríður Jónsdóttir Sigurður Jónsson Bjarni Sigurðsson Elsa Bjarnadóttir.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.