Tíminn - 06.05.1989, Qupperneq 4

Tíminn - 06.05.1989, Qupperneq 4
HELGIN Laugardagur 6. maí 1989 r m* ' ' " * ' » mh* Fákur er eina hestamannafélagið sem rekið hefur skipulega veðmálastarfsemi kappreiðar. Mikið getur legið slíkum keppnumogeruþvíhrossinhvött óspart. Saga veðreiða nær aft- urtil landnámsaldar Kappreiðar eru og hafa lengi verið stundaðar á íslandi, en um nokkurt skeið hefur ekki tíðkast að veðjað væri við þær. Það var þó algengt áður fyrr og var meðal annars rekinn veðbanki við kappreiðar hestamannafé- lagsins Fáks um langt skeið. Væri þessi siður tekinn upp aftur er lítill vafi á að aðsókn að kappreiðum myndi aukast til muna. Þar gæti jafnvel verið komin lausn á fjárhagsvanda Reiðhallarinn- ar. Fjárhagsstaðan er sem kunnugt er heldur bágborin en tæki stjórnin við rekstri veðbanka mætti hafa upp úr því dágóða fjárhæð. Vitaskuld þyrfti að sækja um leyfi í hvert sinn til dómsmálaráðherra. En verkefnið er brýnt og ekki lítur út fyrir að önnur viðunandi lausn vandans sé í sjónmáli, og þaðan af síður að aðsókn hestamanna að höllinni og viðburða á hennar vegum aukist verði ekkert að gert. Þróun kappreiðar Kappreiðar hafa verið stundaðar frá örófi alda. Brynjólfur Sandholt héraðsdýralæknir hefur kynnt sér sögu þeirra erlendis. Er eftirfarandi fróðleikur sóttur í erindi sem hann flutti á þingi Landssambands hesta- manna fyrir tveimur árum. Meðal annars má finna lýsingar á kappreiðum á leirtöflum og papirus handritum frá því um 1500 f.Kr. Þær voru einnig mikilvægur hluti Ólymp- íuleika Grikkja til forna og af þeim lærðu Rómverjar listina. Vöggu kappreiða eins og þær eru í dag má finna í Bretlandi. Þar voru fyrstu kappreiðabrautirnar lagðar um miðja sextándu öld þegar Hinrik áttundi hóf innflutning Arabahesta til landsins. Þessi innflutningur hélt áfram næstu 100 til 150 árin og lagði grundvöllinn að ensku fullblóðs hestunum og möguleika á íblöndun með þarlendum stofni til myndunar hálfblóðsræktunar. Þarmeðsköpuð- ust brokkhestarnir, kerruhestarnir sem keppa á flestum veðhlaupa- brautum í dag. Á sautjándu öld varð þróunin sú að í stað keppni milli tveggja hesta, kepptu nú fleiri hestar saman í riðlum og sigurvegararnir úr hverj- unt riðli kepptu síðan til úrslita. Á þessum tíma var það einnig tekið upp að jafna þyngd knapa og þá var hægt að byrja val á undaneldishest- um eftir árangri. En þróun kappreiða hélt áfram. Járnskeifum var skipt út á móti skeifum úr áli sem eru léttari. Einnig breyttist áseta knapanna um síðustu aldamót þegar tekin var upp svoköll- uð amerísk áseta. Hún er reyndar upprunnin í Austurlöndum og þótti hálf kjánaleg til að byrja með, en vann sér smám saman sess. Fyrir breytinguna hafði hnakkurinn setið aftarlega á hestinum og knapinn sat uppréttur. Nýja ásetan krafðist þess að knapinn sæti samankrepptur með hnén upp undir brjósti og mjög stutt var haft í ístöðunum, þetta minnkaði loftmótstöðuna. Hnakkurinn var hafður framarlega, alveg fram á hálsi, en með því lagðist þunginn framar á hestinn, hann náði betri sveiflu með afturfótunum og þar með meiri stökklengd. Þegar veðhlaup hófust um miðja sextándu öld var keppt um silfur- bjöllur. En verðlaunin urðu sífellt veglegri og skipta í dag milljónum króna. Veðreiðar á íslandi frá ómunatíð Veðreiðar hafa verið stundaðar á íslandi frá því skömmu eftir landnám. Þeirra fyrstu er getið í Landnámu þar sem áttust við leys- ingi að nafni Þórir dúfunef og lands- hornantaðurinn Örn. Þórir var leysingi Öxna-Þóris Gletta og Sigurður í einni keppni af mörgum á glæstum ferli beggja. bróður Naddarodds, forföðurs Halls í Haukadal, fóstra Ara fróða. Hross- ið sem hann keppti á, hafði við komuna hingað stokkið á land og horfið. Þórður keypti vonina í mer- inni og var það allt annað en köttur- inn í sekknum því Fluga reyndist slá öllum gæðingum við. Ekki segir mikið um Örn í sögunni annað en það að hann hafi verið fjölkunnugur, fégráðugur og færi landshorna á milli. Það vakti þó athygli manna að hann vissi deili á hverjum hesti sem á annað borð bjó yfir nokkrum kostum. Þekkti ættir þeirra, að svo miklu leyti sem þær urðu raktar, vissi hverjir hefðu tamið þá og hverja meðferð þeir hefðu hlotið. Hann átti annan besta gæðing landsins, gráan hest að nafni Sinir. Þessir tveir menn mættust uni sumar á Kili. Þórður vafalítið að ríða til alþingis í för með nokkuð fjölmennum hópi manna og hrossa, Örn á flakki, einn með hrossum sínum. Höfðingjunum sem í förinni voru hefur vafalítið sviðið að þvílík gæða- hross væru í eigu annars vegar leysingja og hins vegar landshorna-

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.