Tíminn - 27.05.1989, Page 4
Laugardagiw-,27. jnaí .1389,
LEIKFONG
Mesta leikfangarýmingarsala
allra tíma.
Verslunin hættir hér
Masters karlai og fylgihlutir
á innkaupsverði.
Dæmi: Áður Nú
Karlar 590-715,- 390,-
Tæki 565,- 300,-
Hallir 4.800,- 2.990,-
Könguló 3.150,- 1.990,-
Barbievörur Áður Nú
Dúkkur 1.180,- 780,-
Skenkur 1.095,- 500,-
Snyrtiborð 1.575,- 800,-
Borðstofuborð 1.455,- 700,-
Dagmömmur
Barnaheimili
Einkaheimili
Notið tækifærið fyrir
afmæli og jafnvel jólin
10% - 20% - 50% -
70% ofsláttur
Allt á að seljast
Sendum í póstkröfu
LEIKFAIMGAHÚSIÐ,
Skólavörðustíg 10, Reykjavík, sími 14806
FJÖLBRAUTASKáliNN
BREIOHOUI
Bankarisinn yrði
öflugast hlutafé-
laga að eigin fé
Ef bankarnir sem kenndir eru við iðnað, verslun og aiþýðu
sameinast um kaup á Útvegsbanka íslands hf. og ganga til
sameiningar í framhaldi af þeim kaupum, er líklegt að með
því myndaðist eitt af sex til sjö stærstu fyrirtækjum Iandsins.
Yið útreikninga tímaritsins Frjálsrar verslunar á 100 stærstu
fyrirtækjum Iandsins árið 1987, kemur í ljós að þessir fjórir
hlutafélagsbankar skiluðu samanlögðum hagnaði er nam 445
milljónum króna og gerðu aðeins þrjú fyrirtæki landsins
betur, ÁTYR, íslenskir aðalverktakar sf. og Eimskipafélag
íslands hf.
Ef bomar eru saman tölur um
veltu allra fyrirtækja í landinu kemur
samanlögð velta bankanna fjögurra
næst á eftir Sölusamtökum ísl. fisk-
framleiðenda (SÍF) og lendir í sjötta
sæti yfir öflugustu fyrirtæki landsins.
Árið 1987 var Samband íslenskra
samvinnufélaga stærsta fyrirtækið,
en á eftir því komu fyrirtækin Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna (SH),
Landsbanki íslands, Flugleiðir og
SÍF.
Miðað við eigið fé fyrirtækja voru
átta fyrirtæki stærri en samanlagt
eigið fé bankanna fjögurra. Það
voru Landsvirkjun, Rafmagnsveita
Reykjavíkur, Hitaveita Reykjavík-
ur, Póstur og sími, Rafmagnsveitur
ríkisins, Landsbanki íslands, Sam-
band íslenskra samvinnufélaga og
íslenskir aðalverktakar. Ekkert
þessara fyrirtækja er hlutafélag og
bendir samanlagt eigið fé bankanna
fjögurra tii þess að sá aðili hefði
talist öflugasta hlutafélag landsins.
Eigið fé 3,3 milljarðar
Miðað við nýjar tölur frá Banka-
eftirlitinu og peningadeild Seðla-
banka íslands, kemur í ljós að
samanlagt eigið fé bankanna fjög-
urra, Útvegs-, Iðnaðar-, Verslunar-
og Alþýðubanka á síðasta ári nam
3,3 milljörðum króna. Til saman-
burðar má geta þess að eigið fé
Landsbankans er aðeins tæpum
milljarði meira, eða 4,2 milljarðar
króna. Búnaðarbankinn verður
smár í samanburði þessara risabanka
en eigið fé hans var á síðasta ári
„aðeins" 1,7 milljarður króna, eða
nær helmingi minna en í þessu
sameinaða einkabankadæmi.
Ef miðað er við tölur Seðlabank-
ans í marslok 1989 um innlent ráð-
stöfunarfé bankastofnana, kemur í
ljós að samanlagt innlent ráðstöfun-
arfé (innlán og útgefin banka- og
veðdeildarbréf) nemur 28,2 millj-
örðum króna. Landsbankinn gerir
ekki mikið meira en að hafa betur,
en þar nam þessi upphæð 31,7 millj-
örðum króna. Innlent ráðstöfunarfé
Búnaðarbankans nam í marslok sl.
