Tíminn - 01.06.1989, Qupperneq 2
Fknmtudagur.1..jún.í 1989
2 'Tíminn
Þó svo búið hafi verið lýst gjaldþrota munu hvolpar að öllum líkindum vaxa úr grasi, þar sem allt bendir til að Landsbankinn muni reka búið áfram.
Tímamynd'.Pjetur
Stærsta loðdýrabú
landsins gjaldþrota
Stæðsta loðdýrabú landsins, Pólarpels að Böggvisstöðum
á Dalvík hefur verið lýst gjaldþrota. Þorsteinn Már Aðal-
steinsson eigandi og framkvæmdastjóri fyrirtækisins sagði að
ekki væri Ijóst hversu gjaldþrotið væri stórt þar sem allar
kröfur í búið hefðu ekki borist.
Þorsteinn sagði í samtali við Tím-
ann helstu ástæður gjaldþrotsins
væru fjármagnskostnaður, fastgengi
og verðfall á skinnum. „Það sem
aðskilur þetta fyrirtæki frá öðrum er
að svo virðist sem það hafi alltaf
verið sett til hliðar út af stærð eða
öðru. Ég hef verið með svo margfalt
dýrara fjármagn í þessu en aðrir, ef
maður miðar við aðra í þessari
grein. Ég hef ekki fengið aðgang í
lán og keyrt þetta undanfarin ár á
rándýru fjármagni, dráttarvöxtum
og þar fram eftir götunum,“ sagði
Þorsteinn. Hann sagði að honum
sýndist að aðrir í þessari grein ættu
nógu erfitt með að halda rekstrinum
gangandi, þrátt fyrir að hafa notið
björgunaraðgerða.
Aðalsteinn sagði að skuldir sam-
kvæmt ársuppgjöri við síðustu ára-
mót hefðu verið um 150 milljónir
króna. Hér er um að ræða allan
kostnað síðasta árs, en þá er ekki
reiknað með því sem kemur til
frádráttar af sölu skinna. Að öðru
Ieyti koma eignir Aðalsteins á móti
kröfum í búið. „Ég vildi standa eða
falla með þessu sjálfur og hef aldrei
farið í vini eða vandamenn til að
biðja þá um að skrifa upp á eitt eða
neitt, þannig að það er bara ég
sjálfur," sagði Aðalsteinn. Hann
sagði að helstu kröfuhafarnir væru
bankar og sjóðir. Þegar hann óskaði
eftir gjaldþroti lagði hann fram til-
lögu að nauðarsamningum, en það
yrði að koma í ljós hvort vilji væri-
hjá mönnum að halda áfram. Nær
fullvíst er talið að stærsti kröfuhaf-
inn, Landsbankinn, muni reka búið
eitthvað áfram.
Búið telur um 5000 minkalæður
og um 20 þúsund hvolpa, en sl. haust
voru allar refalæðurnar 840 að tölu
skornar niður. Búinu var komið á
stofn 1971.
Aðspurður hvort hann ætti von á
að fleiri ioðdýrabú kæmu til með að
fylgja í kjölfarið, sagðist hann ekkert
vilja um það segja og best að hver
svari fyrir sig. -ABÓ
Plastskip
til sýnis
Tundurduflaslæðarinn HMS Led-
bury í breska flotanum kemur í 6
daga heimsókn tii Reykjavíkur 2.
júní nk.
Skipið er óvenjulegt fyrir þær
sakir að skrokkur þess er úr plasti
styrktu trefjagleri til þess að minnka
seguláhrifin, en þetta skip ásamt
systurskipum sínum eru þau stærstu
sem smíðuð hafa verið úr plasti til
þessa. Það er 60m á lengd og 675t að
eigin þyngd en það var smíðað í
Southampton fyrir 10 árum.
Áhöfnin telur 6 foringja, níu yfir-
menn og 29 aðra. Skipið er búið
margvíslegum tækjum þar á meðai
mannlausum dvergkafbát til þess að
leita uppi og granda tundurduflum á
floti sem og sjávarbotni.
HMS Ledbury verður til sýnis
fyrir almenning í gömlu höfninni kl.
14-16 á laugardag, 3.júní. -gs
Veiðimenn í
árnar í dag
f dag er fyrsti laxveiðidagurinn í
nokkrum ám landsins. Þverá og
Norðurá voru opnaðar í morgun og
köstuðu veiðimenn fyrsta kastinu kl
7:00.
Veiðitímabilið leggst ágætlega í
veiðimenn í Norðurá og er ástandið
á ánni mjög gott. Mikið og hreint
vatn er f henni og verður eflaust
langt fram á sumar þar sem mikill
snjór er enn í fjöllum.
