Tíminn - 06.05.1989, Blaðsíða 11

Tíminn - 06.05.1989, Blaðsíða 11
laugardagur 6. maí 1989 HELGIN I 21 SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁLSAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL SAKAMÁL halda rannsókninni áfram í Findlay. Farið var með málmleitartæki yfir svæðið í grennd við skógarhúsið til að freista þess að finna skothylkin. Ekki þurfti lengi að leita við bílastæðið uns tvö skothylki úr 25 hlaupvíddar, sjálfvirkri skammbyssu komu í leitirnar. Þá var ljóst að morðið hafði verið framið þar og lögsaga málsins var send aftur til Findlay- og Alleghenylögreglunnar. Þegar búið var að ræða frekar við fjölskyldumeðlimi, fóru lögreglu- menn að taka saman drög aðskýrslu. Síðan var ákveðið að hvílast loks og byrja aftur að morgni. Af krufningarskýrslunni mátti ráða að konan hafði verið barin með hafnaboltaprikinu, reynt hafði verið að skera hana á háls með vinkiljárn- inu og síðan hafði henni verið stung- ið í bílskottið. Nokkru síðar hafði hún svo verið skotin í höfuðið. Áverkarnir eftir barsmíðina voru einkum á efri hluta líkamans og engin merki voru á höndum konunn- ar um að hún hefði tekið á móti. Allir voru samála um að morðinginn hefði verið æfareiður við verknað- inn. Grunur um leigumorð Faðir Freds Mayhue sagði að sonur sinn hefði komið til sín á mánudagskvöld og gert að dádýri en farið um hálftíuleytið og þá líklega heim. Af öllu samanlögðu sem komið var fram, var Fred Mayhue efstur á lista grunaðra og raunar einn á listanum að svo stöddu. Ekki myndi þó verða auðvelt að sanna það en það fyrsta yrði að hrekja fjarvistar- sönnun hans. Harlene fór frá heimili dóttur sinnar milli 22.30 og 23.30 og heim til hennar var 15 til 20 mínútna akstur. Samkvæmt framburði Freds hefði hann þá átt að vera einn heima hjá sér. Ef enginn hefði séð hann annars staðar yrði erfitt að hrekja það. Þá var tekið til við að kanna vini og kunningja bæði Freds og Har- lene. Fram kom að Harlene var hæglát kona og hafði mestan áhuga á fjölskyldu sinni, fyrirtækinu og hestum. Allir vissu um slæmt sam- komulag hjónanna fyrrverandi og töldu að Fred væri líklegasti morð- inginn. Fred átti marga kunningja og vini og þeir voru sammála um að hann væri með skilnaðinn og búskiptin á heilanum og hugsaði varla um annað en hvemig hann tapaði sem minnstu. Hann var sagður rólegheitamaður, þar til nafn Harlene var nefnt, þá umturnaðist hann. Sumir vina hans gengu svo langt að segja lögreglunni að þeir yrðu ekki hissa þó Fred hefði átt þátt í dauða Harlene þó óvíst væri að hann hefði framið morðið með eigin hendi. Einn úr fjölskyldunni kvaðst telja að Fred ætti hafnaboltaprik sömu gerðar og það í bílnum, en ekki varð sannað að þetta væri það prik. Vinkiljámið í bílnum reyndist hins vegar vera af gluggasyllunni svo ekki varð um villst og blóðið í heimreið- inni var úr fórnarlambinu. Meðan þessu fór fram taldist Fred auðvitað saklaus og hann hélt áfram að reka AMAYCO eins og ekkert hefði í skorist. Það fyrsta sem teljast mátti árang- ur í rannsókninni kom fram á fjórða degi eftir morðið. t»á var hringt til lögreglunnar frá lögreglu í ná- grannabæ Beavers, Rochester og sagt að þar væri lögreglumaður að nafni Jimmy Hardin, sem