Tíminn - 15.04.1989, Qupperneq 12

Tíminn - 15.04.1989, Qupperneq 12
24 Tíminn Laugardagur 15. apríl 1989 Suðurnesjamenn VORHÁTÍÐ Vorhátíð Framsóknarfélaganna í Keflavík verður haldin í Glaumbergi (K.K. sal) föstudaginn 21. apríl og hefst kl. 19.30. Verð kr. 1.500,- Steingrímur Jóhannes Dagskrá: Ávarp, Steingrímur Hermannsson, forsætisráð- herra. Jóhannes Kristjánsson flytur gamanmál. Einsöngur, Guðmundur Sigurðsson við undirleik Gróu Hreinsdóttur. Góður matur - Happdrætti o.fl. Sérstakir gestir verða Steingrímur Hermannsson og Edda Guðmundsdóttir, Jóhann Einvarðsson og Guðný Gunnarsdóttir, Níels Árni Lund og Kristjana Benedikt- dóttir. Fjölmennið og takið með ykkur gesti. Nánari upplýsingar og miðapantanir Drífa - 13484 Skúli - 15410 Gunnar. símum: 13764 Sunnlendingar! Guðmundur Bjamason Ómar Ragnarsson VorfagnaðurframsóknarfélagannaíÁmessýsluverður 19. apríl n.k. í Hótel Selfoss. Heiðursgestir verða Guðmundur Bjarnason, heilbrigðisráðherra og frú. Litli Sam skemmtir með söng og Ómar Ragnarsson kitlar hláturtaugamar. Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi langt fram á sumar. Húsið opnað kl. 20.00. Borðhald hefst kl. 21.00 stundvíslega. Nánari upplýsingar og miðapantanir í símum: 31139 Guðfinna 33763 Halla 21170 Sigrún 21048 Gísli 34636 Sturla Hvernig viljum við standa að for- skólastiginu - leikskólastiginu fyrir uppvaxandi æsku? Fundur verður haldinn ( Nóatúni 21, mánudaginn 17. apríl nk. kl. 18.00. Fundarefni: Guðrún Alda Harðardóttir kynnir hugmyndirsem uppi eru um nýtt skólastig. Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. SUF Létt spjall á laugardegi Á laugardagsmorguninn 15. apríl n.k. kl. 10.30, hiitumst við í Nóatúni 21 og röbbum um það sem efst er á baugi í pólitíkinni, flokksstarfinu, stöðunni I kjaramálunum og ýmislegt fleira. Fulltrúaráðsmeðlimir eru hvattir til að mæta. Fulltrúaráðið. VETTVANGUR IIIIIIMI illll Gunnlaugur Júlíusson, hagfræðingur Stéttarsambands bænda: Kartöflubændur, kaup- menn og prófessorar, eða: þarf að flytja inn fleira en kartöflur? Verslunin sækir á í Verslunartíðindum, 4. tbl. 1988 er fjallað um smásöluálagn- ingu á landbúnaðarafurðir. f>ar eru færð rök fyrir því að hún sé alltof lág og þurfi að hækka verulega ef það á að borga sig að selja þessar vörur. Sagt er að álagningin sé að jafnaði um 17% en þurfi að hækka í um 31%. Hér er hvorki um að ræða meira eða minna en yfir 80% hækkun á smásöluálagningu sem málsvarar verslunarinnar færa rök fyrir að hún þurfi á að halda til að það borgi sig að selja vörurnar. Samkvæmt þessum útreikningum þyrfti smásöluálagning á kartöflur að hækka úr 17 kr/kg í 31 kr/kg. Samt á að vera hægt að selja þær á 35 kr. út úr búð, með söíuskattí. Hér er eitthvað sem ekki stemm- ir. Það ber allt að sama brunni sem fyrr. Ef hægt er að selja erlendar kartöflur með mun minni álagn- ingu en fslenskar, þá er líka álagn- ingin á þær íslensku of há. Ef hún er ekki of há, þá mun álagning á aðrar vörur hækka til að verslunin haldi sömu tekjum og neytandinn stendur í sömu sporum og áður, með tóma budduna. Þetta er verðugt íhugunarefni fyrir prófessora. Jóns þáttur Ásbergssonar Samkvæmt grein hagfræðipróf- essorsins í Morgunblaðinu frá því 22. mars er forstjóri Hagkaupa, Jón Ásbergsson viðskiptafræðing- ur, heimild hans fyrir því verði sem „kaupmenn hafa sagst ntundu geta...