17,6 milljörðum króna og Samvinnu-
bankinn, sem enn er stærri en bæði
Verslunarbankinn og Alþýðubank-
inn, er með um 6,6 milljarða króna
innlent ráðstöfunarfé. Til saman-
burðar má geta þess að aðeins fjórir
sparisjóðir, af 35 í landinu, eru með
yfir milljarð króna innlent ráðstöf-
unarfé. Samvinnubankinn er því
fimmta til sjötta stærsta bankastofn-
un Iandsins ennþá, en ekki minnsti
bankinn eins og missagt var í Tíman-
um í gær.
„Einkabankinn hf.“
Verði af sameiningunni er alls
ekki gefið að bankarnir fjórir haldi
stöðu sinni hvað varðar innlent ráð-
stöfunarfé, veltu eða hagnað, og ber
því að taka slíkum samanburði með
eðlilegum fyrirvara. Hins vegar er
algengt að bera saman eigið fé
fyrirtækja og því skal helst við það
miðað, þótt það sé heldur ekki
einhlít viðmiðun. Þetta eru þó einu
tölurnar sem hægt er að henda
reiður á ennþá og verður að bíða og
sjá hvort af sameiningu verður og þá
hvernig bankarnir standa sig við að
halda samanlagðri stöðu sinni. Að
hinu hnígur þó án efa að „minni“
fyrirtæki að veltu til (árið 1987), eins
og ÁTVR, KEA, ISAL, Póstur og
sími, Eimskip, Olíufélagið, Hag-
kaup, Búnaðarbankinn, Landsvirkj-
un, SS, Skeljungur, Mjólkursamsal-
an og ísl. aðalverktakar, munu þok-
ast niður á listanum yfir öflugustu
fyrirtæki landsins ef róttæk samein-
ing af þessu tagi verður og bankaris-
inn í einkageiranum lítur dagsins
ljós, öðru nafni „Einkabankinn hf.“
eins og farið er að nefna hann á
meðal vina. KB
Bakalova yfirlæknir hugar að sjúkl-
ingi.
Fulltrúar lækningamiöstöðvanna og sumardvalarstaða í Búlgaríu kynna
íslendingum starfsemi sína:
Frá fjölbrautaskólan-
um í Breiðholti-
Þeir nemendur skólans, sem hyggjast taka próf í
einhverjum áföngum í ágústmánuði, verðaaðskrá
sig á skrifstofu skólans eða í síma 75600 í síðasta
lagi 31. maí.
Einkunnir í dagskóla verða afhentar og val fyrir
haustönn 1989 staðfest fimmtudaginn 8. júní kl.
13.00. Þeir nemendur dagskóla, sem ekki komast
á þessum tíma, verða að senda einhvern fyrir sig
eða hafa samband við skrifstofu skólans. Vakin er
athygli á því að ekki verða gerðar stundatöflur fyrir
aðra en þá sem staðfesta.
Einkunnir í kvöldskóla verða afhentar fimmtudag-
inn 8. júní kl. 18.00.
Skólaslit verða laugardaginn 10. júní kl. 10.30 í
Fella- og Hólakirkju.
Kynningarfundir
víða um land
Mikil umræða hefur farið fram í
fjölmiðlum að undanförnu um ár-
angursríkar og ódýrar lækningar i
Búlgaríu. Hingað til lands eru nú
komnir fulltrúar frá Búlgaríu, í boði
ferðaskrifstofunnar Ferðavals, til að
kynna starfsemi lækningamiðstöðv-
anna og sumardvalarstaðanna í
Sandanski og Elenite, þau Totev,
forstjóri lækningamiðstöðvanna í
Sandanski, Bakalova, yfirlæknir og
Damov, framkvæmdastjóri Balkan
Holidays í Kaupmannahöfn.
f tengslum við heimsókn þre-
menninganna verða haldnir kynn-
ingar- og fræðslufundir á Akureyri,
Totov, forstjóri lækningamiðstöðv-
anna í Sandanski.
Egilsstöðum, Selfossi, Vestmanna-
eyjum og í Reykjavík.
Ferðaskrifstofan Ferðaval hefur á
undanförnum árum skipulagt og
annast hópferðir til Elenite og Sand-
apski og þeim íslendingum fjölgar
stöðugt sem fara til Búlgaríu sér til
heilsubótar og lækninga, með góð-
um árangri, við ólíklegustu kvillum
eins og t.d. asma og öðrum öndunar-
sjúkdómum, hrörnunarsjúkdómum,
psoriasis, gigt, liða-, beina- og tauga-
kvillum, til megrunar og líkamsrækt-
ar og til tannlækninga. Allar upplýs-
ingar um þessar ferðir verða gefnar
á fundunum og á skrifstofu Ferða-
vals í Reykjavík.