kvartaði yfir að Fred Mayhue notaði sig sem fjarvistarsönnun fyrir morðkvöldið. Menn voru sendir á staðinn en á meðan var haldið áfram að kanna atvik sem dóttir hinnar myrtu hafði skýrt frá. Harlene Mayhue hafði kvartað yfir því haustið 1985 að þjófur hefði komið á heimili hennar. Hún hringdi til lögreglunnar vegna ungs manns sem bað um að fá að hringja af því bíllinn hans hefði bilað. Hún neitaði honum um það og lokaði dyrunum, en hringdi síðan strax. Lögreglumaður kom þegar á vettvang og hitti fyrir tvo unga menn í heimreiðinni, við gamlan fólksbíl. Við rannsókn fannst poki með tveimur skíðahettum í aftursætinu og lítil skammbyssa undir framsæt- inu. Mennirnir voru handteknir. Annar þeirra sagði við yfirheyrslur að sér hefði verið sagt að fara í þetta hús til að sækja ákveðna hluti sem væru þýfi. Hinn maðurinn hefði bara átt að koma með sér. Báðir mennirnir voru frá Alleghenysýslu. Ýmsir segja sögur Lögreglumaðurinn Jimmy Hardin kvaðst hafa verið heima hjá sér að horfa á sjónvarp að kvöldi 15. des- ember og þá hefði Fred Mayhue hringt og sagt að sig vantaði bílfar, því bíllinn sinn væri bilaður. Hardin sótti Fred á tiltekið bílastæði og þá sagðist hann vera að koma frá því að gera að veiðidýri fyrir föður sinn. Hardin sagðist hafa ekið heim til Freds og þeir hefðu horft á knatt- spyrnu fram undir klukkan eitt. Áðspurður að lokum hvort hann héldi að Fred hefði myrt Harlene, svaraði Hardin: - Hafi hann gert það, skal hann stikna í víti fyrir að nota mig sem fjarvistarsönnun. Nú kom upp sú spurning hvort Hardin væri nógu mikill vinur Fred til að ljúga fyrir hann. Eða var Fred kannski að reyna að halda nafni Hardins frá rannsókninni til að skaða hann ekki? Þriðja spurningin skaut líka upp kollinum og þótti einna líklegust: Átti Harding þátt í dauða Harlene ásamt Fred? Daginn eftir voru yfirheyrðir fé- lagarnir tveir sem handteknir voru við hús Harlene 1985. Lögreglunni fannst ekki komin nógu góð skýring á hvers vegna þeir höfðu komið á staðinn. Annar þeirra sagði að sér hefðu verið boðnir peningar til að fara þangað og sækja tiltekna hluti sem hefði verið stolið og þá mætti selja fyrir góðan pening. Þá gerðist það að kvöldi 21. des- ember að John Campbell hjá lög- reglunni í Findlay fékk síðbúna heimsókn. Þar var á ferð annar ungu mannanna sem fundu líkið í bílnum. Eftir stutta stund fór Campbell með hann á stöðina til Wilks til að endurtaka sögu sína. Ungi maðurinn kvaðst hafa þekkt Fred Mayhue síðan 1978. í júlí 1980 hefði Fred komið til sín og beðið sig að selja fyrir hann allmikið magn af kókaíni. Hann gerði það og fékk 1600 dollara fyrir, en áður en hann gat skilað Fred peningunum, var þeim stolið af heimili hans. Hann kvaðst varla hafa þorað að segja Fred það, en þegar hann herti upp hugann, tók Fred því vel og sagði að hann ætti þá inni hjá honum greiða í staðinn. Tíminn leið og Fred minntist öðru hvoru á greiðann sem hann ætti inni. Eitt sinn spurði Fred hvort hægt væri að brenna bíl eða ganga þannig frá honum að hann þekktist ekki eða fyndist aldrei. Pilturinn kvaðst hafa svarað því til að það ætti að vera vandalaust í grennd við hús móður sinnar, þar væru gjár og djúpir pyttir víða í landslaginu. - Vertu