Tíminn - 27.05.1989, Page 11
Laugardagur 27. maí 1989
Tíminn 23
Vígreifir skæruliðar Kúrda hafa fært sig upp á skaftið í suðausturhluta Tyrklands þar sem Hinn marxíski
verkamannaflokkur Kúrda berst fyrir sjálfstjórn hinna 8 milljón Kúrda í Tyrklandi. Þrjátíu og þrír hafa fallið í
átökum skæruliða og Tyrkja undanfarið.
FRETTAYFIRLIT
PEKING - Harðlinumenn
innan kínverska kommúnista-
f lokksins hafa haldið uppi hörð-
um árásum á Zhao Ziyang og
sökuðu harðlínumennirnir
ónafngreint fóik um að hafa
skipulagt í leyni aðför að valdi
kommúnistaflokksins. I Hong
Kong tóku tugþúsundir ung-
menna þátt í göngum til stuðn-
ings námsmönnum (Kína.
MOSKVA - Hið nýja þing
Sovétríkjanna hafnaoi hug-
myndum um að embættis-
mönnum kommúnistaflokksins
oq ríkisstjórnarinnaryrði mein-
að að starfa i þeirri löggjafar-
samkundu sem nýja þingið
mun kjósa, en margir teija að
vald enbættismanna verði þá
of mikið.
DAKAR - Abdou Diouf for-
seti Senegal hafnaði aigerlega
að ríki sitt héldi í stríð gegn
Márítaníu og er það í fyrsta
sinn sem Diouf tekur fyrir
möguleika á styrjöld frá þvi
hundruð manna voru myrtir í
kynþáttaóeirðpm i þessum
tveimur ríkjum Vestur-Afríku.
WASHINGTON -George
Bush forseti Bandaríkjanna
hélt til Rómar þar sem hann
mun ræða við ítalska framá-
menn áður en leiðtogafundur
Nato hefst í Brussel á mánu-
dag. Bush ku hafa í farteskinu
hugmyndir um fækkun í herliði
Bandaríkjamanna í Evrópu og
er talið að fundurinn á mánu-
dag verði prófraun á það hvort
Bush er fær um að leiða vest-
ræna hernaðarsamvinnu.
Varnarmálaráðherrar Vestur-
Þýskalands og Breta sátu á
fundum í London til að reyna
að jafna ágreining ríkjanna um
skammdrægar kjarnaflaugar í
Evrópu, en hvorki rak né gekk.
Hins vegar mjakaðist í viðræð-
um um það hvernig höndla eigi
eftirlit með vígbúnaði.
LONDON - Tékkar hafa
vísað fjórum Bretum úr landi
og svarað þannig brottvísan
fjögurra tékkneskra sendiráðs-
starfsmanna frá Bretlandi, en
þeim var vísað á brott í fyrra-
dag.
MOSKVA - Viktor Karpov
aðalsamningamaður Sovét-
manna í vígbúnaðarviðræðum
stórveldanna í Vin sagði að
Bandaríkjamenn væru langt
því frá reiðubúnir til að ræða
smáatriði i viðræðum stórveld-
anna um samdrátt í vígbúnaði.
Herskáir Kúrdar sem berj-
ast fyrir stofnun sjálfstæðs
ríkis í Kúrdistan, hafa heldur
betur látið að sér kveða í
suðausturhluta Tyrklands
undanfarna daga. Þrjátíu og
þrír hafa fallið í átökum
skæruliða Kúrda og tyrk-
neskra hermanna á tveimur
svæðum nærri landamærun-
um að íran, írak og Sýrlandi.
Bardagar þessir eru þeir hörðustu
sem orðið hafa í Tyrklandi milli
skæruliða Hins marxíska verka-
mannaflokks Kúrda og tyrkneska
hersins frá því skæruliðarnir hófu
skæruhernað í Tyrklandi um mitt ár
1984.
Sex hermenn og sex skæruliðar
féllu í átökum í gær 20 km frá
landamærunum að Irak og Sýrlandi
og í Hakkarihéraði sem liggur að
landamærum íran og írak. Skærulið-
amir vom vopnaðir sovéskum Kal-
ashnikov rifflum og handsprengjum.
Á mánudag féllu þrettán skæmlið-
ar og tveir hermenn í bardaga á
þessum slóðum. Þá féllu tveir
óbreyttir Tyrkir í vélbyssuskothríð
skæmliða á langferðabíl og einn
fórst er hann steig á jarðsprengju.
