Tíminn - 04.04.1989, Blaðsíða 13

Tíminn - 04.04.1989, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 4. apríl 1989 Tíminn 13 íillllllllllllllll ÚTLÖND Kýpur: Grikkir og Tyrkir slaka á spennunni Grískir og tyrkneskir her- menn eru nú að draga sig frá vopnahléslínunni í Nikosíu höfuðborg Kýpur, en þar hafa þeir staðið augliti til auglitis, oft með fingur á gikknum frá því Tyrkir her- námu þriðjung eyjarinnar árið 1974 til að tryggja hags- muni tyrkneska þjóðarbrots- ins á eyjunni. Þetta mun verða fyrsta skrefið í því að draga hermenn brott frá vopnahléslínunni, svo kallaðri grænu línu sem skiptir Kýpur í tvennt og hefur gert frá innrás Tyrkja. Friðargæslulið Sameinuðu þjóðanna sem gætt hefur hlutlausa svæðisins sem skilur herina að hefur undanfarin ár lagt mikla áherslu á að herirnir dragi sig frá grænu línunni. Eftir ítrekaðar málaumleitanir sendimanna Sameinuðu þjóðanna féllust hvorir tveggja aðilar á að draga herlið sitt frá tólf varðstöðvum þar sem Grikkir og Tyrkir gátu hreinlega hrækt hverjir á aðra. Andúðin hefur verið gífurleg og á síðasta ári voru tveir hermenn drepnir í átökum, einn Grikki og einn Kýpurtyrki. Nikosíu hefur í raun verið skipt í tvo hluta frá árinu 1963, en þá brutust út blóðug átök milli þjóðar- brotanna í borginni. Þess má geta að deilur Tyrkja og Grikkja á Kýpur voru síðasta hindr- un þess að viðræður um takmörkun hefðbundins vígbúnaðar í Evrópu gátu hafist í Vínarborg í vor. Pað grátbroslega er að bæði ríkin eru aðilar að NATO þó hermenn þeirra glapi aðallega mn í byssukjafta hins aðilans. Forboðnu vín- berin eitruð í Bandaríkjunum Hin tvö blásýrueitruðu vínber frá Chile sem urðu til þess að Bandaríkjamenn og fleiri ríki bönnuðu innflutning á ávöxtum frá Chile um nokkurt skeið voru eitruð í Bandaríkjunum en ekki Chile. Þetta er niðurstaða sérstakrar rannsóknar rannsóknarlögregl- unnar í Chile. Röksemdafærsla hennar er einföld. Vínber sem í er sprautað blásýru væru löngu rotin er þau kæmu á markað í Banda- ríkj unum eftir flutninga frá Chile. Matvæla- og lyfjaeftirlit Banda- ríkjanna hafði fullyrt að eitrinu Raisa Gorbatsjova heillaði íbúa írska þorpsins Bunratty þegar hún kom í heimsókn þar á meðan Mikhaíl var að ræða við Charles Haughey forsætisráðherra írlands. Hjónin komu við á írlandi á leið til Kúbu. Bunray hefur verið haldið í þeirri mynd sem dæmigerð írsk þorp voru á 19. öldinni. Raisu þótti það greini- lega skemmtilegt, því hún sagðist kunna betur við þann gamla rólega anda, en stréssið á geimöldinni. Raisa heimsótti barnaskólann í þorpinu og buðu börnin hana vel- hefði verið komið fyrir í Chile áður en vínberjunum var skipað út til Bandaríkjanna. Á þeim forsend- um var öllum innflutningi ávaxta frá Chile hætt. Er talið að tap Chilebúa vegna þessa hafi numið að minnsta kostið 300 milljónum dollara. Matvæla- og lyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum fann vínberin tvö eftir að maður hafði hringt í sendi- ráð Bandaríkjanna í Chile og sagt að vínberjasendingar hefðu verið eitraðar til að mótmæla herstjórn Augusto Pinochet forseta Chile. komna á feimnislegri rússnesku sem þau höfðu æft af þessu tilefni. Eugen, O'Reagan sjö ára gamalli, þótti forsetafrúin rússneska