Tíminn - 12.04.1989, Page 12

Tíminn - 12.04.1989, Page 12
12 Tíminn Miðvikudagur 12. apríl 1989 FRÉTTAYFIRLIT JERÚSALEM — Hundruö grímuklæddra unglinga af kyn- þætti Araba veifuöu þjóöfána Palestínu er þeir gengu fylktu liði um gamla bæinn í Jerúsal- em aö hinni öldnu og helgu mosku múslíma al-Aqsa. Til- efniö var útför Palestínumanns sem myrtur var af öfgafullum Gyðingi. Morðinqinn komst' j undan, en ísraelskar útvarps- stöðvar hafa fengið nokkrar I nafnlausar upphringingar þar; sem Gyðingleg leynisamtök erj kalla siq Sicarii segjast hafa staðið að morðinu. BEIRÚT — Ríkisstjórn músl- íma í Líbanon hafnaði hjálp- argaanasendingum Frakkaj þar tíí frönsk stjórnvöld skýrðu I skýrt og skilmerkilega frá þvíj hver afstaða þeirra væri í borg-1 arastyrjöldinni í Líbanon. Ríkisstjómin krafðist þess einnig að tvö frönsk skip, sem eru á leið til Beirút með hjálp- argögn til saklausra fórnar- lamba stórskotaliðsárása, myndu afferma í Tripolí en þar ráða Sýrlendingar lögum og lofum. Hersveitir múslíma höfðu áður hótað að skjóta á skipin ef þau legðust að hafn- arbökkum í Beirút þar sem kristnir menn fara með völdin. KABÚL — Afganskir skæru-j liðar seajast hafa umkringt hóp skæruliða austur af borginni Khost og drepið að minnsta kosti 200 skæruliða. Skærulið- ar gerðu árás á Khost á laugar-; dag og sögðust hafa náð þrem- í ur hernaoarlega mikilvægum ' stöðvum á sitt vald. Knost liggur suður af Jalalabad, em skæruliðar hafa lagt allt í sölu- rnar að ná þeirri borg á vald sitt, en ekkert gengið. AUSTUR-BERLÍN Utanríkisráðherrar Varsjár- bandalagsríkjanna hófu tveggja daga fund sinn um| eftirlit með vígbúnaði og sam- j búð austurs og vesturs. Ekki er > gert ráð fyrir að ráðherrarnir komi með tímamótayfirlýsing- ar eftir fundinn. Sévardnadse utanríkisráðherra Sovétríkj-; anna var fjarri góðu gamni í upphafi fundahaldanna. Hann var í Grúsíu að reyna að lægja þjóðernisöldurnar sem hafa risið helst hátt hjá þjóð hans, Grúsíumönnum. AÞENA — HæstirétturGrikk- j lands frestaði um eina viku ■ umfjöllun um kröfu Bandaríkja-1 manna um að Grikkir framselji) Palestínumann sem er í haldi! í Grikklandi. Palestínumaður- ( inn er talinn bera ábyrgð á j sprengjutilræði. Þúsund lög- j reglumenn gættu Hæstaréttar j á meðan fundað var um málið. Liðsmenn hinnar vinstri sinn- uðu hryðjuverkasamtaka 1. maí komu sprengju fyrir á hei- mili hæstaréttardómara á mán- udag og sögðu engan dómara í Grikklandi óhultan á meðan ] Mohammed Rashid væri í haldi. ÚTLÖND Þessi ungi drengur sem býr í flóttamannabúðum ■ suðurhluta Súdan er eitt fórnarlamba borgarastríðsins þar. Nú virðist vera að þokast í friðarátt. Vonandi vænkast hagur almennings við það. Þokast í frið- arátt í Súdan Viðræðum skæruliða og ríkis- stjórnar Súdan lauk eftir fjögurra daga fundahöld. Sættust menn á að hittast að nýju til að binda enda á borgarastyrjöldina í Súdan sem stað- ið hefur í fimm ár og kostað 1 milljón manna lífið í suðurhluta landsins. í sameiginlegri