Tíminn - 06.05.1989, Qupperneq 7

Tíminn - 06.05.1989, Qupperneq 7
f ' Laugardagur 6. maí 1989 Ein af ástæðum fyrir því að það er ekki almennur áhugi fyrir stjórnmál- um er hvernig þau eru borin fram. Það þekkist ekki hlutlaus kynning eða fræðsla á hugsjónuni eða stefnu flokkanna. Þó er hvergi meiri þörf á slíku en i landi, sem er stöðugt að taka við nýjum innflytjendum. Mað- ur sér lítið sem ekkert um það í blöðum en fer kunnski á mis við eitthvað í útvarpi. Mér er þó sagt að lítið sé um slíkt. Hver otar sínum tota. Sá málflutningur sem mest ber á er einskonar heilaþvottaaðferð. En nú á víst að gera eitthvað í málunum því einverjir vöknuðu upp til þess að unga fólkið sent stjórn- málamenn eiga að fá atkvæði frá í næstu kosningum vita ekki hvað snýr upp eða niður í stjórnmálum landsins og suntir vissu ekki einu sinni að til væri hlutur sem héti stjórnarskrá. Hcilaþvottaaðferðin, eða tilraun til heilaþvotta kom best í ljós þegar efnt var til þjóðaratkvæðagreiðslu um það hvort ætti að breyta tiltekn- um atriðum í stjórnarskránni eða ekki. Engin tilraun var gerð til að útskýra á skiljanlegu máli þau atriði sem breyta ætti og hvað breytingin myndi þýða í verki fyrir hagsmuni fólks. Nei, heldur var hamast á fólki og því sagt að segja ýmist já eða nei vegna þessa eða hins. Ekki var það til að bæta ástandið eða gera hluti skiljanlegri að 32 breytingum var komið fyrir í fjórum spurningum. Það gerði málið enn flóknara svo fæstir reyndu að skilja heldur sögðu flestir nei og stjórnmálamenn hristu höfuðin. Segja má að það lýsi ýmsu í viðhorfum þjóðarinnar að frétta- menn og starfsmenn sjónvarps og útvarpsstöðva hafa yfirleitt mun hærri laun en stjórnamálamenn. Það þykir sem sagt merkilegra starf að vinna við fjölmiðla og brosa framan í þjóðina, en stjórna landinu. Fréttamenn brosa framan í þjóðina og tala kannski um þrjótana sem síðan koma á skjáinn með ábyrgðar- svip til að segja hvað staða þjóðar- búsins sé slæm. Eða til að segja að Nóg er um verslanir í Ástralíu en aðeins fáir útvaldir geta þó notið mestu dýrðarinnar af því sem á boðstólum er. börn eigi ekki að líða fátækt eða eitthváð annað hugnæmt. Hinsvegar er oft löng bið eftir efndum á svo hugnæmum loforðum. Á þessu ári 1989 er verið að reka áróður fyrir að innflytjendur gerist ríkisborgarar en í Ástralíu hafa milljón manns látið undir höfuð leggjast að gerast ríkisborgarar, og þar af leiðandi ekki kosið. Sumir hafa jafnvel búið hér í fjörutíu til fimmtíu ár og haldið í ríkisborgara- rétt föðurlandsins. Nokkrir tugir þúsunda innflytjenda hafa þó nú þegar orðið við þessari áskorun og gerst ríkisborgarar við hátíðlega athöfn. Athöfnin við af öðlast ástr- alskan ríkisborgararétt er mjög formleg og fólk játar undirgcfni sína við lög og reglur Ástralíu og veldi Elísabetar Englandsdrottningar. Það atriði eitt út af fyrir sig að j áta hollustu við drottningu er ntörgum þyrnir í augurn gagnvart því að gerast ríkisborgarar. Stundum hefur j verið reynt að breyta textanum en íhaldsmenn og konungssinnar