Tæplega fimmtánhundmð manns
hafa fallið, ýmist í átökum skæruliða
Kúrda og tyrkneska hermanna, eða
á árásum skæruliðanna á þorp á
þessum slóðum, frá því vopnuð
barátta Hins marxíska verkamanna-
flokks Kúrda hófst fyrir fimm árum.
Berjast Kúrdarnir fyrir sjálfstjórn
hinna átta milljón Kúrda sem búa
flestir í suðaustur Tyrklandi.
Draumur Kúrdanna er þó að
stofna sitt eigið ríki, Kúrdistan.
Fyrir því hafa þeir barist um áratuga
skeið bæði í frak og íran. Lengi vel
var hagur þeirra ágætur í íran þar
sem Reza Pahlavi fyrrum keisari
fran lét Kúrda um sín mál. Á sama
tíma gerðu írakar harða atlögu að
Kúrdum í frak og stóðu Kúrdar í
skæruhemaði þar um áratuga skeið.
Nú ríkir logn á undan stormi í
Beirút þar sem vopnaviðskipti hafa
legið niður á meðan leiðtogafundur
Arababandalagsins stóð. Búist er
við enn harðvítugri átökum en áður
á milli sýrlenskra hersveita og sveita
múslíma í Líbanon við hersveitir
kristinna manna í Beirút. Hefur
ríkisstjórn ísrael haldið sérstakan
fund vegna þess ástands sem nú er
að skapast í Líbanon, en ísraelar
hafa stutt dyggilega á bak við vopn-
aðar sveitir kristinna manna í
suðurhluta Líbanon.
Sýrlendingar stóðu af sér þrýsting
hófsamari Arabaríkja á leiðtoga-
fundinum sem vildu að Sýrlendingar
drægju 40 þúsund manna setulið sitt
á brott frá Líbanon. f staðinn var
gert ráð fyrir að sameiginlegt friðar-
gæslulið Árababandalagsins tæki við
hlutverki Sýrlendinga og héldi uppi
reglu í hinu stríðshrjáða landi í
samræmi við friðartillögur Araba-
bandalagsins.
Sýrlendingar munu sitja sem fast-
Á síðari árum valdatíðar sinnar
hertu íranar að Kúrdum á ný svo
Kúrdar börðust á tveimur vígstöðv-
um. Eftir byltinguna í íran var
klerkastjórnin hörð gegn Kúrdum
sem öðrum sjálfstæðum þjóðarbrot-
um eða trúarhópum sem ekki fylgdu
Khomeini dyggilega. En þegar írak-
ar réðust á Iran sneri klerkastjórnin
við blaðinu og beittu íranar Kúrdum
fyrir sig í styrjöldinni gegn frökum.
Fyrir það svöruðu írakar fyrir sig á
síðasta ári eftir að vopnahlé náðist
við frana og gerðu harða atlögu að
skæruliðum Kúrda í norðausturhluta
írak og beittu meðal annars efna-
vopnum.
í kjölfar þessa hafa Kúrdar flúið í
tugþúsundavís frá írak til landa-
ast og er því talið að bardagar muni
brjótast út að nýju næstu dægur, því
Michel Aoun forsætisráðherra í
bráðabirgðaríkisstj órn kristinna
manna í Líbanon og yfirmaður her-
afla kristinna hefur heitið því að
hrekja Sýrlendinga frá Líbanon þó
það þurfi að leggja Beirútborg
endanlega í rúst, eða liggja í valnum
ella.
Orðrómur er á kreiki um að
Sýrlendingar hafi undirbúið enn
veigameiri stórskotaliðsárásir á
svæði kristinna manna og hyggist
brjóta andspyrnu þeirra að fullu á
bak aftur. Hersveitir kristinna
manna í Beirút og nágrenni eru
reiðubúnir að svara í sömu mynt
eins og hingað til, en hersveitir
þeirra í norðurhluta Líbanon hafa
fengið mikið magn hergagna frá
frökum sem styðja þá dyggilega,
enda hafa írakar og Sýrlendingar
eldað grátt silfur saman undanfarna
þrjá áratugi.