ekki hissa þó þú finnir einhverntíma bíl f heimreiðinni hjá þér. Þegar þar að kemur áttu að losa þig við hann að fullu og öllu. Piltur- inn kvaðst skilja en spurði ekki frekar um það. I júlí 1981 hafði Fred svo nefnt það við hann að hann ætti í vandræð- um með konuna sína. Harlene og aðstoðarmenn hennar ætlu að ræna af honum fyrirtækinu. Hann vildi vita hvort pilturinn vissi um einhvern Þessi bíll átti að „hverfa“ og með honum það sem í skottinu var, lík hinnar fímmtugu Harlene Mayhue, sem sést á innfelldu myndinni. sem vildi taka að sér að „leika svolítið á“ lögfræðingi og bókhald- ara Harlene. Pilturinn kvaðst engu ákveðnu hafa svarað. Leigumorðinginn guggnaði Sama haust fór Fred aftur að tala um að losa sig við bíl og pilturinn þóttist viss um að einhvers konar tryggingasvik væru tilgangurinn. í þetta sinn bætti Fred þó nokkru við: - Þegar bíllinn kemur, verður lík í honum. Eftir það skuldarðu mér ekkert lengur. Skömmu síðar fluttist pilturinn burt og gleymdi þessu en þegar hann kom heim í jólaleyfi og sá bílinn standa utan við húsið, vissi hann áður en hann gáði, að einhver væri í skottinu. Payne og Campbell vildu vita því hann hefði ekki sagt frá þessu strax. Hann sagðist aldrei hefði getað gert það sem Fred bað hann og hefði talið sig lausan allra mála með því að tilkynna lögreglunni um bílinn. Hann kæmi núna vegna þess að fyrr um kvöldið hefði Fred hringt til sín og sagt sem svo: - Við verðum að tala saman. Pilturinn kvaðst viss um að Fred ætlaði að drepa sig. Þegar í stað var fengin heimild til að rannsaka íbúð Freds Mayhue og skrifstofur. Klukkan hálftíu að morgni var Fred síðan handtekinn þar sem hann sat við skrifborð í skrifstofunni á heimili Harlene. Efsta skúffan var opin og þar blasti við stór skammbyssa. Þegar búið var að úrskurða Fred í gæsluvarðhald var tekið til við að kanna Jimmy Hardin nánar. Hann var 33 ára, stórvaxinn og þéttur á velli og starfaði hjá bæjaryfirvöldum Rochester. Hluti af störfum hans var að líta eftir starfsemi lögreglunnar þar og stöku sinnum brá hann sér í búning og lék lögreglumann. Vitað var að ekki yrði auðvelt að tengja hann morðinu á Harlene Mayhue. Næsta uppljóstrun í málinu kom frá fanga sem sat inni vegna fíkni- efnamisferlis. Hann hét Larry Doyle og kvaðst hafa kynnst Fred þegar þeir sátu báðir inni 1984. Sök Freds var fjárdráttur og skattsvik í sam- bandi við skilnaðarmálið. Doyle sagði að Fred hefði spurt sig hvort hann yrði fáanlegur til að fremja morð ef hann fengi nógu vel greitt fyrir það. Doyle kvaðst ekki með öllu áhugalaus og Fred sagði að þegar þeir losnuðu, skyldu þeir ganga frá málinu. Þegar þar að kom, sagði Fred að hann vildi láta myrða Harlene Mayhue. Doyle féllst á að hitta hann og Fred ók honum að heimili Har- lene til að kynna honum aðstæður. Morðið ætti að líta út sem rán eða slys. Hann sagði konuna oftast eina heima. Fred lagði áherslu á að allt yrði að líta út sem annað en morð að yfirlögðu ráði. Doyle tilkynnti Fred nokkru síðar að hann hefði reynt en hefði villst í skóginum að baki húsinu. Þá fór Fred með hann í skóginn og merkti leiðina með appelsínugulum strimlum, sem hann negldi á nokkur tré. Lögreglan fór á staðinn og fann reyndar