yfirlýsingu sem birt var eftir viðræðurnar í Addis Ababa sagði að ríkisstjórnin og Þjóðfrelsisher Súdan hafi samþykkt að viðhalda þeim tengslum sem skapast hafa og halda áfram viðræð- um eins fljótt og auðið er. Viðræðurnar nú komu í kjölfar þess að ný samsteypustjórn Sadeq al-Mahdi var sett á fót og skipaði hún ráðherranefnd til viðræðna við skæruliða. Á meðan viðræðunum stóð sendi Mahdi bréf til skæruliða þar sem skýrt var frá ákvörðun ríkisstjórnar Súdan um að viðhalda vopnahlésskilmálum þeim er Lýð- ræðislegi sameiningarflokkurinn og Þjóðfrelsisher Súdan undirrituðu á síðasta ári, en Lýðræðislegi samein- ingarflokkurinn á nú aðild að ríkis- stjórninni ásamt Umma flokk Mahdis. Þjóðfrelsisherinn sem hefur barist gegn stjórnarher Súdan í suðurhluta landsins, er að mestu skipaður kristnum Súdönum og Súdönum sem halda tryggð við hin ævafornu trúar- brögð blökkumanna á þessum slóðum. Hins vegar eru múslímar í miklum meirihluta í norðri og ráða þeir mestu um stjórn landsins. Sévardnadse í Grúsíu að lægja ólguna Fimmhundruð rnenn voru handteknir í fyrrinótt er þeir brutu útgöngubann í Tiblisi höfuðstað Grúsíu, en þar féliu átján manns þegar hermönnum og þúsundum mótmælenda lenti þar saman á sunnudag. Eduarde Sévardnadse utanríkisráðherra Sovétríkjanna sem eitt sinn var yfirmaður kommúnistaflokksins í Grúsíu, enda Grúsíumaður sjálfur. En vitnisburður þjóðar hans hefur varla verið honum mikið gleðiefni. Dzhumber Patiashvili núver- andi leiðtogi kommúnistaflokks- ins viðurkenndi í sjónvarpsviðtali að það hefðu verið hörmuleg mistök að senda hermenn á móts við göngumenn, sem voru að mótmæla aðskilnaðarkröfum Az- era í landamærahéruðum sem liggja að Azerbaijan. Hann viðurkenndi að á meðal hinna látnu hafi verið nokkrar konur, þar með talin ein 70 ára gömul. Sagði hann að fólkið hefði troðist undir þegar hermenn komu á vettvang. Rannsóknarnefnd hef-. ur verið sett á fót til að rannsaka málið. Öll skotvopn hafa verið inn- kölluð til bráðabirgða í Grúsíu vegna kynþáttaólgunnar til að koma í veg fyrir hugsanlegt blóðbað eins og raunin varð á í Azerbaijan. 66 þúsund skotvopn eru skráð í einkaeign í Grúsíu. Kynþáttaólga er ekki óþekkt fyrirbæri í Grúsíu. Þar var mikil ólga á síðasta áratug og má rekja vinsældir Sévardnadse meðal annars til þess hversu vel og skynsamlega hann tók á málun- um 1978 og 1981 þegar allt virtist ætla að sjóða upp úr. Því binda Kremlverjar vonir við það að Sévardnadse nái að lægja öldurn- ar enn á ný. Fílar skapa umferðarhnút New York búar eru alvanir um- ferðarhnútum. En á mánudaginn skapaðist mikill umferðarhnútur í Manhattan af áður óþekktum orsök- um. Það voru tuttugu og einn fíll sem gerði sér lítið fyrir og stöðvuðu alla umferð á áttundu tröð í Man- hattan. Fílarnir eru í heimsókn í New York ásamt félögum sínum í Ringl- ing Bros. and Barnum Bailey Circus. Þeir tóku sér göngutúr frá Madison Square Garden og upp í Central Park þar sem þeir léku listir sínar fyrir skólabörn. Að