stór- kostleg. - Hún virðist vera mjög góð kona og líkar greinilega vel við börn, sagði Eugen við blaðamenn eftir heimsókn Raisu. Haugey bauð Gorbatsjov upp á það að írar myndu halda næsta leiðtogafund stórveldanna. Mikhafl gaf ekkert út á það, en sagðist gjarnan vilja koma aftur í lengri heimsókn til írlands. Gorbatsjov um úrslit kosninganna í Sovétríkjunum: Almenningur vill hraða perestrojku Almenningur í Sovétríkjunum er óánægður með hægaganginn í fram- kvæmd perestrojku eða uppbygging- arinnar í landinu. Því fór sem fór í kosningunum í Sovétríkjunum á dögunum þegar fjölmargir háttsettir embættismenn kommúnistaflokks- ins féllu fyrir óháðum frambjóðend- um. Þetta er skýring Mikhaíls Gor- batsjovs forseta Sovétríkjanna, en hann skýrði helstu yfirmönnum fjöl- miðla Sovétríkjanna frá afstöðu sinni til úrslitanna á fimmtudaginn. Hins vegar sagði Gorbatsjov úr- slitin sýna berlegan stuðning við perestrojku og umbótastefnu hans sem miðar að virkara lýðræði í Sovétríkjunum. - Ef það eru takmörk fyrir opnun og lýðræðisþróuninni þá eru þau takmörk í þágu sósialismans. Hans hagsmunir hafa engin landamæri; sósíalismi hefur stórkostlegan eigin drifkraft og hæfileika til þróunar, sagði Gorbatsjov á fundinum. Vegna þess að úrslit fengust ekki í fjölda kjördæma í Sovétríkjunum þar sem einn frambjóðandi hlaut ekki meirihluta atkvæða, verður að kjósa þar aftur fyrir 9. apríl. Því hefur fyrsta þingfundi hins nýja fulltrúaþings Sovétríkjanna verið frestað, en þingið átti að hefjast 14. maí. Raisa heillar íra n.vr\r\«jvi i Mnr Kópavogur Steingrimur Hermannsson Almennur stjórnmálafundur með Steingrími Hermannssyni forsætisráðherra verður haldinn I Félagsheimili Kópavogs fimmtudaginn 13. apríl n.k. Flokksstarfið Skúli Sigurgrímsson Skrifstofan að Hamraborg 5 er opin þriðjudaga og miðvik- udaga kl. 9-12 s. 41590. Alltaf heitt á könnunni. Opið hús alla miðvikudaga kl. 17.-19. Skúli Sigurgrímsson bæjarfulltrúi er til viðtals alla miðviku- daga kl. 17.30-19.00. Einnig eftir nánara samkomulagi. Vinnuhópar eru að fara í gang um hina ýmsu þætti bæjarmála. Komið, látið skrá ykkur í hópana og takið þátt í stefnumótun og starfi flokksins. Framsóknarfélögin í Kópavogi. Sunnlendingar! Guðmundur Bjamason ómar Ragnarsson V orfagn aður framsóknarfélaganna í Áme ssýslu verður 19. apríl n.k. í Hótel Selfoss. Heiðursgestir verða Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra og frú. Litli Sam skemmtir með söng og Ómar Ragnarsson kitlar hláturtaugamar. Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi langt fram á sumar. Húsið opnað kl. 20.00. Borðhald hefst kl. 21.00 stundvíslega. Nánari upplýsingar og miðapantanir í símum: 31139 Guðfinna 33763 Halla 21170 Sigrún 21048 Gísli 34636 Sturla Árnesingar £ Jón Helgason, alþingismaður Guðni Ágústsson, alþingismaður Unnur Stefánsdóttir varaþingmaður Árlegur stjórnmálafundur og viötalstími þingmanna Framsóknar- flokksins verður haldinn að Aratungu föstudaginn 7. apríl kl. 21.00. Ailir velkomnir. Fundarboðendur. Reykjanes Fulltrúaráð framsóknarmanna í Reykjaneskjördæmi er boðað til fundar þriðjudaginn 4. april kl. 20.30 að Hamraborg 5, Kópavogi. K.F.R.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.