hafa : risið gegn því og því er þessi rulla enn við lýði. Þessi fjöldi á vafalaust eftir að hafa sín áhrif á næstu kosningar en hlutlaus fræðsla unt stjórnmál er lítil j scnt engin. Ég hef aldrei séð stjórnmálaum- | ræðu í sjónvarpi á þeim jafnréttis- grundvelli sem oft hefur tíðkast í Islandi. Er ekki viss um að stjórn- málamenn né fréttamenn kunni með það að fara. Mest ber á einskonar áróðursherferð frá hverjum l'lokki fyrir sig án góðra eða hlutlausra málefnalegra útskýringa. Enda eru þetta frekar auglýsingatímar þar sem stjórnmálaflokkar þurfa að greiða hverja mínútu dýru verði eins og auglýsingar en fá ekkert frítt nema þessar fáu mínútur í fréttatímum. Þó málflutningur varðandi stjórnmál sé oft vitlaus á íslandi á hann það þó til að vera mun mcnningarlegri og málefnalegri en hér. Það að stjórnmálamenn allra flokka gætu setið í bróðerni í sjón- varpssal kvöldið fyrir kosningar, drukkið kaffi og rætt málin vítt og breitt, er óþekkt fyrirbæri hér. Það er svo ótrúlega margt sem maður sér og finnur að er ólíkt í þessum tveim löndum og stundum er erfitt að festa hendur á mismunin- um til að útskýra hann. Mynstrið í því hvernig fólk hugsar er oft cins og ég orða það á hvolfi miðað við ísiendinga. Enda er önnur þjóðin á hvolfi á móti hinni. Kannski það hafi áhrif hvað varð- ar hugsanaferil fólks í hvaða afstöðu til stjarnanna heilinn snýr. Matthildur Björnsdóttir Greiðsluseðlar fyrir 1. maí hafa verið sendir gjaldendum og greiðslur má inna af hendi í öllum bönkum og sparisjóðum landsins. Sparaðu þér óþarfa útgjöld af dráttarvöxtum. 16. maí leggjast dráttarvextir á lán með lánskjaravisitölu. 1. júní leggjast dráttárvextír á lán með byggingarvísítölu. ÞÚ SKIPULEGGUR reksturinn á þínu heimili Þegar kemur að afborgunum lána er það í þínum höndum að borga á réttum tíma. mai var gjalddagí húsnæðíslána. Þar með sparar þú óþarfa útgjöld vegna dráttarvaxta, svo ekkí sé mínnst á innheímtukostnað. HELGIN * 17 r * ‘ LEITAÐU AÐSTOÐAR FAGMANNA Áður en þú tekur ákvörðun um húsbyggingu eða íbúðar- kaup, hvetjum við þig til að not- færa þér þjónustu fasteigna- sala, hönnuða og annarra sem þekkingu hafa, við að áætla greiðslubyrðina eins nákvæm- lega og unnt er. GREIÐSLUBYRÐI OG GREIÐSLUGETA Greiðslubyrðina skaltu bera saman við greiðslugetu þína og láta þann samanburð hafa áhrif á hvaða ákvarðanir þú tekur. SKYLDUR OG ÁBYRGÐ FASTEIGNASALA Samkvæmt lögum um skyldur og ábyrgð fasteigna- sala, ber þeim að gera íbúðar- kaupendum grein fyrir áhvílandi lánum sem kaupendur taka við, vöxtum af þeim, hvort lán séu verðtryggð, hvenær greiðslum eigi að vera lokið og hverjar eftirstöðvar eru að viðbættum verðbótum. NÁKVÆM KOSTNAÐAR- ÁÆTLUN HÖNNUÐAR Ætlir þú að byggja, er heppi- legt að fá hönnuð íbúðarhús- næðis til að gera nákvæma kostnaðaráætlun. Láttu fagmenn aðstoða þig við að áætla greiðslubyrði vegna húsbyggingar eða íbúðarkaupa. Þannig eru góðar líkur á að þú komist hjá skakkaföllum. HAFÐU ÞITT Á HREINU

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.