Tíminn - 27.05.1989, Blaðsíða 14
26 Tíminn
Laugardagur 27. maí 1989
Útboð
Byggingarnefnd flugstöðvar á Keflavíkurflugvelli býð-
ur, út gerð langtímabílastæða og lóðarfrágang við
Flugstöð Leifs Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli. Um
er að ræða bílastæði fyrir 340 bíla og tilheyrandi
lóðarfrágang.
Útboðsgögn verða afhent á Almennu verkfræðistof-
unni, Fellsmúla 26. Reykjavík, eftir kl. 13.00 þriðju-
daginn 30. maí 1989.
Fyrirspurnir og óskir um upplýsingar skulu berast
Almennu verkfræðistofunni eigi síðar en 5. júní 1989.
Tilboðum skal skilað til byggingarnefndar,
varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins Skúla-
götu 63, 105 Reykjavík, fyrir kl. 14, mánudaginn 12.
júní 1989.
Byggingarnefnd flugstöðvar
á Keflavíkurflugvelli
Menntamálaráðuneytið
Innritun nemenda í fram-
haldsskóla í Reykiavík
fer fram í Miðbæjarskólanum í Reykjavík aagana 1. og 2.
júní n.k. frá kl. 9.00-18.00. Umsóknum fylgi Ijósrit af
prófskírteini.
Þeim nemendum 9. bekkjar sem þess óska er gefinn kostur
á persónulegri námsráðgjöf fyrir og samhliöa innrituninni.
Námsráðgjöfin fer fram í Miðbæjarskólanum og hefst mánu-
daginn 29. maí kl. 9.00 og stendur til kl. 16.00 föstudaginn
2. júní.
Þeir sem óska eftir að tala við námsráðgjafa þurfa að skrá
sig í viðtal með nokkrum fyrirvara. Skráning í viðtöl fer fram
á sama tíma og sama stað, sími 16491.
Menntamálaráðuneytið.
PSORIASISSJÚKLINGAR
Ákveðin er ferð fyrir psoriasissjúklinga 20. ágúst
nk. til eyjarinnar Lanzarote á heilsugæslustöðina
Panorama.
Þeir, sem hafa þörf fyrir slíka ferð, snúi sér til
húðsjúkdómalækna og fái vottorð frá þeim.
Sendið það merkt nafni, heimilisfangi, nafnnúmeri
og símatil Tryggingastofnunarríkisins, Laugavegi
114, 3. hæð.
UMSÓKNIR VERÐA AÐ HAFA BORIST FYRIR 23. JÚNÍ.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS.
Atvinnumiðlun
skólafólks í Kópavogi
Fyrirtækjum í Kópavogi er bent á atvinnumiðlun
skólafólks í bænum, vanti þau starfsmenn, annað-
hvort tímabundið eða í allt sumar.
Atvinnumiðlunin er til húsa að Fannborg 2 (Félags-
heimilinu). Sími 41444.
----------------------------------------------------------.
Sölutjöld 17. júní 1989 í
Reykjavík
Þeir sem óska eftir leyfi til sölu úr tjöldum á þjóðhátíðardaginn
17. júní 1989 vinsamlegast vitjið umsóknareyðublaða
að Frikirkjuvegi 11, opið kl. 08.20-16.15.
Athygli söluhafa er vakin á því að þeir þurfa að afla
viðurkenningar Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkursvæðis á
sölutjöldum og leyfi þess til sölu á viðkvæmum neysluvörum.
Umsóknum sé skilað í síðasta lagi
mánudaginn 5. júní kl. 12.00.
V_________________________________
llllllllilll
VETTVANGUR
Ásgeir Hannes Eiríksson:
Vísitöluna eða lífið!
Mývatnssveitin er engri lík og rómuð fyrir fallega natturu
og merkilegt fuglalíf. Á engan er þó hallað þegar vinur okkar
Starri í Garði er nefndur til sögunnar í fremstu röð á meðal
jafningja í sveitinni. Á engan hallað.
í Þjóðviljanum þann 23. maí er snörp ádrepa frá Starra í
Garði um okurvexti. Þar sem ég óttast að hún hafí farið fyrir
norðan Garð og neðan á mörgum betri bæjum samvinnum-
anna um landið vil ég leyfa mér að taka undir með karlinum.
Vaggan og gröfin
Hér þarf ekki að fara mörgum
orðum um gildi Kaupfélags Þingey-
inga fyrir sitt byggðarlag og reyndar
landsmenn alla um leið. Að ó-
gleymdu sögulegu gildi kaupfélags-
ins fyrir samvinnuhreyfinguna á Is-
landi á leið hennar frá vefurunum í
Rochdale í Bretlandi og út í hinar
dreifðu byggðir landsins. Kaupfélag-
ið er vagga samvinnumanna hér á
landi og nöfn á borð við Tryggva
Gunnarsson og Benedikt á Auðnum
og Jónas frá Hriflu verða áfram
helgidómur í minningu samvinnu-
manna í Þingeyjarsýslu og um allt
land.