nokkra slíka strimla. Doyle bætti því við að Fred hefði nteira að segja látið sig hafa lykla að garðhús- inu ef veður væri slæmt. Lögreglan reyndi lyklana scm gengu vissulega að garðhúsinu. Grunsamlegur lögreglumaður Enn einbeitti lögreglan sér að Jimmy Hardin og greinilega hefur hann fundið það á sér því ýmsar sögur fóru að heyrast af furðulegri hegðan hans. Hann æddi um eins og dýr í búri og segði öllum sem nenntu að hlusta að hann þekkti Fred ekki svo vel og einhver væri greinilega að reyna að skella skuld á sig. Einn kunningi hans sagðist sann- færður um að aðstoðarmaður Hard- ins vissi meira um málið en hann segði lögreglunni og þá var fengið leyfi til að hlera síma viðkomandi. Þar fengust meiri upplýsingar og meðan lögreglan var að vega þær og meta, hringdi aðstoðarmaður Hard- ings og sagðist þurfa að létta af sér byrði. Hann kvaðst hafa mætt Jimmy Hardin um kl. 23.15 að kvöldi 15. desember í sömu götu og Harlene Mayhue bjó. Hardin var á gráum fólksvagni og var á afar hægri ferð úti í brún götunnar sem lá beint til móts við hús Harlene. Maðurinn kvaðst hafa ekið upp að hlið bílsins og séð Hardin við stýrið. Þegar Hardin varð hans var, renndi hann niður rúðunni, benti á hús Harlene og sagði: - Fred er þarna. Nú gerist það. Maðurinn kvaðst þegar í stað hafa vitað við hvað hinn átti, því flestir sem þekktu Fred vissu að hann hafði ótal sinnum reynt sjálfur eða leigt aðra til að koma konu sinni fyrir kattarnef. Vitnið sagðist hafa farið heim til sín og í bað. Skömmu síðar hringdi dyrabjallan og þar var Hardin kom- inn til að biðja um plastpoka og vatn. - Fred sló hana í kássu, sagði hann. Vitnið kvaðst hafa látið Hard- in fá það sem hann bað um og þegar hann var í þann veginn að loka dyrunum, sneri Hardin sér við og sagði gleiðbrosandi. — Það fer um hana eins og Jimmy Hoffa. Hann fannst aldrei. Vitnið hafði sitthvað fleira að segja sem kom á betra samhengi í málinu öllu og þegar búið var að leggja allt saman, var farið að undir- búa aðra handtökuna í þessu máli. Klukkan sjö að morgni, eftir heila nótt við pappírsvinnu, hringdu lög- reglumenn dyrabjöllu Hardinfjöl- skyldunnar í Rochester. Meðan kona Hardins stóð í stiganum upp í svefnherbergin, var Jimmy Hardin lesinn réttur hans og tilkynnt að hann væri handtekinn fyrir morð. Lögreglumönnum var næstum skemmt yfir viðbrögðum hans, en hann spurði að bragði: - Hvort morðið er það? Áðurnefnt vitni, fyrrum aðstoðar- maður Hardins hélt áfram að upp- lýsa lögregluna, þó hann viður- kenndi að vera hræddur um líf sitt fyrir vikið. Hann sagði m.a. að Hardin hefði grafið eitthvað á til- teknum stað á uppfyllingarsvæði þar sem leggja átti nýjan veg. Þegar farið var að grafa, varð holan hvorki meira né minna en 9 metra djúp, áður en komið var niður á lík byggingameistarans sem byggt hafði hús Hardins og kært hann síðan fyrir vanefndir á greiðslum. Mannsins hafði verið leitað mánuðum saman. Sögur taka að breytast Þó Fred og Hardin væri báðir undir lás og slá voru þeir aldeilis ekki aðgerðarlausir. Þær fréttir bár- ust úr fangelsinu að þeir auglýstu þar hástöfum eftir einhverjum sem fáan- legur væri til að þagga endanlega niður í aðalvitnum lögreglunnar. Nú var aftur rætt við