sjálfsögðu stöðvaðist öll um- ferð á meðan göngutúr fílanna stóð til og frá Central Park, enda gestirnir plássfrekir. Fjármálahneykslið í japönsku ríkisstjórninni: T akeshita segist flekklaus Noburu Takeshita forsætisráð- herra Japan sem undanfarið hefur staðið frammi fyrir mestu þolraun stjórnmálaferils síns vegna fjár- málahneykslis svaraði í japanska þinginu ásökunum sem á hann hafa verið bornar um mútur. Takeshita skýrði frá því að Rec- ruit fyrirtækið sem mútað hefur fjölda manna í japönsku stjórn- málalífi, þar með talið náinna samstarfsmanna Takeshita, hefði greitt miklar fjárhæðir í kosninga- sjóð sinn. Hann hafi hins vegar ekki tekið við mútum og sagðist muna sitja sem fastast í ráðherras- tól sínum. Takeshita sagði að fyrirtækið hefði greitt 95 milljónir jena í kosningasjóð stuðningsmanna sinna árið 1987, en allar greiðslurn- ar hafi verið opinberar og lögum samkvæmt. Hann sagðist þar ekki taka með í reikninginn hlutabréf í Recruit fyrirtækinu sem starfsmenn hans hafi tekið við þegar fé var safnað í borginni Morioka sama ár, þar sem það hafi verið einkaframtak stuðningsmanna sinna. Takeshita undirstrikaði að hann hefði aldrei tekið persónulega við neinum greiðslum frá fyrirtækinu og að hann hefði hreinan skjöld í þessu máli. Þrír ráðherrar í stjórn Takeshita hafa orðið að segja af sér vegna þessa máls og þrettán manns hafa verið handteknir vegna fjármála- misferlis tengdu því. Komsomolskaya Pravda um kafbátaslysið við Bjarnarey: Seinagangur stjórnvalda kostaði sjóliðana lífið Seinagangur sovéskra yfirvalda að tilkynna um eldsvoðann í kjarnorku- kafbátnum sem sökk við Bjarnarey á föstudaginn varð til þess að mun fleiri sjóliðar fórust en annars hefði orðið. Þetta kemur fram í Komsom- olskaya Pravda málgagni æskulýðs- fylkingar sovéska kommúnista- flokksins í gær. í blaðinum kemur fram að ef Sovétmenn hefðu tilkynnt slysið fyrr og farið fram á hjálp Norðmanna við björgunarstörf hefðu að líkindum flestir hinna fjörutíu og tveggja sjó- liða er fórust bjargast. Kom fram í frétt blaðsins að einungis fjórir sjó- liðar hafi farist í baráttunni við eldinn, en flestir hefðu króknað úr kulda. Björgunarskip Sovétmanna voru um átta klukkustundir á leið til slysstaðarins 100 sjómílum suðvest- ur af Bjarnarey. Björgunarsveitir Norðmanna hefðu verið mun fyrr á staðinn og getað bjargað einhverjum þeirra er króknuðu úr kulda. Tass fréttastofan skýrði frá hetju- dáð skipherrans á kafbátnum í um- fjöllun sinni um slysið á mánudag. -Þegar hann var við það að yfir- gefa skip sitt, leit hann til baka og sá sjóliða berjast við að losa sig frá einni útgöngulúgu kafbátarins. Skip- herrann hjálpaði sjóliðanum að losa sig um það bil sem kafbáturinn sökk í ískaldan sjóinn, sagði í frétt Tass. -En eftir að skipherrann hafði eytt kröftum sínum í baráttuna við að halda kafbátnum á floti og að bjarga skipsfélaga sínum, lést hann frammi fyrir félögum sínum.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.