Ekki hefur verið mikil umferð um
veiðisvæðið og hefur þar af leiðandi
enginn komið auga á lax. En fiski-
fræðingar hafa spáð miklum göngum
stórlaxa í Norðurá og raunar í allar
ár í Borgarfirði.
Þverá mórauð
f Þverá er ástandið ekki eins gott.
Áin er enn mórauð og ekki eins
vatnsmikil og margar aðrar, en yfir-
leitt hreinsar hún sig á nokkrum
dögum svo veiðimenn þurfa ekki að
andvarpa. Mikill snjór er í fjöllum
og vatn ætti þvf að aukast með
hlýnandi veðurfari.
Uppselt er í öll fyrstu hollin í
Þverá en fyrsta hollið stendur í þrjá
daga og eru sjö stangir í ánni. í
Norðurá er hins vegar enn hægt að
fá nokkrar stangir dagana 6.-9. júní.
Á næstu dögum opna árnar hver á
eftir annarri, margar í kringum
lO.júní.
LÖGÐ FRAM KÆRA VEGNA
SPRENGJUHÓTUNARINNAR
157 stúdenta
Brautskráning stúdenta frá
Menntaskólanum við Sund fór
fram laugardaginn 27.maí s.l. í
Háskólabíói. Alls voru braut-
skráðir 157 stúdentar og er þetta
sautjándi hópurinn sem útskrifast
frá skólanum, en MS á 20 ára
afmæli á þessu ári.
Flestir stúdentar brautskráðust
úr náttúrufræðiskor eða 54.
Einnig komu 34 úr eðlisfræði-
skor, 22 úr félagsfræðiskor, 19 úr
hagfræðiskor og jafnmargir úr
málaskor II. Þá voru 9 braut-
skráðir úr málaskor I.
Hæstu einkunn nýstúdenta
hlaut Dagbjört Sigvaldadóttir úr
náttúrufræðiskor með fullnaðar-
einkunnina 9,4.
Tveir stúdentar útskrifuðust af
tveimur námsbrautum, þær Gyða
Stephensen og Anna Rún Atla-
dóttir. -gs
ítalinn sem FBI handtók í Miami
þar sem hann sagðist vera með
sprengju í farangrinum kom fyrir
rétt þann 26. þessa mánaðar. Pan
Am flugfélagið hefur lagt fram kæru
á hendur honum fyrir hótanir um
sprengju sem ekki áttu við rök að
styðjast og fyrir að trufla áhöfn
vélarinnar við starf sitt. Honum var
gert að greiða fimm þúsund dollara
tryggingu og kæran verður tekin
fyrir fljótlega. Ekki er vitað hvort
hann greiddi tryggingarféð eða hvort
hann situr inni þar til málið verður
tekið fyrir.
Eins og greint var frá í Tímanum
var íslensk stúlka, Anna María
Bjarnadóttir, aðalvitni FBI í málinu
þar sem hún sat við hlið mannsins í
flugvél á leið frá Kennedy flugvelli í
New York til alþjóðlega flugvallar-
ins í Miami, fyrir viku.
I flugvélinni voru um 270 manns,
farþegar og áhöfn.
„ Atburðarásin var á þá leið að um
fimmtán mínútum eftir flugtak ætl-
aði ítalskur skartgripasali sem vinn-
ur á vegum ítalsks fyrirtækis í New
York, á snyrtingu í aftari enda
vélarinnar. Flann hafði stress-tösku
meðferðis og ein flugfreyjanna
spurði hvers vegna hann ætlaði að
taka töskuna með sér inn á snyrting-
una. Að sögn flugfreyjunnar sagðist
maðurinn þá vera með sprengju í
töskunni. Áhöfnin leitaði í tösku
mannsins og á snyrtingunni en fann
enga sprengju. Því næst létu þau
bandarísku alríkislögregluna vita af
þessum atburði. FBI fór ásamt lög-
reglunni um borð í flugvélina við
lendingu, þegar klukkan var tuttugu
mínútur gengin í eitt að staðartíma,
og tók manninn fastan. Nokkrir
farþeganna voru síðan yfirheyrðir í
flugstöðinni," sagði Paul Miller
starfsmaður FBI á Miami í samtali
við Tímann.
ítalinn var settur í fangelsi og
kom, eins og áður sagði, fyrir rétt
þann 26. „Honum var gert að greiða
um fimm þúsund dollara tryggingu
sem ég geri ráð fyrir að hann hafi
gert en get þó ekki fullyrt það. Hann
mun mæta fyrir rétti aftur þar sem
flugfélagið hefur lagt fram kæru á
hendur honum fyrir sprengjuhótun
sem ekki átti við rök að styðjast og
fyrir að trufla áhöfnina við starf
sitt,“ sagði Paul. jkb