Það voru einmitt írakar sem sóttu
mærahéraða Tyrklands þar sem þeir
búa nú í flóttamannabúðum við illan
leik þó Tyrkir hafi gert sitt til að
aðstoða flóttafólkið.
Það eru yfirleitt ekki Kúrdar sem
flúðu frá írak sem standa fyrir árás-
um á Tyrki, heldur eru það yfirleitt
Kúrdar sem alla tíð hafa búið í
fjalllendinu í suðausturhluta
Tyrklands. Enda eru ekki liðin nema
fimm ár síðan hin öfgafullu skæru-
liðasamtök Kúrda hófu allsherjar-
stríð gegn Tyrkjum.
Hinn marxíski verkamannaflokk-
ur Kúrda var mjög í sviðsljósinu
þegar Hans Holmér lögreglustjóri f
Stokkhólmi staðhæfði að hryðju-
verkamenn á þeirra vegum hefðu
myrt Olof Palme forsætisráðherra
hvað fastast að Sýrlendingar yfir-
gæfu Líbanon og hélt Saddam
Hussein forseti írak heim á leið frá
Casablanca í bítið í gærmorgun
þegar ljóst var að Sýrlendingar héldu
sínum hlut.
Eins og áður sagði hafa ísraelar
miklar áhyggjur af þróun mála í
Líbanon eftir að ljóst var hvert
stefndi á leiðtogafundi Arababanda-
lagsins. Sáu hernaðaryfirvöld ástæðu
til þess að nema á brott hluta
fréttaskeyta reutersfréttastofunnar
sem fjölluðu um skyndifund ísra-
elsku stjórnarinnar. Þá sendi herinn
ísraelskar herþotur inn yfir landa-
mæri Líbanon í gærmorgun, en ráð-
herrar lögðu þó ríka áherslu á að
ekki stæði til að senda ísraelskt
herlið inn í Líbanon.
Þrátt fyrir það gætu veður skipast
í lofti ef Sýrlendingar þrengja mjög
að hersveitum kristinna manna í
Líbanon, þá gæti vel hugsast að
ísraelar teldu nauðsynlegt að senda
herlið inn í Líbanon líkt og gerðist
1982.
Svíþjóðar á sínum tíma. Frá þeim
tíma hafa Kúrdar í Svíþjóð átt mjög
undir högg að sækja og mikið borið
á ofsóknum gegn þeim. Kúrdar eru
nokkuð fjölmennir í Svíþjóð enda
flóttamannastraumur frá Kúrdistan
stríður.
Almenningsálitið í Svíþjóð hefur
hins vegar snúist aðeins aftur á sveif
með Kúrdum eftir að fréttist af
hinum grimmilegu efnavopnaárás-
um íraka í þorp Kúrda.
Þess ber að gæta að þótt Hinn
marxisti verkamannaflokkur Kúrda
sé mjög áberandi í baráttunni gegn
Tyrkjum og hafi staðið fyrir hryðju-
verkum, þá ber þess að gæta að
flokkurinn á ekki víðtækan stuðning
meðal hins almenna Kúrda.
Reyndar fengu íbúar hafnarborg-
arinnar Trípólí í norðurhluta Líban-
on nasaþefinn af því sem að líkind-
um koma skal, en þar sprakk öflug
bílasprengja í hverfi múslíma
skömmu eftir að niðurstöður Ieið-
togafundar Arababandalagsins urðu
ljósar. Engin slys urðu á mönnum,
en eldur kom upp í nærliggjandi
húsum.
Þó ekki hafi tekist að fá Sýrlend- .
inga til að draga herlið sitt frá
Líbanon, þá náði Arababandalagið
samstöðu um það að skipa Hassan
konung Marokkó, Chedli Benjedid
forseta Alsír og Fahd konung Saudi-
Arabíu í sérstaka nefnd sem falið er
að stilla til friðar í Líbanon og reyna
að koma á fót nýrri ríkisstjóm í
samræmi við stjórnarskrá landsins,
Til þess fá þeir félagar sex mánuði.
Þá varð eining um það hjá Araba-
bandalaginu að viðurkenna Yasser
Arafat sem leiðtoga Palestínu og
lagði Arababandalagið blessun sína
yfir störf hans undanfarið.
Sýrlendingar urðu ofan á á leiðtogafundi Arababandalagsins og munu ekki draga herlið sitt frá Líbanon:
Logn á undan storminum
í stríðshrjáðu Líbanon