“ Jón Ásbergsson hefur í þessari umræðu lýst því yfir að hann gæti bætt hag neytenda um 2 milljarða króna með því að flytja inn kartöfl- ur, egg og kjúklinga (og selja líklega allt í gegnum Hagkaup). Fyrir ári síðan var hann á sömu buxunum, en þá ætlaði hann að lækka matarreikning þjóðfélagsins um 700 milljónir með því að flytja inn kjúkling. Hann tók það þá ekki með f reikninginn að ársneysla kjúklinga kostaði á þeim tíma ca 700 milljónir þannig að hann hefði þurft að gefa neytendum alla kj úkl- ingana til að ná settu marki. Fyrr- greinda tölu fékk forstjórinn út með því að áætla neyslu kjúklinga 1000 tonnum hærri en hún er í raun og veru (2.400 tonn í stað 1.400 tonna). Það er nú með hliðsjón af fyrri reiknikúnstum og blekkinga- leik að þessar fullyrðingar hans eru léttvægar metna. Hitt er svo annað mál að það er ekki laust við að það fari um mann léttur hrollur þegar þjóðhetjan hann Jón birtist í sjónvarpsauglýs- ingu með kartöflurekkann í baksýn og mælir eftirfarandi setningu: „íslensk vara er gæðavara og íslensk vara er íslensk atvinna". Á sama tíma og hann kemur fram í þessu landsföðurlega hlut- verki rær hann að því öllum árum að hefja innflutning á kartöflum og þar með svipta kartöflubændur at- vinnu sinni. Það er svo þegar hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri gjörir. Þversögn í málflutningi neytendasamtakanna Varla er hægt að fjalla um verð á kartöflum án þess að minnast aðeins á Neytendasamtökin. Þau hafa lengi bent á mikinn milliliða- kostnað við vinnslu og dreifingu afurða í hefðbundnum búgreinum og telja brýna þörf á að þar verði hagrætt, fyrirtæki sameinuð og náð á þann hátt fram sparnaði sem eigi að skila sér í lækkuðu vöruverði. Nú má vera að hagræðingar sé þörf við vinnslu og dreifingu hefðbund- inna búvara. En á þetta er minnst vegna þess að þegar rætt er um sömu hluti við vinnslu og dreifingu kartaflna, kjúklinga og eggja, þá ersamruni fyrirtækja, skipulagning Síðari grein og hagræðing hin verstu mál. Þá er einokunardraugurinn vakinn og umræðan kemst á slíkt steinaldar- stig að með eindæmum er. Það er því líkast þegar minnst er á sam- vinnu og skipulagningu við afsetn- ingu þessara afurða, að samtökin sjái fyrir sér í hverju horni hið svívirðilegasta samsæri framleið- enda sem hefur að markmiði að hafa sem mest fé af kaupendum. Hægt er að skilja sjónarmið verslunarinnar að hún setji sig á móti skipulagningu á heildsölu- stigi, en erfiðara er að átta sig á þeirri þversögn sem birtist í mál- ■ flutningi Neytendasamtakanna þegar það sem talið er nauðsynlegt á einum stað er fordæmt á öðrum. Yfirklór prófessorsins Prófessorinn hefur haldið því fram að innflutningsbann á kartöfl- ur kosti neytendur 800 milljónir kr. á ári. Hann hefur gefið það í skyn til að auka áhrifamátt orða sinna að þessar 800 milljónir renni einvörðungu til kartöflubænda með því að slá því fram að hugsan- legt væri að greiða hverjum og einum hinna 100 kartöflubænda 8 milljónir í skaðabætur ef þeir hættu framleiðslu kartaflna. Sem ótvírætt dæmi um hver skilningur er lagður í málflutning þennan má nefna frétt í DV þann 16. mars þar sem það er fullyrt í framhaldi af viðtali við prófessorinn að HVER KART- ÖFLUBÓNDI FÁI 8 MILLJÓN- IR Á ÁRI. Fullyrðingunni er slegið upp, ekki einu sinni heldur tvisvar. í grein sinni þann 22. mars reynir prófessorinn að klóra yfir óþverr- ann með því að segja að auðvitað sé ekki verið að gefa 1 skyn að hver bóndi hagnist um 8-10 millj- ónir á ári, heldur hafi þessu einung- is verið slegið fram