En nú er verið að taka þessu fyrsta
kaupfélagi Islendinga ótímabæra
gröf með vöxtum og vísitölu. Það er
verið að urða minningu Benedikts á
Auðnum með okurvöxtum í sjóða-
kerfi landsins.
Nú kunna gildir Framsóknar-
bændur vel að spyrja hvem fjandann
litlir og feitir fasistar úr miðborg
Reykjavíkur vilji upp á dekk innan
um félög samvinnumanna í Þingeyj-
arsýslu og minningu Benedikts frá
Auðnum. Svona frjálshyggjuhvolp-
ar hafi nú hingað til lagst á sveif með
óhamingju samvinnumanna við
hvert tækifæri. Þetta em sjálfsagt
orð að sönnu en málið er bara ekki
svona einfalt:
Bókin og bréfin
Starri í Garði segir okkur frá
tölum úr bókhaldi Kaupfélags Þing-
eyinga í sinni beittu hugvekju. Þar
má lesa að kaupfélagið borgi meiri
peninga í vexti og vísitölu á síðasta
ári en það greiddi í laun til allra
starfsmanna. Þetta er kjarni málsins
og kemur okkur öllum við því Kaup-
félag Þingeyinga er því miður ekki
eitt á báti.
Stundum sleppa í gegn um Alþingi
íslendinga lög sem valda þjóðinni
meiri usla en þau gera gagn. f þeim
hópi eru þau lög sem búið hafa til
mælistikur á verðlag sem heita vísi-
tölur og hafa losnað úr öllum bönd-
um eins og Femisúlfur í ragnarökum
í Snorra Eddu. 1 stað þess að vera
óháður mælikvarði á stöðu mála í
þjóðfélaginu þá er lánskjaravísitalan
orðin að tröllaukinni vindmyllu sem
skrúfar skuldir landsmanna upp úr
öllu valdi.
Það gengur ekki til lengdar að
verðtryggja skuldir manna á meðan
tekjum er haldið niðri. Það gengur
ekki upp. í heilbrigðu þjóðfélagi
þekkist aðeins ein tegund vaxta: Sú
tegund sem atvinnulífið stendur
undir og ræður við að borga á
hverjum tíma. Svo einfalt er það nú.
Þjóðfélagið verður að tryggja sparn-
að landsmanna á annan hátt en að
mylja undir sig atvinnureksturinn í
landinu. Eða hvers virði er bústin
bankabók yfir moldum Kaupfélags
Þingeyinga? Hvers virði er hnefafylli
af hávaxtabréfum á dys minninganna
frá Auðnum? Ég gæti trúað að
sönnum samvinnumanni þættu það
légleg býti.
Kalk í gluggum
En örlög Kaupfélags Þingeyinga
eiga sér því miður marga nafna um
allt landið og ekki síst í miðborg
Reykjavíkur. Þar er daglegt brauð
að menn loki dyrum búða sinna í
hinsta sinn og máli hvítt kalk á
glugga. Vegfarendur eru fyrir löngu
hættir að kippa sér upp við þau
verksummerki. Daglegt brauð. Það
er eins og örlög manna í smárekstri
nái aldrei eyrum manna í stjómar-
ráðinu. Til þess erum við líklega of
smáir í sniðum. Okkar gjaldþrot og
brostnar vonir skipta ekki máli þegar
dregin eru súlurit um stöðu þjóðfé-
lagsins. Þar gilda önnur lögmál:
Þeim var nær.
En þegar Kaupfélag Þingeyinga
er komið fram á heljarþröm og
vagga samvinnumanna er að breyt-
ast í gröf þeirra þá er lag fyrir smærri
bændur að hrópa úlfur, úlfur! Þótt
betri bændum þyki við vera heldur
ómerkilegir samferðamenn þá bíður
okkar nú sama banameinið að
leiðarlokum.
Þess vegna hljóta nú allir góðir
menn að taka undir með Starra í
Garði af öllu afli. Vísitalan verður
að víkja áður en það verður um
seinan. Ég treysti þvf að boðskapur
Starra í Garði fari ekki fyrir daufum
eyrum um landsbyggðina í dag.
Slíkir áhrifamenn eru í hópi lesenda
Tímans að dagar vísitölunnar eru
taldir um leið og þeir beita sér. Það
er á hreinu.
