Tíminn - 04.04.1989, Blaðsíða 5

Tíminn - 04.04.1989, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 4. apríl 1989 Tíminn 5 Nýtt frumv^rp ío burðarliðnum hjá dómsmálaráðherra er snýr að breytingum á þeim kafla hegningarlaganna ér fjallar um kynferðisafbrot: Skilgreiningu breytt og viðurlög hert verulega Halldór Ásgrímsson dómsmálaráðherra mun á næstunni leggja fram frumvarp um breytingu á almennu hegningar- lögunum, er varða kynferðisafbrot. Það felur í megin atriðum í sér þær breytingar að öll hegningarákvæði verða ókynbund- in, en áður var í sumum tilvikum gert ráð fyrir að karlar gætu verið einir gerendur. Refsingar eru í mörgum tilvikum hertar og lagt tU að svokölluð „önnur kynferðisbrot“ verði lögð að jöfnu við samræði. Frumvarpsdrög dómsmálaráð- herra eru byggð á vinnu s.k. nauðg- unarmálanefndar er skipuð var í júlí 1984 af þáverandi dómsmálaráð- herra Jóni Helgasyni, en nefndin lauk störfum og skilaði af sér í nóvember á síðasta ári. Fyrirmynd laganna er að nokkru sótt til sam- bærilegra laga á Norðurlöndunum og er til þess vitnað í geinargerð með frumvarpsdrögunum. Refsing vegna kynferðismaka, eða kynferðislegrar áreitni aðila við barn sitt eða annan niðja, er hert jafnframt því sem „önnur kynferð- ismök“, þar sem átt er við kynferðis- lega misnotkun á líkama annarrar manneskju, eru lögð að jöfnu við samræði. Refsimörk almenna ákvæðisins eru hækkuð úr hámarki 4 ára fangelsisvist í 6 ár og sé barnið yngra en 16 ára, úr hámark 6 ára fangelsisvist í 10 ár. Þá er felld niður refsiábyrgð barna og annarra niðja, sem hlut eiga að samræði eða öðrum kynferðismökum milli ættingja í beinan ættlegg. Til þess liggja m.a. þau rök að alla jafna eru það börn og ungmenni, sem sæta misnotkun af hálfu hinna eldri, sem skáka í skjóli aldurs og reynslu. Breyting þessi er í samræmi við lög í nálægum löndum, s.s. Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Þá hefur því verið bætt í lögin að kynferðismök við sambúð- arbarn, eða stjúpbarn, yngra en 18 ára varðar allt að 4 ára fangelsisvist og 6 ára fangelsisvist sé það yngra en 16 ára. Refsing vegna misnotkunar aðila á manneskju (utan hjónabands eða óvígðrar sambúðar) vegna þess að hún sé háð honum fjárhagslega eða í atvinnu sinni er hert og aldurstak- mörk lækkuð. Varðar slíkt fangelsi allt að 3 árum, eða sé manneskjan yngri en 18 ára, allt að 6 ára fangelsisvist. Þá er því bætt við 199. grein hegningarlaganna að eigi sam- ræði eða önnur kynferðisleg mök sér stað vegna þeirrar blekkingar, að um læknisfræðilega, eða aðra vís- indalega meðferð sé að ræða, varði það fangelsi allt að 6 árum. Ný ákvæði eru í frumvarpinu um kynferðislega áreitni sem ekki telst slík misnotkun á líkama að hún komi í stað hefðbundis samræðis, eða hafi gildi sem siíkt. Er þar átt við ýmiskonar káf, þukl og annars konar líkamlega ertingu og ljósmyndun af kynferðislegum toga. Segir í skýring- um með frumvarpsdrögunum að rétt þyki að veita slíkri háttsemi meiri athygli en áður og taka harðar á brotum. . ÁG Vogar: Finna skotí fjöru Á sunnudagskvöldið fundu nokkr- ir krakkar 50 kalibera skothylki í fjörunni rétt fyrir neðan barnaskól- ann í Vogum. í gærdag höfðu sextán skot fundist og að sögn lögreglunnar í Keflavík