annan unga mann- inn sem handtekinn var úti fyrir heimili Harlene 1985 og aldrei hafði sagt söguna með nokkru rökréttu samhengi. Honum var sagt frá hegð- an sökudólganna í fangelsinu og þá ákvað hann að breyta framburði sínum. Þá sagði hann frá því að árið 1985 hefði einn af fyrrum yfirmönnum hans spurt hann hreint út hvort hann gæti tekið að sér að drepa konu í Beaversýslu og fengi hann jafnvirði hálfrar ntilljónar króna fyrir vikið frá eiginmanninum. Ástæðan væri erfitt skilnaðarmál og miklir pening- ar væru í húfi sem líklegt væri að konan lengi með þessu áframhaldi. Vitnið sagði að yfirmaðurinn hefði síðan ekið með sig á staðinn, sem var heintili Harlene til að skoða aðstæður. í annari slíkri ferð skömmu síðar hefði hann síðan fengi lykla að húsinu. Morðið átti að líta út sem rán eða slys. Á heimleið úr seinni ferðinni hefði hann fengið afhenta skammbyssu í tuskuog verið sagt að ekki væri hægt að rekja hana. Maðurinn kvaðst hafa farið nokkrum sinnum að húsinu í þeim tilgangi að vinna verkið og einu sinni hefði hann reynt lyklana en þeir gengu ekki að dyrunum. í síðasta skiptið guggnaði hann. Þá hitti hann konuna fyrir og gerði sér ljóst að hann gæti aldrei framið morð. Þar sem hann sat skjálfandi í bílnum í heimreiðinni, kom lögreglan og handtókhann. Hannsagði aðfyrrum yfirmaður sinn héti Gerry McCarthy. Byssan hafði verið tekin við hand- tökuna og rakin til manns í Ohio. Þegar lögreglan yfirheyrði hann á sínum tíma, kvaðst hann hafa selt vopnið manni í Pittsburg. Sá maður hét einmitt McCarthy. Þann 24. mars 1986 var McCarthy fíessi handtekinn. Hann var bar- þjónn en ók um á glæsibifreið sem kosta myndi árslaun hans að öllu jöfnu. Hann var ákærður fyrir brot á vopnalögum og vitneskju um morðsamsæri og stungið inn með hinum tveimur. Öll vitni málsins voru uggandi um líf sitt. Sá ótti virtist á rökum reistur því snemma vors 1987 hafði fyrrum fangi samband við lögregluna og sagðist hafa gert samning við Hardin og Fred um að drepa þrjár mann- eskjur. Nú var tekið til við að hlera síma hér og þar og upp úr dúrnum kom, að Hardin og Fred höfðu verið iðnir við kolann og farið þess á leit við allmarga að þeir tækju að sér að útrýma vitnum í málinu gegn þeim. Dauðadómur Með sumri 1987 hófst undirbún- ingur réttarhaldanna og það var ekki lítið verk, þar sem málin voru bæði flókin og fjölbreytt. Gerry McCarthy var fyrstur tekinn fyrir, í október 1987 og hann var sekur fundinn um allar ákærur. Þegar þetta er skrifað, hefur dómur ekki verið kveðinn upp yfir honum. Þann 26. nóvember 1987 úrskurð- aði kviðdómur Jimmy Hardin sekan um aðild að morði Harlene Mayhue og hann fékk lífstíðarfangelsi. Þann 1. desember kom síðan Fred Mayhue fyrir réttinn, sakaður um að hafa myrt konu sína. Réttarhöldin tóku sex vikur og þótti skipulag og undirbúningur slíkt þrekvirki að orð var á haft, því jafn flókið mál hafði ekki verið tekið fyrir hjá embætti Alleghenylögreglunnar áður. Þann 7. janúar 1988 var kveðinn upp dauðadómur yfir Fred Mayhue. Hann skyldi tekinn af lífi í raf- magnsstólnum. Dauðadómar áfrýj- ast sjálfkrafa og þegar þetta er skrifað bíður Fred niðurstöðu áfrýj- unarinnar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.