Tíminn - 15.04.1989, Page 2
2 Tíminn
■'vt
♦ ♦
♦V
iVt
68fe‘. rr»qt' íf VjOfili'if.nijrj j
Laugardagur 15. apríl 1989
Jóhannes Nordal, stjórnarformaður Landsvirkjunar, um viðræður við
iðnaðarráðuneytið um „RARIK-vandamálið“ og jöfnun heildsöluverðs:
Vill beintengingu
við Landsvirkjun
Jóhannes Nordal, stjórnarformaður Landsvirkjunar, sagði
á 6. ársfundi hennar, sem haldin var í Viðeyjarstofu í gær, að
það væri í anda Landsvirkjunar að öllum almenningsrafveit-
um verði gert kleyft að kaupa raforku í heildsölu eftir sömu
gjaldskrá, hvar sem þær væru staðsettar á landinu. Til að ná
því takmarki kæmi tvennt til greina að mati stjórnar
Landsvirkjunar. Annars vegar að Landsvirkjun kaupi eða
leigi viðkomandi flutningslínur og aðveitumannvirki af Raf-
magnsveitum ríkisins, ellegar að dreifiveiturnar yfirtaki
sjálfar þessi mannvirki af Rarik og komist þannig í beint
samband við Landsvirkjun.
Sagðist Jóhannes hafa miklar efa-
semdir um þá tillögu sem nú liggur
fyrir Alþingi um að Rafmagnsveitur
ríkisins verði sameinaðar Lands-
virkjun til að losna við Rarik sem
millilið. Efasemdirnar byggir stjórn-
arformaðurinn á því að þá væri
hlutverk Landsvirkjunar orðið
tvíþætt, þ.e. hún tæki auk núverandi
verkefna að sér hlutverk dreifingar-
aðila um stóran hluta landsins. Eftir
að byggðalínukerfið var risið og
Landsvirkjun hafði tekið yfir rekstur
þess kerfis, hlyti að verða ýtt undir
þá þróun að rafveiturnar á hverjum
stað komist í bein viðskipti við
Landsvirkjun án milligöngu Raf-
magnsveitna ríkisins.
Gegn sameiningu RARIK
og Landsvirkjunar
Virtist stjórnarformaðurinn í
ræðu sinni helst hallast að því að
með sameiningu dreifiveitna í ein-
stökum landshlutum með aukinni
aðild viökomandi sveitarfélaga megi
komast hjá vaxandi miðstýringu al-
menna dreifikerfisins. Sagðist hann
vona að viðræður sern nú væru
hafnar milli Landsvirkjunar og iðn-
aðarráðuneytisins, með nýlegu bréfi
frá ráðuneytinu, muni leiða til far-
sællar niðurstöðu í þessu máli er
komið geti til famkvæmda strax á
næstu árum.
Lag í áliðnaði
Þá ræddi Jóhannes cinnig þá kosti
sem nú er verið að skoða varðandi
aukningu orkufreks iðnaðar á ís-
landi. Þarsem hagkvæmnisathugun-
um væri nú nýlega lokið og benti allt
til þess að bygging nýs 185.000 tonna
álvers væri lakari kostur en áður var
talið og stafaði það af hækkandi
stofnkostnaði. Gæti því stækkun ál-
versins í Straumsvík um 120.000
tonn allt cins vel komið til greina.
Nú væri á það að líta að íslendingum
er í hag að vera nálægt stórum og
tollfrjálsum markaði í V-Evrópu, en
á því svæði muni raforkuverð vafa-
laust fara hækkandi í framtíðinni.
Sagði Jóhannes það skoðun sma að
uppbygging áliðnaðar ásamt tilheyr-
andi virkjunarframkvæmdum væri
við núverandi aðstæður, ein vænleg-
asta leiðin til að tryggja aukið atvinn-
uöryggi og betri lífskjör hér á landi
næsta áratuginn.
Góð rekstrarafkoma
í ársskýrslum Landsvirkjunar
koma fram að erlend langtímalán
hennar hafa ekki numið lægra hlut-
falli af erlendum langtímalánum ís-
lands í langan tíma. Þetta hlutfall er
tæplega 25% á síðasta ári en var t.d.
ríflega 31% árið 1983. Þessi staða
hefur m.a. náðst með endurfjár-
mögnun lána og batnandi kjörum á
Framsóknarfélögin
í Garðabæ og Hafnarfirði
Steingrímur Hermannsson Jóhann Einvarðsson Níels Árni Lund
Almennur stjórnmálafundur verður haldinn í Framsóknarhúsinu,
Hverfisgötu 25, Hafnarfirði, þriðjudaginn 18. apríl kl. 20.30.
Ávörp flytja: Steingrímur Hermannsson
Jóhann Einvarðsson
og Níels Árni Lund.
Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, f.h. Borgar-
spítalans í Reykjavík, óskar eftir tilboðum í
aðaldreifiskápa og stjórnbúnað.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, frá og með þriðjudegin-
um 18. apríl gegn kr. 10.000,- skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 9.
maí 1989 kl. 14.00.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frtkirkjuvegi 3 - Simi 25800
erlendum lánsfjármörkuðum. Einn-
ig mætti benda á þá miklu hækkun
sem fékkst við endurskoðun á raf-
orkusamningi við ÍSAL árið 1984.
Samhliða þessu hefur verið unnið að
því að bæta reksturinn að sögn
stjórnarmanna, og treysta innra
skipulag.