virtust þau flestöll vera virk og því stórhættuleg þar sem þau geta sprungið við hnjask. Ráðgert var að sprengjusér- fræðingar frá Landhelgisgæslunni og varnarliðinu kæmu á staðjnn í dag og rannsökuðu aðstæður og í fram- haldi af því verður tekin ákvörðun um hvað verður gert á svæðinu. Skotin hefur rekið upp í fjöru en ljóst er að fleiri hylki eru undir sjávarmáli og þarf jafnvel að kafa til að komast að þeim. SSH Tvær ungar stúlkur í Reykjavík: Lokaðar í 3 tíma í lyftu Tvær stelpur lokuðust inni í lyftu á laugardaginn var. Tildrögin voru þau að stelpurnar voru að leika sér á Bræðraborgarstíg þar sem bókaklúbburinn Veröld og bókaforlagið Iðunn eru til húsa. Gleymst hafði að loka dyrum sem snúa út í port hússins og stelpurnar fóru þar inn og inn í vörulyftu. Þessar lyftur eru þannig hannaðar að opnist hurðin rofnar straumur til mótors lyftunnar, þannig að þær geti ekki hreyfst úr stað. Þegar lyftan fór af stað með stelpurnar fór j árnbútur, sem hékk laus utan á henni, á milli hurðanna og spennti þær upp þegar lyftan var stödd á milli hæða. Við það rofnaði straumurinn og stelp- urnar sátu fastar. Þær fundust þegar foreldrar þeirra fóru að furða sig á hvar þær gætu verið en þeir búa skammt frá Bræðraborgarstíg. For- eldrarnir heyrðu í þeim hljóðin og náðu í hjálp. Mjög erfiðlega gekk að ná stelp- unum út úr lyftunni þar sem öryggis- búnaður hennar var ekki í lagi. Öryggislykill sem notaður er í tilfell- um sem þessum var ekki nothæfur. Lyftan hafði skorðast mjög tryggi- lega af í lyftuhúsinu og því var ekki hægt að ná henni upp með handafli. „Stelpurnar sem eru átta eða níu ára voru fastar þarna í eina þrjá tíma. Það var mesta furða hvað þær voru rólegar. Mjög erfiðlega gekk að komast inn í lyftuhúsið þar sem lykil að því vantaði. Að lokum urðum við að brjóta hurðina upp þar sem ekkert annað var hægt að gera. Hurðin er þó nokkuð skemmd en að öðru leyti er í lagi með lyftuna," sagði Friðrik Jóhannesson lögreglu- maður í samtali við Tímann. jkb Hér má sjá gatið sem kom á stefni Heklunnar við áreksturinn. Tímamyndir ómar. Þriggja manna áhöfn Brimness BA 800 frá Patreksfírði var bjargað eftir að báturinn lenti í hörðum árekstri við strandferðaskipið Heklu út af Blakkanesi og sökk. Sjópróf fóru fram í gær hjá sýslu- mannsembættinu á Patreksfirði og þar kom fram að áreksturinn virðist vera beggja sök, en niðurstöður sjóprófsins verða sendar saksókn- ara, mun hann meta málið og taka ákvörðun um framhaldið. í sjóp- rófunum lýsti annar skipstjórinn til- drögunum þannig að hann hafi verið blindaður af sól. Áreksturinn varð um kl. 19:00 á sunnudagskvöld og sökk Brimnesið skömmu síðar. Hekla skemtndist töluvert, m.a. kom gat framarlega á stefnið. Áhöfn Brimness gekk vel að komast í björgunarbátinn og voru þeir síðan teknir um borð í Hekluna, sem fór með þá til Patreksfjarðar. Brimnesið, sem var um 34 tonna eikarbátur, var á leið til hafnar á Patreksfirði eftir línuróður, en strandferðaskipið Hekla var á sigl- ingu suður með Vestfjörðum á leið til Reykjavíkur. -ABÓ/SSH Hekla í höfn á Patreksfírði í gær. Þriggja manna áhöfn bjargaö þegar línubátur og strandferöaskip rákust á: Brimnes sökk

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.