Steingrímur á völina
Við heitum því á ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar: Kaup-
félag Þingeyinga er í kjördæmi Guð-
mundar Bjamasonar og Halldór
Ásgrímsson er kominn af frægum
samvinnumönnum að langfeðgatali
Bæði Jón Baldvin Hannibalsson og
Ólafur Ragnar Grímsson töluðu fyr-
ir smárekstri og samvinnurekstri f
síðustu kosningahríð. Það sama má
segja um fleiri ráðherra og flesta
þingmenn stjórnarinnar.
Þó Sjálfstæðisflokkurinn hljómi
fallega á stórafmælum þá er hann
áfram sextugur varðhundur okur-
vaxtanna í landinu. Hann hefur
ekkert lært með árunum. En það
gerir heldur ekkert til því hans gerist
ekki lengur þörf. Þingmenn Borg-
araflokks em til dæmis ekkert annað
en fulltrúar smáreksturs og verka-
fólks fyrst og fremst. Vísitalan lendir
því brátt í minnihluta á Alþingi ef
dagar hennar eru ekki þegar taldir.
Steingrímur minn Hermannsson:
f dag átt þú kvölina sem fylgir
völinni. Vilt þú standa yfir moldum
atvinnulífsins í landinu eða yfir
moldum lánskjaravísitölunnar? Þú
ræður, kæri frændi!
Með samvinnukveðju,
Ásgeir Hannes Eiríksson
Prestskosningar í Fríkirkjunni
Ferill stjórnar Fríkirkjusafnaðar-
ins er óslitin röð af lögbrotum og
gerræðisfullum uppátækjum.
Fyrst víkur stjórnin presti, sem
naut hylli safnaðarbarna og hafði
góða kirkjusókn.
Rógsherferðin á hendur sr. Gunn-
ari Björnssyni er dæmi um aðför í
stíl galdra-ofsókna, svo er heiftin
blind og hatrið botnlaust. Eftir að sr.
Gunnari var vikið úr starfi komu
fram háværar kröfur um safnaðar-
fund til þess að ræða málið og
afgreiða það. Þessar beiðnir bárust
frá fjölmennum hópi stuðnings-
manna sr. Gunnars. En stjórnin lét
þrjá mánuði líða og efndi þá loks til
safnaðarfundar í Gamla Bíói. Sá
fundur ályktaði, að uppsögn prests-
ins skyldi ógild og afturkölluð, auk
þess sem safnaðarmenn lýstu van-
trausti á stjórn Fríkirkjunnar og
skoruðu á hana að fara frá tafarlaust.
En stjórnin lét sem ekkert væri og
skellti skolleyrum við ályktunum
fundarins. Þess í stað efndi hún til
allsherjar-atkvæðagreiðslu í Álfta-
mýrarskóla og stóð ein og sjálf að
framkvæmdinni. Það getur hver
maður sagt sér sjálfur, hve mikið er
að marka niðurstöðumar.
Enn biðja stuðningsmenn sr.
Gunnars um safnaðarfund, en
stjórnin lætur sem hún heyri það
ekki, þótt lög Fríkirkjunnar skyldi
stjórn til þess að verða við óskum
um safnaðarfundi.
Aðalfundurinn í Háskólabíói 15.
apríl er raunar ólögmætur, af því að
húsinu var lokað áður en fundur var
formlega settur. Af þessu leiddi, að
fjöldi fólks komst ekki inn á fundinn,
auk þess sem sumum var neitað um
kjörgögn og kosningaseðla, stund-
um á þeirri forsendu, að „þeir kysu
vitlaust".
Nýjasta uppákoma hjá stjórninni
er prestskosningar, sem fara skulu
fram dagana 3. og 4. júní næst
komandi. En þá bregður svo við, að
starf fríkirkjuprests er ekki auglýst
laust, eins og lög safnaðarins gera
ráð fyrir. Þess í stað er tilkynnt, að
einn maður sé í kjöri, sr. Cecil
Haraldsson, sem stjórnin réð á sín-
um tíma til bráðabirgða.
Hvað skyldi Prestafélagi íslands
finnast um þetta? Hvað þykir prest-
um landsins um þessi vinnubrögð?
Hvers vegna er þeim öllum nema
einum meinað að sækja um starf
þetta? Er það einvörðungu til þess
að koma í veg fyrir að sr. Gunnar
sæki um brauðið?
Ég held, að við fríkirkjufólk ætt-
um að fjölmenna á kjörstað í Bet-
aníu við Laufásveg og láta í ljós
vandlætingu okkar á athæfi stjórnar-
innar með því að skila auðu. Auður
atkvæðaseðill táknar andmæli við
hinum ólýðræðislegu aðferðum nú-
verandi stjórnar Fríkirkjusafnaðar-
ins í Reykjavík.
Það er mál að linni.
Reykvíkingur.