I heild gekk rekstur Landsvirkjun-
ar vel á síðasta ári þrátt fyrir að illa
áraði í flestum greinum atvinnu-
rekstrar á íslandi. Dæmi um grósk-
una má nefna að sala til almennings-
veitna jókst um 9,39% milli áranna
1987 og 88 og sala til stóriðju jókst
um 5,58%. 1988 var fimmta árið í
Jóhannes Nordal í ræðustól í gær.
röð sem endaði réttu megin við
núllið í uppgjöri og skilaði reyndar
rúmlega 186 milljóna rekstrarhagn-
aði. Landsvirkjun átti rúmlega 46,1
milljarð í eignum í árslok og varð
breyting á handbæru fé virkjunar-
innar jákvæð um tæplega 300 millj-
ónir króna á síðasta ári. Þess má
geta að 73% allra gjalda (um 3.1
milljarður króna) fór í að greiða
TímamyndrÁrni Bjarna
vexti og afskriftir.
Miðað við byggingarvísitölu lækk-
aði meðalverð raforku til almenn-
ingsrafveitna um 1,2% að raungildi
og um 10,9% til Áburðarverksmiðju
ríkisins. Meðalverð hækkaði hins
vegar um 24,6% til íslenska álfélags-
ins hf. og um 8,9% til íslenska
járnblendifélagsins hf. KB
Tugmilljóna tjón varö í eldsvoða á Skagaströnd í fyrrinótt:
ÍBÚAR VAKTIR UPP
MEÐ GJALLARH0RNI
Gífurlegt tjón varö í elds-
voða, þegar plastbátaverk-
smidjan Mark hf. á Skaga-
strönd gjöreyöilagöist í eldi í
fyrrinótt. Slökkviliðið á
Skagaströnd var kallað á
staðinn um klukkan hálf fjög-
ur og þegar að var komið var
mikill eldur í húsinu, sem er
um 500 fermetra stálgrindar-
hús. Þar sem mikill reykj-
armökkur lagði yfir íbúða-
hverfi var tekið á það ráð að
senda fólk með gjallarhorn
til að vekja íbúa upp við
Suðurveg og I'únbraut, sem
þegar voru ekki vaknaðir.
Að sögn Magnúsar Ólafssonar
slökkviliðsstjóra vöknuðu nokkrir
íbúar upp við sprengingar og þegar
slökkviliðið kom á vettvang logaði
eldur út um þak og glugga í helmingi
hússins, á norður- og suðurhlið þess
og fjölmargar sprengingar kváðu
við, þegar kósangas- og asintonbrús-
ar sprungu. Magnús sagði að þeir
hefðu verið búnir að ná tökum á
eldinum eftir um einn og hálfan
tíma, og slökkvistarfi lauk um sjö-
leytið.
„Eldhafið var mikið og hitinn
gífurlegur, þannig að stálgrindin ein-
faldlega lagðist bara inn, í þeim
enda sem eldhafið var þ.e. í austur-
Hér má sjá rústir smiðjuhússins sem Mark hf. var með starfsemi sína í.
Tímamynd Jón Jonsson
endanum. Vesturendinn stendur
enn, þar sem skrifstofan og kaffistof-
an var, en þar brann einnig allt sem
brunnið gat, eins og í hinum hluta
hússins," sagði Magnús. Hann sagð-
ist telja að eldtungurnar sem stóðu
upp úr húsinu hafi á tíma náð allt að
10 metra hæð.
{ húsinu var nær fullbúinn skrokk-
ur af 15 tonna bát og annar skrokkur
af um 7 tonna bát. Þá brunnu einnig
mót af stýrishúsum, auk ýmissa véla
og tækja, auk tilbúins báts sem stóð
fyrir utan, upp við suðurhlið hússins.
Mat manna á tjóninu sem þarna
hefur orðið er ekki undir 30 miiljón-
um króna.
Aðspurður sagði Magnús að íbúð-
arhús hefðu ekki verið í hættu, þar
sem um 200 metrar væru í þau, en
vélageymsla sem er í um 20 metra
fjarlægð hafi verið í hættu, fyrst í
stað. „Eigandi hennar sprautaði
vatni á skemmuna til að kæla hana,
á meðan við dempuðum mesta eld-
inn í verksmiðjuhúsinu, enda gekk
neistaflugið yfir skemmuna og eld-
glæringar teygðu sig í átt til hennar,"
sagði Magnús.
Eldsupptök eru ókunn og var
lögreglan við vettvangsrannsókn í
gær. Um 10 manns hafa starfað hjá
Marki hf. Þetta er ekki í fyrsta skipti
sem brennur hjá fyrirtækinu, því
fyrir um þremur árum brann hús-
næði það sem fyrirtækið var þá í.
- ABÓ
Leiðrétting
Mistök urðu f myndatexta í
frétt Tímans í gær þar sem greint
var frá að nú nýverið hefði Glób-
us hf. afhent þrjú þúsundasta
Zetorinn, sem hefur verið mest
selda dráttarvélin á íslandi, nú
síðast 1988.-Kaupendurdráttar-
vélarinnar, Erlendur Eysteinsson
og kona hans Helga Búadóttir
bændur á Stóru-Giljá í Austur-
Húnavatnssýslu tóku á móti vél-
inni og voru þau leyst út með
gjöfum frá ístékk h.f. og Moto-
kov.
Réttur myndatexti er á þessa
leið: F.v. Þórður H. Hilmarsson
forstjóri Glóbus, fulltrúi Moto-
kov verksmiðjanna, Helga Búa-
dóttir, Erlendur Eysteinsson og
Árni Gestsson stjórnarformaður
Glóbus.