sem viðmiðun. Þetta er aumlegt yfirklór. Prófess- orinn hefur í reynd ráðist hat- rammlega á kartöflubændur með óvönduðum málflutningi sínum og slíkt yfirklór breytir ekki fyrri orðum. Þarf að flytja inn fleira en kartöflur? Það velur sér hver mótstöðu- mann eftir getu og smekk. Hag- fræðiprófessorinn hefur valið þann kostinn að nota þá bændur sem fást við kartöflurækt hérlendis sem dæmi um óráðsíu, óstjórn og sóun almannafjár í þjóðfélaginu. Hann tekur ræktun kartaflna hérlendis sem dæmi um óeðlilega sérhags- munahollustu sem standi t vegi fyrir eðlilegum efnahagsframför- um og haldi niðri h'fskjörum al- mennings. Hér er stungin tólg svo um munar. Það hefur verið sýnt fram á hér að framan að forsendur prófessors- ins standast ekki, hann sleppir að minnast á veigamikil atriði eins og t.d. söluskatt sem eru hverjum neytenda augljós og hefur ekki kynnt sér grundvallaratriði í þessu máli. Staðreyndir málsins eru því aðrar en látið hefur verið í veðri vaka. Því hefur ekki verið haldið fram að ekki megi finna ódýrari kartöflur erlendis en þær sem fram- leiddar eru hérlendis. Hins vegar er í hæsta máta eðlilegt að beita hliðstæðum verndaraðgerðum hérlendis gagnvart innlendri land- búnaðarframleiðslu og gert er í öllum nálægum löndum. Sérstaða okkar sem eyþjóðar gerir það að verkum að það væri mjög óeðlilegt ef stjórnvöld tryggðu ekki eftir megni tilvist þeirrar matvælafram- leiðslu sem möguleg er. Á það ber að minna að það er að mörgu leyti dýrt að vera íslendingur, þótt svo að kostir þess séu aftur á móti ótvíræðir. Hitt er svo alveg rétt hjá prófess- ornum að ekki er sama hvað vör- urnar kosta. En annaðhvort þekkir hann ekki betur til efnisatriða í því sem hann hefur hafið máls á eða hann kemur fram sem málpípa innflutningsaðila sem eru hags; munaaðilar í þessari umræðu. Hvorugur kosturinn er góður fyrir þann sem gegnir stöðu prófessors í hagfræði við Háskóla íslands. Til þeirra sem gegna slíku embætti eru gerðar meiri kröfur en annarra um fagleg vinnubrögð, óhlutdrægni og málefnalega umræðu, og því er tekið mikið eftir því sem þeir láta frá sér fara. Tilvitnanir prófessors- ins í pennastriksaðferðina marg- frægu eru svo kórónan á sköpunar- verkinu. í framhaldi af þessu öllu er rétt að velta fyrir sér hvort ekki væri þörf að flytja inn fleira en kartöfl- ur, fyrst þær eru taldar óvinur þjóðfélagsins nr. 1. Er ekki rétt að athuga með innflutning á hagfræði- prófessorum, sem gætu lagt alvöru innlegg í þjóðfélagsumræðuna. Ekki virðist af veita. Hagfræðingur sem vildi láta til sín taka þar sem um munaði mundi e.t.v. beina athygli almennings að einhverjum eftirtalinna atriða: Hvað um vaxtaokur bankanna á undanförnum árum í skjóli vaxta- frelsis? Hvað um þrefalt dreifingarkerfi olíufélaganna? Hvað um lífeyrissjóðina 150? Hvað um heildsalana sem eru fleiri en allir sjómenn á landinu? Hvað um ranga gengisskráningu sem var hagstæð innflutningsaðil- um og saug ásamt vaxtaokrinu allt blóð úr aðalatvinnuvegi þjóðarinn- ar, sjávarútvegnum? Hvað um offjárfestingu í verslun á höfuðborgarsvæðinu sem kallar á 80% hækkun álagningar á land- búnaðarvörur? Það er víða sem þarf að reikna. P.S. Þegarundirritaðurskrifaðist á við Þorvald Gylfason, hagfræði- prófessor við Háskóla íslands, á síðastliðnu sumri um landbúnað- armál, þá þakkaði ég honum sér- staklega fyrir málefnalega um- ræðu. Þau orð tek ég aftur.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.